Helgarpósturinn - 28.12.1995, Síða 7
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER1995
7
Það sem er flestum Islendingum efst í huga sem það hræðilegasta sem
gerðist á síðasta ári eru snjóflóðin mannskæðu á Vestfjörðum. Sorgin sem
grúfði þá yfir lét engan ósnortinn.
Ami Mathiesen: „Þegar maður hugsar um
það versta á árinu kemst maður ekki hjá því að
hugsa um mannskaðasnjóflóðin. Þær hörmung-
ar yfirgnæfa allt annað þó að maður hafi ekki
lent í því persónulega heldur sem einstaklingur
í 260.000 manna þjóðfélagi.
Það dapurlegasta í pólitíkinni var þegar slitn-
aði upp úr meirihlutasamstarfinu í Hafnarfirði,
Það er allt hið dapurlegasta mál en leysist eins
og önnur.“
Sonja B. Jónsdóttir: „Versta áfallið sem
hefur riðið yfir þjóðina eru snjóflóðin á Súðavík
og Flateyri þar sem fjöldi fólks fórst og fjöl-
margir misstu sína nánustu ástvini. Svo er Guði
fyrir að þakka að það kom ekkert sérstaklega
slæmt fyrir mig eða mína á þessu ári, en maður
hefur áhyggjur af því að ekki skuli vera hægt að
greiða hærri laun hér á íslandi og að ekki skuli
leiðrétt það launamisrétti milli kynjanna sem
var staðfest í skýrslu sem kom fram á þessu ári
og hefur fengið að viðgangast. Ég hef ekki orðið
vör við neinn vilja í til að breyta þessu.“
Birna Þórðardóttir: „Það versta er að við
stjórnartaumunum skyldi taka ríkisstjórn íhalds
og framsóknar, en stefna þeirrar stjórnar mun
leiða til enn frekari niðurrifsstarfsemi og mis-
skiptingar. Þetta eru mannanna verk en hitt,
sem enginn fékk við ráðið, var enn hörmulegra.
Þar á ég við afleiðingar snjóflóðanna á Flateyri
og í Súðavík."
Þorvaldur B. Þorvaldsson: „Það versta
var að ég hafði ekki tíma til að gera Tweety-
plötu, sem hefði verrið full af frumsaminni tón-
list, en frumsaminnar tónlistar var sárt saknað
á jólamarkaðnum þetta árið. Við munum bæta
um betur og taka upp nýtt efni á nýju ári.“
Anna Hildur Hildibrandsdóttir: „Það
versta eru snjóflóðin á Vestfjörðum, við sáum
myndir af þessu í fréttunum í Bretlandi og það
var sárt að sjá hvað náttúruöflin léku landa okk-
ar grátt. Þetta er það sem er mér minnisstæð-
ast. Það var líka alger skandall að ráðamenn
skyldu skammta sjálfum sér launahækkanir
þegar almennt launafólk lepur dauðann úr skel.
Ef það er svo eitthvert mál sem ég gubba yfir á
fréttaferli mínum er það mál Rosemary og
Freds West á Englandi.“
Ögmundur Jónasson: „Það versta var þeg-
ar þjóðin fékk yfir sig ríkisstjórn Framsóknar-
og Sjálfstæðisflokks."
Elísabet Elma Líndal: „Það versta sem
kom fyrir mig á árinu var þegar ég skar mig í
þumalputtann, svo var ég líka klóruð. En það al-
versta var þegar Brandur lenti í bílslysi og dó
en Kobbi, hinn kötturinn, var orðinn svo gam-
all. Mér finnst gott að Kobbi skuli passa Brand
og hlýja honum á himnum."
Drífa Hrönn Kristjánsdóttir: „Tilvera sjö-
tíu prósenta kvenna er slæm nú þegar og það
hlýtur öllum að vera ljóst. Útkoma kvenna í síð-
ustu kosningum var forkastanleg og einnig það
að gefa einungis einni konu möguleika á ráð-
herradómi. Mér finnst afar slæmt að málflutn-
ingur Sjálfstæðra kvenna skuli hafa orðið til að
gefa Sjálfstæðisflokknum alibí í málefnum
kvenna. Svo kemur upp í hugann framkoma
Davíðs og málflutningur hans í EB-málinu, sem
var fyrir neðan allar hellur. Hann ætti að drífa
sig á Interrail með Ástríði, því manni virðist
sem hann hafi ekki komið til Evrópu. Að lokum
finnst mér þessi nýi búvörusamningur alger
skandall."
Ellen Kristjánsdóttir: „Snjóflóðin og sorg-
in í kringum þau eru það versta sem kemur upp
í hugann. Mér finnst ofbeldisþróunin og þessi
mannvonska, sem ég verð meira vör við, einnig
afar slæm. Það eiga allir að vera góðir hver við
annan á nýju ári sem og eftirleiðis."
Amal Rún Quase: „Það versta sem kom
fyrir þjóðina voru snjóflóðin, en fólkið allt í
kringum mann fylltist svo mikilli sorg að það
var líkt og það hefði sjálft orðið fyrir þessu.
Fólk mætti ekki í skólann og bar fyrir sig veik-
indi og ég sá einn kennara minn gráta opinber-
lega. Þá skildi ég fyrst hvað þessi þjóð er sam-
rýnd. Ef eitthvað kemur fyrir einn kemur það
fyrir alla.“
Dóra Takefusa: „Snjóflóðin á Vestfjörðum
voru það versta sem henti á þessu ári.“
Gangið hratt um gleðinnar dyr
Gera má ráð fyrir að X-kynslóðin sæki skemmti-
staðinn Síberíu um áramótin, því þar verða allir
helstu DJ-ar landsins í einum hnapp, enda aldrei
þessu vant heilar tvær hæðir í boði í ár. Meðal
skemmtisnúða í Síberíu á nýhafinni nýársnótt
verða þeir Robbi rapp, Ámi E, Margeir og sá nýj-
asti í hópnum, sem er reyndar kona að nafni
Helena. Þeim til aðstoðar er DJ-inn Mark Anthony
frá New York, sem ku vera þekktur í þessum geira
víða um heim. Aðeins verða seldir 200 miðar á Síb-
eríu á gamlárskvöld og þegar hafin forsala á þeim,
sem þýðir með öðrum orðum að þeir, sem líka telj-
ast tilheyra þessari kynslóð en fá ekki miða, verða
að bregða sér eitthvað annað. Má í því sambandi
nefna Tunglið og Ingólfscafé, sem verða með sinn
árlega áramótadansleik, en fyrir þá sem eru búnir
að fá nóg af dansleikjum um áramót má geta þess
að undanfarin ár hefur verið haldið risapartí í
Hraunholti í Hafnarfirði með barasta nokkuð ágætu
uppagengi innanborðs.
Þeir sem tilheyra hins vegar Kósý-kynslóðinni
koma sjálfsagt til með að leggja lykkju á ieið sína og
bregða sér af Hallærisplaninu alla leið upp á Hótel
ísland. Þar skemmta enda helstu goð ungu kynslóð-
arinnar, Páll Óskar og Emilíana Torrini.
Aðeins fjær miðbænum, á Ömmu Lú, ætlar Kiddi
Bigfoot einnig að halda áramótaveislu með tilheyr-
andi knöllum og höttum, en þess í stað verður eng-
inn nýársfagnaður á þeim bænum. Þótt ekki sé
komin mikil hefð á áramótadansleiki á Ömmu Lú
mun Kiddi sjálfsagt, eins og flestir aðrir, reyna að
höfða til X-kynslóðarinnar. Leikhúskjallarinn ætlar
hins vegar að reyna að höfða til þeirra, sem nú
dýrka diskóið, með hjálp Stjómarinnar. Knöll og
hattar og tilheyrandi verða einnig á veitingastað
hinna fráskildu, Astró, eftir miðnætti.
Einn frumlegasti áramótadansleikurinn á Stór-
Reykjavíkursvæðinu verður haldinn í Félagsheimili
Kópavogs með rokkhljómsveitinni Koi: Meðal
leynigesta á þeirri skemmtun er ein þulan úr Ríkis-
sjónvarpinu, en það sem meira er; hluti ágóðans
sem kann að verða af skemmtun þessari rennur til
Kópavogshælis.
Það er vonlaust að ætla að reyna að smokra sér
á nýársfagnað á Hótel Borg eða Perlunni. Á síðar-
nefnda staðinn var upppantað fyrir ári og þannig
hefur það nánast verið undanfarin fimm ár. Það er
ekki nema einhver flytjist utan eða bara hrökkvi
upp af að hægt er að bæta nýjum gestum inn á ný-
árslistann. Einnig er þó nokkuð síðan upppantað
var í matinn á Hótel Borg, enda meðal vinsælustu
nýársfagnaðanna í bænum. Hægt verður þó fyrir
þá, sem ekki voru nógu fljótir til, að komast inn að
afloknu borðhaldi.
Astró ætlar einnig að freista þess að koma upp
éinhverri nýársstemmningu og þar verður djamm-
að með fjórtán dægurlagasöngvurum.
/ Leikhúskjallaranum verður árviss dansleikur
undir stjórn þeirra Erlu Friðgeirsdóttur og Gulla
Helga. A meðan það kostar, svo dæmi sé tekið,
Rokkhljómsveitin Kol heldur áramótadansleik í
Félagsheimili Kópavogs.
7.900 krónur í matinn á Borginni kostar 4.500 krón-
ur í fjögurra rétta máltíð í Leikhúskjallaranum. Þar
að auki fylgir miði á skemmtunina í Kjallaranum,
það er að segja; sá sem snarlar getur selt þeim sem
hann langar til að fá inn á skemmtunina einn miða
á dansleikinn á eftir. Það þýðir jafnframt að ekki
verður opið fyrir hvern sem er á eftir.