Helgarpósturinn - 17.10.1996, Blaðsíða 27

Helgarpósturinn - 17.10.1996, Blaðsíða 27
FlMIVmiDAGUR 17. OKTÓBER1996 27 Vandamálið er þó það að við eigum ekki alltof marga góða leikmenn. Okkar menn eru að spila í neðri deildum í Evrópu á meðan andstæðingarnir eru að spila í bestu liðum Evrópu. Við erum með á annan tug manna í útlöndum og erum háðir því að þeirra liðum gangi vel og þeir séu I góðu formi persónulega til þess að við getum vænst þess að liðið sem heild nái betri ár- angri en hingað til. Ef við segj- um sem svo að einhver sé ekki í sínu besta formi þá er ekki, með fullri virðingu fyrir íslensk- um knattspyrnumönnum, um marga góða að velja. Ég er þó alveg hjartanlega sammála þér í því að þetta með að yngja upp liðið er umhugsunarvert sjón- armið og það er full ástæða til að skoða það enn frekar hvað við eigum að gera í náinni fram- tíð. Við verðum þó að fara var- lega í alla slíka hluti, við verð- um að halda eftir reynslu í lið- inu.“ Mikið rétt, en þetta leiðir okkur að öðru áhyggjuefni. Þú virðist ekki hafa fundið réttu blönduna í liðið. „Ég fer út í að breyta liðinu þegar ég tek við. Menn eins og Kristján Jóns, Daði Dervic, Þorvaldur Örlygs og Hlynur Stefáns hafa ekki spilað undir minni stjórn að undanförnu. Þarna eru þó nokkrir menn um þrítugt farnir. Á móti kemur að við erum ekki búnir að vera með menn sem ég hefði endi- lega viljað hafa heila og látið spila meira. Menn eins og Am- ar og Eið Smára.“ „Þar var ég ekki með neinn gamlan hund“ Tapleikurinn gegn Slóven- um var algjör lykilleikur. Þar var smá árœði og þor, sem gáfnaljósin á Mogganum auglýstu eftir um daginn. „Fyrir leikinn gegn Rúm- enum hugsuðu áhorfend- ur sem svo: „Djöfullinn, þeir drulluðu á sig úti í Litháen. Þeirverðaör- ugglega alveg dýrvitlaus- ir.“ Fólk er sem sagt farið að gera útáþessi óvæntu úrslit. Svoverða þessi óvæntu úrslit ekki og þáverða allir óánægðir." Fram að því hafðir þú reynt ýmsar nýjungar; boðaðir þrjátíu menn hérlendis á œf- ingar í fyrravetur og skoðað- ir marga menn. Loksins var eitthvað nýtt í gangi. Svo spil- um við gegn Slóvenum og töp- um stórt, 7-1, fáum rassskell og þú hrekkur í baklás og hugsar sem svo: „Eg reyndi þó að minnsta kosti en það gekk ekki, best að halda sig við gömlu góðu formúluna.“ „Eg vil ekki meina að ég hafi alveg farið í baklás, en eftir þetta þá tek ég Jolla og Amór í Íiðið. Næsti leikur eftir þetta áfall er gegn Möltu og þá vinn- um við 4-1. í leiknum þar á eftir stilli ég upp svipuðu liði og við vinnum Eista 3-0. Þar set ég Eið Smára inná í 20-30 mínútur og hann skapar sér ein 3-4 dauða- færi sem því miður tekst ekki að nýta. Þarna var kominn mað- ur sem meiningin var að nota. Annað dæmi er að Eyjólfur spil- aði feikivel þarna úti. Fyrir leik- inn gegn Makedóníu fæ ég svo þær óskemmtilegu fréttir að Eiður sé meiddur. Það hefði getað verið virkilega góð stemmning að láta strákinn koma inn í þennan leik.“ Með pabba gamla? „Jafnvel, já. A þriðju mínútu þessa leiks þá meiðist svo Bjarki Gunnlaugs, sem hafði skorað fjögur mörk í síðustu tveimur leikjum þar á undan. Þarna eru farnir þrír menn. Ég vil taka fram að ég er ekki í þessari yfirheyrslu til að koma að einhverju afsökunarvæli. Ég er einungis að reyna að útskýra og rökstyðja hvernig málið lítur út frá mínum bæjardyrum séð.“ (Þegar hér var komið sögu gat ljósmyndari blaðsins ekki stillt sig lengur og skaut því að að allt myndi blessast, — bara ef það væru nógu margir Vals- arar í liðinu. Blaðamaður taldi það varla hægt miðað við hvernig menn þar á bæ spila og Logi sagði ljóst að þá þyrfti hann að mæta í mörg svona viðtöl.) Áfram með taktísk mistök. Var ekki vitlaust að láta rétt- fœttan mann eins og Bjarka spila á vinstri kantinurn og vera með Óla gamla á þeim hœgri þegar þú hefur um örv- fœttan leikmann að velja? „Bjarki var búinn að skora fjögur mörk í tveimur leikjum þarna á undan, einmitt á vinstri kantinum." Þetta er ekki spurning um getu eða hœfileika Bjarka, um þá þarf enginn að efast. Miklu frekar hitt hvort Einar .hefði ekki átt sénsinn skilið. Hann sýndi það og sannaði þegar hann fékk að koma inná í sumar. Lagði upp mark og var þrœlgóður! „Ég ætla ekki að fara að tína til einhverjar ástæður fyrir því að ég lét hann ekki spila. Hann er mætur knattspyrnumaður en þarf auðvitað að laga ýmsa hluti. Ég ætla ekki að verja gerðir mínar með því að benda á galla hjá honum sem knatt- spyrnumanni. Ég blæs líka á allt tal um að Rúnar Krístins geti ekki leikið bakvörð. Hann er þýðingarmikill fyrir okkur sem sá maður sem getur leyst erfið- ar stöður og leikið boltanum úr vörninni." Það er rétt að Rúni, sem er upphaflega miðjumaður, er einn affáum varnarmönnum íslenskum sem geta spilað boltanum frá sér. „Rúni er mjög þýðingarmikill fyrir vörnina, sérstaklega hvað sjálfstraust snertir. Þú reyndar sást ekki leikinn okkar gegn Tékkum úti.“ Nei, KSÍklikkaði alvegáað bjóða mér með, þvílíkur skandall. „Við verðum náttúrulega að kippa því í liðinn. En þar lék Rúni mjög vel og losaði okkur úr erfiðum stöðum. Hann hins vegar náði sér ekki á strik gegn Rúmenum frekar en aðrir. Ef við ætlum að ná þessum óvæntu úrslitum sem við vor- um að tala um áðan verðum við allir að spila vel. En það hafa alltof fáir leikið af eðlilegri getu undanfarna tvo leiki. Það voru kannski 3-4 leikmenn sem spil- uðu af eðlilegri getu gegn Rúm- enum.“ Þarna hittirðu nú á við- kvœman blett. Er það ekki einmitt hlutverk þjálfara að mótívera leikmenn fyrir leiki, þannig að menn komi eins og grenjandi Ijón inná völl, til- búnir að slást um alla bolta? Ef leikmenn gera þetta ekki er þá þjálfarinn ekki að klikka? „Það er hrein og klár móðgun við þessa pilta að ætla þeim að þeir leggi sig ekki fram í lands- leikjum. Við reynum að stýra því hvernig menn hvílast og nærast síðustu dagana fyrir leiki, en þjálfari ræður ekki hvernig menn haga sínum und- irbúningi eða hvernig einkalífið gengur. Auðvitað hefur það áhrif á leik manna hvort konan hendir töskunni í þá þegar þeir eru að fara í leikinn eða hvort hún kveður þá með kossi, þó er ég ekki að segja að það hafi átt sér stað fyrir tvo síðustu leiki. Menn verða líka að átta sig á því að það kunna að vera aðrar ástæður en hugarástand fyrir því að mönnum tekst ekki vel upp á leikvelli. Knattspyrnuleg geta hlýtur að hafa eitthvað um þetta að segja. Þess vegna er ekki hægt að segja að fyrst Hagi plataði Rúnar Kristinsson þá hafi Rúnar ekki viljað standa sig. Hann langi ekki til að spila fyrir íslands hönd, hann geri ekki eins og þjálfarinn segir honum og svo framvegis. Hug- arfar er einungis einn hluti af þessu. Það má líka spyrja sem svo hvort það eigi ekki að vera nœg mótívering að vera val- inn til að leika fyrir hönd síns lands. Það er œðsti draumur hvers knattspyrnu- manns. Menn hafa viljað slíta þetta nokkuð úr samhengi. Fyrri hálf- leikurinn gegn Rúmenum var ágætur, við sköpuðum okkur færi. Ólafur Adolfs fékk færi eftir hornspyrnu frá Rúnari og Doddi átti ágætt skot og eins og ég hef sagt, — átti að fá víti. Þegar við erum svo að kvarta yfir því að fá ekki víti fara þeir fram völlinn í fjórum sending- um og skora.“ Menn vinna sér inn sína heppni. Það er ekkert öðru- vísi; menn leggja inn fyrir sinni heppni. Menn fá ekkert gefins í þessum bransa. Það kom líka glögglega í Ijós að allir Rúmenarnir voru fljót- ari að hlaupa með boltann en Guðni boltalaus og hefur hann verið okkar fljótasti maður... „Þarna kemurðu með annað atriði sem skiptir máli en hug- arfar og mótívering þjálfarans. Þegar farið var yfir EM ‘96 kom fram að einstaklingurinn þurfti að hafa vöðva, hraða, tækni, höfuð, leikskilning og geta leik- ið með hjartanu. Það er hjákát- legt að taka einn þátt út og segja: „Við lékum ekki með hjartanu. Þetta var alveg ómögulegt." Menn gleyma því til dæmis að þeir eru fljótari. Okkar styrkleiki er að finna góða blöndu, eins og þú segir sjálfur, sem reyndar hefur ekki fundist enn. Trausta varnar- menn sem spila örugga vörn og spræka stráka frammá. Leikur okkar í framtíðinni byggist á því að við getum varist á þröngu svæði og séum snöggir að sækja þegar við vinnum bolt- ann. Við hefðum getað pakkað í vörn gegn Rúmenum og slopp- ið með 0-1-tap, en líklega hefð- um við þá verið spurðir hvers lags aumingjar við værum fyrir að reyna ekki að skora á þá. Það var einlægur ásetningur okkar að standa okkur vel og sækja á þá. Klaufamörkin sem við fengum á okkur gerðu þess- ar fyrirætlanir að engu. Ég trúi því og treysti að við eigum eftir að finna réttu blönduna og hækka okkur um styrkleika- flokk úr fjórða í þriðja flokk. Ef við gerum það þá þýðir það að það verða þrjú lið fyrir neðan okkur að styrkleika næst þegar dregið verður í riðla." Þú segir við. Ert þú ekkert á þeim buxunum að segja starfinu lausu? „Ég er hvergi smeykur. Ég á eftir rúmt ár af mínum samningi og ef ég hætti fyrr þá verður það að ósk yfirmanna minna." Má þá vœnta drastískra breytinga fyrir leikinn gegn írum? „Það er mánuður í þennan leik, ég vonast til að Arnar Gunnlaugs fari að vinna sér sæti í Sochaux og að strákarnir allir bæti sig. Hvort miklar breytingar verða á liðinu get ég ekki sagt til um á þessari stundu, en maður hugsar margt. Við höfum báðir nefnt það að við eigum ekki alltof marga góða leikmenn. Við hristum örugglega ekki neinar stórstjörnur niður úr trjánum núna í október." Verður Birki Kristinssyni refsað fyrir þetta heimsku- lega mark sem hann fékk á siggegn Litháum ogsvo Rúm- enum? „Ég get ekki sagt neitt til um það. Liðið hefur ekki verið valið fyrir næsta leik, en ef hann hefði staðið á línunni hefði hann líklega gripið boltann..." „Ef, kannski, hefði, mundi...“ „Átján rófur á einum hundi.“ Og svo framvegis." Hefur þú heyrt þann orð- róm að einhverjir landsliðs- menn hafi komið að máli við Eggert Magnússon og sagst vilja fá Guðjón sem þjálfara? Þeir séu óánœgðir með stöðu mála og vilji grípa til að- gerða? „Þetta hef ég ekki heyrt, enda myndi ég sjálfsagt frétta þetta síðastur manna." Þetta er eitthvað sem ein- hver góður maður hefur búið til. Þetta hef ég ekki heyrt áður,“ segir Éggert Magnússon, formaður KSÍ, um þessa fregn. „Við berum fyllsta traust til þjálfarans og stöndum með honum, en við erum ekki þar með að segja að við séum ánægðir með stöðuna. Ég vil vera í sigurliði og gef mig allan í mitt starf. Eg vil ná árangri, en við verðum að vera raun- hæfir í markmiðssetningu.“ Hvernig sem menn líta á málin þá hefur landsliðið ekki staðið undir væntingum, en það er kannski rétt að gefa mönnum séns fram yfir leik- inn gegn írum. En þjóðina þyrstir í sigur. írar verða erf- iðir andstæðingar og ef riðill- inn spilar eins og hann hefur gert þá eru allt eins líkur á að við lækkum um styrkleika- flokk og hvar stöndum við þá? Ljúfileiði... Leikhúsgesturinn Guðrún Jónsdóttir arkitekt með Áslaugu Ragnars á frumsýningu Nemendaleikhússins á verkinu Komdu Ijúfi leiði: Pað má ekki á milli sjá hvort er ógeðfelldara, sannfæring fátæklinganna um að þeir séu dæmdir til eilífs aumingjadóms eða meðfædd sjálfumgleðin og píslarvætti leiðindanna hjá yfirstéttinni, í leiknum sem Nemendaleikhúsið frum- sýndi í Lindarbæ sl. laugar- dagskvöld. Komdu Ijúfi leiði heitir leikverkið sem samið er upp úr tveimur verkum eftir þýzka nítjándualdar- höfundinn Georg Buchner, en þýðandi er Þorsteinn Þorsteinsson. Bæði verkin, Vojtsek annars vegar og Le- once og Lena hins vegar, eru þekkt, svo ólík sem þau eru að inntaki og allri gerð. Hávar Siguijónsson er höf- undur leikverksins, ásamt leik- hópi Nemendaleikhúss Leik- listarskóla íslands, en Hávar er jafnframt leikstjóri. Hvað sem árangrinum líður verður það að teljast dramatísk hugmynd að siengja saman svo ólíkum verkum og reyna að gera að einu. Því miður hefur það ætl- unarverk mistekizt. Áhrifin eru fyrst og fremst ringulreið og jafnvel leiði, þannig að titill sýningarinnar hefur þá orðið að áhrínisorðum. „Ég verð nú að viðurkenna það,“ sagði Guðrún Jónsdóttir arkitekt í hléi, „að ég skil hvorki upp né niður í þessu. Hvort þetta er melódrama eða ærslaleikur er mér ráðgáta, en það er alltaf gaman að sjá nýja leikara spreyta sig. Einlægni þeirra og leikgleði gefa þessu ákveðið gildi, hvað sem öðru líður.“ Ekki hafði Guðrún skipt um skoðun að sýningu lokinni, en þá bætti hún því við að það væri leiðinlegt fyrir fólk sem er að ljúka löngu og ströngu námi að þurfa að lenda í því að fást við grautargerð af þessu tagi: „Ef eitthvað er ættu þeir sem bera ábyrgð á starfsemi nem- endaleikhúss að tryggja eftir föngum að viðfangsefnin séu pottþétt en ekki einhver von- arpeningur. Mér fannst ég sjá hæfileikaríka einstaklinga í þessari sýningu og suma mjög efnilega, til dæmis Gunnar Hansson." Þrátt fyrir þennan höfuð- galla er ýmislegt vel gert og skemmtilega leyst í þessari sýningu. Leikararnir, sem hér þreyta frumraun sína, eru harla sundurleitur hópur, en mest kveður að þeim Atla Rafni Sigurðarsyni, í hlutverki Vojtseks, Gunnari Hanssyni sem lék prinsinn í Pópó og Þrúði Vilhjálmsdóttur, prins- essuna frá Pípí. Maríu, lags- konu Vojtseks, leikur Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Hefði hún eflaust komizt betur frá sínu, hefði persónan verið fast- mótaðri. Atli Rafn fór vel með hlutverk Vojtseks, en leið þó fyrir það eins og Katla Margrét að persónan sem hann lék var laus í reipum og lítt sannfær- andi, auk þess sem báðum var ætlað of lítið rúm í sýningunni til þess að þau gætu látið til sín taka að einhverju marki. Sá sem fékk bezt tækifæri til að njóta sín var tvímælalaust Gunnar Hansson í hlutverki Le- once. Framsögn hans var með ágætum, en þrátt fyrir sanna leiklyst náði hann ekki að túlka yfirþyrmandi leiða þeirrar hrokafullu aðalsstéttar sem hann var helzti fulltrúi fyrir í sýningunni. Þrúður Vilhjálms- dóttir túlkaði tilgerðarlega og innantóma persónu Lenu prinsessu vel eftir atvikum og bezt tókst henni upp er hún tiplaði eins og spiladósardans- ari inn og út af sviðinu. Inga María Valdimarsdóttir var kostuleg í hlutverki einkaþjóns prinsins og að því litla leyti sem Halldór Gylfason fékk tækifæri til að láta að sér kveða í hlutverkum kóngs og læknis fór hann vel með þau. Sérstaklega var kóngsfígúran spaugileg. Einkaþjón kóngsins lék Baldur Trausti Hreinsson með tilþrifum, einkum þegar hann var að koma þjösna- skapnum á framfæri. Hildi- gunnur Þráinsdóttur lék siða- meistara og hirðmær og átti góðar rispur í báðum hlutverk- um. Telja má að ytra byrði sýn- ingarinnar hafi heppnazt mun betur en inntakið. Það var erf- itt að finna til með lítilmagnan- um og enn erfiðara að láta sér vera illa við aðalspakkið. Sviðsmynd Axels Hallkels var ásjáleg, að öðru leyti en því að forljótir listlíkisklumpar drógu úr fínlegum áhrifum góðrar lýsingar Egils Ingibergssonar og hríslna sem voru umgjörð sviðsins og fóru vel við rauða- mölina á gólfinu. Búningar voru afar misjafnir. Til dæmis verður að teljast hæpið að hirðmey rokkókóprinsessu hafi klætt sig líkt og skandínavísk vinnukona í upphafi þessarar aldar og umkomulaus barns- móðir rakara sem hafði lifi- brauð af því að þjóna aðlinum hefur fráleitt verið til fara eins og portkona. Förðun og hár- greiðslu annast Krístín Thors og var hvort tveggja ágætt inn- legg í leikmyndina. „Hvað sem árangrinum líður verður það að teljast dramatísk hugmynd að slengja saman svo ólíkum verk- um og reyna að gera að einu. Því miður hefur það ætl- unarverk mistekizt.“

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.