Alþýðublaðið - 03.11.1972, Side 3

Alþýðublaðið - 03.11.1972, Side 3
Það hefur vakið töluverða at- hygli, að ekkert samráð skyldi vera haft við fiskifræðinga vegna byggingar hinnar nýju og full- komnu skelfiskvinnslustöðvar i Stykkishólmi. Það mun ekki siður vekja at- hygli, að Framkvæmdastofnun rikisins veitti 2,4 milljón króna lán úr Byggðasjóði til uppbygg- ingar verksmiðjunnar, án þess, að bezt verður séð, að hafa kynnt sér afkomumöguleika hennar. Fleiri sjóðir hafa veitt þessarri nýju verksmiðju lán, og má þar nefna Fiskveiðisjóð. Það hefur komið i ljós, að verk- smiðjan getur unnið allt það magn af skelfiski sem leyfilegt er að veiða á einu ári i Breiðafirði samkvæmt núverandi kvóta, og gott betur. Miðað við núverandi veiði er þvi ekki hægt að fullnýta vélakost verksmiðjunnar, þvi stór hluti skelfisksaflans er að sjálfsögðu fluttur til annarra kauptúna við Breiðafjörð og jafnvel með bilum til Stór-Reykjavikursvæðisins og Suðurnesja. Hefur töluverð gagnrýni komið fram á þá sem reistu verk- smiðjuna, að þeir skyldu ekki hafa haft samráð við fiskifræð- inga áður en gengið var frá stærð fyrirtækisins. Áhrifamaður i sjávarútvegi, sem blaðið ræddi við um þessi mál, sagði að það þyrfti ekki að hljóma undarlega þótt Fram- kvæmdastofnunin og aðrar fjár- magnsstofnanir lánuðu fé til verksmiðjunnar, án þess að ræða afkomumögleikana við fiskifræð- inga. Slikt hefði aldrei verið gert, enda hafi fiskifræðingar ekki ver- ið i aðstöðu til að spá um það hve- nær fiskur væri á þessum staðn- um og hvenær á hinum. Að visu væru þarna ný viðhorf á ferðinni, þvi að fiskifræðingar gætu betur fylgst með hörpu- disksstofninum en öðrum sjávar- dýrum af þeirri einföldu ástæðu, að hann héldi sig svo að segja á sama staðnum. Um verksmiðjuna sjálfa sagði áhrífamaðurinn, að höprudisks- vinnsla væri svo ný, að rannsókn- ir væru skammt á veg komnar. Svo gæti farið að ný og gjöful mið fyndust utan Breiðafjarðar, og þá gæti komið sér vel að hafa við hendina afkastamikla verk- smiðju. ASIUMENNINA UPP I SVEIT, Héðan °g þaðan MERKIHU '74 Allar þotur og skrúfuþotur Flugfélags Islands munu bera þjóðhátiðarmerkið í tilefni 1100 ára búsetu á tslandi, þjóðhátiðar- árið. — Flug til Sviþjóðar hefst i júni næsta ár. Þetta, ásamt fleiri atriþum var ákveðið á haustfundi Flugfélags Islands, sem nýlokið er i Reykjavik Fundinn sátu for- stjóri félagsins, yfirmenn frá skrifstofum félagsins innanlands og erlendis og fulltrúar. A þessum árlega haustfundi voru að vanda rædd ýmsi vanda- mál, sem steðja að rekstri félags- ins, tillögur til stjórnar félagsins og forstjóra ræddar og samþykkt- ar. Eins og oft áður eru ýmsar blikur á lofti, enda þótt flutningur með flugvélum félagsins hafi aukizt eðlilega það sem af er þessu ári. Aukning i áætlunar- fluginu 1. jan,—30. sept. varð 7,7% milli landa og 15,1% innan- lands. JÚHANN HJÁ SVS Félögin Varðberg og Samtök um vestrana samvinnu (SVS) gangast fyrir fundi i sameiningu á morgun. Ræðumaður fundar- ins er formaður Sjálfstæðis- flokksins, Jóhann Hafstein, fyrrverandi forsætisráðherra, og fjallar hann um utanrikismál Islands. Fundurinn, sem er fyrir fé- lagsmenn og gesti þeirra, verð- ur haldinn i Leikhúskjallaran- um, og verður húsið opnað kl. tólf á hádegi. ÆTTARTÚLUR VESTRA 1 vikublaðinu ,,Lögberg — Heimskringla”, sem gefið er út i WINNIPEG, birtist hinn 14. sept. sl. auglýsing, þar sem seg- ir, að Jón Gislason, Ljósheim- um 16B, Reykjavik, taki að sér að semja ættartölur fyrir Vest- ur-Islendinga, og veita upplýs- ingar um skyldmenni þeirra á Islandi. Aldagamall ættfræðiáhugi Is- lendinga hefur lifað góðu lifi þar vestra og er ekki óalgengt að sjá i áðurnefndu blaði fyrirspurnir frá fólki i frændaleit. Vafalaust er landanum vestan hafs kær- kominn liðsauki Jóns Gisla- asonar, GÚÐ ÞJÚNUSTA Eins og kunnugt er af fréttum, fara fram forsetakosningar i Bandarikjunum næstkomandi þriðjudag. Af þvi tilefni hefur Menningarstofnun Bandarikj- anna á tslandi boðið blaða- mönnum að fylgjast með gangi kosninganna i húsi stofnunar- innar að Nesvegi 16. Fá blaða- menn allar fréttir, sem berast jafnóðum i gegnum simrita og útvarp frá gangi kosninganna, HÁSKÚLAHÁTÍÐ Háskólahátið verður haldin á morgun i Háskólabiói. Þar leik- ur kammerhljómsveit Tónlist- arskólans undir forystu Björns Ólafssonar, vararektor, pró- fessor Jónatan Þórmundsson, flytur ræðu, stúdentakórinn syngur við undirleik blásara- kvartetts úr Sinfóniuhljómsveit Islands og einn úr hópi nýstú- denta flytur ávarp. FLJUGA UNDIl ÞJÓDHÁTÍÐAR NÝFYRIRTÆKIÐ SEM STENDUR AÐGERÐARLAUST MEÐ BATINN I FARANGRINUM ,,Við erum núna á leið til Englands og ætlum að leggja þaðan af stað annaðhvort næsta sumar eða þarnæsta, siglandi til Noregs og þaðan til Frakklands og suður með Spáni og Portúgal, siðan á Miðjarðarhafið, og þar ætlum við að skoða okkur dálitið um”. Við fengum þessa ferðaáætlun hjá Norman A. Loe, Ameriku- manni af norskum ættum, um borð i Dettifossi i gær, en með honum i ferðinni verður eigin- kona hans, Elva F. Loe, og þau áætla að ferðin taki tvö til þrjú ár. Og farkosturinn er seglbát- ur, sem þau hafa meðferðis, og beið eftir þvi að komast um borð i Dettifoss, þegar við komum niður á Austurbakka i gær, en þau komu með hann frá Norfolk með Goðafossi. Bátinn smiðuðu þau sjálf, og Norman teiknaði hann eftir fyrirmynd æfafornra tvibyrð- inga, sem eru upprunnir á Poly- nesiu. Hann er flugvélaverk- fræðingur að mennt og brá sér yfir i að hanna þennan bát eftir að hann hætti störfum að mestu, og þau hafa verið að dunda við smiðarnar öðru hvoru i sex ár. Norman hefur m.a. hannað flutningaflugvél af gerðinni C 120 sem var notuð i seinni heimsstyrjöldinni og orustu- flugvélina Sparrow, sem hefur verið notuð i Vietnam. Þegar báturinn var orðinn sjóklár fóru þau i reynsluferð og sigldu hvorki meira né minna en frá Norfolk til Norður Karolinu og til baka. Norman sagði okkur, að báturinn hefði reynzt afbragðs vel, verið mjög stöðugur, enda stóðst hann allt að 7 metra öldu- hæð á leiðinni. Hraðinn, sem báturinn náði með hjálp segl- anna, var 12—15 milur, en auk þeirra hefur hann að sjálfsögðu hjálparvél. Elva, kona hans er listaprófessor, og i Englandi og á ltaliu ætlar hún að nota tæki- færið og undirbúa sig undir doktorsritgerð i grein sinni. Norman á ýmissa hagsmuna að Framhald á bls. 4 SEGIR AMIN Idi Amin, forseti Uganda, sagði i gærkvöldi, að allir Asiumenn, sem fá að vera áfram i landinu eftir 8. nóvember, verði að yfir- gefa borgirnar og setjast að i sveitaþorpunum. I útvarpsávarpi um hina nýju stjórnarstefnu sina lagði hann á- herzlu á, að þetta efnahagslega strið gegn Asiumönnum i landinu þýddi ekki, að „innfæddir” Úgandabúar ættu að taka við stjórn alls efnahagslifs landsins. Amin sagði ennfremur, að þeir Asiumenn, sem telja sig hafa borgararétt i Úganda, yrðu að flytja til sveitaþorpanna og blanda geði við aðra Úganda- menn en ekki búa i borgunum eins og þeir hafi alltaf gert. Þar með yrðu þeir að búa • meðal Afrikumanna, hvort sem þeir vildu eða ekki. Alls munu vera milli þrjú og fjögur þúsund Asiumenn með rik- isborgararétt i úganda auk SILDIH MKIL EN VEDUR VALVHD Veður hefur verið ákaflega rysjótt á sildarmiðunum við Shet- land undanfarna daga. Leitarskipið Árni Friðriksson er nú á þessum slóðum islenzka sildveiðiflotanum til aðstoðar, og er Jakob Jakobsson leiðangurs- stjóri. Jakob hafði samband við Hafrannsóknarstofnunina i fyrra- dag. Var þá leiðinlegt veður á miðunum, og ekki viðlit að veiða sild. Sagði Jakob að það brældi dag og dag, en þess á milli væri veður gott, og veiði gengi vel. Þeir bátar, sem eru á réttum stað þegar góða veðrið kemur, fá undantekningarlaust ágætan afla. Virðist vera mikið síldar- magn á miðunum skammt norð- vestur af Shetlandi, og sildin hef- ur reynst væn, enda bera sölur is- lenzku sildveiðibátanna það með sér siðustu vikurnar. þriggja þúsunda, sem ekki hafa rikisborgararétt, en fá leyfi til að vera þar áfram sökum sérstakrar hæfni eða menntunar. Þó er ekki álitið, að þetta fólk hafi áhuga á að vera i Úganda, þar sem það verður að sjá af fyrrtækjum sin- um, en reyna að komast úr landi fyrir 8. nóvember. Þann dag rennur út frestur þeirra til að fara til Bretland, sem hafa brezk vegabréf. Ævintýraland Loftleiða Ævintýrahelgi á Islandi, nefnist nýtt viðdvalartilboð Loftleiða, er mun vera i gildi til 31. marz n.k. að þvi er segir i nýútkomnu fréttabréfi frá félaginu. Ævintýrahelgin hefst með þvi að þátttakendur fara frá New York á fimmtudagskvöldi, og dvelja á tslandi fram á sunnu- dagskvöld. Meðal ævintyra sem þessum gestum er heitið eru tvær kynnis- ferðir, kvikmynd um Island og búseta á hótel Loftleiðum, og þá auðvitað með aðgangi að skemmtistaðnum. Verðinu er mjög stillt , i hóf, segir i fréttabréfinu, og standa vonir til að þetta geti orðið til þess að auka ferðamannastraum til Is- lands á þeim árstima, sem sizt hefur freistað útlendinga til viö- dvalar á Islandi. — ÓÐ FRAMKVÆMDA- STOFNUNIN MÁSKE „BEINT í SJÓINN”? Föstudagur 3. nóvember 1972

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.