Alþýðublaðið - 09.12.1970, Blaðsíða 7
Vendmeer, var ekki nema tólf ára.
Móðir hans kom að honum, þar
sem hann lá í baðherberginu, en
við hlið.honum lá lyifjadaela og
tvö h'eroinhýlki. Þá fyrst skyldi
móðirin, hvers vegna drengurinn
hafðd kvartað yfir því að undan-
förnu að hann sæi vofur um há-
bjartan daginn.
Tala iþeirra unglinga í New
York, sem orðið hafa þrælar
þessa lyfs, sem er hættulegast
allra eiturlyfja, er áætluð um
25.000 af sérfróðum mönnum. Á
bak við allt þetta stendur vald-
ugur r.myglhringur undir stjórn
glæpasamtakanna Cosa Nostra.
Glæpasamtökin fá eiturlyfið að
mestu ieyti frá Tyrklandi, og er
talið að árleg umsetning nemi um
40 milljörðum króna.
—‘ Heroinið mun flæða næstu
turlyfjaneyzla er leikur við dauðann.
árin inn í alla skóla í Bandaríkj-
unum, jafnt barnaskóla og fram-
haldsskóla, segir formaður eitur-
lyríjanefndarinnar í New York, dr.
Donald Loura, ekki alls fyrir
löngu.
Þegar hash-flóðbylgjan reis
hæst í Bandarikjunum fyrir um
það bil fimm árum, var þess ekki
neytt nema af tiltölulega afmörk-
uðum hópum. Þess var mest neytt
af íbúum fátækrahverfanna, tón-
liistarmönnum, aldunhnignum leik
urum og fólki, sem áítí við ein-
hver kynferðisleg vandamól að
stidða. Nú er svo komið að það
eru einkum börn miðstéttafólks,
sem verða eiturlyfjanautninni að
bróð. Synir og dætur lækna, mála
færslumanna, stjórnmálamanna
og manna í utanríkisþjónustunni.
íjí| — Ég neyti allra þeirra eit-
urlyfja,' sem ég get komizt yfir,
hash, heroins, LSD, sagði Izabel
Salazar fyrir nokkru, en hún cr
tólf ára að aldri. Hún er dóttir
eins af kunnari sáiíræðingum
vestur þar, og hafði, þegar hún
iét svo ummælt, telcið þátt í eit-
urlyfjasvalli, sem stóð samfleyít
í þrjá sóladhringa.
Spurningar, sem lagðar voru
fyrir unga eituríyfjaneytendur,
leiddu í ljós þá uggvænlegu stað-
reynd, að flestir þeirra álitu her-
oin ekk'ert hættulegra en hash.
Það er ógnvekjandi misskilning-
ur, og því miður eru sumir þ.eirra,
sem vinna gegn útbreiðslu eitur-
lyfjanna, sömu skoðunar.
Það lítur út fyrir að sérfræð-
ingar í öllum löndum séu nokkurn
veginn á einu máli um það, að
hash sé fremur hættulítið og e-kki
vanabindandi, að minnsta kosti
ekki fyi-st í stað. Thomas Kroll,
ungi Þjóðverjinn sem sagt var fró
í upphafi greinarinnar að lálizt
hefði í Heidenheim, hafði einung
is reykt hash. En þar var ,þó fleira
sem lagðist á eitt. Hann drakk á-
fengi samtímis því að hann reykti
hashið, hann hafði auk þess t:ek-
ið inn einhverjar töflur, og loks
leiddi krufning í ljós að hann
þjáðist af sjúkdómi í nýrum, en
það mun hann ekki hafa vitað
um sjálfur.
Þegar þannig vlll til, getur
hashið líka verið lífshætíulegt.
Þar við bætist svo, áð oft neyta
þeir unglingar hash, sem sú nautn
getur verið beinlínis hættuleg.
Þar m.eð er átt við þ'á sem eiga
við erfiðar sálarflækjur að stríða
vegn-a slæmra uppeldiisáhrifa og
Framhald á bls. 10.
Algengast er aS eitrinu sé dælt í handlegg, og enginn veit ItvaS viS tekur.
Söluskatfur í Kópavogi
Söluskattsgreiðendur í K'ópav'ogi eru hér
með aðvaraðir um, að eindagi söluskatts
mánaðanna septemher og október 1970 er
hinn 15. þ.m. Falla þá á söluskattinn 'd'rátt-
arvextir.
Atvinnurekstur þeirra gjaldenda, sem ekki
hafa gert full skil hinn 15. þ.m., verður þá
þegar stöðvaður án frekari aðvörunár.
BÆJARFÓGETINN í KÓPAVOGI
Jólaljósin
í FOSSVOGSKIRKJUGARÐI
4- verða afgreidd í Fossvogskirkjugarði
4 alla virka daga frá kl. 9—19 frá og með
j4 14. desem'ber til hádegis á Þorláklsmessu.
J4 ATIí.: Ekki afgreitt á sunnudögum.
LAUS STAÐA
Kennara vantar stþax eða frá áramótum til
að kenna rafmagnsfræði við Vélskóla ís-
'lands.. — Nánari upplýsingar gefur undir-
ritaður.
Gunnar Bjarnason,
skólástjóri Vélskóla íálands.
Erum fluttir með starfsemi
okkar í Brautarliolt 18 II. hæð
Höfum eins og áður eitt mesta úrval landsins af gluggatjalda-
brautum og stöngum ásamt fylgihlutum. Allt v-þýzk úrvals vara
Fljót og góð þjónusta. Aðeins að hringja í 20745 og við send-
um mann heim með sýnishorn.
Gardínubrautir hf. Brautarhofti 18II. h.
Auglýsingasíminn er 14906
MIDVIKUDAGUR 9. DESEMBER 197Q 7