Alþýðublaðið - 03.11.1972, Qupperneq 5
Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórn-
ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666.
_________Blaðaprent h.f.
ÞETTA ER ÞJðÐARSKÓMM
Þann 31. október s.l. fluttu tveir ráðherrar á
Alþingi svör við fyrirspurnum frá Gylfa Þ.
Gislasyni um ástandið i áfengis- og fiknilyfja-
málum, dómsmálum og fangelsismálum. Þessir
tveir ráðherrar voru Ólafur Jóhannesson,
dómsmálaráðherra, og Magnús Kjartansson,
heilbrigðisráðherra. Svör þeirra lýstu neyðar-
ástandi, sem hvað suma þætti þessara mála
varðar, er þjóðarskömm.
Þannig eiga til dæmis nú um þessar mundir
237 manns óafplánaða fangelsisdóma, sem
nema samtals röskum 136 árum og dómsmála-
ráðherra upplýsir, að með öllu sé útilokað að
þessi afplánun geti átt sér stað. Afbrotamenn
geti þvi ekki greitt þjóðfélaginu skuld sina.
Refsidómar þessir eru þvi i rauninni ekkert
nema staðlausir stafir.
Dómsmálaráðherra upplýsti ekki hverjir
þessir 237 menn eru, sem hafa brotið gegn sam-
félaginu,en ekki tekið út sinn dóm. Hins vegar
eru uppi um það ýmsar sögur meðal almennings
og jafnvel þeirra, sem betur þykjast vita, sem
ekki eru til þess fallnar að auka virðingu fyrir
framkvæmd réttvisinnar á íslandi. Þannig
hleður ófremdarástandið i refsimálunum grun á
grun ofan meðal fólks um óheílindi kerfisins og
ekki bætir það úr þegar fréttist, að þrátt fyrir
þessa 237 menn með 136 fangelsisár óafplánuð
þá skuli vistheimilið á Litla-Hrauni alls ekki
vera fullnýtt.
Þá upplýsti dómsmálaráðherra það einnig, að
fyrir hefði komið, að sakamál hefðu fyrnst fyrir
dómstólum vegna seinagangs við rannsókn og
meðferð málanna. Vegna brotalamar á kerfinu
hefðu sem sagt sumir sloppið — ekki bara
refsingarlaust heldur einnig án dóms — sem
ástæða væri til að ætla að gerzt hefðu brotlegir
við lög.
Og ekki var ástandið betra i áfengis- og eitur-
lyfjamálunum. í svari heilbrigðisráðherra kom
fram, að á árunum 1967 til 1971 hefðu frá 39% til
50% þeirra sjúklinga, sem lagðir voru inn á
Kleppsspitalann verið áfengisjúklingar. Þá
upplýstu ráðherrarnir einnig, að samkvæmt
tölum frá lögreglunni i Reykjavík hefðu yfir 60
einstaklingar verið handteknir fyrir ölvun á
almannafæri oftar en einu sinni i mánuði á
siðast liðnu ári. Þessu til viðbótar er Alþýðu-
blaðinu kunnugt um, að vegna þess að engin
gæzluvistaraðstaða er fyrir hendi þar sem sinna
mætti þessu sjúka fólki þá eru lögreglumenn til-
neyddir að meðhöndla þá eins og venjulega
afbrotamenn við handtöku og vista þetta sjúka
fólk i fangageymslum. Gengur þetta ófremd-
arástand mjög nærri ýmsum lögreglumönnum,
sem verða að hafa dagleg afskipti af sliku.
Ástandið i þessum málaflokkum er með þeim
hætti að Islendingar ættu að skammast sin. Á
meðan þannig er búið að sjúku fólki, sem hefur
orðið áfengi að bráð, þá er ekki velferðarþjóðfé-
lag á íslandi. Á meðan ástandið er þannig i
dóms- og refsimálunum, þá er islenzkt þjóðfélag
ekki réttlátt, — varla hægt að segja að það beri
virðingu fyrir þeim lögum, sem það þó setur sér
sjálft.
Með fyrirspurnum sinum var Gylfi Þ. Gisla-
son að reyna að vekja athygli á þessu ófremdar-
ástandi svo umbætur yrðu gerðar. Þátt i þeim
tilraunum ættu islenzk blöð að taka, þvi hér er
um verðugt umbótaverkefni að ræða, — mál
sem falið hefur verið i dimmustu skúmaskotum
ber þess vissulega merki.
jalþýduj
InKTilTil
VERDUR TÆKMSTOFNUN
SiÁVARÚTVEGSINS VAL-
INN STAHJR Á AKRANESI
Til meðferðar á Alþingi er nú
stjórnarfrumvarp um Tækni-
stofnun sjávarútvegsins. Við það
frumvarp hefur Benedikt
Gröndal, alþm., flutt breytingar-
tillögu þess efnis, að stofnunin
verði staðsett á Akranesi.
Þann 30. október s.l. var frum-
varpið til umræðu i neðri deild
Benedikt Gröndal, alþm.
Alþingis og fylgdi Benedikt þá úr
hlaði breytingatillögu sinni. Rök-
studdi Benedikt tillögu sina með
þessum hætti:
Augljóst er, að Islendingar
verða ávallt að ráða yfir full-
komnustu tækni við fiskveiðar og
fiskvinnslu.Þjóðin hefur sýnt það
og sannað á undanförnum ára-
tugum, að hún getur gert mikil-
vægar uppgvötvanir á þessu
sviði, og hún getur fullkomnað
góð tæki, sem hún hefur fengið
frá öðrum. Ýmsir styrkir hafa
verið veittir til þessara hluta, og
ber að minnast bæði þess, sem hið
opinbera og einstaklingar hafa
lagt þarna að mörkum. En eins og
hæstv. sjávarútvegsráðherra
hefur lýst, er rik áherzla til þess
að gera meira á þessu sviði, og
gera það skipulegar heldur en við
höfum gert til þessa. Ég tel þvi
vera rétta stefnu að stofnuð verði
sérstök tæknistofnun sjávar-
útvegsins.en það getur beðið betri
tima, þegar reynsla hefur fengist,
hvers konar verkaskipting er
eðlileg milli þeirra stofnunar og
annarra, sem hafa komið við
þetta svið áður, og er þá litill
vandi að gera breytingar á þeirri
skipan, ef ástæða þykir til siðar
meir.
Eins og hæstv. ráðherra
minntist á i framsöguræðu sinni,
hef ég nú, eins og á siðasta þingi,
leyft mér að flytja breytingatil-
lögu á þskj. 33, sem er þess efnis,
VIPPU - BltSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop: j
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir. smiðaðar eítir beiðnl
GLUGGAS NIIÐJAN
Siðumúla 12 - Simi 38220
að þessi nýja rikisstofnun verði
staðsett á Akranesi. Til að rök-
styðja það, að sá staður sé
hentugur fyrir slika stofnun, vil
ég i fyrsta lagi benda á, að þar er
mjög fjölbreytt útgerð, þar eru
gerð út fiskiskip, allt frá trillum
upp i togara. I öðru lagi er það
mjög fjölbreyttur fiskiðnaður. I
þriðja lagi eru þar stórar skipa-
smiðastöðvar, vélsmiðjur, marg-
visleg tæknileg aðstaða og veru-
legur hópur af vel þjálfuðum
iðnaðarmönnum á þessum svið-
um. I fjórða lagi nefni ég að frá
Akranesi er mjög auðvelt að ná á
skömmum tima til margvislegra
sérfræðinga og stofnana annars
staðar, sem kynni að þurfa að
hafa samband við, og á ég þar
sérstakleg við Reykjavikur-
svæðið. Ég tel þvi, að færa megi
allsterk rök fyrir þvi, að stað-
setning Tæknistofnunar sjávarút-
vegsins á Akranesi væri mjög
skynsamleg, enda þótt ég vilji á
engan hátt með þvi draga úr
ágætum annarra hugsanlegra
staða.
Það er yfirlýst stefna nú-
verandi rikisstjórnar, sem hún
leggur á mikla áherzlu, að
styrkja jafnvægi i byggð landsins
með þvi að dreifa opnberum
fyrirtækjum. Ég vil raunar taka
fram, að ég hefi ekki heyrt nein
andmæli gegn þessari stefnu frá
stjórnarandstöðuflokkunum, og
hygg að þeir fylgi henni allt eins
og stjórnarflokkarnir gera.
Það hefur verið unnið að þvi
undanfarið i Seðlabankanum að
setja reglur um endurkaup Seðla
bankans á framleiðslulánum iðn-
aðarins, drög hafa verið samin
um þessi efni og þau hafa verið
borin undir iðnaðarráðuneytið og
forsvarsmenn iðnaðarins i land-
inu, sem fallast á þessi drög i öll-
um meginatriðum. Þessar upp-
lýsingar gaf viðskiptaráðherra,
Lúðvik Jósefsson, i svari við
fyrirspurn frá Pétri Péturssyni,
alþm.,um hvenær gera megi ráð
fyrir að lög nr. 47 um veðtrygg-
ingu iðnrekstrarlána komi til
framkvæmda.
t stuttri ræðu með fyrirspurn-
inni vitnaði Pétur i 1. grein um-
ræddra laga, en þar segir svo:
„Iðnfyrirtækjum er heimilt að
setja banka eða sparisjóði eða
sjálfsvörzluveði hráefni, vörur i
vinnslu og fullunnar, sem veðsali
á eða eignast kann á tilteknu
timabili, allt að einu ári i senn.”
Siðan sagði Pétur:
,,Nú er mér kunnugt um, áð
ýmsir iðnrekendur eru farnir að
biða nokkuð eftir þvi, hvort settar
verði sérstakar reglur samkvæmt
þessum lögum og alveg sérstak-
lega finnst mér ástæða til að
minna á þetta nú, þar sem i mál-
efnasamningi rikisstjórnarinnar
mun hafa verið rætt um stór-
aukna aðstoð við iðnaðinn. Ég var
þessum lögum samþykkur á sin-
um tima og ég álit að þessi lög ef
framkvæmd verða sé einhver hin
mesta aðstoð og kannske einhver
hin alþýðingarmesta semhægter
að gera fyrir iðnaðinn nú. Þess
vegna tel ég réttmætt að beina
þeirri fyrirspurn til hæstv. við-
skipataráðherra, hvort og hvenær
þessar reglur muni koma og með
hvaða hætti.
Auk þeirra upplýsinga um
framkomin drög að reglum um
endurkaup á framleiðslulánum,
sem viðskiptaráðherra skýrði frá
Þetta mál er nú mjög á dag-
skrá, og vil ég minna á að i
stefnuræðu sinni I upphafi þessa
þings ræddi hæstv. forsætisráð-
herra einmitt um það. Hann sagði
þar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Ennfremur þarf að athuga,
hvort þörf sé á að binda opinberar
stofnanir svo mjög við höfuð-
borgina sem raun ber vitni um
enda segir i stjórnarsáttmálan-
um, að stefnt skuli að því, að
rikisstofnunum skuli valinn
staður úti um land meira en nú er
gert. Vinnur nú stjórnskipuð
nelnd aö konnun á þvi verkefni.
Geri ég mér góða von um árangur
af starfi hennar.”
Þetta voru orð og vonir hæstv.
forsætisráðherra, en við vitum af
eigin reynslu og margir okkar
hafa frétt það af störfum
þessarar nefndar að það virðist
ótrúlega erfiðleikum bundið, ef
flytja á stofnun, sem þegar er til,
af einum stað á annan. Ég hygg
þvi, að við ættum ekki að sleppa
tækifærinu til að framkvæma
þessa stefnu um að dreifa opin-
berum fyrirtækjum um landið
utan höfuðborgarsvæðisins,
þegar sett er á fót ný stofnun, þar
aí) auki stofnun, sem eðli sins
vegna getur m jög hæglega verið á
öðrum stöðum en hér. Ég vil þvi
vænta þess, að hæstv. nefnd, sem
fær þetta frumvarp til athugunar
taki einnig til vinsamlegrar
ihugunar þá breytingatillögu sem
ég hef flutt við frumvarpið.
i svari sinu og sagt var frá hér að
framan upplýsti hann, að nú væri
verið að vinna að þvi af hálfu
Seðlabankans að ná samningi við
viðskiptabankana um fram-
kvæmd málsins og mætti þvi bú-
ast við, að framkvæmd um-
ræddra laga um veðtryggingu
iðnrekstrarlána gæti hafizt næstu
daga.
Að lokinni ræðu ráðherra tók
Pétur Pétursson aftur til máls og
þakkaði svörin. Benti hann á, að
það hefði tekið 5-6 mánuði að
koma þessu saman. Vakti hann
athygli á þeim ummælum ráð-
herra, að nú yrði unnið að þvi að
veita iðnaðinum jafnréttisaðstöðu
á við aðra atvinnuvegi.
— Þetta er einmitt kjarni máls
ins, sagði Pétur. Ég ræddi þetta
nokkrum sinnum á þingi i fyrra
og mér finnst satt að segja ekki
bera alit of mikið á þvi ennþá, að
þessi jafnréttisaðstaða sé fyrir
hendi. Nefnilega, að iðnaðurinn
njóti sömu aðstöðu eins og land-
búnaður og sjávarútvegur gera,
að þvi er lánamál varðar. Ég vil
að það sé nákvæmlega jafnréttis-
aðstaða, ekkert minna en það, og
ég mun halda áfram að ræða
þetta hér á þingi þangað til þessi
jafnréttisaðstaða er fengin.
Pétur Pétursson, alþm.
ENDURKAUP IÐN-
REKSTRARLÁNANNA
Föstudagur 3. nóvember 1972