Helgarpósturinn - 15.05.1996, Síða 32
HELGARPÓSTURINN
15. MAÍ 1996 19. TBL. 3. ÁRG. VERÐ 250 KR.
öfnurnar og forsetaframbjóð-
endurnir Guðrún Agnarsdótt-
ir og Guðrún Pétursdóttir eru nú
báðar staddar á Vestfjörðum. Þær
gætu þess vegna haldið sameigin-
lega framboðsfundi þar vestra, en af
þvt verður þó ekki. Guörún Agnarsdóttir þauð öllum Vestfirðing-
um til opins húss á Hótel ísafirði í gærkvöldi og ætlar að vera
á Flateyri á morgun, fimmtudag. Guðrún Pétursdóttir og bóndi
hennar, Ólafur Hannibalsson, veröa með kynningarfund í
stjórnsýsluhúsinu á ísafirði í kvöld og á Patreksfirði á morg-
un...
Perðaskrifstofan Heimsferðir mun ekki bjóða
upp á beint flug til Mexíkó í sumar eins og
ráðgert var. Andri Már Ingólfsson forstjóri sagði
í samtali við HP að ástæðan væri breyting á áætl-
un hjá þeirri erlendu ferðaskrifstofu sem Heims-
ferðir skipta við og því ekki hægt að koma við lendingu hér á
landi. Heimsferðir byðu áfram ferðir til Mexíkó en bara ekki í
beinu flugi...
Vorsýning Myndlista- og handíðaskóla íslands hefur verið
opnuð í skólanum í Laugarnesi. Á sýningunni eru loka-
verkefni útskriftarnema, en nú í vor eru 42 nemendur braut-
skráðir frá skólanum eftir þriggja ára nám. Bók með efni eftir
nemendurna er til sölu á vorsýningunni sem stendur fram á
sunnudag og er hún opin daglega frá klukkan 13 til 18.
f^au Hrafnhildur Sigurðardóttir og Halidór Ámi Sveins-
Jfc son hafa opnað sýningu á listaverkum sínum í Sparisjóðn-
um í Garðabæ. Verk Hrafnhildar eru unnin með sáldþrykki og
einnig gamalli japanskri litunaraðferð. Halldór Árni sýnir lands-
lags- og afstraktmyndir unnar í olíu og krít. Um er að ræða
sölusýningu og stendur hún út þennan mánuð.
*
Abyggöasafninu á Hvoli á Dalvík eru varðveittir ýmsir munir
sem varða Jóhann Kr. Pétursson, eða Jóhann risa eins
og hann var gjarnan nefndur sökum stærðar sinnar. Þarna er
meðal annars um aö ræða nokkurt safn kvikmyndafilma.
Byggðasafnsnefnd Dalvíkur hefur nú samþykkt að fela Kvik-
myndasafni íslands að varðveita þessar filmur.
Sýning á myndverkum eftir Tryggva Gunnar
Hansen hefur verið opnuð I veitingahúsinu
Samuraj. Sýningin ber yfirskriftina „Ósjálfráðar Ý
rnyndir" og þar sýnir Tryggvi 17 myndir sem flest-
ar eru smágerðar.
Nýbýlavegi 10
200 Kópavogi
RETrmqfm sm 5542510
AUÐUNS
Vönduð vinna
unnin aðeins
affagmönnum
Þjónustuaðili fyrir ® TOYOTA^
Seljum 5ÍkkEn5
hágœða lökk og undirefni.
Einnig $AGOL sprautukönnur
á mjög hagstceðu verði.
Setjum alla liti
á spraybrúsa.
Talaðu við okkur um
BÍLARÉTTINGAR
Vagnhöfða 23 • S. 587-0-587
iSUBUJRV'
Ferskleiki er okkar bragð
Austurstræti 3 • Suðurlandsbraut 46 • Miðbær
v/Faxafen Hafnarfirði
•suBUjnv'
■ cr p
Helgarpósturinn
er í
„Maa husinu^tún, 27
Skrifstofur og afgreiðsla (opið 10-12 og 13-16): 552-2211
Ritstjórn: 552-4666 • Fréttaskotið: 552-1900 • Símbréf: 552-2311 • Auglýsingar: 552-4888