Alþýðublaðið - 08.01.1971, Síða 6
•RfflNMI
Vmúim
Útgr.: Alþýðuflokkurinn
Ritstjóri:
Siffhv. Björgvinsson (áb.)
Prentsim. Alþýðublaðsins
Sírai 14 900 (4 línur)
Hækkun fiskverðs
Ákveðin hefur verið 25% meðaltals-
hækkun á fiskverði. Þessi hækkun varð
tii þess, að samningar tókust laust fyrir
áramót við bátasjómenn og hafa þeir
samningar þegar verið samþykktir af
flestum félögum innan Sjómannasam-
bands íslands. Getur því vetrarvertíð
hafizt með eðlilegum hætti og sjómenn
fá í sinn hlut verulegar kjarabætur.
25% meðaltalshækkun á fiskverði er
vissulega mikil. En afkoma fiskvinnslu-
fyrirtækja á árinu hefur verið mjög góð
og geta þau því auðveldlega risið undir
umræddri hækkun sé vel á haldið. Af-
urðaverð á fiskiðnaðarvörum á helztu
markaðssvæðum íslenzkra fiskútflytj-
enda hefur farið hækkandi á árinu, sala
gengið mjög vel og afrakstur fiskvinnslu
fyrirtækjanna því orðið ali-mikill.
Hin góða afkoma frystihúsa og ann-
arra fiskvinnslustöðva var kunn þegar
um mitt síðast liðið sumar og auðsæ
líkindi þess, að sú afkoma myndi frekar
fara batnandi en hitt. Því var vitað þá,
að einmitt fiskiðnaðurinn myndi þola
að á hann yrðu lagðar nokkrar byrðar
svo unnt væri að bæta afkomu almenn-
ings í landinu.
Ýmsir töldu því rétt, þegar ákveðnar
voru hinar miklu niðurgreiðslur og
auknu fjölskyldubætur samfara verð-
stöðvuninni, að taka eitthvert fjármagn
til að standa straum af slíkum aðgerð-
um frá fiskútflutningsiðnaðinum, sem
átti við mjög góða afkomu að búa, eins
og áður segir. Hliðarráðstafanir verð-
stöðvuninni, að taka eitthvert fjármagn
greiðslna og aukning fjölskyldubóta
voru til þess ætlaðar að rétta hlut al-
mennings við verðstöðvun og slíkar að-
gerðir krefjast mikils fjármagns. Þótti
'því ýmsum rétt, að stór hluti þess fjár-
magns yrði fenginn frá þeim atvinnu-
rekstri, sem hvað traustustum fótum
stæði þá í svipinn, — fiskiðnaðinum.
En ríkisstjórnin ákvað að fara ekki
þá leið til þess að afla f jár í niðurgreiðsl-
ur og tryggingabætur. Hún kaus heldur
áð fara þar aðrar leiðir, — með hækkuð-
um launaskatti, sem leggst jafnt á allan
atvinnurekstur og fjárframlögum úr
ríkissjóöi sjálfum. Þannig var greiðslu-
geta fiskvinnslufyrirtækjanna að mestu
leyti látin algerlega ósnert og að svo
var gert er einmitt forsenda þess, að
fiskútflutningsiðnaðurinn gat tekið á sig
svo mikla fiskverðshækkun, sem ákveð-
in var nú skömmu fyrir áramót. Sú
stefna ríkisstjórnarinnar, að hlífa fiskút-
flutningsfyrirtækjum landsmanna við
þungum byrðum samfara hliðarráðstöf-
unum verðstöðvunarinnar leiddi þjjí til
þess að samníngar við bátasjómenn tók-
ust nú greiðlegar en oft áður og fiskiðn-
aðurinn gat veitt þeim verulegar kjara-
bætur í mynd hærra fiskverðs.
FORSETI PÓLLANDS
KAST-
LJÓS
að verða hræðsl-
unni að bráð...
Eitur sett
/ ■ / /.
i gjar ut-
hafanna
□ Þensla hafis-botnsíns getur
fcomið í veg fyrir mengun af
vötdum eiturefina, ef náttúr-
unni er hjálpað með mark-
vissu átaki allra iðnaðariþjóða.
Á mörkum dj-úpsjávarbotnsins
og massa megimlandanna eru
djúpar gjár. Þessar gjár eru á-
gætur geymslustaður fyrir eitr
uð úrgangsefni, :þar sem hafe-
botninn fcemur til með að
byrgja gjárnar og mundi því
flytja eiturefnin niður í iður
jarðar.
Þesei hugmynd kom fram á
ráðstefnu háttúruvÍBinda-
manna um mengun sjávarins
og áhrif hennai- á fiskveiðar og
Ufið í hafinu, sem haldin var
í Rcm í síðasta mánuði á veg-
um FAO, fæðu- og landbún-
aðai-málastofnunar Sameinuðu
þjóðanna.
Fufltrúar á ráðstefnunni
voru á einu máli um það, að
mengun yrði að hindra á upp-
runastað ef mög'ulegt væri. í
filestum tiilfellum er hægt að
draga mikið úr útbreiðslu eit-
urefina ef ríkisstjórnir heims
gera sér grein fyrir mikilvægi
slikra aðgerða, setja um þæý
reglur og hafa með því strangt
eftir€it, að reglum sé fylgt.
Mikil áherzla var lögð á
þörfiina á aiþjóðakerfi til eftir
lits með mengun sjávar. Fyrsta
skrefið yrði að safna upplýs-
ingum um ásigkomulag heims-
hafanna.
Ráðstefnan var iþvi mjösg
meðmælt, að banna skyldi að
skilja eftir eitruð úrgangsefni
á fiskimiðum eða öðru grunn-
sævi. —
□ Þegar Þýzk-pólski samning'-
urinn var undirritaður, var það
foreætisráðherra Póllands —
eða forseti stjórnarráðsins eins
og það er kallað þar — Josef
Cyrankiewicz, sem undirritaði
ihann fyrir hönd Póllands. Hann
gekk þá sem snöggvast fram í
sviðsijós atburðanna, en það
gerir Cj-rankiewácz annare
sjaldan. Hann er maður sem
reynir að halda sig að tjalda-
'baki. En nú er hann orðinn for-
seti Póllands.
Það er táknrænt hvað það
snertir, að árið 19&8 þegar háð
var hörð valdabarátta í Póllandi,
með jþví að „skæruliðam>:<-“
iþrengdu mjög' að Gomulka í því
skyni að komast til aukinna á-
ihrifa, þá voru það þeir Mos-
car innanríkisráðherra, leiðíogi
þeirra, og hinn fyrrverandi for-
seti Ochab, sem stöðugt var get
ið í fréttaskeytum og frásögn-
itm. Cyrankiewicz foreætisráð-'
herra var ekki nefndur á na.fn,
og það enda þótt hann væri tal-
inn ákveðinn fylgismaður Go-
mulka.
Skýringin er sú að Cyrankie-
wicz er Slunginn stjórnmálamað
ur. Hann hefur haldið embætti
sínu sem forsætisráðherra bæði
á valdatímabili stalínista og
gomulkista. Hann var sá maður,
sem tryggt gat vissa vdðtiekna'
samstöðu, þar sem hann var fús
að viðurfcenna „sfcæruliðana“.
og þeir hánn,
En sterk varð aðstaða hans þó
ekki á valdabaráttutumabilinu
1968. Yið kosningarnar í júnú
var hann, ásamt Jedrychowski
utanríkismálaráðhterra, meðal
þéirra frcunbjóðenda sem naum
ustum stuðningi kjósenda áttu
að fagna í sínum kjördæmum,
en Gomuika hlaut 99.9%'
greiddra atkvæða í sí.nu kjör-
dæmi. Þá áttu kjósendur ekkj
um annað að Velja, et' þeir vildu
láta í ljós vaniþóknun sma á
einhverjum frambjóðanda, en
að strika nafn hans út af listan-
um. Samt sem áður er CyranJd'e
wicz enn forsætisráðherra
iþrem árum síðar.
Josef Cyrankiewicz er fæddur
23. apríl 1911, og því orðinn
59 ára. Að tilskyldu námi loknu
lagði hann stund á lögfræði við
Jagellonian-háskólann í Krakau.
■Hann var þá þegar starfandr
mieðlimur í sósíalistisku æsku-
lýðshreyfingunni, og sem stúd-
ent lét hann mjög til sín tafca
í félagssamtökum framsóknar-
stúdenta. Sem meðlimur sósíal-
istaflokktsins var hann kjörinn
ritari flokfcsdeildarinnar á
Krakau-svæðinu 1935, og tófc
virkan þátt í „undirbúningi sam-
fylkiingarinnar við kommúnist-
ana.
Þegar brynvagna-herfylkl
Hitlers ruddust inn ytfir pólsfcu
landamærin í september 1939,
tók Cyrankiewicz þátt í bar-
dögum s'em liðsforingi í stór-
sfcotaherdeild. Hann var tekinn
til faniga, en. tókst að strjúka
og gerðist þátttakandi í sósíal-
istisku neðanjarðarhreyfing-
unni. Þjóðverjar tóku hann
höndum öðru sinni árið 1941;
sat hann þá um hríð í Montel-
upi'fangelsinu í Krakau, áður en.
hann var fluttur í fangabúðirn-
ar í Auschwitz.
í Aushwich átti hann þált í
að sfcipuiLeggja andspyrnuhrieyf-
ingu innan fangabúðanna, og
einnig lagði hann þar grundvöll
inn að leynisamtökum sem sam
anstóðu af sósíalistum og komm
únistum úr mörgum löndum.
Hann varð foringi hernaðar-
legra samtaka 1943 — 44. í jan-
úar 1945 var hann fluttur frá
Auschwitz til fangabúðanna í
Mauthausien.
Eftir ósigur Þjóðverja sneri
hann heim og hélt áfram störf-
um sínum í framkvaamdaráði
sósíalistaflokksins og varð ráð-
herra án stjórnardeildar árið
1946. Hann var kjörin fulltrúi
á þjóðþingið 1947 og varð for-
sætisráðherra það sama ár. Cyr
ankiewicz, siem hafði verið með
limur sósíalistaflokksins frá því
1935, útti þátt í sameiningu
hans og kommúnistaflokksins í
„sameinaða pólska verkamanna
flokknum“ 1948, og varð einn af
þrem aðalriturum þess flokks.
Um leið varð hann meðlimur
miðstjómarinnar og stjórnar
leynilögreglunnar.
□ VIÐ OG VIÐ fcomast
sovézkir gyðingar til fyrir-
Iheitna landsins og nýlega birtist
viðtal við einn þeirra í Jeru-
salem Post Weekly, — 28 ára
gamlan tæknifræðing Anatol
Defcatov að nafni. Spurningar
Cyramkiiewicz gegndi síðan
embættd forsætisráðherra til
1952, þegar Bierut myndaði
nýja stjórn og skipaði hann að-
stoðaríoreætisráðherra. Því emb
ætti gegndi hann þó ekki nema
í tvö ár, því að hann varð aftur
forsætisráðherra í marz 1954, og
ihefur verið það síðan, unz hann
tók við foreetaembættinu.
Auk þess embættis var hann
formaður samtaka fyrrverandi
pólitísfcra fanga 1946—9 .og frá
1949 hefur hann verið í mið-
stjórn samtaka, sem berjast fyr
ir frelsi og lýðræði. Hann hefur
verið sæmdur heiðursmerki
pólsku andspyrnuhi'eyfingarinn
ar, og hlotið margvíslega virð-
ingu fyrir störf sín í þágu al-
þýðulýðveldisins í Póllandi. —
og svör voru á þessa leið:
— Þú stjórnaðir kebresku-
skóla í Moskvu. Hvemig stóð
á því að yfirvöldin l'eyfðu það?
— Það er ekki ólöglegt. Ég
auglýsti skólann meira að segja
í blaði.
— Fékkstu ekki fararleyfi út
á að loka skólanum?
— Ég held að yfirvöldin hafi
g-ert ráð fyrir áð hann myndi
haetta þegar ég færi. Þau vissu
ekki að það myndi annar taka
við mínu stairfi.
— Þú hefur talað um endur
vakningu Judisma og Zionisma
meðal ungra sovézkra Gyðinga.
Hvemig hittast þeir?
— Þeir hittast í synagogute.
Jæja . . . ekki beint í synja-
gogue, heldur rétt hjá þeim.
— Getiur þú sagt okkur eitt-
hvað um andgyðinglega stefnu
í Sovétríkjunum.
— Já, maður finnur hvar-
vetna fyrir andúðinni. Þú
gleymir aldrei að þú ert „Zhid.“
En ég get skilið af hverju gyð-
ingar eru álitnir minni háttair
borgarar. Þeir eru hræddir við
sjálfa sig.
— Ei'u ekki margir gyðingar
góðir kommúnistar, Sem hafa
geirt mikið fyrir sitt föðurland?
— Vissulega, þeii- eru margir
mjög góðir kommúnistar, en
um leið eru þeir ekki mjög
góðir gyðingar.
— Er möguleiki fyrir Zion-
istahreyfinguna að starfa í
Sovétríkjunum. Hver er af-
staða hennar miðað við hina al-
mennu stefnu menntamanna?
— Zionismiinn ér í algjörri
mótsögn við skoðanir mennta-
manna í Sovétríkjunum í dag.
Skoðanir menntamannanna
Framh. á bls. 8.
m*
LIFEINTERNAÍIONAL
HÆTTIR AÐ KOMA ÚT
□ Life Intcrnational hætti að
koma út 21. desember s. I., en
það hóf gör.gu sína árið 1946.
Bandaríska útgáfan af LIFE
kemur áfram út og verður til
sölu á stærri blaðsölustöðum
út um allan heim.
Síðasta heftið er mjög mynd
arlegt, en það er fullt af frá-
bærum ljösmyndum er hlutu
verðlaun eða viðurkenningu í
ljósmyndasamkeppni er LIFE
boðaði í marz s. I., og rann út í
októberbyrjun. í samkeppnina
bárust um Vz milljón mynda
eftir 40 þósund manns. Mynda
flokkarnir voru þrír: Landslag,
andlxt og hraði/hreyfing. í sam
keppninni lóltu þátt bæði lærð
ir og ólærðir ljósmyndarar og
l'engu þeir jafnhá verðlaun.
Hæstu verðlaun í hverjum
flokki voru 5 þúsund dollarar,
siðan 3 og 1 þúsund dollarar.
Alls voru veitt verðlaun að
upphæð 80 þúsund dollarar.
Ólærður ljósmynd.ari sendi
þessa mynd í ljósmyndasam-
keppnina — tveir naktir
Jamaíkamenn blaupa eftir
ströndinni. —
Krabbameinshættan allt í kring
Allt í kring um okfcur eru efni
siem valda krabbameini, og
nokkur þessara efna virð.
aSrt ' eingöngu fyrirfinn-
ast í Danmörku. Síðustu 20 ár-
in hefur til dæmis orðið þar ó-
skiljanleg fjölgun varðandi
sjúklinga sem þjást af krahba-
meini í eistum, einkum í Kaup
mannahöfn, skrifar'Johs. Clem
mensten yfirlæknir í danskt
vdkurit fyrir lækna.
Eninn getur enn sem komið
er bent á líklega orsök þess að
eistnakrabbamein færist svo
mjög í vöxt meðal Kaupmanna
hafnarbúa, en Jþað er tiltölu-
lega fátitt annare staðar. Það
eru fyrst og fremst menn á
aldrinum milili tvítugs og fimm
tugs, sem mein iþetta taka.
Hugsanllegt er að skýringin
standi í einhverju sambandi
vdð hormóna, en það er einnig
hugsanlegt að þar sé um að
ræða eitthvert óþekkt eitur-
efni. í Finnlandi er krabba-
mein í þessum liffærum mjög
sjaldgæft.
Clemmesten yfirlæknir telur
naumast stætt á að hafna kenn
ingunni um óþekkt eituráhrif
siem orsök krabbameins.á ibess
um stað. Hann deggur áherzlu
á að iðulega verði að grípa til
varnan-áðsta'fana í gagnvart
efnum, sem gi-uxjuj- hvílir á.
Jafnvel þótt ékki v|rði sannað
að þau séu krabbamleinsvaildar,
iþá geti shk efni stuðlað að
krabbameinssýkingu. þegar
rim viðkvasma viefi sé að ræða.
Fyr.ir það sé réttmætt að gripa
ti'l gagnráðstafana. þótt urn
grun einn sé að ræða.
Áhrif tóbaksnautnar eru al-
kunn, en þó er vert að
vieita því atihygli .að einu.ngis
10% „mikilla“ reykingamanna
— sem reykja meira en 40 síga
rettur á drrg — sýkjast af
lungnakrabba. Það lítur þ\tí út
fyrir að einhver „bronkít.is-
faktor“ í' lungunum skeri úr
um 'það hvort miklar tóbaks-
rejkingar . .vsrldi' ' krabbameini
eða ekki. Þegar krabbamein er
annare vegar virðist oft um
samvirkar oreakir að ræðu.
Það hefur 'ekki sannazt að á-
fengi valdi krabbameini, en
hins vegar virðist elcki nem-
um vafa bundið að samnotkon
áfengis og tóbaks auki mjog
hættuna á krabbam.eini í vél-
inda og efri hluta .meltingar-
ganga.
Þegar magakrabbi er svo út-
breiddur sjúkdómur á íslandi
og í Japan svo sem raun ber
'vitni, hlýtur það að standa í
einhverju sambandi við matar
æði í þessum löndum. Krabba
mein í brjóstum 'getur einnig
staðið í einhverju sambar.di
við fæðuna. Það -Wefur verið
sannað, að óvenjulega mikiis
úi-fellis karfhormóna gætir í
þvagi kvenna, sem næmar efu
fvrir krabbameind í brjóstu.n.
Þessa fyrirbæris gætir ekki h.iá
japönsfcum konum í sinu
heimalandi. En við athugun á
japönskum konum, sem búseít
ar eru í Kanada, kemuf það á
daginn að þær, sem sýkzt hafa
af krabbameini í brjóstum,
skila karlhormónum í þvagi á
sama hátt og aðrar konur á
Vesturlöndum. Fyrirbæríð
bendir til þess að eitthvað í
mataræði kunni að eiga sök á
þessu.
Þá hefur'rannsókn og 'eiít í
ljós, að séretakra varúðaTráð-
stafana er þörf þegar unnið er
við máhn'blendið nikkel og
króm, við ryðfrítt stál og gljá-
bi-ennslu, við blásýru og ál og
'fleiri slík efni. Fólk siem vinn-
ur við asbest er og í hættu, 240
sjúkldngar — úr ýmsum lör.d-
um — haf sýkzt af lungna-
krabba við þann starfa. í gúm-
og leiðslugerð hvilir og grunur
á efni nofckru, sem kallast
xenylamin. Benzidin, efni sem
læknar og þá einkum þeir
læknar nota, siem fást við morð
rannsóknir, er talið hættuiegt.,
sé það notað við fatahreinsun,
Þá hafa og rannsóknir í Kaup-
mannahöfn leitt 'í ljós að smjör
Fi"amh. á bls. 8.
6 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1971
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1971 J