Alþýðublaðið - 09.09.1972, Page 12

Alþýðublaðið - 09.09.1972, Page 12
Alþýóúbankinn hf ykkar hagur/okkar nietr KOPAVOGS APÓTE Opið öll kvöld til kl. Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og 3 MONNUM TIL SKELFINGAR VIRTIST ENGINN TOGARI VERA ILANDHELGI ■ brezkir sjjómenn að irmi®röa vörpuna um ilur fyrir innan 50 milna mörkin — en ekkí nn mikill . n mikill . reyndust lika á siglingu, en sá þriðji var að toga. Þokan sem við höfðum frétt af var ekki langt undan, og þegar við nálguðumst togarann var engu likara en hann hörfaði inn i hana til að fela sig. En Sigurborg nálgaðist óðfluga og var brátt komin inn i þokuna lika. Sem betur fer reyndist þetta vera tiltölulega mjótt þokubelti, og hinumegin við það var sama blið- skaparveðrið. Þegar togarinn hafði ekki lengur þokuna til að skýla sér sást, að hann var alls ekki brezk- ur, heldur þýzkur, frá Cuxhaven, og nafnið var Hagen. Það leyndi sér ekki, að þetta var harðsvirað- ur landhelgisbrjótur, og hann skammaðist sin ekkert fyrir það, heldur sendi okkur pip þegar okkur bar að. Og hann breytti aö- eins stefnunni eins og til að sýna að hann mundi ekki hika við að sigla svona islenzkan kopp i kaf. Það var aftur sett á fullt áfram, og hvernig sem Einar rýndi i radarinn sáust ekki fleiri skip. Þeir skipverjar voru farnir að tala um okkur blaðamennina sem togarafælur, og sögðu að senni- lega þyrftum við ekki annað en sigla i kringum landið til að hrekja alla togara útfyrir 50 milur. Það var lika engu likara en landhelgisbrjótarnir hefðu haft veður af okkur, fregnir bárust um það, að flestir togararnir hefðu fært sig austur á bóginn kvöldið áður og um morguninn. Og vest- firzku sjómennirnir sögðu að það væri alveg einstakt að keyra suðurum allan Hala og sjá aðeins þrjá togara. En það var samt haldið i vonina um að einhverjir væru a Horn- bankanum, og eftir aðra ráð- stefnu var ákveðið að taka kúrs- inn i austur. Einar sá um að eng- inn togari færi framhjá sjónum okkar, tók strikið i 20 milum frá landi meö tiu milna radareftirliti á hvort borð. Eitthvað sagði hann að væri bogið við það ef enginn tjallinn væri á þessu svæði, nóg hefðu þeir að minnstakosti angrað Vestfjarðabátana þar til þessa. Það fór að dimma. og Guðni kokkur sá mannskapnum fyrir kaffi og brauði eins og hver gat i sig látið, en Jenni sá um sögurnar um ævintýri sin allt frá Ulbricht til Grænlands. Um ellefuieytið snaraðist kallin i messann og sagðist hafa talað við þá á Vikingi 111., sem voru með brezka frétta- menn á Hornbankanum,, og þeir höfðu engan tjallann séð en ætluðu að láta heyra i sér aftur um miðnætti. En aftur á móti hafði hann sé ljós á stjór og mannskapurinn kom sér upp i brú til að kanna málið. Ljósin reyndust vera sjö talsins, og bráðlega mátti segja með vissu, að þarna væru að minnstakosti fimm togarar. Kallið kom frá Vikingnum á miðnætti: Enginn togari. Það var þvi ákveðið i skyndingu að dóla þarna fram I birtingu og sjá hverjir væru þarna úti fyrir. Um sexleytið var kikt átogarann aftur — mikið rétt: Fimm tjallar og tveir Vestfirðingar, og tvær milur i 12 milna mörkin. Það var sett á ferð og mynda- vélar á lofti. Fyrsti togarinn var skuttogari. ómerktur. og að toga. Það kom einhver út á brúarvæng- inn og veifaði, en annars virtist ekkert lif um borð. Sjóararnir okkar sáu, að trollið var óklárt hjá þeim, og það hlakkaði i þeim. Næst komum við að siðutogara, sem var lika að toga, en vel Fréttamenn á Tjallaveiðum merktur. Þar höfðu nokkrir tjallar safnazt saman á báta- dekkinu og virtust i hrókasam- ræðum um okkur. Ekki svöruöu þeir þótt við kölluðum i þá, en einn þeirra svaraði myndavéla- skotunum okkar i sömu mynt. Þriðji togarinn var i um hálf- tima siglingu frá, og þar var verið að taka trollið um borð. Aftur heyrðist ánægjuhljóð frá Sigur- von, þegar pokinn kom úr sjón- um. „Þetta er hlandskaufi”. sagði Jenni. Hann sagði þetta væri togaramál og þýddi, að ekkert væri i vörpunni, nema rétt neðst, enda gripu tjallarnir pok- ann með berum höndum og inn- byrtu. Það er þetta sem þeir eru að skafa eftir hérna, sagði Jenni okkur. og þeir virðast gera sig ánægða með að fá þetta þrjár fjórar körfur, eða um hundrað kiló á þriggja tima togi. Það var kominn föstudagur, þótt það hefði farið framhjá flest- um, og stefnan var sett á Súgandafjörð, þegar tjallarnir höfðu verið myndaðir i bak og fyrir. Þótt við fengjum ekki nema hlandskaufa af fréttum eftir sólarhrings tog og á filmunum væri svosem ekkert spennandi efni varð þetta að nægja, að minnstakosti að sinni, þótt sumir reyndu að óska sér suðausturfyrir Iand. Myndir og texti: Þorgrímur Gestsson Það virðist vara orðin álíka treg veiði hjá þeim, sem eru á höttunum eftir landhelgisbrjótum á Vestfjarðamiðum, og vestfirzku bátasjómönnunum. Blaðamenn, sem héldu á vélbátnum Sigurvon frá Súgandafirþi um hádegi á fimmtudag út á miðin i ieit að landhelgisbrjótum, ráku sig illi- lega á þessa staðreynd, og lengi vel var engu likara en allir er- lendir togarar væru horfnir úr landhelgi. Með það i huga, að þetta þorskastrið hefur verið kallað „ljósmyndarastriðið”, komst hnifur okkar aldrei i feitt, utan að einn brezkur togari virtist hafa áhuga á að sigla á Sigurvonina, og i náttmyrkri var sterkum ljós- kastara beint frá öðrum togara á bátinn. Báðir þessir togarar voru að toga i um 14 milna fjarlægð norðvestur frá Horni. Það vantaði ekki, að veðrið á miðunum var hið ákjósanlegasta til myndatöku, þó myndaeínið yrði aldrei mjög fjölbreytilegt. A ieiðinni út Súgandafjörðinn fór Einar skipstjóri að kalla upp báta á miðunum til að frétta, hvar væri bezt fyrir okkur að leita fanga. En fréttirnar voru ekki góðar. Skipstjórarnir, sem hann talaði við sögðu, að litiö væri um erlenda togara á miðunum, og þar að auki væri svarta þoka á Hala. Nú var úr vöndu að ráða, og ekki annað vænna en hafa sam- band við Hafstein Hafsteinsson, blaðafulltrúa Landhelgisgæzl- unnar, og fá hjá honum nýjustu upplýsingar um staðsetningu landhelgisbrjóta. Það glaðnaði heldur yfir mannskapnum, þegar Hafsteinn sagði, að sex togarar væru á Hala en 10 á Ilornbanka. Það var skotið á fundi til að ræða um hvor miðin væru feng- sælli og niðurstaðan varð sú, að stefnan skyldi tekin suður á Hala, þótt menn gerðu sér reyndar litlar vonir um, að varðskip eða eftirlitsskip héngu yfir svo fáum togurum. Uppi á vegg i kortakelfanum er grænn kassi, sem er mesta þarfa- þing fyrir þá, sem eru á togara- veiðum. Kassi þessi er nefndur á fagmáli miðunartæki, og með þvi að snúa ýmsum tökkum á alla vegu er hægðarleikur að láta tjallana koma upp um sig með eigin blaðri - og ljósrákir á litlum skermi visa leiðina. Miðunar- tækið sagði, að tveir togarar væru ekki langt undan, og þar að auki i þerristefnu, sem hafði þegar ver- ið ákveðin. Það var þvi haldiö áfram á stiminu, og nú var það talstöðin, sem fékk mönnum nóg að hugsa um. tsafjarðarradio kom inn á og kallaöi á Miröndu. Erindið var að tilkynna simtal frá brezka sendi- ráðinu, en sendiráðið átti það er- indi við Adams kaptein að biðja hann um nákvæma skýrslu um atburðinn um daginn, þegar þeir á Öðni klipptu á togvir hjá brezka togaranum Peter Scott. Kapteinninn fékk sex spurningar um málið til að svara, og hann svaraði þeim lið fyrir lið nokkru seinna. Þvi miður fyrir okkur fréttamennina um borð i Sigur- von kom ekkert bitasætt fram i þessari skýrslu annað en það sem sagt hafði verið i fréttum. A eftir spurningum sendiráðs- ins i Reykjavik voru afgreidd tvö simtöl frá sama stað og það voru brezkir blaöamenn sem töluðu. Sá fyrri sagðist vera frá Daily Telegram og var að tilkynna að hann væri að fara úr landi, en kæmi sennilega aftur, og þakkaði Adams kærlega fyrir samvinn- una. Hinn blaðamaðurinn var frá Guardian og spurði frétta, en fékk heldur fáar, nema helzt þær að veðriö væri gott. Sigurvonin öslaði áfram með brúna fulla af blaðamönnum á út- kikki eftir erkifjendunum, og Einar skipstjóri var á sifelldum þönum milli stýrsins og radars ins, og hann kom fljótlega auga á skip. Sjónaukar voru lika á lofti og fyrstu togararnir voru i sigti eftir um þriggja tima stim. En það sást fleira i sjónaukunum, nefnilega þrir borgarisjakar, en þeir sáust ekki i radarnum. Á milli þessara hvitu grænlenzku drauga voru skip, og fljótlega kom i ljós, að eitt þeirra var mun stærra. Það sagði einhver fróður maður. að mundi vera þýzka eftirlitsskipið Friðþjófur. Þegar linurnar tóku að skýrast sást, að hann var á hægri siglingu i vesturátt. Tveir aðrir togarar Þ0RSKAS1RÍD Þorskastriðið er hafið á hafinu aftur og hlaupinn einhver fítonsandi i tjaHann, i ógnun og heitingum biður hver byssukjaftur og Bretadrottning er komin i orustugallann. En flotinn okkar er harður i horn að taka og huskar á veiðiþjófana að iðju sinni og skipar þeim fúlu fjöndum að hverfa til baka úr fimmtiu milna islenzku landhelginni. Úr djúpum hafsins berst okkur björg og fengur, Og blessaður fiskurinn — alltaf er gott að étann. En þorskur er alltaf þorskur á hverju sem gengur og þvi er i rauninni svipað farið með Bretann. /ff

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.