Helgarpósturinn - 15.05.1996, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR15. MAÍ1996
Nú eða (kannski) aldreií
Vilt þú andlegan mann meðal forsetaefna?!
Ef svo er þætti mér vænt um ef þú skrifaðir nafn þitt, lögheimili
og kennitölu á reitinn hér til hliðar, klipptir hann út og sendir til
mín. Slík undirritun fer beint til viðkomandi yfirkjörstjórnar þar
sem farið er yfir hvort þú sért á kjörskrá. Vottorði þeirra er síðan
skilað ásamt væntanlegu framboði mínu til
dómsmálaráðuneytisins. Fullnægi ég skilyrðum um að lágmarki
1.500 meðmælendur gæti ég orðið forsetaefni. Þú getur orðið
meðmælandi hjá öðrum frambjóðendum en mér, jafnvel öllum,
ef þú vilt. Og nafn þitt verður ekki birt í auglýsingum. Og þú ert
ekki skuldbundinn til að kjósa mig. Þú ert aðeins að hjálpa mér til
að verða hugsanlegt forsetaefni, sem gæti hjálpað þér og öðrum
við hið endanlega val.
Yfirlýsing
Ég undirrituð/-aður mæli með Guðmundi Rafni Geirdal sem
forsetaefni við kjör til forseta íslands sem fram á að fara
þann 29. júní 1996:
Nafn:____________________________________
Lögheimili:_______________________________
Kennitala:________________________________
Sendist til: Guðmundur Rafn Geirdal,
Smiðshöfða 10, 112 Reykjavík
(s. 567-8921, s. 567-8922, fs. 897-2350, bt. 846-5015, fax 567-8923).
C/uðmundur Rafn Qeirdal
væntanlegur forsetaframbjóðandi:
þitt er valið!
Ég er eini frambjóðandínn sem er
: algjörlega hlutlaus í stjórnmálum. Petta
kemur einníg til með að gilda ef Jón
Baldvin eða Ástþór Magnússon bætast
; í hópinn. Fyrir sumum er afar míkilvægt
að forseti þjóðarinnar sé hlutlaus hvað
varðar stjórnmálastefnur eínstakra
flokka þannig að hann sé ekki vilhallur
1 einum aðila öðrum fremur, þar sem
hann á að vera sameiningartákn
þjóðarinnar,
Einnig er ég eini frambjóðandinn
sem hefur stundað andlega rækt um
árabil með virkum hætti. Petta getur
verið mikill kostur fyrir forsetaefni, því
embætti forseta íslands er á margan hátt
háandlegt, því oft er forsetinn fenginn
til að ávarpa þjóðina og þíngið á
hátíðarstundum þar sem hann fjallar
: um æðstu lífsgildi þjóðarínnar. Pað
getur því verið æskilegt að hafa forseta
sem á auðvelt með að sækja í æðri
visku, ef ekki í sjálfum sér, þá meðal
annarra sem hafa visku tíl að bera, og
sækja til þeirra ráð með skjótum hætti.
Auk þessa er ég hugsjónarmaður.
Mín hugsjón er sú að stuðla að auknum
þroska meðal þjóðarinnar, svo og meðal
mannkynsins, eftir því sem tök eru á. Ég
hallast að því að meginleiðin sé sú að
mynda fordæmi í gegnum eigin ræktun
og útvarpa því síðan til þjóðarinnar, sem
og annarra þjóða eftir því sem við á og
hvetja bæði landsmenn sem og fólk af
öðru þjóðerni til að stunda þroskandi
ræktun á sjálfum sér með virkum hætti.
Með slíkri viðleitni getur lítíl þúfa velt
þungu hlassi. Petta á ekki aðeins við um
mig sem hugsanlegan forseta, heldur
allt eins um þjóðina, því hún hefur oft
verið flokkuð meðal smáþjóða á
alþjóðavettvangi.
En tilfellið er að smáþjóðir geta haft
umtalsverð áhríf í alþjóðlegum
stjórnmálum því þótt íslenska þjóðin sé
ekkí nema með um einn þúsundasta af
hlutdeild í hagkerfi heimsins, eða
jafnvel enn minna, þá er hún meðal um
180 þjóða sem skráðar eru sem
meðlimir Sameinuðu þjóðanna. Með
sterkum áherslum á frið, kærleika,
réttlæti, heiðarleika og þroska getur
ísland myndað mjög sterka sérstöðu á
alþjóðavettvangi sem þjóðin í norðri
sem velur æðri eiginleika mannsins
umfram þær lægri hvatír sem geta leitt
til deilna, stríðs og jafnvel tortímingar.
Sumir hafa kvartað yfír því að ég
væri of ungur. Tilfellið er að í
Stjórnarskrá okkar segir í 4. grein:
„Kjörgengur til forseta er hver 35 ára
gamall maður, sem fullnægír skilyrðum
kosníngaréttar til Alþingis, að fráskildu
búsetuskilyrðinu." Ég er 36 ára þannig
að ég fullnægi skilyrðínu. Yngsti
ráðherra í ríkisstjóm íslands var 27 ára.
Yngsti alþingismaðurinn var 23 ára.
Yngsti bæjarstjórnarmaðurinn er 19
ára, og er það á ísafirði. Árni Sigfússon
var um 40 ára þegar hann varð
borgarstjóri. Markús Örn Antonsson
sagði um það að oft væru yngri menn
ferskari og virkari í stjórnun. Pví ættí
forseti íslands ekki að geta verið 36
áral! Auk þess gæti svo verið að ég sé
gömul sál í nýjum líkama ef marka má
andleg fræðí.
Öðrum hefur þótt menntunargráðan
fulllítil, eða hluti af BA-prófi. Tilfellið er
að ég álít að ég hafi lært mest á jóga,
heilun og dulspeki og að þetta séu æðri
fræði en doktorsgráða úr bestu
háskólum Vesturlanda, einfaldlega af
því að vísindin hafa hafnað andlegri
þekkíngu undanfarin árhundruð í leit
sinní að mælanlegum staðreyndum en
eru rétt farin að átta sig á að fjöldi
vísindamanna við rannsóknir á þeim
einingum sem byggja upp atómin hefur
áhrif á niðurstöðuna, sem þýðir að
hugur þeirra hefur áhrif á efnið sem þeir
eru að rannsaka, sem þýðir áð þeir gætu
verið að komast að sömu niðurstöðu og
andlegu vísindin hafa haldíð fram
síðastliðin árþúsund! Ég hef áhuga á
æðstu sameiginlegu þekkingu þessara
vísinda til að vísdómur komandi forseta
landsins geti orðið sem æðstur!
Pú hefur valið! Vilt þú að ég fái
nægjanlegan fjölda meðmælenda til að
geta orðið forsetaefni, þar sem mér gefst
færí á að kynna mig betur fyrir þjóðinni,
svo hún hafi valkost, allsérstæðan
valkost... andlegan mann! Ef svo er, þá
er ég reiðubúinn!"
AUGLÝSING