Alþýðublaðið - 08.09.1972, Síða 6

Alþýðublaðið - 08.09.1972, Síða 6
AFLABRESTURINN VESTRA ORÐINN TILFINNANLEGUR baö skyldi enginn ætla að frystihúsið Norðurtangi á Isafirði sé frystihús, segir borgrimur Gestsson, blaðamaður Alþýðu- blaðsins, sem staddur er á miðun- um fyrir vestan, en ræddi i fyrra- dag við nokkra af forsvarsmönn- um sjávarútvegs og fiskverkunar á Isafirði og Suðureyri við Súgandafjörð. Norðurtangi likist mest fjöl- býlishúsi, jafnt að utan sem inn- an, segir hann, og bætir við að frystihúsin fyrir vestan likist meir villum i Arnarnesinu en fiskvinnsluhúsum eins og þau hafa gerzt. tshúsfélag tsfirðinga, sem Marias b. Guðmundsson stjórnar af myndarbrag, er að taka stakkaskiptum eins og svo mörg önnur, þar er verið að flisaleggja vinnslusalinn, — og sú saga er sögð af Fáli P'riðbertssyni, á Suð- ureyri, að þegar brezkir sjón- varpsmenn voru þar á ferð fyrir skemmstu áttu þeir að hafa spurt hann hvers vegna hann væri að svona glæsilegt frystihús á sama tima og hann væri að kvarta undan þvi að fá engan fisk. Páll er sagður hafa svarað þvi til að klæðalaus tslendingur notaði siðustu peningana til að kaupa sér föt. Klæðalaus Breti keypti sér hins vegar fyrir siðustu skildinga ölkrús. betta skildi Bretinn og fór ekki nánar út i þá sálma. Jón Páll Halldórsson hjá Norð- urtanga á tsafirði sagði að i sum- ar hafi verið verulega mikið minni afii á öll veiðarfæri en undanfarin sumur. Afli stærri handfærabáta var i sumar um 25% minni en i fyrrasumar. Hjá minni bátunum hefur afli hins vegar verið nokkuð svipaður, en þá er þess að gæta að þeir hafa haldiðsig meira á grúnnsævi. bar af leiðandi hefur verið mun meira af smærri fiski i þeirra afia. Ástaeðan er augljós. Smærri- bátarnir veiða meira af ungviði, sem stóru bátarnir ná ekki i, og afli stóru bátanna eykst ekki þótt bátunum og þar með færunum fjölgi, heldur minnki bara skammtur hvers og eins. Sem dæmi um hinn gifurlega aflabrest sagði Jón að árið 1960 hafi aflinn verið 489 tonn af flök- um — en aukningin varð stöðug, og siðasta ár var magnið orðið 2250 tonn af flökum. Nú þykjast menn hins vegar góðir ef magnið kemst í 1700 tonn. bað er mlnp.a en afiinn var árið 1969. bað sem af er þessu ári er magnið orðið 1243 tonn. Á siðasta ári var frystihúsinu Norðurtanga breytt og afkasta- getan aukin um helming. bað var eðlileg ráðstöfun, sagði Jón Páll, þar sém búizt hafði verið við afla- aukningu eins og verið hafði öll undangengin ár. Nú eru linubátarnir nýkomnir af grálúðu og eru að búa sig undir vetrarvertið. Menn vestra hafa miklar áhyggjur af haustinu, ög buásí viö að fyrsta andsvar Bret- anna i landhelgisdeilunni verði að reyna að eyðileggja veiðarfæri, og þá sennilega fyrst og fremst linu. bað er minni hætta með trollið. bað er ekki hægt að koma i veg fyrir að þeir eyðileggi lin- una. Hann var uggandi vegna tog- viraklippinga gæzlunnar og ótt- aðist hefndarráðstafanir. ■■■ - ■ Of mikiðaf meðölum! Á siðustu árum hefur meðalanotkun i heim- inum aukizt gifurlega. Hagtölur skýra svo frá, að i mörgum löndum V-Evrópu séu meðala- kaup 10-15% af útgjöldum til læknishjálpar. I Sviþjóð einni hefur verðmæti lyfja, sem keypt eru i smásölu, vaxið á undan- förnum 15 árum um 149 milljónir s.kr., og lyfja, sem notuö eru á sjúkrahúsum og læknamið- stöðvum, um 130 milljónir. Fjöldi útgefinna lyfseðla hefur aukizt á sama tima um 17 milljónir... Notkun vitamintaflna, svefn- lyfja og taugameðala er almennt útbreidd i V-Evrópu Sérfræðingar og rikisstjórnir eru áhyggjufullar vegna þessarar þróunar, og óttast, að lyfjanotkun almenn- lings sé að verða miklu meiri en hollt getur talizt. ■ Heimsskaut undir þaki. Álhjálmur, 50 m i þvermál og 18 m hár, er nú i smiðum við Suður- heimsskautið. betta þak á að hlifa mannvirkjum bandarisks heimsskautaleiðangurs við frosti, fjúki og snjó. bakinu var valinn staður þannig, að brátt verður Suðurheimsskautið beint undir.en það er sem kunnugt er, á stöðugri hreyfingu... ■ Keikningshald mengunarinnar. Vegna hinnar öru þróunar efna- iðnaðarins vex stöðugt það magn úrgangsefna, sem fer út i and- rúmsloftið, vatn og jarðveg. Sam- kvæmt útreikningum timaritsins New Scientist (1972, b.53, nr.781) nemur þetta magn um 20 milljónum tonna á ári. bar af er um helmingur i uppleyst, i vökva- formi, og um ein milljón tonna af kemiskum eiturefnum. Hér eru smurningsoliur ekki með taldar, en af þeim eru notaðar um 20 milljónir tonna i heiminum ár- lega, og þar af lenda um 10% eða um 2 milljónir tonna i vatn og jörð. ■ Enn um reykingar. Samkvæmt niðurstöðum lækna við Barna- ■ HORNIÐ sjúkrahús Lundúnaborgar og Heilsuverndarstöð barna i Eng- landi látast 28 af hverjum 100 börnum rétt fyrir eða eftir fæð- ingu, ef mæður þeirra reykja siðustu mánuði meðgöngutimans. Börn mæðra, sem reykja, vega að meðaltali 170 grömmum minna en önnur við fæðingu. ■ Umbúðir og ilát i senn. bú kaupir frysta önd i plastpoka, treður i hann tveim-þrem eplum, saltar eftir smekk, setur svo pokann með öllu saman inn i ofn og eftir klukkutima er ljúffengur kvöldverður til reiðu...Sam- kvæmt upplýsingum svissneska blaðsins Technische Rundschau hefur tekizt að framleiða plast- efni. sem þolir hitasviðið frá —200 til +225 C. er hentugt i umbúðir fyrir kjöt, fugla og fisk og má um leið nota sem ilát til að elda i. Smávegis tölfræði... Mannfjölgunarsérfræðingar Sb hafa reiknað það út, að árið 2000 muni mannfjöldi þróunarland- anna hafa tvöfaldazt frá þvi sem nú er, en 45%) aukning orðið frá þvi, sem nú er i þróuðum kapitaliskum og sósialiskum löndum. Samkvæmt tölfræðiupplýs- ingum og spádómum sérfræðinga mun ibúatala Sovétrikjanna verða 303 milljónir árið 1990, i Búlgariu 9,5 milljónir, i Ung- verjalandi 11 milljónir, i A- býzkalandi 17,8 milljónir, Pól- landi 37,3 milljónir og i Tékkósló- vakiu 15,9 milljónir. SAMNINGURINN VIÐ BELGA ER TVÍMÆLALAUST MIKILVÆGUR ÁVINNINGUR Samningurinn um að heimila Belgíumönnum veiðar innan 50 míina land- helginnar er tvímælalaust mikilvægur ávinningur fyrir Islendinga — og að sjálf- sögðu einnig hagstæður fyrir belgíska útgerð. Veiðar Belga við (sland hafa aldrei verið miklar. Þeir hafa að mestu haldið sig við suðaustur- og suður- ströndina og veitt um 12- 14.000 smálestir á ári. Skip þeirra eru lítil — við mund- um kalla flest þeirra báta en ekki togara — og gömul. Belgar hafa ekki í hyggju að endurnýja flota þennan, en vilja gefa honum tækifæri til að renna sitt skeið og hætta á eðlilegan hátt með sem minnstri röskun. Þess vegna gera þeir samninginn. Ætlunin er, að belgísku skipin, sem eru nafngreind í viðauka við samninginn, fái leyfi islenzkra stjórnvalda til að veiða á tilteknum svæð- um. Þau eiga að lúta islenzkum reglum (t.d. um línu- og netasvæði) og íslenzkri lögsögu innan 50 mílna landhelginnar. Þessi atriði, sem hér hafa veriö nefnd, jafngilda aug- Ijóslega viðurkenningu á 50 milna landhelginni, þótt það sé ekki sagt berum orðum. Þetta eitt metum við íslend- ingarsvo mikils, að við leyf- um belgísku skipunum hik- laust að veiða á svæðum inn- an landhelginnar fyrir slík ákvæði í samkomulaginu. Þetta atriði minnir að ýmsu leyti á landhelgis- samning Brasilíu og Banda- ríkjanna. Hið útbreidda timarit, Time, sagði eftir að hann var gerður: Það stend- ur í samningnum, að Bandaríkin viðurkenni ekki 200 mílna landhelgi Brasilíu, en einmitt það hafa þau samt sem áður gert. Sitthvað fleira í samningn- um við Belga er okkur hag- stætt. Má þar nefna, að þeir hafa undanfarin ár veitt nokkuð magn af humar hér við land. Þeir hafa nú sam- þykkt að hætta þessari veiði alveg, og nær samkomulagið við þá ekki til humarveiða. Gilda raunar aðrar reglur um humarinn, sem skríður á hafsbotni, en um syndandi fiska. Humarveiðin er orðin svo þýðingarmikill þáttur í útgerð okkar, að við líljótum að telja það til tekna, þegar við losnum við samkeppni á því sviði, enda þótt belgísku bátarnir haf i ekki verið stór- tækir. Þýðingarmesta atriðið t sambandi við belgísku samningana er þó ónefnt. Það er hin diplomatiska hlið málsins. Okkur hefur tekizt að reka fleyg á milii Vestur- Evrópuþjóðanna sem eru hörðustu andstæðingar okk- ar í landhelgismálinu, og þessi samningur mun þvi reynast óhagstæður fyrir Breta og Vestur-Þjóðverja. Því hefur verið haldið fram i áróðri, að Islendingar vilji í raun og veru ekki semja um bráðabirgðalausn i landhelgismálinu, þeirséu innbyrðis klofnir, þráir'og ósanngjarnir. Samkomulag- ið við Belga mun vega á móti þessum áróðri og sýna, að íslendingar eru reiðubún- irtil þess að gera samninga, ef þeir telji efni þeirra við unandi, enda þótt ekki felist i þeim bein viðurkenning á 50 mílunum að sinni. Fyrstu drög að samkomu- laginu við Belga voru gerð í viðræðum í Genf og Brussel. Utanríkisþjónusta okkar hefur i þessu máli unnið vel og náð árangri, sem þjóðin getur fagnað, af því að hann erskref i rétta átt í landhelg- ismálinu. LANDHELGIN Kanaríeyjaferðir Flugfélagsins hefjast að nýju í nóvember. í vetur mun Flug- félagið enn gefa fólki kost á ódýrum orlofsferðum til hinna sólríku Kanarí- eyja. Reynsla tveggja undanfarandi ára hefur sýnt, að ferðirnar hafa notið mikilla og vaxandi vinsælda, enda eru farpantanir þegar teknar að berast í ferðirnar næsta vetur. Einnig hafaýms- ar stofnanir og fyrirtæki nú hug á því að stuðla að vetrarorlofi starfsfólks síns með þessum ferðum. Kanaríeyjaferðirnar verða á hálfsmán- aðar og þriggja vikna fresti frá 9. nóv- ember. Brotfarardagar verða 9. og 30. nóvember, 14. og 28. desember, 18. janúar, 1. og 15. febrúar, 1. og 22. marz, 5. og 19. apríl. Suður ísólá komahdi vetri Farþegar geta valið á milli dvalar- staða í höfuðborginni LAS PALMAS eða á baðströndinni PLAYA DEL INGLÉS, þar sem reyndir íslenzkir fararstjórar eru farþegum til aðstoð- ar. Skipulagðar verða ferðir um eyj- arnar og til Afríku. KANARÍEYJAR ÚTI FYRIR AFRÍKU- STRÖNDUM ERU SKEMMRA UNDAN EN MENN ÍMYNDA SÉR. SEX TÍMA ÞOTUFLUG í HÁSUÐUR, ÚR VETR- ARKULDA Í HEITT SÓLRÍKT SUMAR- VEÐUR. FARPANTANIR HJÁ SKRIFSTOFUM FLUGFÉLAGSINS OG UMBOÐS- MÖNNUM ÞESS. FLUGFELAG LSLANDS 6: Föstudagur 8. september 1972

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.