Alþýðublaðið - 06.08.1972, Blaðsíða 3
JOEY-FYRIR ÞETTA MUNU
GOTURNAR LITAST BLODI!
jæíLæÍu
Meðai viðstaddra við uttor Joey Gallo voru 20 leyniþjónustumenn. Kistan varaf beztu gerð, kostaði tæpa hált milljón króna.
Eftir aö allt hefur verið
meö kyrrum kjörum i
nokkur ár meðal banda-
riskra Mafiuforingja, er
aftur fariö að krauma i
pottinum. Glæpamannaó-
eiröir þær, er nú geisa i
New York, eru taldar eiga
upptök sin s.l. ár þegar
reynt var aö ráða Joe Co-
lomboaf dögum. Frá þeim
degi aö telja var hægt að
lita á Mafiuforingjann Jo-
ey Callo sem lifandi
dauöan" . Þaö er aö segja
hann beið aöeins eftir sinni
eigin aftöku.
S.l. april var svo gengið
endanlega frá honum. Joe
Callo var skotinn til bana,
þá er hann hélt upp á 43
ára afmælisdag sinn, á
veitingastaö nokkrum i
New York. bar meö var
búið aö lýsa yfir striði
milli tveggja Mafiufjöl-
skyldna.Sem áhorfandi aö
þessum hildarleik situr
svo sjálfur „Guðfaðir”
New Yorkborgar, Carlo
Gambino. Hann ernokkurn
veginn viss um aö hann sé
að fylgjast með siðasta
Mafiustriðinu sem háð
verður, og hvernig svo
sem úrslit verða kemur
hann til með að sitja sem
hinn sterki maður, þegar
átökin eru afstaðin.
Sviðið var mikilfeng-
legt, næstum eins og klippt
út úr kvikmynd. Stórar
svartar Cadillac-bifreiðir,
er óku hljóðlaust um göt-
urnar upp að Greenwood
kirkjugarðinum, gamlar
konur er beygðu höfuð sin
og grétu, þegar likfylgdin
fór framhjá. bað var verið
að fylgja Joey Callo til
grafar. Hin bronsaða lik-
kista hafði verið dýr, ná-
lægt hálfri milljón króna.
Margt fólk fylgdi Gallo
siðasta spölinn. Svart-
klæddar konur og menn i
Ijósum yfirhöfnum, með
dökk sólgleraugu.
Systirinn Carmella
beygði sig yfir kistuna og
sór hátiðlegan eið. — Joey
fyrir þetta munu göturnar
litast blóði. —
Á næstu sjö dögum fund-
ust sex sundurskorin lik i
Brooklyn Orörómur sagði
að þrjú önnur væru ..á
leiðinni”. Það var almennt
álitið að Gallo-fjölskyldan
stæði á bak við morðin.
Þrem dögum áður en
likfylgdin hafði átt sér
stað, hafði Joey Gallo setið
á veitingastofunni Um-
bertos Clam House, ásamt
fjölskyldu og vinum, og
haldið upp á 43. afmælis-
dag sinn. Tveir menn
komu inn drógu upp skam-
byssur og tæmdu úr þeim
á Joey. Joey Gallo dó á
leiö til sjúkrahússins.
Hinn hrottafengni dauð-
dagi Gallo kom ekki flatt
upp á neinn innan Mafiu-
samtaka New York borg-
ar. Siðan i júni i fyrra
hafði hann verið dauða-
dæmdur maður. Þaö var
einmitt þá sem hinn frægi
Mafiuforingi Joseph Co-
lombo hafði orðið fyrir
lifshættulegri morðárás.
Colombo fjölskyldan á-
kærði Joey Gallo fyrir að
standa að baki árásinni.
Joey Gallo hafði veriö
talinn einkennilegur fugl i
Mafiu-heiminum. Var álit-
ið að hann færi fremur eft-
ir þvi sem hann sá i göml-
um Richard Widmark
kvikmyndum, en fornum
venjum frá Sikiley. Hann
var álitinn lifshættulegur
vegna þess hve kaldgeðja
hann var og laus i rásinni.
Þar fyrir utan hafði hann
brotið hin óskráðu lög
Mafiunnar um að halda
sér eingöngu i sinu ,,viö-
skiptahverfi”. Með jöfnu
millibili réðst hann annað
hvort inn i hverfi Colombo
fjölskyldunnar, Staten Is-
land, eða Brooklyn-hverfi
Carlo Gambinos. Ekki
voru áhyggjurnar heldur
miklar, þótt aðrir litu á
hann sem svo gott sem
dauðan mann. Að hans
dómi fannst ekki sá morð-
ingi, sem gæti drepið
hann. Hann var meö sjar-
merandi mikilmennsku-
brjálæði, og þvi stórhættu-
legur.
Glæpamanna-
styrjöld
Á siðasta ári þótti útséð
að um Mafiu-styrjöld væri
að ræða i undirheimum
New York borgar. óhætt
er að segja að upphafið
hafi átt sér stað fyrir 12 til
13 árum. Þá yfirgaf Joey
Gallo fjölskyldu Joseph
Profacio, og byrjaði ,,við-
skipti” á sjálfs sin vegum.
Hann lenti strax i útistöð-
um við Colombo, en niu
morðum og tveimur árum
seinna varð Galloað hörfa
til sins hluta af Brooklyn.
En i fyrra áleit Gallo-fjöl-
skyldan sig nógu sterka til
að hefja væringarnar á ný.
,,Striðsyfirlýsing” var
gefin út. og fjölskyldurnar
tvær „went to the
mattresses” sem þýðir, að
þær bjuggu rammlega um
sig á hinum ýmsu stöðum
og borðuðu og sváfu þar,
með byssu i hönd. Á marg-
an hátt vakti það undrun,
hvernig komið var. Eftir
mörg friðsöm ár, voru
Bandarikjamenn farnir að
lita á „bófahasar , sem
sögu tilheyrandi fortið-
inni. Morð á götum úti
voru hlutir sem áttu sér
stað á timum A1 Capone,
ekki nú á dögum.
Fyrir tæpum tveimur
árum stofnaði Joe Colom-
bo nokkurs konar Borgar-
stéttarsam tök Banda-
rikjamanna, af itölsku
bergi brotnu. Á þennan
hátt notfærði hann sér
heiðarlegt fólk, til að
hylma yfir glæpastarf-
semi sina. Var þetta gert
sem mótleikur við FBI,
sem ætið er á höttunum
eftir glæpastarfsemi
italskra Bandarikja-
manna.
Borgarréttarsamtökin
höföu sinn eigin hátiðis-
dag, sem haldinn skyldi ár
hvert i júni. Svo var einnig
i júni i fyrra. Mörg þúsund
manns tóku þátt i hátiða-
höldunum, eða réttara
sagt mótmælafundinum.
Sté Joe Colombo i pontuna
og var hann ákaft hylltur
af samlöndum sinum. En
Joe Colombo hafði verið ó-
forsjáll, og hinir venjulegu
lifverðir hans voru eitt-
hvað sofandi á verðinum.
Negri nokkur að nafni Je-
rome Johnson, komst án
þess að eftir þvi væri tek-
iö, að hlið Colombo, þreif
upp skambyssu og skaut
þrem skotum að Colombo.
Að sjálfsögðu var Johnson
samstundis tekinn af lifi
og voru það lifverðir Col-
ombo er það gerðu, en
sjálfur var Colombo lifs-
hættulega særður, og varð
örkumla upp frá þvi. Eng-
inn var i vafa um að Joey
Gallo stóð að baki morðtil-
rauninni.
Frá þeirri stundu var
Gallo „Dauðadæm dur
maður”.
Sú staðreynd að árásar-
maðurinn hafi verið
blakkur, gat aðeins bent til
Gallo. Þegar Gallo hafði
verið fangi i Attica-fang-
elsinu, hafði hann ráðið
litaða samfanga sina, til
starfa fyrir fjölskyldu
sina. Hann hafði til og með
komið af stað uppþoti i
fangelsinu, þegar hinn
hviti hárskeri þess, hafði
neitað að taka negra i stól-
inn til sin.
Þegar hann losnaði úr
fangelsinu, tilkynnti hann,
að hann myndi ráða
svarta menn til sin. Þess-
um boðskap var ekki tekið
af neinni gleöi, meðal ann-
ara Mafiu-leiðtoga. Hvað
sem öllum glæpamálum
viðvikur, er La Cosa
Nostraeinn af finustu ,,yf-
irstéttar-klúbbum”
bandarikjanna.
Hinn eiginlegi
„guðfaðir".
Þegar talað er um Mafi-
una i New York er ekki
komist hjá þvi aö nefna
Carlo Gambino, það er
hann sem er inn eiginlegi
guöfaðir i heimsborginni.
Árið 1921 kom hann til
New York frá Palermo á
Sikiley, og á skömmum
tima hækkaði hann i tign
innan Mafiunnar. En hann
og fjölskylda hans voru
frekar illa þokkuð. Hann
og bróðir hans Paul voru
álitnir úrkynjaðir vegna
þess að þeir höfðu gifst
systurdætrum sinum.
Einnig var það talið þeim
til lasts, að hvorugur hafði
framið morð, eöa svo,
sagðu almannarómur.
En Gambino er snjall og
varkár. Sögur ganga um
það, að það hafi verið hann
en ekki Gallo sem stóð að
tilræðinu við Colombo i
fyrrasumar. Jafnvel er
talið að hann hafi einnig
staðið að baki morði Gall-
os, þar eð Gallo hafði farið
yfir á „eignarhluta” hans
af New York. Ennfremur
hefur það fengizt staðfest,
að Gambino útvegaði bæði
Colombo og Gallo-fjöls-
kyldunum ýopn. Snjall
þrihyrningur það, þvi á
þennan hátt fækkaði hann
mannskap i röðum beggja
flokka, með þvi að etja
þeim hvorum á annan.
,,Going to the Matress-
es” þýðir ekki eingöngu að
farið sé i felur heldur er
haldið uppi nokkurs konar
varðgöngum i eigin
„hverfi”. Aðalaðgerðin er
i þvi fólgin að þefa uppi
andstæðing og myrða
hann. Ef Gallo-fjölskyldan
missir fimm til sex menn i
viðbót, hefur það þær af-
leiðingar fyrir hana, að
henni verður útrýmt, þvi
hún var i upphafi miklu
mannfærri en Colombo-
fjölskyldan.
1 bakgrunninum situr
svo Carlo Gambino og
fylgist með málunum af
miklum áhuga. Hann hef-
ur komið þessu „striði” af
stað, og forðast eins og
heitan eldinn að koma
nokkuð nálægt aðgerðun-
um. Hans er að „hirða”
alla New York, þegar þvi
er lokið.
Hvernig litur svo venju-
legur borgari á „glæpa-
striðið”, sem á sér stað
fyrir utan stofudyr hans.
Flestir eru hrifnir af þvi, i
þeirri merkingu aö fjöl-
skyldurnar ganga af hvor
annarri dauðri. Fyrir
nokkru siðan skrifaði New
York blaðið Daily News i
leiöara. — Það er ekki
hægt að áfellast okkur fyr-
ir að lita á morð þessi sem
fullkomin meðul til að
losna við illþýði, er enginn
mun sakna. Auk þess
spara þau samfélaginu
mikil útgjöld sem réttar-
höld og dómsrannsóknir
munu leiða af sér. —
Og þegar allt kemur til
alls heyrir það til undan-
tekningar ef óviðkomandi
lætur lifið, þegar Mafian
gerirupp sin i millum. Svo
án alls vafa mun lögreglan
leyfa þeim að berjast i
friði.
Eru þetta
dauðateygjurnar?
Margir álita samt, að
afleiðingarnar geti oröið
hroðalegar, ef glæpa-
mennirnir fá fritt leiði til
að berjast. Enn sem komið
er hafa þeir um nóg annað
að hugsa, en sá dagur gæti
komið að byssukjöftum
verði snúið að saklausu
fólki, og þá er voðinn vis.
Mafian vinnur ekki eftir
nýtizkulegum aðferðum,
heldur er blóðhefndar-
mynztrið aldna frá Sikiley
hennar aðal-biblia þegar
um manndráp er að ræða.
Aðalinntak Blóðhefndar
venjunnar er eftirfarandi:
Hver og einn skal verja
heiður fjölskyldu sinnar,
með öllum ráðum. Þessi ó-
skrifuðu lög eru allsráð-
andi i hverju suður-itölsku
þorpi, og það er erfitt fyrir
aðra en Suður-ttali að
skilja þessi lög. Þar er
fyllilega hægt að afsaka
manndráp, ef ástæður
þykja hafa legið til þess.
Heiður suður-italskrar
fjölskyldu þekkir engin
takmörk. Púritanskt stolt
hverrar f jölskyldu stappar
nærri brjálæði.
Nú skal viðurkennt að
Mafiu-veldið i Bandarikj-
unum er byrjað að hrynja.
Þegar komið er i fjórða
ættlið suður-italskra inn-
flytjenda til Bandarikj-
anna, má ganga út frá þvi
gefnu, að þeir virða lög og
reglur bandarisks þjóðfé-
lags, og ætið eykst sá hóp-
ur af Mafiu-fjölskyldum,
er hefur lifibrauð sitt af
heiðarlegum viðskiptum.
1 Mafiu-fjölskyldu sem
taldi 27 meðlimi var ,,að-
eins” hægt að bendla 4 við
glæpastarfsemi. Af hinum
tuttugu og þrem öðrum
fjölskyldumeðlimum var
einn háskólaprófessor en
aðrir læknar lögfræðingar
og heiðarlegir viðskipta-
menn.
Þvi mætti ætla að Co-
lombo-Callo striðið séu
dauðateygjur fortiðarinn-
ar en framtiðin mun skera
úr um það.
Sunnudagur 6. ágúst 1972
3