Alþýðublaðið - 27.04.1972, Blaðsíða 3
SÆNSK „UMHVERFIS- LÖGREGLA" í BÍGERD
Sænski Jafnaðarmannafiokk-
urinn hefur sett fram mjög rót-
tæka umhverfisverndaráætlun,
sem ineöal annars gerir ráð fyrir,
að fyrirtækjum verði gert skylt að
sanna, að framieiðsluvörur
þeirra séu ekki skaðlegar um-
, hverfinu, áöur en þær eru settar á
markaö.
F'jórtán punkta áætlun flokks-
ins gerir einnig ráð fyrir stofnun
sérstakrar „umhverfislögreglu”,
sem á að gæta þess, að reglurnar
séu haldnar.
Hækkun rekstrarf járveit-
ingar til Háskóla íslands fyrir
árið 1972 varð meiri cn dæmi
eru til áður, en fjárveitingin
nemur samtals rúmlega 153
millj. króna.
Til framkvæmda á árinu er
áætlað að verja samtals
103.727 millj. króna, en af
þeirri upphæð eru tekjur af
llappdrætti H.t. 64 millj. króna,
sem er talsvert meira en ráð
var gert fyrir.
i framkvæmdaáætluninni er
gert ráð fyrir að lokið verði
öllum undirbúningi að fram-
kvæmdum við hús tannlækna-
deildar og samciginlegt húsnæði
Landspitalans og læknadeildar.
Þetta kemur fram I skýrslu
samstarfsnefndar um háskóla-
málefni, en i henni eiga sæti
fulltrúar Háskólans og ráðu-
neytanna.
t skýrslunni cr gerö grein
fyrir skiptingu rekstrarfjárins
milli einstakra deilda Háskól-
ans, og kemur þar I Ijós, að
verkfræði- og raunvisindadeiid
er dýrust I rekstri: til hennar
eru ætlaöar 32.6 millj. króna Til
læknadeildar fara 24,3 millj. kr.,
heimspekideildar 21.1 millj.,
tannlæknadeildar 11,9 millj.,
lagadeildar 7.2 millj., viðskipta-
deildar 6.7 millj., guðfræði-
dcildar 3.9 mitlj., til kennslu i
þjóðfélagsfræöum 3.6 millj. og
til lyfjafræði lyfsala 2 millj.
1 skýrslunni segir, að hækkun
þessi á rekstrarfjárveitingum
séfyrst og fremst vegna sfaukins
fjölda nemenda i Háskólanum
og aukinnar fjölbreytni þess
náms, sem Iláskólinn lætur i té.
í framkvæmdaáætlun fyrir
árið 1972 er gert ráð fyrir að
ljúka húsi lagadeildar og fyrsta
áfanga verkfræði- og raunvis-
indadeildar.
Vegna seinkunar á fram-
kvæmdum og hækkunar ýmissa
kostnaðarliða hækkar bygg-
ingarkostnaður húsanna nokk-
uð, og er áætlað að á einu árinu
þurfi um 24.1 millj. króna til
lúkningar húsanna.
Þá er gert ráö fyrir að hefjast
handa við annan áfanga verk-
fræði- og raunvisindadeildar-
húss, og er áætlað að leggja 20
millj. króna til þeirrar bygg-
ingar.
Þá er ákveöið að kaupa húsið
að Tjarnargötu 39 og taka á
leigu húsnæði að Grensásvegi 12
og Armúla 30, og eru ætlaðar i
þetta 22.4 millj. króna.
HVAR ER KLAMH)?
Verjandi i málinu krafðist þess,
að málinu yrði visað frá á þeirri
forsendu, að i ákæru saksóknar-
embættisins væri hvergi
nákvæmlega tiltekið hvað
fiokkaðist undir klám i bókinni og
hvað ekki.
i varnarræöunni tiltók hann
ýmis dæmi úr þekktum is-
lenzkum bókmenntaverkum og
gerði samanburð á þeim og texta
Kynblendingsins.
Óskaði hann siðan frávisunar
málsins, þar sem ákæran væri
gölluð. i henni væri aðeins sagt,
að ritið væri klámrit, án þess, að
nokkuð væri tekið fram um, hvað
i bókinni væri klám.
HASKÖLAÁRIÐ 1972
UPP Á153 MILUÖNIR
SELDU VER-
TÍDARFÖLKINU
GLADNINGINN
Fjórir leigubilstjórar voru
teknir fyrir lcynivinsölu i Sand-
gerði fyrir stuttu, og viðurkenndu
þeir að hafa selt frá átta upp í 25
flöskur hver fá áramótum, á 1100
krónur stykkið.
Þrir bilstjóranna voru af
Bifreiðastöð Suðurnesja og einn
úr Keflavik, og höfðu þeir aðal-
lega selt verbúðarfólki i Sand-
gerði vinið, en nokkur drykkju-
skapur hefur verið i verbúðunum
þar upp á siðkastið.
Lögreglan i Sandgerði komst á
snoðir um, að bilstjórarnir væru
að selja verbúðarfólkinu vin, og
hóf gagnasöfnun I þeim tilgangi
að geta ákært þá.
Fjöldi fólks viðurkenndi að hafa
keypt af þeim vin, og þegar nægi-
HLUTU VERÐLAUN
Það hefur verið venja á und-
anförnum árum að veita verð-
laun úr Menningarsjóði Þjóð-
leikhússins á afmælisdcgi
leikhússins. Að þessu sinni
hlutu leikararnir Margrét
Guðmundsdóttir og Klemenz
Jónsson verðlaunin. Þjóðleik-
hússtjóri afhenti þau að lok-
inni sýningu á Oklahóma á
sumardaginn fyrsta.
Menningarsjóður Þjóðleik-
hússins var stofnaður á sum-
ardaginn fyrsta fyrir 22 árum
á vigsludegi Þjóðleikhússins
og hafa nú 20 leikarar og leik-
myndateiknarar hlotið verð-
laun úr sjóðnum.
legum gögnum hafði verið safn-
að, voru bílstjórarnir kallaðir
fyrir hjá rannsóknarlögreglunni i
Hafnarfirði.
Þar viðurkenndu þeir brot sin,
sem fyrr segir. Við húsleit heima
hjá bilstjórunum, fundust aðeins
tvær vinflöskur, en þeir viður-
kenndu að hafa geymt vínið úti á
viðavangi og i skúrum.
Mál hilstjóranna hefur nú verið
sent bæjarfógeta i Hafnarfirði til
meðferðar.
Þess má geta, að sektir fyrir
leynivinsölu, geta numið allt að 50
þúsund krónum, og ef um itrekað
brot er að ræða, geta leigubil-
stjórar misst atvinnu- og ökurétt-
indi. —
Þarf Flugfelagið
leiguvel ef
japanski
Fokkerinn
fæst ekki?
í byrjun næstu viku fæst senni-
lega úr þvi skorið hvort og hve-
nær Flugfélag islands kaupir
Fokker-Friendship skrúfuþotu
frá Japan, en Landhelgisgæzlan
hcfur fest kaup á einni þaðan, og
þessa dagana eru flugmenn frá
F.i. að fara utan til að sækja þá
vél.
Um 10-15 notaðar vélar af þess-
ari gerð verða seldar þar á næst-
unni, þar sem þotur eru teknar
inn I áætlanir þess félags, sem
selur, Flugfélagið hefur áskilið
sér forkaupsrétt á a.m.k. einni
vél, enda brýn þörf á henni.
Sumaráætlun félagsins á innan-
landsleiðum hefst 1. mai, og fer
ferðum þá taisvert fjölgandi fram
i júnimánuð.
Að sögn Sveins Sæmundssonar,
blaðafulltrúa félagsins, liggur
ekki Ijóst fyrir hvort nauðsynlegt
reynist aö taka á leigu flugvél til
að fylgja sumaráætlun, en
ákvörðun um kaup á nýrri Fokker
flugvél myndi að sjálfsögðu ráða
bót á þvi, ef um afhendingu gæti
orðið að ræða nægilega timan-
lega.
Sumaráætlun félagsins á milli-
landaleiðum gekk i gildi uin sið-
ustu mánaðamót og er hún sú
viðamesta i sögu félagsins.
Báðar þoturnar verða fullnýttar
yfir annatimann.
Auk þess mun félagið annast
áætlunarflug fyrir SAS milli
Framhald á bls. 4
JATen
Fyrir skömmu gerðist það í
fyrsta sinn i sögu sakadóms
Reykjavikur, að kæru af hálfu
ákæruvaldsins var visað frá dómi
vegna galla, sem taldir voru vera
á henni.
Dómnum var áfrýjað til Hæsta-
réttar og staðfesti hann liéraðs-
dóminn.
Var hér um að ræða kæru vcgna
bókar, sem nefnist Kynblend-
ingurinn og kærð hafði verið sem
klámrit.
Fimmtudagur 27. apríl 1972