Alþýðublaðið - 06.09.1972, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 06.09.1972, Qupperneq 3
I SATT OG SAM- LYNDI lrsku börnin sem dvelja um þessar mundir i menntaskólasel- inu við Hveragerði á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar, komu i kaupstaðarferð til Reykjavikur i gær, og við brugð- um okkur niður i Rammagerð við Hafnarstræti þar sem þau stöldruðu við drjúga stund til að kaupa minnjagripi handa ætt- ingjum heima á frlandi. Þetta er glaðlegur barnahópur, á aldrinum 12—16 ára, helmingur frá kaþólska hluta Irlands og helmingur frá mótmælenda- hlutanum, og hann skiptist lika jafnt á milli Londonderry og Bel- fast. ^Þeim gengur mjög vel að lynda saman, þau láta sig trúarbragða- erjur foreldra sinna engu skipta”, sagði s.éra Ingólfur Guð- mundsson. leiðtogi starfshópsins, sem hefur veg og vanda af dvöl barnanna hér. ,,Það er vonandi” hélt sr. Ingólfur áfram, ,,að kynnisferðir sem þessi stuðli að auknum skilningi milli deiluaðila á trlandi, en aðal tilgangurinn með ferðinni er i rauninni að veita börnunum hvild frá þeim ógnum, sem þau lifa stöðugt við. Hjá mörgum þessara barna er ástandið þannig, að i skólanum eru þau vön að fleygja sér á gólf- ið, þegar skothrið heyrist fyrir utan”. Sr. Ingólfur fræddi okkur lika á þvi, að um 800 irsk börn hafi þegar farið slikar hvildarferðir, en þetta sé i fyrsta sinn sem þau fari útfyrir Bretlandseyjar. Við náðum tali af öðrum irska fararstjóra barnanna, Frank Donnelli fyrir utan búðina og hann naut þess að geta staðið úti á götu án þess að þurfa að eiga von á skothrið eða sprengingu á hverri stundu. ,,Sum barnanna eru frá sjálfum átakasvæðunum”, sagði hann, ,, en önnur frá kyrrari svæðum. En öll hafa þau búið undanfarið við sifelldan ótta við óeirðirnar. Það er óviða hægt að ganga eftir götu án þess að eiga von á, að hermað- ur falli skyndilega fyrir skoti eða bilar og jafnvel heil hús springi i loft upp! f >, wB fít : * í*~æ* \ -,:í :ííN:í; wflgjjK. ■p ' . ig8«Pg» vAxv k. ■ HERALD TRIBUNE VITNAR í UTANRÍKISRÁÐHERRA: „EKKIÖRIIGGT AÐ STIORNIN LÁTI LOKA HERSTÖÐIHHI” Á forsiðu alþjóðaútgáfu bandariska stórblaðsins Herald Tribune siðastliðinn fimmtudag er haft eftir Einari Ágústssyni utanrikisráðherra, að ekki væri öruggt, að islenzka rikisstjórnin myndi láta loka bandarisku her- stöðinni i Keflavik eins og áður hefði verið lýst yfir. Fyrirsögn blaðsins er: „Island endurskoðar afstöðu sina um brottför bandariska herliðsins”. I fréttinni segir: — „svo kann að fara, að við æskjum þess ekki, að varnarliðið hverfi”, sagði hann (utanrikisráðherra) á blaðamannafundi. Hann bætti við til skýringar, að „mikill meirihluti” i landinu væri andvigur brottför hersins. Núverandi rikisstjórn — sem er hin eina innan Atlantshafsbanda- lagsins, sem hefur kommúnista i ráðherrastöðum — lýsti yfir eftir- farandi, er hún tók við völdum fyrir ári: „Stefnt skal að þvi, að varnar- liðið hverfi úr landi á kjörtimabil- inu”. Þessi yfirlýsing rikisstjórn- árinnar var gefin að kröfu róttæk- ustu vinstri mannanna i stjórn- inni. Mr. Ágústsson er ekki einn þeirra. Hann tók fram, að Islend- ingar vildu vera áfram aðilar að Atlantshafsbandalaginu, án þess þó endilega að hafa erlendan her i landinu”. Um það bil 3.300 hermenn eru i herstöðinni i Keflavik og er aðal- starf þeirra að senda á loft lang- fleygar flugvélar, sem fylgjast með ferðum sovézka flotans á Norður-Atlantshafi. Herstöðin hefur lengii verið þjóðernissinnuðum Islendingum þyrnir i augum, en þjóðin, sem telur 200.000 manns, hefur engan eigin her. Samband herliðsins og Islend- inga er ekki eins erfitt og áður var, en ennþá verða þeir að fara gegnum varðhlið bandariska her- liðsins til þess að komast inn á eina alþjóðlega flugvöllinn i land- inu. Mr. Ágústsson sagði, að i öllu falli verði engin ákvörðun tekin (um brottför varnarliðsins) fyrr en sérfræðileg könnun á mikilvægi herstöðvarinnar „fyrir Island og vinaþjóðirnar i NATO” hefði farið fram. Þegar utanrikisráðherra var spurður, hverjir myndu annast Framhald á bls. 4 JQSEFSSON SENDIR JÓNSSON Á NORDMENN Danska blaðið „Aktuelt” seg ir frá þvi i fréttum, að islenzka rikisstjórnin sc nú farin að skipta sér af innanrikismálum Norðmanna. Hafi einn islenzku ráðherranna, „sjávarútvegs- ráðherra Jóscpsson”, scnt sér- legan fulltrúa sinn á fund and- stæðinga aðildar Noregs að Efnahagsbandalagi Evrópu, þar sem fulltrúinn hafi flutt EBE-andstæðingunum kveðju og velfarnaðaróskir ráðherr- ans. Þannig er islenzka rikis- stjórnin farin að veita norskum EBE-andstæðingum siðferði- lcgan stuðning, segir blaðið. Hinn sérlcgi sendimaður Lúð- viks Jósepssonar að þessu sinni mun vera annar skósveina hans, Stefán Jónsson, frétta- maður. Að sögn danska blaðsins var hann mættur á fundi norskra EBE-andstæðinga s.l. Iaugardag, cn þá hleyptu þeir af stað mótmælaviku gegn aðild Noregs að bandalaginu. óskaði Stefán Jónsson norsku EBE- andstæðingunum velfarnaðar i haráttunni og skilaði til þeirra kærri kveðju frá islenzka ráð- herranum Lúðvik Jósepssyni. „islendingar hafa aldrei freistazt til þess að leggja örlög sin i hendur þeim háu herrum i Bruxelles" hefur blaðið eftir Stefáni fréttamanni. Þá hefur blaðið það einnig eftir honum, að sjávarútvegsráðherrann Jóscpsson hafi beðið hann að skila þvi til Norðmanna, að ís- lendingar hafi brotizt undan þeirri nýlendustcfnu, scm hið rika Efnahagsbandalag Evrópu hafi reynt að reka gegn lslandi. Hvcrgi er á það minnzt, að Framhald á bls. 4 LEYFIN VORU AFTUR- KÖLLUÐ Sjávarútvegsráðuneytið afturkallaði leyfi til humar- veiða 1. september siðastlið- inn, eða hálfum mánuði fyrr en gert var ráð fyrir. Var þetta gert samkvæmt tilmæl- um Hafrannsóknarstofnunar- innar. Að sögn Ingvars Hallgrims- sonar forstöðumanns Haf- rannsóknarstofnunarinnar, dróst veiðin undan Suðurlandi saman með hverjum degin- um, og bátar frá heilum byggðarlögum, svo sem Hornafirði, höfðu hætt veið- um. Einnig var humarinn orðinn ákaflega smár, og erfitt fyrir bátana að vinna svæði þar sem humar i leyfilegri stærð var veiðanlegur. Var það samdóma álit allra, sem vel þekkja til, að humar- inn i ár væri óvenjulega smár. Enda er svo, að fiskifræðingar hafa lýst yfir áhyggjum sinum að humarstofninum sé ofboð- ið. Aflabrögð bátanna hafa ver- ið misjöfn i sumar. Mjög margir bátar sóttu á humar- inn, eða hátt i 200, og sumir mjög stórir. Fyrst i stað gerðu margir bátanna uppgrip i afla, og voru. sjómenn á humarbát- unum tekjuháir, enda humar- kilóið sélt á 200 krónur. Þegar leið á vertiðina týndist einn og einn bátur úr, þegar veiöin fór að minnka. Humarveiöi verður ekki leyfð aftur fyrr en næsta sum- ar. „EINS OG I TEIKNIMVND” „Siðasta uppáfinning is- lenzku strandgæzlunnar i bar- áttunni við erlenda togara, sem virða að vettugi hina nýju 50 milna fiskveiðilögsögu Is lendinga, gæti alveg eins hafa orðið fyrir áhrif um frá ein- hverri teiknimyndasögu Walt Disney”, segir danska blaðið „Aktuelt” s.l. þriðjudag. Á blaðið þar við þann útbún- að islenzku varðskipanna, sem gerir þeim fært að klippa á trollvira hjá erlendum veiði þjófum á Islandsmiðum. (Sjá baksiðufrétt). Þá segir blaðið einnig, að fjölmargir erlendir togarar hafi nú forðað sér út fyrir 50milna linuna. Hafi það gerzt s.i. sunnudag, — eftir að Lúð- vik Jósepsson, sjávarútvegs- ráðherra, hafi hvatt til ákveðnari aðgerða af hálfu Landhelgisgæzlunnar. Blaðið segir einnig, að i is- lenzku rikisstjórninni sé Lúð- vik Jósepsson sá maður, semvilji nota öll ráð til þess að gæta hinnar nýju fiskveiðilög- sögu. Andstæðingar þessarar harðlinustefnu séu þeir Ólafur Jóhannesson og Einar Ágústs- son, sem vilji einnig taka tillit til „álits umheimsins”, eins og blaðið orðar það. SÁ GRUNAÐI KOMST í BÍL Lögreglan á Isafirði átti i gær i eltingaleik við ungan mann, sem talið er fullvist að brotizt hafi inn i Kaupfélagið og frysti- húsið á Þingeyri og stolið þaðan Framhald á bls. 4 Miðvikudagur 6. september T972 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.