Alþýðublaðið - 20.10.1972, Blaðsíða 9
Iþróttir 2
NAUMAR/
GAT ÞAÐ
EKKI
ORÐIÐ
HJA ÍBV
Nauniari gat sigurinn varla
orftiö hjá Vestmannacyingum
i islandsmóti 2. flokks i knatt-
spyrnu. Eins og skýrt var frá i
blaöinu i gær, sigruöu Eyja-
menn 2:1, og kom sigurmark
þeirra ekki fyrr en á siðustu
sekúndu fremlengingar.
Markið skoraði Ásgeir Sigur-
vinsson úr aukaspyrnu.
Staðan eftir venjulegan Ieik-
tima var 1:1, og hafði Leifur
Leifsson skorað mark ÍBV en
Karl Alfreðsson mark ÍA. i
framlengingu fengu Akurnes-
ingar tækifæri sem hcföi getað
gert út um leikinn, en Hörður
Jóhannsson misnotaði herfi-
lega mjög gott marktækifarri.
Myndin er af sigurliði Vest-
mannaeyinga.
Efri röð frá vinstri: Her-
mann Jðnsson, knattspyrnu-
ráðsmaður, Bragi Steingrims-
son, þjálfari, Hjalti Eliasson,
Friðrik Guðlaugsson, Guðjón
Pálsson, Stefán Jónsson, Ar-
sæll Sveinsson, Páll Magnús-
son, Ásgeir Sigurvinsson, fyr-
irliði, Iiaraldur óskarsson og
Jóhann ölafsson, knatt-
spyrnuráðsmaður.
Fremri röð frá vinstri:
Snorri Rútsson Viðar Elias-
son, Leifur Á. Leifsson, Sveinn
B. Sveinsson, Magnús
Þorstcinsson, Ingibergur
Einarsson, Einar Ilögnason,
Örn Óskarsson og Valþór Sig-
þórsson.
BLOMALEIKIRNIR REYNAST
BERGI ALLTAF ERFIBIR!
Úrslit leikja Reykjavikurmóts-
ins i handknattlcik urðu i meira
lagi óvænt i fyrrakvöld. Það
þurfti kannski ekki að koma svo
mjög á óvart að Vikingur skyldi
vinna Fram, þvi i Vikingsliðinu
blundar sá kraftur sem nægir til
að vinna hvaða islen/.kt lið sem
er.
Hitt kom sannarlega á óvart, að
Valur skyldi biða lægri hlut fyrir
KR. Þar féll Valur i þá gryf ju sem
svo oft verður á vegi góðra liða,
nefnilega vanmat á andstæðingn-
um. Þá ber að geta þess, að Berg-
ur Guðnason átti þarna afmælis-
leik, lék sinn 250 meistaraflokks-
leik með Val. Afmælisleikirnir
eru Bergi alltaf erfiðir, og er i þvi
sambandi skemmst að minnast
200. leiks Bergs. Iiann var einnig i
Reykjavikurmótinu, og þá náði
Valur naumlega jafntefli gegn Kll
Eftir þann leik sagði Bergur,;
„200. leikurinn og jafnframt sá ié-
legasti”. Ætli hann hafi ekki svip-
aða sögu að segja um leikinn i
fyrrakvöld. Þá má einnig geta
þess, að .Jón Breiðfjörö lék sinn
200. meistaraflokksieik.
SPEHHANDIFORMANKSKIOR
ER FRAMUNDAH HlA HSf
Um næstu helgi verður ársþing
Handknattleikssambands Islands
haldið i Reykjavik. Þegar er ljóst
að þingið verður að mörgu leyti
merkt, þvi þar koma til umræðu
ýmis merk mál, þar á meðal
fjölgun liða i 1. deild upp i átta.
Einnig er ljóst að stjórnarkjör
verður mjög spennandi, og vænt-
anlega tvisýnt. Valgeir Arsælsson
núverandi formaður Handknatt-
STAÐAN
Staðan i Rcykjavikurmótinu i
handknattleik er nú þessi
Fram 5 4 0 , 72:51 8
Vikingur 4 3 1 0 53:41 7
KR 5 3 0 2 56:54 6
Valur 3 2 0 1 34:27 4
Árm. 4 1 1 2 50:44 3
ÍR 3 1 0 2 35:42 2
Þróttur 4 0 2 2 44:49 2
Fylkir 4 (1 0 4 26:64 0
Markhæstu leikmenn:
1. Axel Axelsson Fram 31
2. Einar Magnússon Vik 19
3. Björn Pétursson KR 16
leikssambandsins staðfesti i við-
tali við iþróttasiðuna i gær, að
hann myndi ekki gefa kost á sér
til endurkjörs. Væri það hans
endanlega ákvörðun.
Valgeir hefur verið formaður
HSt undanfarin tvö ár og alls hef-
ur hann setið i stjórn sambands-
ins i 14 ár af þeim 15 sem sam-
bandið hefur verið starfandi.
Hefúr Valgeir unnið mikið starf
fyrir handknattleikinn á Islandi,
og er af honum mikil eftirsjá þeg-
ar hann nú dregur sig i hlé.
Fullvist má telja að tvö fram-
boð komifram til formannskjörs,
Einar Matthisen, stjórnarmaður i
HSl og forystumaður iþröttamála
i Hafnarfirði og Sigurður Jónsson
framkvæmdastjóri Breiðholts hf,
og fyrrum landsliðseinvaldur.
Einnig hefur komið til tals að
þriðja framboðið komi fram, en
heldur hljótt hefur verið um það.
Hefur heyrst að jafnvel verði
stungið upp á Jóni Asgeirssyni
gjaldkera HSl og iþróttafrétta-
manni útvarpsins.
Það kemur væntanlega i ljós
þegar nær dregur þingi hvað
mörg framboðin verða. Þó er
ljóst að þau verða fleiri en eitt og
þvi má búast við spennandi kosn-
ingum.
Þess sem verður fyrir valinu
biða mörg verkefni, svo og stjórn-
ar hans, og má þar nefna undir-
búning að þátttöku i heimsmeist-
arakeppninni, ráðningu lands-
liðsþjálfara, val landsliðsnefndar
og ýmislegt fleira — SS.
Víkingur-Fram 13:12 (7:4)
Eins og markatalan gefur til
kynna, var um að ræða mjög fjör-
ugan og skemmtilegan leik, en
varla er hægt að tala um að hann
hafi verið jafn fyrr en liða tók á
seinni hálfleik.
Fram að þeim tima hafði Vik-
ingurleikið skinandi góðan hand-
knattleik, og haft algjöra yfir-
burði. Má nefna tölur eins og 4:0,
5:1 og 7:4 i hálfleik, Vikingi i vil.
1 seinni hálfleik fór úthaldið að
gefa sig hjá Vikingi, enda mikið
til sama liðið inná allan leikinn.
Söxuðu Framarar mjög á forskot
Vikings, með Axel i broddi fylk-
ingar.
Mikill darraðadans var siðustu
sekundurnar, og fór svo að vik-
ingar misstu boltann til Ingólfs
þegar aðeins voru nokkrar sek-
úndur eftir, og enginn var i mark-
inu. Ingólfur skaut að marki, en
brotið var á honum um leið og
boltinn fór framhjá marki.
Ekkert var dæmt, og lá við að
upphæfust slagsmál milli Axels
Axelssonar og Magnúsar Péturs-
sonar dómara, en þeim var sem
betur fer afstýrt. Var Axel sár-
gramur dómgæzlu Magnúsar,
sem þótti heldur hliðhollur Vik-
ingum.
Axel var i algjörum sérflokki i
liöi Fram, gerði 9 af 12 mörkum
liðsins, og eru þessar tölur ihug-
unarefni fyrir Framara. Vikings-
liðið sýndi sinar betri hliðar i
leiknum, með Einar sem bezta
mann. Hann var einnig
hæstur með 6 mörk.
mark-
Þrótlur-Ármann 14:14 (8:5)
Þetta var afar slakur leikur,
einskonar logn milli tveggja
storma. Armann hafði lengi vel
tök á leiknum, en missti þau i
vegna klaufaskapar i lokin.
Vilberg og Björn gerðu flest
mörk Armanns, en Halldór
Bragason var markhæstur i liði
Þróttar með 4 mörk.
KR-Valur 13:9 (7:6)
Þá var komið að blómaleik
þeirra Bergs og Jóns Breiðfjörðs,
og þvi miður fyrir Val, fylgdi ekk-
ert „flower-power” blómunum i
þetta sinn.
Hreint út sagt léku Valsmenn-
irnir afar illa, bæði i vörn og sókn,
og varnartaktikin hjá þeim var
hreint óskiljanleg. Fiöt vörn
þeirra var skyttum KR auðveld
viðfangs, einkum þeim Birni og
Þorvarði.
KR hafði alltaf undirtökin i
leiknum, en þó var bilið milli lið-
anna aldrei mikið, nema hvað
sundur dró með þeim i lokin.
Tókst KR þá að tryggja sér fjög-
urra marka forystu.
Björn Pétursson mar mark-
hæstur KR-inga með fjögur mörk,
mörg þeirra gullfalleg. Þorbjörn
Guðmundsson var sem fyrr
markhæstur Valsmanna með
þrjú mörk — SS.
- ;■
TEKIIR EVLEIFUR VIU ÞIALFUH
LHIS AKRAHES HÆSTA SUMAR?
Mikill áhugi er rikjandi meðal
Akurnesinga á þvi að hinn
snjnlli knattspyrnumaður Ey-
lcifur Hafsteinsson taki að sér
þjálfun meistaraflokks Akur-
nesinga næsta ár, nú þegar Ey-
leifur hyggst leggja skóna á hill-
una.
Þótt Eyleifur sé aöeins 25 ára
gamall, hcfur hann þegar að
baki 9 ára reynslu sem meist-
araflokksmaður, og engin vafi
er á þvi að hann er mjög vel
undirbúin að taka við ÍA liðinu.
Þessa reynslu Eyleifs vilja
Skagamenn notfæra sér, og
verður fróðlcgt að sjá hvaða ár-
angri Eyleifur nær, taki hann að
sér starfið. iþróttasiðunni er
kunnugt að Eylcifur hafur haft
hug á þvi i suinar að hætta, en
þó læðist sá grunur að manni, að
mcð hækkandi sól teygi Eyleifur
sig i skóna, og hætti þar með við
að hætta
— SS.
Föstudagur 20. október 1972
o