Helgarpósturinn - 15.05.1996, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 15.05.1996, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR15. MAÍ1596 \ ósið fær... Bryndís Schram fyrir aö. bregöa sértil Cannes og telja þar meö til- kynningu Jóns Baldvins um framboö hans til forseta. ÞvT leng- ur sem Jón dreg- ur að tilkynna framboðið þeim mun meiri veröur eftirvænting lands-1! manna. En Bryndís kemur heim á sunnudaginn og þá verður ekki eftir neinu að bíöa. Þau hjón munu boöa fréttamenn á sinn fund á Vesturgötunni og op- inbera þá ákvöröun sína aö ætla aö bjóða sig fram sem forseta- hjón á Bessastaöi. Þau munu hins vegar ekki hafa börn sín með á þeim fundi, líkt og Ólafur Ragn- ar og Guðrún Katrín gerðu þeg- ar þau tilkynntu sitt framboö nokkru vestan viö Vesturgötuna, þaö er aö segja á Seltjarnarnesi. Annars er þaö svo, að eftir aö framboðsmál Jóns Baldvins komu til umræðu opinberlega kemur í Ijós að það eru ekki síöur skiptar skoðanir um hvort Bryndís sé heppileg húsfrú á Bessastöðum en hvort Jón eigi það skiliö aö veröa forseti eöa ekki. Má því ætla aö þau hjón veröi bæöi um- deild í kosningabaráttunni, sem er líka hrósvert hvaö Bryndísi varöar, því engum þykir taka því aö deila um maka annarra fram- bjóðenda. Þetta sýnir bara að Bryndís er kona sem vekur jafnan athygli og umtal hvar sem hún fer og því væri fengur aö framboði svo umdeildra hjóna sem Jóns og Bryndísar. Svo eru líka ýmsir sem vilja frekar fá Bryndísi sem forseta heldur en Jón Baldvin. Nú er Bryn- dTs að Ijúka störfum hjá Kvik- myndasjóði og því upplagt tæki- færi aö stefna í sviðsljósið á Bessastöðum... Amorgun, uppstigningardag, verður loks opnað kántríveit- ingahús í miöborg Reykjavíkur. Veitingahús þetta, sem í framtíð- inni mun hýsa margvíslega starf- semi, dregur nafn sitt af mekka sveitatónlistarinnar; borginni Nashville í Tennessee-fylki í Bandaríkjunum. Þykir mörgum það einmitt við hæfi aö nú á tímum vaxandi áhuga á útkjálkamenn- ingu skuli opnað kántríveitingahús á íslandi, en eitt gleggsta merkiö um vaknandi kántríáhuga hérlend- is er einmitt mikil aðsókn í nám í svokölluðum línudansi (hópdans) hjá dansskólum landsins í vetur. Auk þess mun stór hópur íslend- inga innan skamms leggja upp í pílagrímsför á kántríslóðir til Nashville. Það er Krístín Adolfs- dóttir, sem margir þekkja betur sem Stínu Stones, sem tekur af skarið og opnar veitingastaöinn, nánar tiltekið á horni Þingholts- strætis og Bankastrætis. Fáum sem til Stínu þekkja kemur þetta á óvart, enda annáluö sveita- menningarkona sem búiö hefur meira og minna í Nashville, Vegas og víöar undanfarin ár. Eftir því sem HP kemst næst notaði Krist- ín tímann ytra mjög vel og kom sér upp samböndum við þekkta sveitatónlistarmenn. Þar af koma fimm til íslands í tilefni opnunar- innar og nokkrir sjónvarpsmenn einnig, sem vilja verða vitni að opnuninni. í framhaldi af því stendur til aö fá þekkta ameriska sveitatónlistarmenn hingaö til lands á hálfsmánaöarfresti. í lok mánaðarins kemur svo til lands- ins fulltrúi frá Stockyard, sem val- ið hefur veriö í hópi fjörutíu bestu veitingastaöa í Bandaríkjunum, enda stendur til að reka þarna á sama staö alvöru kántrímatsölu- stað. Ef aö líkum lætur veröur inn- an skamms einnig hægt aö kaupa minjagripi í Nashville, panta sér kúrekahatta og gallabuxur í gegn- um pöntunarlista ogjafnvel fá kennslu í línudansi. Já nú verður gaman Dóra... Ástþór spjallar við Bill Clinton í Hvíta húsinu um frið og hamingju á jörð... Friðarhöfðinginn Ástþór Magnússon varð samkvæmt heimildum HP þess heiðurs aðnjótandi síðastliðið mánudagskvöld að vera einn af gestum í kvöldverðarveislu Bills Clinton í Hvíta húsinu í tilefni af tíu ára afmæli leiðtogafundarins í Reykjavík. Gandhi-stofnunin nýtti tækifærið þetta kvöld og afhenti Ástþóri sérstaka friðarviðurkenningu vegna starfa hans að mannúðarmálum. Ástþór mun jafnframt hafa fengið séns á því að spjalia við Clinton um sameiginleg hugðarefni — frið á jörð og hamingju öllum til handa. Pað eru ekki allir forsetaframbjóðendurnir svona flottir á því... Guðmundur Rafn Geirdal hefur ekki gefist upp við forsetaframboðið þrátt fyrir þungan róður: Búinn að fá 250 meðmælendur I Guðmundur Rafn: Búinn að setja alla rásina í gang. Sá frambjóðandi til forseta- kjörs sem hefur átt erfiðast uppdráttar í skoðanakönnun- um til þessa er Guðmundur Rafn Geirdal. Nú líður senn að því að frambjóðendur verði að skila inn nöfnum samtals 1.500 meðmælenda. Tekst Guð- mundi Rafni að ná tilskildum fjölda meðmælenda í tíma? „Þetta gengur nokkuð vel, en ef ég gæti hitt á einhvern mann sem gæti safnað þessu í snar- heitum tæki það ekki nema einn dag. Á þessari stundu mun ég vera kominn með um 250 meðmælendur samtals," sagði Guðmundur í stuttu spjalli við HP síðdegis í gær. Það vantar sem sagt marga ennþá? „Já, ég er ennþá langt frá markinu en það er búið að setja allt í gang. Núna eru átta manns að safna meðmælend- um með mér og ég er að auka auglýsingarnar. Auk þess er ég að senda út gögn til fólks og þetta ætti allt að skila einhverj- um árangri." En dugar það til? „Ég er búinn að setja alla rás- ina í gang. Það segir mér það að ef mér er á annað borð ætl- að að vera meðal forsetaefn- Sex atkvæði Olafs Ragnars Kð mikla fýlgi sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur fengið í skoð- inakönnunum fyrir forsetakosningamar hefur farið fyrír brjóstið á mörgum. Einn andstæðinga Ólafs hafði samband við HP og vildi minna á að ekki hefði Ólafur alltaf átt miklu fylgi að fagna. Fyrír allmörgum ár- um hefði hann farið í forkönnun Al- þýðubandalagsins á Austurlandi vegna þingkosninga. Þar hafi hann fengið sex atkvæði. Af þessu tilefni færði spaugari einn gamla vísu í nýj- an búning: Ólafur Ragnar, öll við þing œtlum næsta traustan. Sigling hans á sexœring sjást mun glœst að austan... ÞingAi- þýöu- sambands íslands verður hald- ið í íþrótta- húsinu í Digranesi I næstu viku. Þaö eru Lions- klúbbarnir í Kópavogi sem ann- ast allan undirbúning í húsinu fyrir þingiö. Lions- menn og konur þeirra munu annast ýmsa þjónustu viö þing- gesti, svo sem greiöasölu. Þeir sem reka fullkomna ráðstefnu- staði í borginni eru heldur óhressir með aö forysta Al- þýöusambandsins skuli ekki beina viöskiptum sínum þang- aö hvað varöar þinghaldiö. Þá þykir forystumönnum Félags starfsfólks í veitingahúsum það skjóta skökku viö ef Lions- menn og eiginkonur þeirra eiga að uppvarta þingfulltrúa Al- þýöusambands Islands og taka þar meö vinnu frá félags- mönnum... Jón Baldvin tilkynnir framboð á mánudaginn: Bíður heimkomu Bryndísar Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Helgarpóstsins mun Jón Baldvin Hannibals- son, formaður Alþýðuflokks- ins, tilkynna um forsetafram- boð sitt á mánudaginn. Ástæða þess að tilkynningar er ekki að vænta fyrr er sú að eiginkona Jóns, Bryndís Schram, er nú á kvikmynda- hátíðinni í Cannes og ekki væntanleg heim fyrr en á sunnudaginn. Þau hjón munu sameiginlega tilkynna fram- boðið. Stuðningsmenn Jóns Baldvins hafa tryggt sér efri hæð hússins á Vesturgötu 2 fyrir kosningaskrifstofu, en Kaffi Reykjavík er á neðri hæðinni. Þrýstingur á Jón Baldvin um að gefa kost á sér til for- setaframboðs hefur verið mikill og vaxandi síðustu daga. Sjálfur verst Jón allra frétta en eins og staðan er núna þykir ljóst að hann muni láta slag standa og gefa Jón Baldvin: Tilkynnir framboð á mánudag með Bryndisi sér við hlið. Mynd Jim Smart kost á sér, nema eitthvað óvænt komi upp. Hann bíður anna þá eru allar aðstæður fyr- ir hendi. Ef ekki, þá er bara sjálfhætt og ég þakka fyrir mig,“ sagði Guðmundur Rafn Geirdal. -sg nú eftir niðurstöðu skoðana- könnunar sem hann lét gera til að kanna fylgi sitt meðal almennings. Því aðeins að út- koman úr þeirri könnun verði mjög slæm mun Jón hætta við framboð. Að und- anförnu hefur Qöldi fólks rætt við Jón Baldvin um framboð og hann hefur sömu- leiðis borið málið undir þing- flokk Alþýðuflokksins, ýmsa vini og stuðningsmenn. Nánir samstarfsmenn Ólafs Ragnars Grímssonar segja að hann telji ólíklegt að Jón Baldvin geti ógnað því for- skoti sem hann hefur náð samkvæmt skoðanakönnun- um. Jón Baldvin muni frem- ur taka fylgi frá Guðrúnu Pét- ursdóttur og Pétri Kr. Haf- stein. Ýmsir eru hins vegar þeirrar skoðunar að Jón Baldvin muni jafnt taka fylgi frá Ólafi Ragnari sem Guð- rúnu og Pétri. - SG IHP\ síðustu viku varð sú mis- ritun í frétt um stjórn Rithöf- undasambandsins, að Guðjón Fríðríksson var sagður eiga sæti í varastjórn. Guðjón situr hins vegar í aðalstjórn og er hann beö- inn velvirðingar á þessum mistök- um... Þær fréttir berast frá Noregi aö þarlendir sérfræðingar um evrópsku söngvakeppnina, sem fram fer í Osló, spái íslenska lag- inu Sjúbídú sigri. Þetta eru auðvit- aö góöar fréttir fyrir Önnu Mjöll söngkonu og hennar lið og auk þess þætti þjóðinni auövitað fengur í því ef ísland sigraði í þessari keppni. Hins vegar er sagt aö forráöamenn Ríkisút- varpsins hafi fölnað þegar þeir heyrðu um sigurlíkur Sjúbídú. Gangi þaö eftir fer keppnin fram hér á landi á næsta ári, en stjór- arnir hjá Ríkisútvarpinu óttast aö kostnaöurinn við slíkt yrði stofn- uninni ofviöa... Margir bíða spenntir hingað- komu bresku popphetjunn- ar Davids Bowie og eiginkonu hans, ofurfyrirsætunnar Iman, í tilefni tónleika Bowies í Höllinni 20 júní, ekki síst blaða- og frétta- menn. Eins og við var að búast hafa allra hörðustu fréttamennirn- ir lagt sig í líma við að ná einka- viötali við Bowie, sem eins og gefur að skilja væri mikill ávinn- ingur fyrir hvaöa fjölmiðil sem er. í þeim hópi er Þjóðbrautarmaður- inn og tónlistarsérfræöingurinn kunni Snorri Már Skúlason á Stöö 2, sem eftir mikla vinnu lán- aðist að herja út korterseinkavið- tal við kappann. Þótt aðeins sé um korter að ræða segja fróðir menn aö oft togni úr þessum við- tölum og gæti hæglega fariö upp í klukkutímasnakk ef vel liggur á viöfangsefninu. Annars myndu flestir gera sig ánægöa með kort- er eða minna við aöra eins stór- stjörnu og David Bowie. En nei, hinn eitilharði dag- skrárstjóri Stöðvar 2, Páll Baldvin Baldvinsson, gat ekki sætt sig viö skitnar fimmtán mínútur og heimtaöi að þær yrðu minnst tutt- ugu! Með það sama missti Stöð 2 af kappanum og Stöð 3 var komin með einkaviðtalsréttinn nokkrum mínútum síðar! Páll Baldvin er víst ekki vinsælasti maðurinn á Stöö 2 þessa dag- ana... Kosningastjóri Guðrúnar Agnarsdóttur for- setaframbjóðanda hefur sent fjölmiöl- um ýmsan fróðleik um Guðrúnu og mann hennar, Helga Valdimars- son. Um forsetaframbjóðandann segir meðal annars: Guðrún Agn- arsdóttir hefur átt athyglisverðan feril sem skemmtikraftur — ann- að veifið. Sextán ára vakti hún mikla hrifningu sem eftirminnileg can-can-dansmær á neménda- móti Verslunarskólans og einnig í revTu á sviði gamla Sjálfstæðis- hússins. Svo efnileg þótti hún að Klemens Jónsson leikstjóri hvatti móður hennar til að setja hana í leiklistarnám. Á gamlárs- kvöld, á skemmtistaðnum Sig- túni, söng hún ásamt sendiherr- um Bandaríkjanna og Rússlands lagið Nótt í Moskvu í beinni út- sendingu Ríkisútvarpsins... Ekkert lát er á aðsókn að leik- riti Ólafs Hauks Símonarsonar, Þreki og tárum, sem sýnt er T Þjóð- leikhúsinu. Sýningarl hófust síðastliðið haust og hefur leikritiö síðan gengið fyrir troöfullu húsi. Um 25 þúsund manns hafa nú séð leikritið sem hefur verið sýnt yfir 60 sinnum. Meö nokkur helstu hlutverk fara Hilmir Snær Guðnason, Edda Heiðrún Back- man, GunnarEyj- ólfsson, Jóhannn Sigurðarson, Anna Kristín Am- grímsdóttir og fleiri. Næstu sýn- ingar verða á laug- ardags- og sunnudagskvöld. Nú eru 30 ár liðin frá láti Stef- áns Jónssonar, rithöfundar og kennara. Hann skrifaði meöal annars Hjaltabækurnar, Margt getur skemmtilegt skeð og Mamma skilur allt. Stefán var kennari T Austurbæjarskóla frá ár- inu 1933 til dauöadags og á þessum tímamótum efnir skólinn til hátíðahalda til að minnast hins á9tæla rith'öfundar. Á bókasafni skólans hefur veriö sett upp sýn- ing á bókum Stefáns og nemend- ur hafa teiknað myndir eftir sög- um hans sem hengdar hafa veriö upp á göngum skólans. Síðar í mánuðinum verður haldin skemmtun í sal Austurbæjarskól- ans þar sem fýrrverandi nemend- ur Stefáns ætla aö afhenda bekkjarmynd og kennarar af- henda skólanum mynd af Stefáni. Á þeirri skemmtun verður form- lega tilkynnt að skólinn ætlar að efna til verölaunasamkeppni sem kennd veröur við Stefán Jónsson. Inæsta mánuði á Gísli Jóns- son menntaskólakennari 50 ára stúdentsafmæli. Af því tilefni verður gefiö út afmælisrit Gtsla til heiöurs sem hefur aö geyma úr- val íslenskuþátta hans úr Morg- unblaðinu. Þeir sem vilja fá ritið keypt ogjafnframt nafn sitt skráð á heillaóskalista er í bókinni verð- ur geta hringt í síma 462 2515. A kosningaskrif- JCXstofu Guðrún- ar Agnarsdóttur T Ingólfsstræti 5 stendur nú yfir sýn- ing á málverkum Sjafnar Haralds- dóttur og Ingunnar Eydal.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.