Alþýðublaðið - 21.11.1970, Page 9
IÞROTTIR
-sagöi Ramsey
□ í sjónvarpsviðtali á miðviku-
dag, lýsti Sir Alf Ramsey því
yfir, að hann veldi aðeins í
enska landsliðið með tilliti til
'getu mianna. Það væri skoðun
hians, að Bobby Chai’lton og
Gordon Banks væru ekki nógu
góðir um þessar mundir til að
komast í landsliðið. —
/
( 9)1 if il El Rl II vs A LV El U IÐ
m II Dl Kl Nj r n LE IKI m ny 1“
□ Einn Ieikmanna íslenzka
landsliðsins, Gunnsteinn Skúla-
son, Val, leikur í dag sinn fyrsta
Iandsleik. Af því tilefni ræddi
hlaðið stuttlega við hann. Gunn
steinn er 23 ára gamall, kvænt-
ur Sigrúnu Gunnarsdóttur og
eiga þau tvö börn, Skúla og
Guðnýju. Hann rekur hjclbarða
verkstæði ásamt föður sínum.
— Hvenær byrjaðir þú að
iðka handknattleik, Gunn-
steinn?
— Ég byrjaði að æfa með 4.
flokki Vals 11 ára gamall, og
hef alla tíð keppt með Val, bæði
í handknattleik og knattspyrnu.
Þú varst kosinn bezti sóknar-
maður Norðurlandamcts ungl-
ir.ga 1966. Síðan verða engar
framfarir. Hversvegna?
— Því er nú ekki gott að
svara, en þó má geta þess, að
ég stcð í húsbyggingum á þess-
um árum. og hafði þar af leið-
ardi ekki eins mikinn tíma til
æfinga og æskilegt var.
— Og nú þegar þú ert 23 ára,
þá koma framfarirnar allt í
einu. Hversvegna?
— Já, það er satt, þetta geng-
ur allt miklu betur núna, og ég
hekl að það sé mest því að
þckka hvað ég æfði vel í sumar.
Valur æfði mjög vel fyrir úti-
mótið, og hélt æfingum áfram
af fullum krafti eftir það. Voru
það bolta-, þrek- og lyftinga-
æfingar, en þær lel ég alveg
nauðsynlegar ef árangur á að
nást. Einnig hætti ég iðkun
knattspyrnu í sumar, en sneri
mér alveg að handknattleiknum.
— Þú heíur ekki vtrið farinn
að örvænta um að komast í
landslið?
— Nei. nei. Ég hef bara æft
handknattleik mér til gamans,
og að leika í landsliði hvarflaði
ekki að mér. Það er vissulega
gaman að vera kominn í lands-
lið, og hver vill ekki Ieika fyrir
þjcð sína? Mér finnst andinn í
liðinu góður. þetta eru allt strák
ar sem maður hefur kynnzt
gegnum íþrcttirnar.
Dettur þér í hug einhver leik
maður sem ekki hefur leikið í
landsliði, en ætti það skilið að
þínum dómi?
Þessu er erfitt að svara. en þó
kemur mér strax í hug Bergur
Guðnason. Hann er leikmaður
sem hefði átt skilið landsliðs-
sæti fyrir löngu.
— Ætlar þú ekki í Rússlands
ferðina?
— Jú, ég er alveg ákveðinn í
því, svo framarlega sem ég verð
valinn.
— Hvernig leggjast svo átök
in í þig?
— Bara vel. Þó verðum við
að biíast við öllu af Bandaríkja
mönnunum, því við vitum að
það hafa orðið miklar framfar-
ir hjá þeim í handknattleik. Þeir
hafa ausið í hann peningum, og
það hefur sitt að segja. En ég
er staðráðinn í að gera mitt
bezta. — SS
í
i
ISLANDSMET
□ Á innanfélagsmóti 'frjáls-
íþróttadeildar Ármanns í Bald-
urshaga í gærkvöldi, voru sett 4
Islaindsmet. Annars urðu úrslit
X mótinu þessi;
Langstökk kvenna: Láu-a
Sveinsdóttir Ármanni 4,84 (ísl.
m'et).
Langstökk karla: Valbjörn
Þorláksson Ármanni 6,75.
50 m. grindahlaup kvíenna:
Sigurborg Guðmundsd. Árm.
8,7 sek. (isl.met).
50 m grindahlaup karla: Val-
□ Islendingar leika fyrri lands-
leik sinn gegn Bandáríkjamönn-
um í Laugardalshöllinni í dag,
og héfst leikurinn kl. 16. Seinni
leikurinn fer fram á morgun
kl. 15. Aðgöngumiðasala hefst
báða dagana M. 13. Forleikir
eru að báðum leikjunum. Fólk
bjöi’n Þorláksson Árm. 6,9 (ísl.-
met).
50 m hlaup karla: Bj arni
Stefánsson KR 5,9.
50 m hlaup kvenna: Sigurborg
Guðmundsdóttir Árm. 7,0 (ísl,
met).
Þess má geta að Sigurborg er
dóttir hins kunna hlaupara Guð-
mundar Lárussonar. —
er eindregið hvatt til að sækja
þessa leiki vel, því fjárhagur
HSÍ er mjög bágborinn nú sem
stendui-. Bandaríska liðið er í
mikilli framför, og má því búast
við jafnri og skemmtilegri
keppni. —
I
Áskriftarsíminn er 14900
Styrkið og
styðjið HSÍ
Aukafundur
LANDSSAMBANDS LÍFEYRISSJÓÐA
sem boðaður >hafði verið föstudaginn 20. þ.m.
en fresta varð af óviðráðanl'egum ástæðum,
verður haldinn í Átthagasal HÓTEL SÖGU
mánudaginn 23. nóv, n.k. kl. 14.00.
Stjórnin
Utboð
Öryrkjabandalag íslands óskar eftir tilboð-
um í eiftirfarandi efni og tæki: .
1. Pípur og fittings (fyrir skolp, vatns-.
og hitaliagnir)
2. Hreinlætistæki (salerni, handlaugar
og böð)
Útboðsgagna má vitja á Teiknistofunni Óð-
insgötu 7. Tilboð verða opnuð 4. des. n.k.
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1970 9