Alþýðublaðið - 07.10.1972, Qupperneq 6
Guðmundur Böövarsson heiðursfélagi Rí
Á framhaldsaðalfundi Rithöf-
undaféiags íslands, sem haldinn
var 21. þ.m., var Guðmundur
Böðvarsson skáld á Kirkjubóli
kjörinn heiðursfélagi þess.
Stjórn félagsins skipa nú: Vil-
borg Dagbjartsdóttir, formað-
ur, Stefán Hörður Grimsson,
varaformaður, Ingólfur Jónsson
frá Prestsbakka ritari, Sigurður
Róbertsson, vararitari og Jón
frá Pálmholti, gjaldkeri.
Nýir félagar bættust sjö við á
árinu. Félagsmenn eru nú 91.
MADURINN SEM
TÓK SIÁLFAN
SIG ÚR UMFERD
Fyrir sextán árum klifraði Mexíkaninn
Pabhi Vargas upp hringstiga. sem liggur
upp í tvo turna dóinkirkjunnar i bænum
Ma/.allan i Mexikó. Ilann licfur ekki kom-
ið niður siðau.
Vargas þessi er Ii2 ára gamall. Ilann er
bringjari kirkjunnar og býr i litlu her-
bergi á milli turnanna tveggja.
Starfsmenn kirkjunnar færa honum
mat. sem liann niallar svo og borðar á
þaki guðsbússins.
,,(Cg vil ekki fara héðan. Hvað hef ég að
gcra þarna niöri?” spyr Vargas um leið
og hann litur yfir sjávarþorpið. ,,IIér uppi
á ég ekki við nein vandamál að striða. ft:g
er látinn i friði og ég læt aðra i friði. Hér
ætla ég að lifa lifinu, þar til ég dey ",
Vargas er lágur vexti, sterklegur, en
liokinn. Ándlit hans er stirðnað. næstum
illúðlegt.
Og þólt hann veki ibúa þorpsins á hverj-
uin degi vita þeir fæstir um tilveru hans.
Fyrir sextán árum skildi Vargas við
riginkonu sina eftir margra ára hjóna-
band. bau bjuggu i Durango. sem er i 200
milna fjarlægð og áttu tvö börn.
Dag einn kom hann til kirkjunnar og
var boðið starf hringjara. Hann klifraði
upp i turnana — og þar hefur hann verið æ
siöan.
Pablo Vargas , maðurinn, sem tók sjálfan sig úr umferð.
Ilann hefur verið „hátt uppi" i lfi ár. Sumir likja honum
við Quasimodo, aðalsögupersónuna i sögu Victor Hugo,
llringjarinn frá Notre Dame.
NU Á AÐ GEGNUM-
LÝSA SÓLFAXA!
„HEIAAA
ER BEZT"
„Nú um þessar mundir er
Flugfélag tslands i raun og veru
að flytja allt viðhald og eftirlit
með flugvélum sinum inn i land-
ið i stað þess að starfsemi þessi
fari að verulegu leyti fram er-
lendis”, sagði Sveinn Sæmunds-
son, blaðafulltrúi Flugfélagsins,
i samtali við Álþýðublaðið i gær.
()g Sveinn bætti við: „Priðju-
daginn 10. október næstkomandi
verður framkva'md „gegnum-
lýsing” á „Sólfaxa”, annarri af
þotum flugl'élagsins og verður
það i fyrsta skipti i sögu is-
lenzkra flugmála, að slik skoðun
er framkvæmd á islandi”.
Sveinn sagði ennfremur i
samtalinu við Alþýðublaðið, að
þær viðtæku breylingar, sem nú
væru að gerast á sviði ta'kni-
mála hjá Flugfélagi Islands,
muni, þegar Iram i sækir, veita
fleiri llugvirkjum atvinnu hér á
landi en áður.
i siðasta hol'li „Faxafrétta”,
sem er blað starfsfólks Flugfé-
lags islands, en Sveinn er rit-
stjóri þess og ábyrgðarmaður,
er m.a. fjailað um nýsköpun i
tæknimálum félagsins.
I>ar er skýrt l'rá þvi, að fyrir
réttu ári hafi einn af starfs-
mönnum félagsins Kristján
Friðjónsson, sem lokið hefur
prófi i flugvirkjun hjá Flugfé-
laginu og siðan pról'i i flugvéla-
verkfræði frá bandariskum há-
skóla, haldið vestur um naf til
Bandarikjanna i þeim tilgangi
að kynna sér árangur af viðtæku
rannsóknarstarfi nokkurra
bandariskra flugfélaga á sviði
eítirlits og viðhalds flugvéla.
Kftir að Kristján hafði gefið
skýrslu um ferð sina, var skipuð
þriggja manna nelnd til frekari
könnunar á niðurstöðum og
rannsóknum hinna risastóru
bandarisku flugfélaga.
Driggja manna nelndin komst
að þeirri niðurslöðu, að þau
kerfi og nýmæli, sem „National
Airlines’’ er að taka upp um
þessar mundir i viðhaldi og eft-
irliti á flugkosti sinum, muni
henta vel Flugfélagi tslands.
l»ess skal getið i þessu sam-
bandi, að á sinum tima, er fé-
lagið hóf þotullug, keypti það
„skoðunarkerfi” þessa sama
flugfélags.
Degar hér var komið sögu, fól
Orn Johnson, forsljóri Ft,
ncfndinni að endurskipuleggja
ta'knideild félagsins.
l>að verk er nú langt á veg
komið og heíur nú verið stofnuð
ný deild, verklræðideild, á veg-
um félagsins og er hún und-
irdeild tæknideildar.
Illutverk verkfræðideildar-
innar er að innleiða nýja tækni i
skoðunum á þotum félagsins og
afla þeirra tækja, sem þarf til
þess að allar skoðanir á Ft-þot-
unum geti fariðfram hér á landi
á verkstæðum Flugfélags ts-
lands.
Til þess að svo geti orðið, þarf
að endurskoða og endurrita
vinnulýsingar og vinnuaðferðir.
t þessu sambandi hefur félagið
nú fengið aðgang að tölfræðileg-
um upplýsingum um viðhald
flugvéla bandariska flugfélags-
ins „National Airlines” i Miami,
en l'élagið hefur 40 Boeing-727
þotur i þjónustu sinni.
Darna er að finna tölfræði-
legar upplýsingar um endingu
hinna ýmsu sérhluta þotanna,
bilanir og viðhald i heild, svo og
hina ýmsu fylgihluti.
Með breytingunum, sem nú
verða á skoðunum á þotum
Flugfélags tslands, verður nýrri
ta'kni beitt. Flugvélarnar verða
„röntgenmyndaðar” og skoðað-
ar með hátiðnitækjum i stað
sjónskoðunar áður.
Kins og fyrr segir verður gerð
„röntgenskoðun” á þotunni
„Sólfaxa” næstkomandi þriðju-
dag og fer skoðunin fram i
Reykjavik.
Sama dag koma til landsins á
vegum Flugfélags tslands tveir
menn frá „National Airlines” til
fyrirlestrahalds og kennslu.
Jazzballettskóli Báru
Dömur athugið Likamsræktin Dömur athugið
9 vikna kúr i likamsrækt og megrun, nudd
og sauna, hefst mánudaginn 16. október.
— Morgun, dag og kvöldtimar.
Upplýsingarog innritun i sima 83730, 5., 6.
og 7. október frá kl. 1—6.
Jazzballettskóli Báru.
83730 83730
Jazzballettskóli Bóru
Innritun i Jazzballett mánudaginn 8.
október. Nemendur i dansflokknum vin-
samlega hafið samband strax.
Jazzballettskóli Báru.
Ég þakka innilega fyrir þá miklu vinsemd
og sæmd, sem mér hefir verið sýnd i til-
efni af sextugsafmæli minu 4. september
1972. Einkum þakka ég vinum minum og
velunnurum i Skagafirði, þ.á.m. sýslu-
nefnd Skagafjarðarsýslu og stjórn Kaup-
félags Skagfirðinga.
Jóh. Salberg Guðmundsson.
Norræn
tónlistarkeppni
Lokakeppni i norrænu pianókeppninni fer
fram i Háskólabiói sunnudaginn 8. október
kl. 15.
Sinfóniuhljómsveit íslands leikur, en ein-
leikarar verða þeir tveir þátttakendur,
sem unnið hafa sér rétt til að keppa um 1.
og 2. verðlaun, 15.000 og 10.000 danskar
krónur.
Aðgangur ókeypis og öllum frjáls meðan
húsrúm leyfir.
Norræna félagið og Rikisútvarpið.
PÓST- OG SlMAMÁLASTJÓRNIN
óskar eftir mönnum
til náms í
jarðsímatengingum
Umsækjendur þurfa að hafa gagnfræðapróf eða hliðstæða
menntun. Gert er ráð fyrir að umsækjendur starfi að
loknu námi á eftirtöldum stöðum:
í nágrenni
Reykjavikur
Borgarnesi
Patreksfirði
ísafirði
Sauðárkróki
Akureyri
Selfossi
Keflavik
llúsavik
Egilsstöðum
Seyðisfirði
Neskaupstað
Reyðarfirði
Akranes
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá simstöðvarstjorum a
viðkomandi stöðum og i Reykjavik á skrifstofu sima-
tæknideildar i sima 26000 / 255 eða hjá skólastjóra i sima
26000 / 385
Umsóknir sendist fyrir 20. október 1972 til Póst- og
simaskólans, pósthólf 270 Reykjavik.
o
Laugardagur 7. október 1972.