Alþýðublaðið - 03.10.1972, Qupperneq 2
Heilsuræktin í Glæsibæ
The Health cultivation
Þriggja mánaða námskeið eru að hefjast.
Morgun — dag — og kvöldtimar.
Flokkar fyrir dömur og herra.
Megrunarnámskeið karla og kvenna,
einnig hjónaflokkar.
Glæsileg aðstaða i Glæsibæ!
Upplýsingar i sima 85655.
Arne Nordheim
eitt þekktasta tónskáld Norðurlanda,
kynnir tónsmiðar sinar i Norræna Húsinu,
miðvikudaginn 4. október kl. 20,30. Verið
velkomin.
NORRÆNA
HÚSIO
Hagræöing
Hagsýsluskrifstofa Reykjavíkurborgar
óskar að ráða rekstrartæknifræðing eða
mann með svipaða menntun til þess að
vinna að ýmsum hagræðingarverkefnum
hjá borginni.
Nokkur starfsreynsla æskileg. Umsóknir
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist Hagsýsluskrifstofunni, Póst-
hússtræti 9, fyrir 7. október.
Sveinafélag
pípulagningamanna
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör fulltrúa á 32.
þing Alþýðusambands íslands.
Listum sé skilað á skrifstofu félagsins,
Freyjugötu 27, fyrir kl. 18.00 fimmtu-
daginn 5. þ.m.
Stjórn og trúnaðarráð.
Sinfóniuhljómsveit íslands
Tónleikar
i Háskólabiói fimmtudaginn 5. okt kl. 20.30
Stjórnandi: Karsten Andersen
Einleikari Eva Knardahl.
Efnisskrá:Nordheim: Canzona
Grieg: Pianokonsert a-moll
Sibelius: Sinfónia nr. 5
Aðgöngumiðar i Bókabúð Lárusar
Blöndal, Skólavörðustig og Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti.
Tónlistarskóli
Hafnarfjarðar
Innritun daglega frá 1-7 e.h. á skrifstofu
skólans Alþýðuhúsinu, Strandgötu 32
annari hæð, simi 52704. Væntanlegir
nemendur, vinsamlegast láti innrita sig
sem fyrst.
Ath. breytt húsnæði.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
skólans.
Skólastjóri
Félag islenzkra hljómlistarmanna
Fulltrúakjör
Ákveðið er að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu um kjör fulltrúa félagsins á 32.
þing Alþýðusambands Islands.
Tillögum með nöfnum f jögurra fulltrúa og
jafn margra til vara skal skila i skrifstofu
félagsins að Laufásvegi 40. fyrir kl. 15.00
miðvikud. 4. okt. n.k. Tillögu skal fylgja
skrifleg meðmæli 37 fullgildra félags-
manna.
Stjórn Félags islenzkra hljómlistarmanna
Lan úr lífeyrissjóöi
Hlífar og
Framtíðarinnar
Stjórn lifeyrissjóðsins hefur ákveðið að
veita lán úr sjóðnum til sjóðsfélaga.
Eyðublöð fyrir umsóknir verða afhent á
skrifstofu sjóðsins Strandgötu 11.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrif-
stofunni fyrir 20. október 1972.
Aðstoð verður veitt við útfyllingu um-
sókna ef þess er óskað.
Stjórn Hlifar og Framtiðarinnar
Sendisveinn óskast
Viðskiptaráðuneytið vill ráða sendi-
svein eftir hádegi. Þarf að hafa reiðhjól.
Upplýsingar veittar i viðskiptaráðu-
neytinu, Arnarhvoli, simi 25000.
Viðskiptaráðuneytið
Hef flutt
lækningastofu
mina i læknastöðina Álfheimum 74. Við-
talstimi eftir pöntun.
Halldór Steinsen
læknir.
Sérgrein: Líflækningar.
MINNING
SIGRÍÐUR JÓHANNA
JÓHANNESDÓTTIR
S.l. laugardag var jarðsungin
frá Keflavikurkirkju Sigriður
Jóhanna Jónsdóttir, Klapparstig
8 i Keflavik. Hún lézt i Landspit-
alanum 21. sept. s.l. eftir erfiða
sjúkdómslegu.
Sigriður var fædd i Stykkis-
hólmi 8. okt. 1894 og voru for-
eldrar hennar Ragnheiður Jóns-
dóttir og Jón Magnússon hrepp-
stjóri að Ási við Stykkishólm. Þar
ólst hún upp með foreldrum
sinum og systursyni, Jóni Einars-
syni, syni Ólafar og Einars Jóns-
sonar. Litu þau á sig sem systkini
og hélzt ávalt tryggð þeirra á
milli. Jón á nú heima i Hafnar-
firði.
Um 17 ára að aldri fór hún að
heiman og þá til Einars Vigfús-
sonar bakara i Stykkishólmi og
konu hans Steinunnar. Vann hún
þar við afgreiðslustörf i bakarii
Einars.
1 Stykkishólmi kynntist Sig-
riður eftirlifandi manni sinum,
Kjartani ólasyni. Hvort tilviljun
hefur hér ráðið eða örlagadis-
irnar verið að verki, verður ekki
úr skorið. En hitt eru staðreyndir,
að haustið 1912 er Kjartan kominn
til Reykjavikur á leið til Vestur-
heims, með það i huga að setjast
þar að. Hann fer þó áður til
Stykkishólms með kunningjuum
sinum. Þar ræðst hann i skiprúm
sem 2. stýrimaður og ilendist
siðan i Hólminum.
Þau Sigriður og Kjartan giftust
7. nóv. 1914. Næstu 9 ár bjuggu
þau i Stykkishólmi, en fluttust þá
vestur á Sand og voru þar i 4 ár,
þar til þau fluttu suður að Hákoti i
Innri-Njarðvik. En til Keflavikur
fluttust þau sumarið 1929 og þar
bjuggu þau siðan. Heimili þeirra
hefur verið á sömu slóðum þar
eða i húsunum að Klapparstig 6
og 8.
Börn þeirra hjóna voru 8, sex
synir og tvær dætur. Þau eru
þessi i aldursröð: Karl, sjó-
maður, lézt 1967, Sigtryggur, bif-
reiðastjóri, búsettur i Keflavik,
Ólafur, simamaður i Keflavik,
Ragnar, lézt 11 mánaða, Maria
Júlia, ekkja, býr i Keflavik, Jón
R. Ásberg, sjómaður, i Keflavik,
Lúðvik Helgi, bifreiðastjóri, býr i
Keflavik og ívana Sóley, býr i
Bandarikjunum.
öll eru börnin fædd i Stykkis-
hólmi, nema Luðvik, sem fæddur
er á Sandi og Ivana i Keflavik.
Afkomendur þeirra hjóna eru nú
taldir 39 á lifi, 2 hafa látist.
Eins og að likum lætur, lá
starfsvettvangur Sigriðar, átta
barna móður, innan heimilisins. I
hennar hlut féll öll umönnun með
börnunum meðan maður hennar
stundaði sjóinn. En sjómennsku
hætti Kjartan ekki fyrr en 1940, er
hann hóf störf hjá Rafveitu Kefla-
vikur.
Að sjálfsögðu eru það ekki allir,
sem gera sér grein fyrir starfi
margra barna móður á þessum
timum. En ef menn hafa i huga
allsleysi áranna, allt til 1940,
húsin köld og þröng, heimilistæki,
sem nú eru talin ómissandi, og
sem létta mjög störfin, voru
oþekkt, og matur oft af skornum
skammti, þá skýrist myndin
nokkuð.
Ég kynntist þeim hjónum fljót-
lega eftir, að þau komu til Kefla-
vikur. Ég hitti þá Sigriði ávallt
Framhald á bls. 4
o
Þriðjudagur 3. októberi972.