Helgarpósturinn - 15.05.1996, Blaðsíða 22
22
MIÐVIKUDAGUR15. MAÍ1996
Hann keyrir of hratt: „Hvað
segirðu... Eru bremsurnar
virkilega pedallinn í miðjunni?
Eftir aö hafa beðið lægri hlut í öllum rifrildum við konuna sína á þessum
áratug ákvað Eiríkur Bergmann Einarsson að taka til sinna
ráða ogfann tíu leiðirtil að losna undan
sígildum rifrildum við sína heittelskuðu...
fyrirgefur þér í anriað og brjál-
ast í það þriðja — og segir: „Ef
þú ert svona ástfanginn af
þessari druslu skaltu bara
drulla þér til hennar.“ Sann-
leikurinn er einfaldlega sá að
konur vilja ekki heyra um fyrri
sambönd maka sinna. Og ef þú
svo mikið sem gefur í skyn að
hún hafi nú ekki verið svo
slæm, þá mun óöryggi hennar
brjótast fram í hefnigirni og
samlífið verður jafnfjörugt og
hjá munkum. Konan mun í sí-
fellu mala um risavaxna mið-
fætur fyrrverandi kærasta og
færni þeirra í bólinu. Við það
verður þú að snúa sókn í vörn
og lítillækka allar fyrrverandi
kærustur þegar þær koma upp
í samræðum. Til dæmis: „Lára
er alltaf með jafnstóran rass“;
„Dísa hefur ekkert gert í bólun-
um á enninu“ og „Fríða þyrfti
að láta laga eyrun á sér“.
8. Að setja
ekki klósettsetuna niður
Eins og allir vita eru klósett-
setur gæddar þeim fáheyrðu
eiginleikum að hægt er að
opna og loka klósettinu með
þeim. Eins og von er vefst
þetta þó fyrir allflestum karl-
mönnum. Af einhverjum und-
arlegum ástæðum líka konur á
það sem tákn um aldalanga
kúgun kvenna. Hættan er sú að
þegar konan vaknar á nóttunni
til að sinna þörfum sínum á
klósettskálinni kveikir hún yf-
irleitt ekki ljósið heldur fikrar
sig áfram og getur fengið hrika-
legt sjokk þegar hún sest á ís-
kalda skálina og dettur næst-
um ofan í þar sem þú hefur
ekki lagt niður setuna. Þar með
ertu kominn í vandræði og rifr-
eins og hortugt karlrembusvín.
Ég hafði ekki hjarta í mér til að
segja henni að „a“, „b“ og „c“
væru akkúrat ástæðurnar fyrir
að djamma með félögunum."
— Þessi kynbróðir okkar hefði
betur slegið ryki í augu kon-
unnnar með vísindum. Djamm
karlmanna með félögunum
tryggir að nauðsynleg tengsl
myndist milli þeirra; tengsl
sem viðhalda hamingju þeirra,
sjálfsmynd og geðheilsu. Karl-
menn sem ekki ná að mynda
slík tengsl verða á endanum
einskis nýtir og óstöðugir
þunglyndissjúklingar. — Ef vís-
indarökfærslan virkar ekki
skaltu taka konuna með í
ógeðslega drykkjuveislu og sjá
til þess að hún verði svo
drukkin að hún æli eftir að
hafa flett sig klæðum að mestu
og gengið á höndum. Taktu
ljósmynd af henni í því ástandi
og notaðu í samningaviðræð-
um daginn eftir.
6. Að heiliast
af beibum í imbanum
Af undarlegum ástæðum er í
lagi fyrir konur að slefa yfir
sjónvarpssjarmörum, en þegar
karlmaður stynur upp orðum
sem lýsa aðdáun hans á lögun
tiltekins kvenlíkama verður
allt vitlaust. Þú reynir að út-
skýra að aðdáun þín á Pamelu
Anderson minnki ekki þrá
þína til kærustunnar og að
Baywatch sé umfram annað
dýrðaróður til fegurðar ALLRA
kvenna. Persónuleiki þeirra fái
virkilega að njóta sín og í þátt-
unum sé djúpan boðskap að
finna. Þetta bragð virkar hins
vegar ekki á konuna. Hún mun
hella sér með heift yfir þig og
ásaka þig um hugrænt framhjá-
hald og þrá til annarra kvenna.
Hún þykist sjá f gegnum þig.
Nú eru góð ráð dýr og best að
snúa vörn alfarið í sókn og
skella framan í hana að hún
sjálf sé dæmigerð steríótýpa:
kynæsandi bimbó með ljóst
hár og dúndurbarm. Við þessa
óvæntu atlögu verður konan
ringluð. Haltu árásinni áfram
og spurðu í hneykslunar- og
ásökunartón hvernig hún viti
að Pamela Anderson sé
heimsk ljóska en ekki greind
tilfinningavera. Ásakaðu hana
svo harðlega um fordóma í
garð kynsystra sinna og að
sorglegt sé hvernig konur eru
konum ávallt verstar. Orrustan
er um þetta leyti unnin.
7. Að tala um
fyrrverandi kærustur
Ef þú talar um fyrrverandi
kærustu þína dáist hún að
hreinskilni þinni í fyrsta skipti,
Steinhaltu
kjafti, kor
Ohjákvæmilegur
fylgifiskur róman-
tísks sambands karls og
konu er rifrildi. Og
hellingur af þeim. Þetta
hefur orðið mörgum
karlmanninum mikil
raun, sérstaklega á
tímum þegar kvenfrels-
isbaráttan er í hámarki.
En þetta þarf þó ekki að
vera svo slæmt. Með
klókindum og vel undir-
búinni hernaðaráætlun
er nefnilega hægt að
losna undan flestum
rifrildunum. Hér á
síðunni eru talin upp
tíu atriði sem orsaka
rifrildi og bent á snjall-
ar útgönguleiðir...
1. Að sofna eftir ástaleiki
Af hverju skyldirðu ekki
sofna? Þú ert þreyttur og þarft
að vakna til vinnu klukkan hálf-
átta. Um Ieið og þú ert að detta
út af inn í sæluheim draum-
anna færðu óþyrmilegt oln-
bogaskot og heyrir kunnuglega
setningu, sem þú hatar: „Þú
virðir mig einskis.“ Nú vill hún
sem sagt ræða sambandið. Þú
getur svo sem reynt að útskýra
fyrir henni að fullnæging karl-
manna losi um ákveðin svefn-
efni. En það virkar sjaldnast og
hún reiðist enn meir. Einfald-
asta leiðin til að losna við rifr-
ildi er að verða fyrri til. í þessu
tilfelli er heppilegt að segja:
„Guð hvað þú varst stórkost-
leg! Ég æstist svo mikið að ég
hef hreinlega ofreynt mig. Ég
er gjörsamlega búinn að vera.“
Síðan snýrðu þér á hina hlið-
ina og líður inn í draumaver-
öldina — hún hlustar sæl á
hroturnar.
2. Að horfa á
íþróttaþáttinn
Þrátt fyrir allar skýrslur um
að konur fylgist í auknum mæli
með íþróttum eiga þær langt í
land með að ná okkur karl-
mönnunum hvað fótboltann
varðar. Ég meina, hvort held-
urðu að konan þín vilji frekar
horfa á bikarúrslitaleikinn milli
ÍA og Vals eða Bráðavaktina?
Ef þú heldur hið fyrrnefnda
skaltu bíða eftir leiknum og
heyra hana segja í hneykslun-
artóni: „Sjá þig, vonlausa
sportidjótið þitt, horfandi á
fullvaxna karlmenn eltast við
einhverja tuðru." Og þú svarar
hugsunarlaust: „Láttu ekki
svona elskan, viltu ekki bara
ná í einn bjór fyrir mig úr ís-
skápnum fyrst þú ert hérna?“
Og þá byrjar ballið. Við skulum
meta stöðuna ískalt. Að horfa
á fótboltaleik er frábær
skemmtun og það eru grund-
vallarmannréttindi hvers karl-
manns. Ef konunni líkar það
ekki getur hún bara fengið sér
annað sjónvarp í svefnher-
bergið fyrir sína Bráðavakt. En
þegar hún ræðst að friðhelgi
þinni við boltagláp er klókt að
segja: „Sjáðu nú til kona. Ég hef
verið aðdáandi Vals í aldar-
fjórðung, en aðeins þekkt þig í
þrjá mánuði. Fattarðu?“ Heilla-
vænlegast er að standa fast á
rétti sínum þegar um stórleiki
er að ræða, en gefa örlítið eftir
til málamynda í þýðingarminni
leikjum.
3. Að aka alltof hratt
Konan þín veit fullvel að
slysið sem þú lentir í um dag-
inn var ekki þér að kenna,
heldur helvítis fíflinu sem var
fyrir þér. Af hverju er hún þá
alltaf að röfla um að þú eigir að
hægja á þér og aka varlegar?
Nöldurkerlingin leitast við að
rústa töffaraímynd þinni þegar
hún hótar: „Sko, ef þú hægir
ekki á þér, þá fer ég út og tek
leigubíl. Fáviti." Þetta fer nátt-
úrlega alveg hryllilega í taug-
arnar á þér. Það er ekki bara
að hún dragi úr þér allan kraft,
og sé röflandi út af engu, held-
ur hefur hún brotið hina
óskrifuðu, en gullnu reglu, að
kona gagnrýnir ekki ökulag
manns — nema hún sé
mamma manns. Ég meina,
þetta er næstum því eins
slæmt og að hún klifri upp á
barborð og öskri þaðan að þú
sért fáránlega illa niðurvaxinn.
Hvað gerir þú nú? Ef hún hlust-
ar ekki á nein rök skaltu keyra
upp í sveit, henda henni út og
láta þig hverfa. Þegar þú loks-
ins kemur aftur verður hún
svo fegin að hún mun aldrei
aftur gagnrýna aksturslag þitt.
4. Að forðast uppvaskið
Ókei. Hún eldaði, en þú
sauðst hrísgrjónin, svo það er
út í hött að hún heimti að þú
eyðir dýrmætum tíma í diska-
spúl! Þegar þú lætur hana
heyra þessa skoðun þína verð-
ur allt. vitlaust. Hún stendur
upp, gengur að eldhúsinu —
og þú heldur eitt andartak að
þú hafir komist upp með þetta.
En aldeilis ekki. Kröftugt diska-
glamrið segir þér það sem í
vændum er. Þú reynir gamla
trikkið: að snúa þessu upp í
grín og segja glettinn: „Þér
myndi nú ekki finnast ég par
sexí með bleika svuntu og
rauða uppþvottahanska.11 En
hún hlustar ekki á þig. Þá reyn-
irðu að segja að þetta sé bara
henni að kenna — að nota
svona mikið af meðlætisdisk-
um og alls konar aukadrasli.
Þegar þú eldir fyrir þig sjálfan
þurfirðu bara að þvo upp einn
gaffal eftir að hafa hent um-
búðunum. Leiðin út úr vandan-
um er að bjóðast til að elda og
þvo upp daginn eftir. Svo pant-
arðu auðvitað pizzu og hendir
kassanum.
5. Að fara út
með strákunum
Fjöldamörg sambönd hafa
nær hrunið til grunna þegar
kærustur banna mönnum sín-
um að fara út á djammið með
félögunum. Einn sem lenti í
þessu sagði: „Ég kom blek-
svartur heim eina nóttina og
mistók steríógræjurnar fyrir
klósett. Konan gekk inn um
leið og ég lyfti upp lokinu af
plötuspilaranum og meig á
hann. Næsta dag setti hún mér
úrslitakosti. Ef ég ætlaði að fá
að hitta félagana myndi hún
koma með. Astæður hennar
voru: a) Ég lenti alltaf í ein-
hverjum vandræðum með fé-
lögunum; b) Félagsskapur
minn við þá útilokaði hana og
c) Með félögunum lét ég alltaf