Alþýðublaðið - 07.10.1972, Page 4
Minnisvarði um Einar
Benediktsson, skáld var afhjúp-
aður siðastliðinn sunnudag við
þjóðveginn hjá Héðinshöfða á
Tjörnesi, en eins og kunnugt er
var Einar þar hjá föður sinum,
Benedikt Sveinssyni, sýslu-
manni, frá 10 ára aldri.
Húsavikurbær og Þingeyjar-
sýsla kostuðu gerö minnisvarð-
ans, en hann var gerður af Rik-
harði Jónssyni. Uppsetningu og
aöra tilhögun hafði á hendi Jó-
hann Björnsson, myndskurðar-
maður frá Húsavik.
Karl Kristjánsson, fyrrum al-
þingismaður, flutti aðalræöuna
og rakti sjáanleg áhrif i ýmsum
beztu kvæöum hans og verunni
á Héðinshöfða. Frú Valgerður
Benediktsson, dóttir skáldsisn,
afhjúpaði siðan minnisvarðann.
Athöfn þessi var fjölmenn.
Ljóðlinurnar, sem á minnis-
varðanum standa eru úr kvæð-
inu Útsær, en það verður mjög
auðveldlega rakið til verunnar á
Tjörnesi.
¥
ÞJÓÐSKÁLD
VIÐ
ÞJÓÐVEG
SYKURMOLAR 2
segir Harald að það hafi lika
skaöleg áhrif á matarlyst.
Þótt fjöldi barna og unglinga fái
allar þa;r kaloriur sem þau þarfn-
ast úr gosdrykkjum og sælgæti,
skortir fjölda annarra efna.
Þó að við liíum i velferðarþjóð-
félagi og allsnægtum, segir Har-
ald.erstaðreyndinsú, að i Noregi
er fjöldi vannærðra barna.
Það er ekki sökum fátæktar,
heldur vegna auðlegðar, þvi þessi
börn hafa nær undantekningar-
laust næga peninga handa á milli,
kaupa fyrir þá gos og sælgæti og
hafa svo ekki matarlyst fyrir
bragðið.
Mest áberandi er skortur á árn-
og próteinefnum, sem eru óþekkt
i gosdrykkjum og sælgæti, svo að
samhengi er greinilegt.
Verst er að gosdrykkir virðast i
æ rikara mæli koma i staö vatns
og mjólkur sem svaladrykkir, og
enn verra er, að gosið er orðið
meira en svaladrykkur, það er
orðið nokkurs konar ávana-
drykkur hjá fjölda manns, segir
Harald að lokum.
SJÓEFNAVINNSLA 1
smiðjan á að framleiða, er
væntanleg eftir áramót.
Rannsóknirnar hafa verið mjög
kostnaðarsamar, og þvi var
gripið til þess ráðs að fram-
kvæma þær stig af stigi og kanna
hversu miklu hvert stig lofaði i
sambandi við væntanlega efna-
vinnslu.
Fyrsta skýrslan kostaði 100
þús. kr., sú næsta um 200 þús. kr.,
sú þriðja 500 þús. kr. og þessi
lokaskýrsla kostaði 1,2 milljónir.
Heildarkostnaður við rannsóknir
þessar er um 18 milljónir króna.
Taliðer, að þessi fyrirhugaða sjó-
efnaverksmiðja þurfi um 130
manns i vinnu, þegar allir þættir
eru teknir með, en heildarstofn-
kostnaður er áætlaður 1200
milljónir isLkróna og áætlað sölu-
verðmæti 360 milljónir króna.
Þýðingarmesti hluti fram-
leiðslu verksmiðjunnar verður
saltið, og verður það að mestu
leyti notað til saltfiskverkunar
innanlands, en nú eru notuð um 50
þús. tonn á ári til þeirra þarfa.
Auk þess koma til greina margar
aðrar framleiðslugreinar, þar
sem vinna má úr salti.
Það efni, sem dýrmætast er, en
kemur um leið i minnstu magni,
er brómið. Það er m.a. notað sem
bætiefni i benzin til þess að hækka i
oktantölu þess og koma i veg fyrir
ventlabank. Einnig er það notað i
sambandi við textiliðnað og
prentun. Kaliklórið er ákaflega
mikilvægt sem áburðarefni, og
Aburðarverksmiðja rikisins
notar um 5000 tonn af þvi efni ár-
lega til áburðarframleiðslu, en
verði verksmiðjan reist mundi
Aburðarverksmiðjan að sjálf-
sögðu ekki þurfa að kaupa það
erlendis frá framar. Þá má nefna
kalsium klórið, sem er eitt af
þeim efnum, sem sjóefnaverk-
smiðjan vinnur væntanlega úr
jarðsjónum, en það er m.a. notað
til að rykbinda vegi, og sem kæli-
vökvi.
BÍLSTJORI 1
Þeir gátu ekki opnað kassann
sjálfir, og fengu þvi 19 ára kunn-
ingja sinn til þess, að hafði hann
áfengið að launum.
1 kassanum voru 10 bankabæk-
ur, allar með einhverjum inni-
stæðum, talsvert af innlendum og
erlendum peningum, og nokkuð
af gömlum peningaseðlum, sem
eru orðnir mjög verðmætir.
Þetta gerðist 23. september sl.
Einhverra hluta vegna kærði eig-
andinn þó ekki innbrotið fyrr en
þann 29. og hafði rannsóknarlög-
reglan þegar upplýst það daginn
eftir.
Voru drengirnir þá búnir að
eyða öllum peningunum og farnir
að ganga á innistæður bankabók-
anna. Kom þá i ljós að hluta
þýfisins, aðallega gömlu seðlun-
um, hafði verið varið til vin-
kaupa, og bárust böndin að leigu-
bilstjóranum, sem handtekinn
var i dyrradag.
Einn piltanna þriggja hefur
einu sinni komið við sögu hjá lög-
reglunni áður, en hinir ekki, og
ekki er vitað, að bilstjórinn hafi
verið tekinn fyrir ólöglega vinsölu
áður. -
AFKÖST 1
og benda á leiðir til úrbóta.
Allar nefndirnar hafa skilað
áliti, og er það mjög samhljóða
hjá þeim öllum. Leggja þær til,
að bókhald verði meira notað
sem stjárnunartæki, meiri sam-
vinna verði milli fyrirtækja, þau
verði stækkuð og þau sér-
hæfi sig meira en verið hefur.
OLÍA 3
ur hálmur, sem siðan er brennt,
ef unnt er að ná honum upp.
Að sögn skipaskoðunarstjóra
hefur ekki orðið vart við oliu-
mengun hér við land siðan skip
losaði vegaoliu úr tönkum sin-
um úti á Faxaflóa fyrir
skömmu.
Hlutavelta
Hlutavelta Kvennadeildar
Slysavarnafélags Islands verð-
ur haldin á sunnudaginn i kjall-
ara Iðnskólahússins á Skóla-
vörðuholti.
Hlutavelta þessi er árlegur
viðburður, og er einkum i fjár-
öflunarskyni fyrir hið mikla
björgunartækjahús, sem Slysa-
varnarfélagið er nú að reisa á
Grandagarði.
Nýtt — Nýtt
Stór sending af úlpum og jökkum
BERNHARÐ LAXDAL
Kjörgarði
Stórar stærðir
Ný sending af kápum
i stærðunum 36-56
BERNHARÐ LAXDAL
Kjörgarði
® Rafvirkjar
Rafmagnsveita Reykjavikur óskar eftir
að ráða rafvirkja til starfa.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
hjá yfirverkstjóra Rafmagnsveitunnar,
Ármúla 31 milli kl. 13.00 og 14.00 daglega.
Umsóknarfrestur er til 14. október 1972.
B
^ RAFMAGNSVEITA
^ REYKJAVÍKUR
1
^lðnskólinn í Reykjavík
Nemendumsem stunda eiga nám i 3.
bekk á annarri námsönn þetta skólaár, en
hafa ekki lokið prófum i einstökum náms-
greinum 2. bekkjar með fullnægjandi
árangri, gefst kostur á að sækja námskeið
i dönsku, reikningi og efnafræði ef næg
þátttaka fæst.
Innritun fer fram i skrifstofu skólans
dagana 9. til 11. þ.m. kl. 8,30—16.00.
Námskeiðin hefjast 16. október og próf
byrja 6. nóvember.
Námskeiðsgjald verður kr. 500,- fyrir
hverja námsgrein.
Nemendur sem þurfa að endurtaka próf
i öðrum námsgreinum 2. bekkjar skulu
koma og láta innrita sig i þau dagana 23.
til 25. október.
Skólastjóri.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Á þriðjudag verður dregið i 10. flokki.
4.900 vinningar að fjárhæð 31.020.000 krónur.
Á morgun er siðasti heili endurnýjunardagurinn.
Happdrætti Háskóia tsiands
10. flokkur
4 á 1.000.000 kr .
4 á 200.000 kr.
280 á 10.000 kr.
4.604 á 5.000 kr.
Aukavinningar:
8 á 50.000 kr.
4.900
Laugardagur 7. október 1972.