Alþýðublaðið - 20.10.1972, Blaðsíða 5
alþýðu
E
aðið
Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórn-
ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666.
Blaðaprent h.f.
AFGREIÐSLUBANN A
EFTIRLITSSKIPIN!
Tvisvar sinnum á skömmum tima hafa brezk
og vestur-þýzk eftirlitsskip fengið sig afgreidd
með nauðsynjar i islenzkum höfnum. Þýzka
eftirlitsskipið Poseidon fékk að kaupa vatn og
oliu i Reykjavikurhöfn i s.l. viku og þýzka eftir-
litsskipið Cirolana fékk vatn afgreitt i Akur-
eyrarhöfn nú fyrir nokkrum dögum. Bæði
skipin komu til íslands með veika eða slasaða
menn, sem þurftu að leita læknishjálpar.
Þessir atburðir hafa valdið mikilli ólgu meðal
almennings i landinu og vakið upp eindregin
mótmæli. Fólk gagnrýnir það ekki, þótt slösuð-
um sjómönnum sé veitt viðtaka. íslendingar
vilja gjarna veita sitt lið veikum og slösuðum
sjómönnum af erlendu þjóðerni eins og lands-
menn hafa ávallt verið fúsir til að gera. Hinu
mótmælir þjóðin, að hafnaryfirvöld og sveitar-
stjórnir á íslandi skuli leyfa sér að afgreiða for-
ystuskip sjóræningjaflotanna brezku og vestur-
þýzku um oliu og vistir til þess eins, að þessi
sömu skip skuli þeim mun lengur geta haldið út
við iðju sina á íslandsmiðum.
Brezku og vestur-þýzku eftirlitsskipin á
miðunum við ísland fara með eitt allra þýðinga-
mesta hlutverkið i þeim ljóta leik, sem flotar
þessara tveggja þjóða hafa sett á svið á íslands-
miðum. Eftirlitsskipin gegna þvi hlutverki að
styrkja togara til landhelgisbrota láta þeim i té
nauðsynlega aðstoð við viðgerðir á vélum og
tækjum svo skipin geti sem allra lengst stundað
lögbrot sin og stjórna svo i ofanálag öllum að-
gerðum brezku og vestur-þýzku veiðiflotanna
við ísland. Þegar þessi skip vanhagar svo um
brennsluefni og vatn til að geta haldið úthaldinu
áfram, þá bregða þau sér bara til islenzkra
hafna og þar eru þau afgreidd umsvifalaust. I
bezta falli sýnir slik framkoma vitavert kæru-
leysi viðkomandi hafnaryfirvalda og sveita-
stjórna. í öllu falli er hún hneyksli.
Þegar mál þessi komu til umræðu á fundi
neðri deildar Alþingis i fyrradag voru þingmenn
allir á einu máli um að fordæma þessa af-
greiðslu á vistum til eftirlitsskipanna. Er for-
stætisráðherra upplýsti, að vafasamt kynni að
vera að rikisstjórnin hefði lagalega heimild til
þess að gripa fram fyrir hendur sveitarstjórna i
málinu og fyrirskipa afgreiðslubann á eftirlits-
skipin kvaddi einn af þingmönnum Alþýðu-
flokksins, Benedikt Gröndal, sér hljóðs. Beindi
hann þeim eindregnu tilmælum til utanrikis-
málanefndar Alþingis, sem skipuð er fulltrúum
allra þingflokka, að ef i ljós kæmi við nánari at-
hugun, að rikisstjórnin hefði ekki lagalega
heimild til þess að gefa slik fyrirmæli þá semdi
nefndin frumvarp að lögum, sem veittu rikis-
stjórninni þá heimild, og legði þau fyrir Alþingi.
Að slikri heimild fenginni ætti rikisstjórnin svo
umsvifalaust að banna alla afgreiðslu á brezk-
um og vestur-þýzkum eftirlitsskipum i islenzk-
um höfnum að öðru leyti en þvi að veita viðtöku
veikum eða slösuðum mönnum.
Alþýðublaðið tekur eindregið undir þessa til-
lögu Benedikts Gröndals og öll þjóðin er
áreiðanlega á sama máli. Afgreiðslu á vistum til
eftirlitsskipanna verður umsvifalaust að stöðva.
Annað er hneyksli. Vanti rikisstjórnina lagalega
heimild til sliks þá á Alþingi umsvifalaust að
veita hana. Og það hefur sýnt sig, að það þarf að
gefa islenzkum hafnaryfirvöldum slik
fyrirmæli. Þvi hefði Alþýðublaðið aldrei trúað.
AF ÞINGMALUM ALÞÝÐUFLOKKSINS
SAMEIGNARFÉLAG UM
VEIÐAR UG VINNSLU
A NORÐURLANDI V.
Eins og öllum er kunnugt hefur
nú um langt skeið verið mjög al-
varlegt atvinnuástand á mörgum
stöðum i Norðurlandskjördæmi
vestra. Miklir erfiðleikar hafa
lengi verið á Siglufirði, eins og
allir vita, en það er langt i frá
eina sveitarfélagið, þar sem at-
vinnuástandið er miklum örðug-
leikum háð. Fyrir skömmu sagði
Alþýðublaðið t.d. uggvænlegar
fréttir frá Hofsósi um atvinnu-
skort og viða i kjördæminu er
sagan sú sama.
Flest öll þessi byggðarlög eru
háð sjávarútvegi og fiskveiðum,
eins og er um nær öll sveitarfélög
á Islandi. Það sem m.a. gerir
erfitt um vik, er hversu smá út-
gerðar-og fiskvinnslufyrirtækin á
þessum stöðum eru og þvi litils
megnug.
Einn af þingmönnum Alþýðu-
flokksins, Pétur Pétursson, hefur
nú komið fram með mjög at-
hyglisverða tillögu i atvinnu-
málunum norðanlands, sem hann
telur að likleg geti verið til þess
að stuðla að frambúðarlausn at-
vinnumála i kjördæminu. Vill
hann, að allir þeir mörgu og smáu
aðilar i kjördæminu, sem fisk-
vinnslu og útgerð stunda, leggi
saman og stofni sameignarfélag
um reksturinn með þátttöku
rikissjóðs og Framkvæmda-
stofnunar rikisins. Með þvi móti
megi skapa nægilega stóra og
öfluga rekstrarheild til þess að
unnt verði að tryggja sem mesta
hagkvæmni i rekstrinum og sem
öruggasta atvinnumöguleika.
Hugmynd þessa hefur Pétur
Pétursson flutt inn á Alþingi i
formi þingsályktunartillögu, sem
lögð var fram i fyrradag. Þings-
ályktunartillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni að hlutast til um, að
stofnað verði sameignarfélag
silra þeirra aðila i Norðurlands-
kjördæmi vestra, sem annast
fiskveiðar á stærri fiskiskipum,
reka frystihús til fiskvinnslu,
fisksöltun eða herzlu.
Rikissjóði eða Framkvæmda-
stofnun rikisins er heimilt að eiga
verulega hlutdeild i félaginu, þó
ekki meiri hluta.”
I greinargerð með þings-
ályktunartillögu þessari gerir
Pétur Pétursson svo grein fyrir
þvi, hvað fyrir honum vakir með
tillöguflutningnum svo og hvaða
ástæður liggja að baki þvi, að til-
lagan er flutt. Um þetta segir i
greinargerðinni:
,,Sú hugsun er á bak við þessa
tillögu, að hagkvæmt sé fyrir þá
aðila að vinna saman, sem nú
stunda fiskveiðar og fiskvinnslu á
Siglufirði, Hofsósi, Sauðárkróki
og Skagaströnd.
A þessu svæði eru starfandi all-
mörg frystihús. Þau eru þó flest
fremur litil, og þó að sum sé ekki
samkvæmt nýjustu kröfum, þá
eru þau mjög prýðilega nothæf
enn um langt árabil. En lag-
færingar og breytingar þarf að
gera á mörgum þeirra.
Nú eru i byggingu tveir togarar
fyrir Siglufjörð og einn fyrir
Sauðárkrók. Auk þessa verður
byggt stórt nýtizku frystihús á
Siglufirði á næstu tveimur árum.
Þar hefur rikissjóður haft forustu
um þessa uppbyggingu. A minni
stöðunum, Hofsósi og Skaga-
strönd, eru engir aðilar til, sem
geta lagt verulegt fjármagn til at-
vinnuuppbyggingar.
1 kaupstöðum og kauptúnum
þessa kjördæmis hefur verið hvað
lökust afkoma fólks á öllu landinu
á undanförnum árum.
Ég tel, að samvinna þeirra
aðila, sem við fiskveiðar og fisk-
vinnslu fástá þessu svæði sé bein-
linis grundvallarforsenda þess,
að árangurs megi vænta varðandi
uppbyggingu atvinnulifsins. 1
héraði eru ekki til slikir fjár-
munir, sem hér þurfa að koma til.
Þess vegna tel ég að rikissjóður
eða Framkvæmdastofnun
rikisins verði að vera stór aðili
þessa máls, ef árangurs á að vera
að vænta. Þó tel ég ekki rétt, að
meirihlutavaldið sé tekið úr
höndum heimamanna.
Það kynni að vera, að slik sam-
vinna gæti einnig átt við á öðrum
landssvæðum.”
óskar eftir að
ráða afgreiðslumann
nú þegar eða eftir
samkomulagi. Umsóknir
leggist inn á afgreiðslu
blaðsins, Hverfisgötu 10.
34.FL0KKSÞING
ALÞÝÐUFLOKKSINS
34. flokksþing Alþýðuflokksins verður sett i kvöld kl. 20,30 i
KRISTALSSALNUM á HÓTEL LOFTLEIÐUM. fyrir utan venjuleg þing-
setningarstörf mun Gylfi Þ. Gislason, formaður Alþýðuflokksins, flytja
setningarræðu og ræðu um stjórnmálaviðhorfið og sameiningarmálið um
leið og hann gerir grein fyrir drögum að stjórnmálaályktun, sem lögð
verður fyrir þingið. Benedikt Gröndal, varaformaður Alþýðuflokksins, mun
flytja ræðu um utanrikismál og fylgja úr hlaði drögum að ályktun um þau
mál og Eggert G. Þorsteinsson, ritari Alþýðuflokksins, mun flytja ræðu um
flokksmálin og flokksstörfin.
SETNINGARFUNDURINN ER ÖLLUM OPINN.
Regluleg þingfundarstörf hefjast svo á morgun, laugardag.
Þingfulltrúar eru minntir á að skila skýrslum og skattgjaldi fyrir félögin.
Skrifstofa Alþýðuflokksins veitir gögnum og gjaldi móttöku i dag.
Föstudagur 20. október 1972
o