Helgarpósturinn - 17.10.1996, Síða 20

Helgarpósturinn - 17.10.1996, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR17. OKTÓBER1996 '.m Rannsóknir hafa leitt í Ijós aö fyrirtíðaspenna kvenna hefur áhrif á aukna tíöni afbrota og sjálfsvígstilrauna og misnotkun áfengis. Helga Ólafsdóttir upplýsir aö farið sé aö taka tillit til hormónamagns líkamans í meöferö ofbeldisglæpa og aö fyrir því hafi skapast for- dæmi aö efnafræðilegt ójafnvægi sé viðurkennt sem áhrifaþáttur í meðferö dómsmála. Fyrirtíðaspenna ' spennu. Einstaklingar bregð- ast misjafnlega við svipuðum lífeðlisfræðilegum breytingum en það sem einna helst telst hafa áhrif á þessa spennu er áldur kvenna, en verstu ein- kennin koma fram á aldrinum 30-40 ára. Fyrirtíðaspennan er talin versna með árunum en hún gerir oftast vart við sig eft- ir 25 ára aldur. Aðrir áhrifa- þættir eru tilfinningaleg streita, óhollar matarvenjur, ónóg hreyfing og hliðaráhrif getnaðarvarnapillu. Konur sem eru vel meðvitað- ar um líðan sína geta notað fyr- irbyggjandi aðgerðir gegn þessum skapgerðarbreyting- um og notfært sér ýms varnar- viðbrögð. Helstu fyrirbyggjandi aðferð- ir sem mælt er með er að halda sér uppteknum, taka B6-víta- mín, hreyfa sig, gæta vel að næringu og forðast áfengi og tóbak. Svo má nota flóttaað- ferðir eins og að leggjast í dvala og sofa svo engin hætta ætti að vera á að þær skaði sjálfa sig eða aðra. Einnig geta utanaðkomandi þættir skapað að hluta til þessa spennu, til dæmis umræður um fyrirtíða- spennu, en þá getur verið erfitt að sjá út hver sé orsökin og hver afleiðingin. Þær geta not- að þetta fyrirbæri sem afsökun fyrir eigin hegðun og fyrir að umturna öllu í kringum sig. Súkkulaðivörnin Rannsóknir á fyrirtíða- spennu hafa leitt í ljós aukn- ingu á misnotkun áfengis, sjálfsvígstilraunum og afbrot- um frömdum af konum sem þjást af fyrirtíðaspennu. Helsti áhættuhópur kvenna til sjálfs- vígstilrauna er útivinnandi konur. Ástæðan er aukin ábyrgð og álag. Fjölmargar rannsóknir á ofbeldisglæpum „Sama hversu fullkomin dömubindin væru; þau kæmu ekkiíveg fyrirað hún kvartaði yfir óhrein- um sokkum á eldhús- borðinu.11 + sýna að þeir eru langalgengast- ir í vikunni fyrir blæðingar. Rannsóknir meðal kvenfanga hafa sýnt að rúmlega 60% þeirra sem sitja inni fyrir of- beldisglæpi hafa framið brot sín í vikunni fyrir blæðingar en aðeins um 2% í vikunni eftir blæðingar. Karl Sæberg afbrotafræð- ingur segir í samtali við HP dæmi eins og um Sandie, hér til hliðlar, frekar undantekn- ingu en reglu. Þó beri nú meira á því að tekið sé tillit til horm- ónamagns líkamans í meðferð ofbeldisglæpa. Fordæmi séu fyrir því að efnafræðilegt ójafn- vægi hafi verið viðurkennt sem áhrifaþáttur í málsvörn, hvort sem það er af völdum horm- ónabreytinga í tíðahring, of mikils sykurs í blóði eða af notkun stera. Til að mynda var nýlega mildaður dómur yfir bandarískum kraftlyftinga- manni sem banað hafði eigin- konu sinni og var vörnin byggð á tilvísun til truflunar á horm- ónastarfsemi líkamans í kjölfar steranotkunar. Annað slíkt dæmi sem tengist neyslu ákveðinna efna og ofbeldis- hegðun er „The Twinkie De- fense“ eða Súkkulaðivörnin. Maður að nafni Dan White var sakaður um manndráp af ásetningi en hann skaut borg- arstjóra San Francisco, Ge- orge Mascone, og aðstoðar- mann hans, Harvey Milk, þann 22. maí 1979. Lögfræðing- ur White byggði vörnina á að sakborningurinn þjáðist af þunglyndi vegna lífefnafræði- legra breytinga í heila. Mat- aræði hans samanstóð nær eingöngu af súkkulaðinu Twinkie og kóki, sem olli því að of mikill sykur var í blóðinu sem orsakaði eða brenglaði efnafræðilegt jafnvægi í heila. Því dæmdi dómstóllinn hann fyrir manndráp af gáleysi í stað morðs af ásettu ráði. Sama hversu fullkomin dömubindin eru... Vitanlega er þetta ekki sam- bærilegt við tíðahring kvenna en varpar þó engu að síður Ijósi á hvernig efnafræðilegt ójafnvægi getur verið þáttur í óæskilegri hegðun. Ljóst er að í lífi kvenna og fólks almennt eru sumir dagar erfiðari en aðrir. Hvernig eiga þeir sem þurfa að umgangast þessar konur að bregðast við þessum „erfiðleikum"? Þeir neyðast til að sýna fullan skiln- ing og nærgætni þar sem sum- ar konur fá ekkert við þetta ráðið. Nærgætni þarf samt ekki að þýða að allir duttlungar og þrasmælgi megi leika lausum hala, eða skilyrðislausa undir- gefni í nokkra daga í mánuði. Hún felur frekar í sér skilning á þessum miskunnarlausu sveifl- um í konunni sem fylgja þeim hæfileika hennar að fæða börn. Þess vegna sagði ég við vin minn sem ég minntist á hér að ofan að ef hann vildi að konan sín héldi áfram að vera kona yrði hann að umbera það sem fylgir því að vera kona. Sama hversu fullkomin dömubindin væru; þau kæmu ekki í veg fyr- ir að hún kvartaði yfir óhrein- um sokkum á eldhúsborðinu. Höfundur er poppsálfrsðingur. Vinur minn sat hjá mér í kaffi um daginn, en á ákveðnu tímabili mánað- arins sést óvenjumikið til hans. Þá skilgreinir hann sig sem eins konar flótta- mann ofsóttan af eiginkon- unni. Kvenlegt innsæi og þekking á kynsystrum mínum leiddi til þeirrar ályktunar að konan hans þjáðist af fyrirtíðaspennu. Vinurinn var eins og lélegt tímarit sem berst á mánað- arfresti. En hvað er fyrirtíðaspenna? Jú, nafnið gefur til kynna að það sé spenna sem er undan- fari tíða kvenna. Konur sem eru uppspenntar og hafa allt á hornum sér hafa oft verið nefndar móðursjúkar, en móð- ursýki er nú varla réttnefni yfir fyrirtíðaspennu. í gömlum bók- um er móðursýki skilgreind sem legkvilli, enda dregið af móðurlífinu. Legkvilli taldist sá sjúkdómur þegar talað var um að konum leystist ekki girnd, eða að konur fengju ekki full- nægingu, og við það töldu menn að kæmu fram hin fjöl- mörgu hvimleiðu einkenni taugaveiklaðra og viðbragðs- sjúkra kvenna — móðursjúkra kerlinga eins og þær hafa verið og eru oft nefndar í daglegu tali. Hormónar og himintungl Tíðahringur kvenna er eitt dæmi um hinar fjölmörgu líf- eðlisfræðilegu sveiflur í lifandi verum. Orsökina er að finna í hormónakerfi konunnar sem frjósemisveru. Þessar sveiflur einkenna konur í meira mæli en karla og muninn mætti skýra með tilvísan til himin- tunglanna. Eðli karlmannsins mætti skýra sem gang sólar- innar sem skín stöðugt allan ársins hring og eðli konunnar hins vegar sem gang tunglsins sem tekur háttbundnum breyt- ingum á fjögurra vikna fresti; frá nýju tungli til tunglfyllingar um miðjan mánuð. Þar sem konan er í eðli sínu eins og tunglið fylgir hún mánaðarleg- um breytingum. Breytingin sem um ræðir er á skapgerð hennar fyrir tíðir. Þessi skap- gerðarbreyting hefur verið nefnd fyrirtíðaspenna og hefur hugtakið verið í notkun frá þriðja áratug þessarar aldar. Einkenni hennar eru þung- lyndi, önuglyndi, kvíði, höfuð- verkur, svimi, lágt sjálfsmat og aukin streita. Þetta ástand stendur yfirleitt yfir í 2-3 daga. Að jafnaði koma einkennin í ljós um 10-14 dögum fyrir tíðir og ágerast þar til tíðir hefjast. Hjá sumum konum halda ein- kennin áfram nokkrum dögum eftir að tíðum lýkur. Haldið er fram að í sumum tilfellum hafi þessar konur eins konar Dr. Je- kyll og Mr. Hyde-persónuleika- klofnun. Þær verða kvikindis- legar, ofsóknarkenndar og arg- ar í kringum tíðatímabilið. Þær æpa á börnin sín í meira mæii, lenda í rifrildi við maka sinn og eiga í vandræðum með sam- skipti við vini og vinnufélaga. En á ekki reiði rétt á sér eða eru konur ofbeldisfullar að upplagi? Tíðir valda samskiptatjóni Ef við skoðum reiði út frá siðferðislegu sjónarmiði eiga sumar tegundir reiði rétt á sér, aðrar ekki. Talað er um „heil- aga reiði“, réttláta gremju, óbeit, vanþóknun og þykkju. „Rannsóknir meðai fanga hafa sýnt að rúmlega 60% kvenna sem sitja inni fyr- ir ofbeldisglæpi hafa framið brot sínívikunni fyrir blæðingar en aðeins um 2% ívikunni eftir blæðingar.“ Og munurinn á venjulegri reiði og vanþóknun eða þykkju er að vanþóknunin er virðuleg, en reiðin dýrsleg. Jú, við get- um orðið dýrslegar, enda dýr. Einhvern veginn verður arf- leifð okkar að koma fram og í einhverri mynd. Mögulega fær kvendýrið hina langþreyttu reiði fram í skjóli fyrirtíða- spennunnar. Og að reiðinni yf- irstaðinni — sem á sér mis- langan aðdraganda og endist mislengi — getur það tekið nargar vikur að bæta fyrir tjón- ið sem þær hafa valdið í sam- skiptum við sína nánustu. Þeg- ar þær hafa loks náð að afmá eða hlúa að sárunum byrjar hringurinn aftur. Versnar með aldrinum Þessar breytingar á skap- gerð kvenna eru ekki almenn- ar, sumar konur upplifa litlar sem engar skapgerðarbreyt- ingar fyrir tíðir og aðrar mikl- ar. Bakgrunnur konunnar kem- ur þar við sögu og skapgerð. Konur í andlegu ójafnvægi eru líklegri til að þjást af fyrirtíða- spennu en konur í andlegu jafnvægi. Til dæmis konur sem átt hafa í útistöðum við lögin eins og konur í fangelsum; þær eru líklegri til að sýna fyrirtíða- Ásökuð um 30 árásir nokkrum dögum fyrir blædingar kæmi eru um að fyrirtíða- *spenna sé notuð sem vörn fyrir dómstólum í málum þar sem konur hafa verið ákærðar fyrir ofbeldisbrot. Gott dæmi um alvarleg einkenni fyrirtíða- spennu er saga hinnar bresku Sandie Smith, sem starfaði sem barþjónn í heimalandi sínu. Hún var sökuð um að hafa haft hníf í fórum sínum og otað honum að lögreglu. Áður hafði hún fengið skilorðsbundinn dóm fyrir að stinga samstarfs- konu sína til bana. Við nánari athugun á bakgrunni Sandie kemur í ljós að hún hefur verið sakfelld í nær þrjátíu skipti fyr- ir árásir og ofbeldisfulla hegð- un og gert átján sjálfsvígstil- raunir. Þessi ofbeldisfulla hegðun átti sér alltaf stað nokkrum dögum fyrir mánað- arlegar blæðingar. Lögfræðingi hennar tókst að fá hinn breska dómstól til að milda dóminn vegna hormónatruflana. Síðan þá hefur Sandie fengið daglega prógesterón-sprautu og ekki verið viðriðin glæpi að því er best er vitað eða brotið af sér á nokkurn hátt. Þótt dómstólar hafi tekið fyrirtíðaspennu góða og gilda sem vörn í málum hef- ur það þó ekki hlotið almennt lagalegt gildi.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.