Helgarpósturinn - 17.10.1996, Blaðsíða 31

Helgarpósturinn - 17.10.1996, Blaðsíða 31
möfu að starfsmennirnir fari út í bæ í hádeg- inu og til þess þurf- um við að standast samkeppni við al- menn veitingahús, - segir Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar. Starfsmenn Byggðastofnunar voru hálffeimnir við vestfirskar dansmeyjar sem lífguðu upp á matartíma þeirra í gær. Upphaf- lega stóð til að ráða austurlensk- ar dansmeyjar en stjórn Byggða- stofnunar setti sig upp á móti því Berserkur að störfum við Hvalfjarðargöng íslenski dansflokkurinn Setur upp dans eftirÁrnaJohnsen Þetta er hátíðardans, nokkurs konar brekkudans, þar sem dansararnir tjá baráttu fólks við að komast óspjallað á sál og líkama gegnum þjóðhátíð í Eyjum, — segir danshöfundurinn. Friðrik Lárusson kynntist eiginkonunni á Internetinu Hefur eiginkonuna íuasanum Eg þarf ekki annað en ýta a einn takka til að ná sambandi við Olgu. Og síðan get ég ýtt á Shut Down-takkann þegar ég vil,“ seg- ir Friðrik Lárusson húsamálari, eiginmaður Oigu Fridrikalovu. Get náð sambandi við hana hvenær sem ég vil og einnig rofið það þeqar mér sýnist, - segir Friðrík sem ferðast um meomínítölvu hvert sem hann fer. Bæjarstjórn Akraness krefst þess að fyllt verði upp í göngin þar sem þau muni beina umferð frá bænum. Borgnesingai eru hins vegar kampakátir. HAFA SKAL Skoðanakönnun meðal þingmanna „Eg vissi að það væri at- gervisflótti úr pólitíkinni en ekki að hann legðist á livern þingmann fyrir sig,“ segir Ólafur G. Einarsson. hafe ðhftigð á þftáuBi „Alvarleq tíðindi," segir Ólafur G. Einarsson þingtorseti. , Alvarleg tíðindi, Reykjavík, 9. október. Aðeins 16 prósent þing- manna hafa áhuga á þjóð- málum, 22 prósent þeirra eru ánægðir í vinnunni, 7 prósentum þeirra finnst starfið einhvers virði og 85 prósent segjast trúa að þeir nytu sín betur í ein- hverju öðru starfi. Þetta eru meðal þess sem kom fram í viðhorfs- könnun meðal þingmanna. Þegar þingmenn voru síð- segir an spurðir út í einstök mál kom I ljós að aðeins 3 pró- sent sögðu að hallalaus fjárlög væru mjög mikil- væg, önnur 3 prósent mikilvæg, 6 prósent ekki mikilvæg en 88 prósent krossuðu við „alveg sama“. Svipuð niðurstaða kom fram um önnur mái, þingmönnum stendur meira og minna á sama um þau. „Mér sýnist þetta endur- þingi spegla mikið álag hér þinginu og þá streitu sem fylgjandi starfi þing- manna;“ sagði Ólafur G. Einarsson þegar GP bar þetta undir hann. „Menn sjá einfaldlega ekki fram úr verkefnunum. Haldið þið að það sé gaman til lengd- ar að þurfa að hafa skoðun á kvótamálum, efnahags- málum, umhverfismálum, landbúnaði, utanríkismál- um, kjaramálum, heilbrigð- ismálum og guð má vita hverju? Við erum engar vélar. Við erum fólk, — bugað fólk,“ bætti hann við. # „Þetta byrjaði allt með því að ég hrasaði í stig- anum í þinginu en tókst að halda jafnvægi með því að taka nokkur skref til hliðar. Davíð Oddsson átti leið þama hjá og sagði: Djöfull var þetta flott hjá þér. Þessi ummæli sátu í mér og síðan spann ég út frá þessum skrefum mínum þar til ég var kominn með fullburða sýningu," segir Árni Johnsen, þingmaður, tónskáld, söngvari, hljóðfæra- leikarí, grínisti og danshöfundur. Er mikilvægt að ná hallalausum Qáriögum? Mér er alveg sama Svolrtið mikilvægt Mjög mikilvægt. V Eru störf þín mikilvæg fýrir þjóðina? Nei, biddu fyrir þér Mömmu finnst það Já, mög svo « t Wv Páli Vilhiálmcwni Er ekki að kaupa HP „Ég hef engan áhuga á blaðaútgáfu," segir Páll Vilhjálms- son, er sögur liafa gengið um að liann hygðist kaupa HP. Reykjavík, 16. október. Páll Vilhjálmsson hefur óskað að fá eftirfarandi yf- irlýsingu birta: „Ég er ekki að kaupa HP. Eftir að frétt birtist í Morg- unblaðinu síðastliðinn þriðjudag hafa fjölmargir haft samband við mig og innt mig eftir hvort ég hygðist kaupa blaðið. Af þessum sökum sé ég mér ekki annað fært en lýsa því yfir að ég hef ekki hug á að kaupa þetta blað. Sá Páll Vilhjálmsson sem Morgunbiaðið ræðir við er einhver allt annar Páll en ég. Það merki ég meðal annars af því að þessi Páll segist ætla að fjalla um pól- itík Páls Vilhjálmssonar í HP í framtíðinni. Ég hef engar þær pólitískar skoð- anir sem ég get eignað sjálfum mér, öll mín pólitík er komin frá Guðrúnu minni Helgadóttur. Þetta vil ég að komi skýrt fram ef Páli þessum tækist að vinna Pálisma sínum brautargengi.“ GP reyndi að grafast fyr- ir um hver sá Páll Vil- hjálmsson væri sem viðtal- ið birtist við í Morgunblað- inu en varð lítið ágengt. „Var þetta ekki sá úr Stundinni okkar?“ spurði Agnes Bragadóttir, blaða- maður á Morgunblaðinu, á móti, þegar GP innti hana eftir við hvern Morgun- blaðið hefði rætt. #

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.