Alþýðublaðið - 03.10.1972, Blaðsíða 12
alþýðu
nmilm
Alþýöubankínn hf
jrkkar hagur/okkar metnaóur
KOPAVOGS APÚTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milíi kl. 1 og 3
sewxBit AsröetN ht
SAMEININGARMALIÐ EFST Á BAUGI UM HELGINA
BJARNIEKKI
Miklum átökum á landsfundi
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna, sem haldinn var nú um
helgina, lyktaði með yfirburða-
sigri sameiningarmanna.
S.U.J.
STYÐUR
SAMEIN-
INGAR-
ALITIÐ
,,2(>. þing Sambands
ungra jafnaðarnianna felur
fulltrúum þess á flokks- .
þingi Alþýðuflokksins að
styðja álit viðræðunefnda
Alþýðuflokksins og SKVM,
sem þar verður lagt fram”.
Þannig scgir m.a. i áliti
þings SUJ, sem haldið var i
Keykjavik um helgina, en
sameiningarmáiið var
annað aðalviðfangsefni
þingsins.
í þinglok gerðu fulltrúar
samhljóða ályktun um
sameiningarinálið og fer
hún hér á eftir:
2(>. þing S.U.J. felur
stjórn sambandsins að
fylgja eftir þeim aögerð-
um, sem ungir félagar
vinstri flokkanna áttu hlut
að s.l. ár. til sameiningar
isl. jafnaðarmanna i einum
flokki. Þingið tclur, að við-
ræður þær og fundahöld,
sem efnt var til hafi sýnt
greinilegan vilja til sam-
einingar.
Þingiö telur jafnframt,
að umræður um málið eigi
að fara fram fyrir opnum
tjöldum svo almenningur
eigi þess kost að fylgjast
mcð þeim og taka afstöðu
tii þeirra jafnóðum.
Ennfremur telur þingið,
að bráölega hljóti að bera
að þvi, aö máliö komist á
framkvæmdastig, á grund-
velli þcirrar ályktunar,
scm v ið r æö u n e f nd i r
stjórna Alþýðuflokksins og
S.F.V. hafa sent frá sér.
Auk þess itrekar þingiö
ályktun -25. þings S.U.J.
þess efnis, að ungt fólk,
sem aðhyllst hefur
jafnaðarstefnu, beri að
sameinast i einni hreyfingu
ungra jafnaðarmanna, sem
yrði grundvöllur unghreyf-
ingar nýs flokks sam-
einaðra jafnaðarmanna.
26. þing S.U.J. hvetur
alla þá, sem aðhyllast
stefnu jafnaðar, samvinnu
og lýðræðis, hvar i fiokki
sem þeir nú eru, að ganga
til fylgis við sameiningar-
hreyfingu jafnaðarmanna.
26. þing S.U.J. felur full-
trúum þess á flokksþingi
Alþýðuflokksins að styðja
álit viöræðunefnda Alþýðu-
flokksins og S.F'.V. sem þar
verður lagt fram.
Fengu þeir samþykkta með
yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða afdráttarlausa stuðn-
ingsyfirlýsingu viö sameigin-
legt álit viðræðunefnda Alþýðu-
flokksins og Samtakanna um
sameiningarmálið og fengu auk
þess kjörið i ábyrgðarstöður
Samtakanna fólk, sem er ein-
dregið fylgjandi sameiningu.
Talið er, að átök þessi muni
jafnvel getað haft það i för með
sér, að einhverjir úr minni-
hlutahópunum muni yfirgefa
samtökin. Hafa þeirhaft það við
orð, þótt enn hafi engin slik
formleg úrsögn borizt.
Þá virðist vera, að þessi
minnihlutahópur, sem hefur i
sinum höndum ráðin yfir „Nýju
Landi” hyggist beita þvi gegn
Samtökunum og stjórn þeirra.
Að minnsta kosti komu forráða-
menn blaðsins að máli við full-
trúa á þingi Sambands ungra
jafnaðarmanna strax á sunnu-
dagskvöldið og buðu SUJ afnot
af blaðinu jafnframt þvi sem
þeir sögðu skýrt og skorinort, að
blaðið gæti ekki lengur talizt
málgagn Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna.
Átökin á landsfundinum
hófust strax á laugardaginn og
skiptust menn þá strax i hópa
um sameiningarmálið. Voru
annars vegar menn, sem vildu
reyna sameiningu tortryggni-
íaust i garð annarra, en hins
vegar menn, sem annaö hvort
höfðu sérstakt horn i siðu
Alþýðuflokksins eða töldu, að
Samtökin ættu sér tilverurétt i
islenzkum stjórnmálum sem
sjálfstæður flokkur á þann veg
að efna til sameiningar innan
vébanda Samtakanna.
Þessi ágreiningur kom strax i
ljós þegar farið var að ræða hið
sameiginlega álit viöræðu-
nefnda Alþýðuflokksins og
SFVM um sameiningarmál.
Sameiningarmennirnir vildu
láta samþykkja álitið athuga-
semdalaust, en hinir, sem eink-
um lutu forystu Bjarna Guðna-
sonar, fluttu hins vegar tillögu
um að setja Alþýðuflokknum
skilyrði fyrir sameiningunni.
Þessi skilyrði voru tvö. 1 fyrsta
lagi bæri Alþýðuflokknum að
lýsa stuðningi við rikisstjórnina
áður en af semeiningu gæti orð-
ið og í öðru lagi ætti Alþýðu-
flokkurinn fyrirfram að sam-
þykkja þá stefnu, að bandariska
varnarliðið bæri að senda úr
landi.
Til nokkurra átaka kom i
sambandi við efnismeðferð.
Vildi Björn Jónsson að tillaga
þessi yrði afgreidd um leið og
sameiningarmálið og var hann
harðlega gagnrýndur fyrir af-
— Með þessari
afgreiðslu sinni hefur
landsfundur Samtaka
frjálslyndra og vinstri
manna staðfest þá stefnu-
yfirlýsingu samtakanna,
að þeim beri fyrst og
fremst að vinna að sam-
einingu íslenzkra
jafnaðarmanna í einum
- QG BLADIÐ
EKKI HELDUR?
stöðu sina af hálfu Bjarna og
hans fólki.
Þeir sem andvigir voru skil-
yrðunum, bentu á, að viö fram-
kvæmd sameiningarmálsins
ætti nefnd sú, sem um það
myndi fjalla, að hafa óbundnar
hendur. Ætti hún að leggja fyrir
landsfund þau úrslit, sem hún
næði i viðræðum við Alþýðu-
flokkinn, en landsfundur svo að
afgreiða þau með samþykki eða
synjun.
Deilunum lyktaði með at
kvæðagreiðslum. Var þar til-
lagan um skilyrðin felld með 65
atkvæðum gegn 25, en siðan
samþykkt með öllupi greiddum
atkvæðum gegn einu að styðja
þá niðurstöðu sem viðræðu-
nefndir Alþýðuflokks og SFVM
komust að i hinu sameiginlega
nefndaráliti.
Þar með lauk átökunum fyrri
daginn.
Á sunnudaginn kom ágrein-
ingur landsfundarfulltrúanna
um stefnuna i sameiningar-
málinu fram i kosningum i
ábyrgðarstöður á vegum sam-
takanna. Var þar deilt nm,
hverjir það skyldu vera sem
fylgja ættu fram þeirri stefnu,
sem mótuð hafði verið i málinu
daginn áður. Urðu niðurstöð-
urnar á þá lund, að sam
einingarmenn fóru með algeran
sigur af hólmi.
Eini stuðningsmaður Bjarna
Guðnasonar i uppstillinganefnd
var Inga Birna Jónsdóttir.
Þegar meiri hluti uppstillinga-
nefndar gerði tillögur um stjórn
flokksins gerði hún ekki athuga-
semdir, en eftir fundarhlé i
nefndinni kom hún fram með
tillögur um Bjarna Guðnason
sem formannsefni gegn Hanni-
bal Valdimarssyni og Hjalta
Haraldsson sem varaformanns-
efni. Þegar gengið var til at-
kvæða á landsfundinum féll
Bjarni Guðnason fyrir Hannibal
með 30 atkvæðum gegn 76. Var
þá framboð Hjalta Haralds-
sonar i varaformannsembættið
dregið til baka og gerð tillaga
um Bjarna Guðnason gegn
Magnúsi Torfa Ölafssyni.
Féll Bjarni einnig i þeirri
kosningu með 39 atkvæðum
gegn 67.
Var svo kosningum til flokks-
stjórnar áfram haldið og þegar
þær voru langt komnar kvaddi
Bjarni Guðnason sér hljóðs,
sagðist mótmæla vinnubrögðum
Framhald á bls. 4
stjórnmálasamtökum,
sagði Björn Jónsson í
stuttu viðtali við
Alþýðubiaðið i gær.
— I samræmi við þessa
stefnu hefur landsfundur-
inn falið eindregnustu
sameiningarmönnunum
ábyrgðarmestu forystu-
hlutverkin i samtökunum.
Eindregnustu sam-
einingarmennirnir
urðu ofan á
Islendingar afla-
sælir í Norðursjó
Þótt tsiendingum þyki þeir ekki
hafa veitt vel i Norðursjónum i
sumar, eru þeir samt sú þjóð sem
mestri sild hefur landað i Dan-
mörku i sumar.
Sem dæmi má nefna, að 14.300
lestum af sild var landað til nið-
ursuðu i dönskum höfnum i júli i
sumar. Af þessum afla lönduöu
Islendingar 7.600 lestum, Færey-
ingar 4.400 lestum en Danir aö-
eins 300 lestum.
t júli i fyrra var landað i dönsk-
um höfnum samtals 20.500 lestum
af sild, og hefur aflinn þvi minnk-
að um 6.200 lestir á einu ári. Gef-
ur þetta góða mynd af ástandi
sildarstofnsins i Norðursjónum.
I siðustu viku nam heildarveiði
islenzku bátanna i Norðursjó
samtals 1.114 lestum. Verðið var
nokkuð hagstætt, eða 18,41 króna
meðalverð fyrir kilóið. Samtals
seldu bátarnir fyrir 19,3 milljónir
króna.
Langbeztu sölu gerði Loftur
Baldvinsson EA, hann seldi 114
lestir fyrir rúmar 2 milljónir
króna. Hæsta meðalveröið fékk
örfirisey RE, 20,20 krónur kilóið.
Vopnahlé meðan
ræðst er við?
Fróðlegt verður að vita, hvort I bættismenn, sem eiga að taka
brezku togaraskipstjórarnir fá þátt i þeim, eru erlendis og ekki
skipun um að halda út fyrir 50 | Framhald á bls. 4
milurnar á meðan landhelgisvið-
ræðurnar milli Breta og Islend-
inga standa yfir. Alþýðublaðið
spurði i gær Pétur Thorsteinsson
ráðuneytisstjóra, hvort likur
væru á, að brezku togararnir færu
að dæmi Belgiumanna, þegar við-
ræður um landhelgismálið stóðu
við þá, og haldi sig utan land-
helgi, en hann vildi ekkert um það
segja.
En Pétur sagði, að brezka
sendinefndin væri væntanleg á
morgun, og viðræðurnar hæfust
að likindum á fimmtudaginn.
Akvörðun um hvenær við-
ræðurnar hefjast hefur ekld
endanlega verið tekin af þeirri
ástæðu, að ýmsir islenzkir em-
... og svo sagan um unga manninn,
unnustuna og skóna sem var stolið
Sumir þurfa að fara úr skónum og læðast á sokkaleistunum til að ná
fundum við unnustur sinar, en dæmið snerist alveg við hjá ungum
manni hér i Reykjavik um helgina, þvi hann fór á sokkalestunum frá
unnustunni.
Hafði hann brugðið sér i heimsókn til hennar á laugardagskvöldið, og
farið úr spánýjum fjögurþúsund króna skóm frammi i forstofu, eins og
prúðum pilti sæmir.
Þegar hann ætlaði svo heim til sin um nóttina, voru skórnir horfnir,
og sömuleiðis jakki, sem hékk i forstofunni.
Þýfið er ófundið, en eigandinn hefur kært þetta til lögreglunnar þar
sem honum þykir sárt um skóna, enda hafði hann keypt þá á laugar-
dagsmorguninn og var þetta fyrsti göngutúrinn i þeim.
l&Q/\ Vl&G/K OGc ijj-p ‘TlL-VE-RAlS/
"£INS OG FoRsÆTlStf ÁÐHER RA MuNOl StGJA: VÍANM M/SS\(lL0l MIG"
EFSTIR
tslenzka sveitin á ólympiu-
mótinu i Skopje i Júgóslaviu
er nú i efsta sæti i B-riðli
ásamt Norðmönnum og Eng-
lendingum.
tslendingar sigruðu Albani
með þremur og hálfum vinn-
ing gegn hálfum og hafa þar
með hlotið samtals 14 vinn-
inga.
Efstir i A-riðli eru
Júgóslavar með 17 vinninga.
Skotar eru efstir i C-riðli með
16 vinninga og Frakkar i D-
riðli með 15 1/2 vinning.