Alþýðublaðið - 07.10.1972, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 07.10.1972, Blaðsíða 2
A FOTUM ÞfNUM bað gerist stundum, að náttúruverndarsjónarmið sigri sjónarmið stórf'ramkvæmda- mannanna. Sigurtáknið um einn slikan sigur er skilti eitt, sem stendur á Háubökkum við Elliðavog, nánar til tekið við Súðavog, en á þvi er teikning af friðuðum, jarðlögum þar fyrir neðan. Náttúruverndarnefnd Reykjavikur fékk þvi fram- gengt, að uppfylling Elliðavog- arins yrði stöðvuð áður en hún eyðilegði stórmerkar minjar um jarðsögu Reykjavikur. Hessar minjar eru 200 þúsund ára gamlar, og gefi Reykviking- ar sér einhverntimann stund til þess að labba niöur i Söðavog án þess að eiga erindi á eitt hinna mörgu bilaverkstæða, sem þar eru, má sjá á skilli nu hvaða jarðliig þetta eru. Á þvi stendur, að þarna séu setlög þakin svonefndu Reykja- vikurgrágrýti, og hvorttveggja sé frá næstsiðasta hlýskeiði is- aldár. — A uppdrættinum má sjá hvar menn geta virt fyrir sér ýmsar 200 þúsund ára gamlar bergtegundir i setlögunum þarna i bakkanum. Þarna getur að lita sandstein leirstein, jök- ulberg, grágrýti og surtar- brand. ÞEIR ÆTLA AÐ VARD- VEITA HANA Frá Alþýðublaðsútgáfunni Alþýðublaðsútgáfan sendi Morgunblaðinu, Timanum og Þjóðviljanum i gær svohljóð- andi bréf: Vcgna blaðaskrifa undan- farna daga. þar á meðal i blaði ýðar, vill stjórn Alþýðublaðsút- gáfunnar h.f. taka fram. að eng- in breyting hefur verið gerð, eða er fyrirliuguð á stjórnmálalegri ritstjórn Alþýðublaðsins. Skrif blaðsins bera þessu ó- rækt vitni, svo að óþarfi ætti að vera að efna til deilna um þcssi mál i blöðum eða á öðrum vett- vaiígi. Jafn óþarft ætti að vera að taka fram, að stjórnmála- skrif blaðsins eru öldungis óbáð þvi til livaða lögmanns eða lög- manna hér i borginni stjórn fé- lagsins snýr sér varðandi lög- fræðileg málefni. Reykjavik, (>. október 1972 f.h. Alþýðublaðsútgáfunnar h.f. Bencdikt Jónsson, framkv.stj. Skrifstofustjóri Raunvisindastofnun Háskólans vill ráða skrifstofustjóra. Starfssvið er m.a. stjórn og rekstur skrifstofu, umsjón með bók- haldi og launamálum, starfsmannamál, áætlana og skýrslugerð og margvisleg framkvæmdast jórn. ■ Nánan upplýsingar eru veíttar í síma 2 1 3 4 0. kl. 14.00—16.00. Laun samkvæmt kjarasamningi opin- berra starfsmanna. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu hafa bor- izt Raunvisindastofnun Háskólans, Dun- haga 3, fyrir 21. október n.k. Raunvisindastofnun Háskólans. ATJAN SYKURMOLAR f EINNI GOSFLÖSKU! Frá og með næstu áramótum verða limdir viðvörunarmiðar á allar gosdrykkjaflöskur sem fara á markað i Noregi, þar sem inni- hald flasknanna verður nákvæm- lega tiundað. Þetta er gert til að vara fólk við skaðsemi mikillar gosdrykkju, einkum á tennur, en i venjulegu innihaldi gosdrykkjaflösku er sykurmagn sem samsvarar hvorki meira né minna en 18 venjulegum sykurmolum! Þetta kemur fram i viðtali, sem norska Arbeiderbladet átti við norskan tannlækni nýlega að nafni Harald Ulvestad. Við eru hættir að hafa undan að gera við, segir Harald, sem er barnatannlæknir. Enda ekki aö undra, segir hann, þar sem Norð- menn drekka árlega um 150 milljónir litra af gosdrykkjum, en Ævintýramaður nokkur hefur ferðast sex sinnum umhverfis jörðina siðan i april i vor, og allt á fölsuðum farmiðum! Hann mun þó naumast fara i fleiri hnattflug i bráðina, þar sem hann situr nú bak við lás og slá i fangelsi i Stokkhólmi. Hann gaf sér þó tima til að fást við sitthvað fleira, þvi hann trú- lofaðist þrisvar á timabilinu, tveim sænskum stúlkum og einni hollenskri, en er raunar þegar giftur og á tvö börn. Maðurinn, sem er 28 ára og vestur-þýzkur að uppruna, lét prenta fyrir sig 30 flugmiða á þeim forsendum að hann væri starfsmaður Nigeria Airways, enda var hann klæddur i einkennisbúning félagsins. Miðana fyllti hann svo réttilega út, enda kann hann vel til þerra verka eftir brask sitt á ferðaskrif- stofum viða um heim. Miðarnir giltu alltaf fyrir tvo, þvi hann tók kvenmann með sér i hverja ferð, en aldni þann sama og eiginkonan hefur aldrei i flug- vel komið.— 30grömm af uppleystum sykri er að meðaltali i einni gosdrykkja- flösku. Bendir hann á, að stærsta gosdrykkjaverksmiðja Noregs noti um 10% af öllum sykurinn- flutningi landsmanna. Sem kunnugt er, eru gosdrykkir einkum skaðlegir fyrir tennur. en tannskemmdum fylgja gjarnan aðrir kvillar, og meltingin verður ekki eðlileg hjá manni með mikið skemmdar tennur. Það eru þó ekki eingöngu meltingartruflanir og tannpina, sem gosdrykkja- þamb hefur i för með sér, heldur Franihald á bls. 4 ,Þið skuluð vita að þið eigið marga vini..’ Eftir úrslit þjóðaratkvæða- greiðslunnar i Noregi um EBE- aðildina sendi Jón Sigurðsson, forseti Sjómannasambands Is- lands. Æskulýðsfylkingunni gegn EBE heillaóskaskeyti. Nýlega barst Jóni þakkarbréf frá Æskulýðsfylkingunni. 1 bréf- inu segir m.a.: .Æskulýðsfylkingin gegn EBE þakkar heillaóskir yðar i sam- bandi við sigurinn i norsku þjóðaratkvæðagreiðslunni. Við deilum gleðinni gjarna með norrænum nábúum okkar vegna, þess, að við erum sannfærð um, að þessi sigur verður ekki aðeins Noregi til nytsemda, heldur Norðurlöndum öllum, og leiðir til þess, að norræn samvinna fær á ný forgang. Æskulýðsfylkingin gegn EBE hætti störfum i gær, miðvikudag- inn 27. september. Um leið hættir einnig fslandsstarf fylkingarinn- ar. Á lokafundinum i gær var Ungum vinstrimönnum i Noregi falið að kalla saman fund aðildar- félaga Æskulýðsfylkingarinnar til þess að stofna nefnd til stuðnings útfærslu fiskveiðilögsögunnar við Island. Sú nefnd mun halda áfram þvi starfi, sem Æskulýðs- fylking hóf. Takmark nefndarinn- ar mun verða að stuðla að þvi að afstaða okkar verði afstaða norskra stjórnvalda. Island á ef til vill erfiðleika i vændum. Þið skuluð vita, að þið eigin marga vini i Noregi. Gangi ykkur vel! Kær kveðja Æskulýðsfylkingin gegn EBE Alf Hildrum, framkvæmdastjóri o Laugardagur 7. október 1972.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.