Alþýðublaðið - 03.11.1972, Síða 8
íADEflBASBÍÚ Slmi 32075
Coogan fögreglumaður
CLINT
EASTWOOD
,n“eooGarrs
BLUff”
hörkuspennandi lögreglumynd í
litum.
Aöalhlutverk Clint Eastwood
Endursýnd kl. 5, 7 og 9
Islenzkur texti
Bönnuð börnum.
KÓPAVOGSBÍÓ Sími 41985
í NÆTURHITANUM
(I'N HEATOF THE NIGHT)
Heimsfræg, snilldar vel gerð og
leikin, amerfsk stórmynd i litum.
er hlotið hefur fimm Oscarsverð-
laun. Sagan hefur verið fram-
haldssaga i Morgunblaðinu.
Aðalhlutverk:
Sidney Poitier
Rod Steiger
Warren Oates
Lee Grant
Endursýnd kl. 5.15 og 9.00.
Könnuð börnum.
HAFHARBÍÚ *•••• ■»>»
Klækir kastalaþjónsins
STIðRNllBÍÓ Simi IH936
Glaumgosinn og hippa-
stúlkan
(Thcrc’s a Girl in my Soup)
SLENZKUR TEXT
1]
PETER SELLERS • GOLDIE HAWN
VXax&o GHrlin'MyScwp
islen/.kur texti
Sprenghlægileg og bráðfyndin ný
amerisk kvikmynd i litum. Leik-
stjóri Roy Boulting. Aðalhlut-.
verk: Peter Sellers og Goldie
Hawn .
Sýnd kl. 5,7 og 9
Bönnuð innan 12 ára
TÚNABfÚ Simi 311X2
Hættum að reykja
(Cold Turkey)
Mjög fjörug og skemmtiieg
amerisk gamanmynd i litum með
hinum vinsæla Dick Van Dyke I
aðalhlutverki,
Islenzkurtexti
Leikstjóri: Norman Lear
Aðalhlutverk: Dick Van Dyke,
Pippa Scott, Tom Boston, Bob
Newhart.
Sýnd kl. 5, 7, og 9
#ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
“Somethiní* Tor Everyone"
Angelf) Lnnsbuiy • Michael Vork
JOlll I Cilll * H(.,lt i(.‘lll llJl? Wl’IL • J. IIIO lv. III
Spennandi og bráðskemmtileg ný
bandarisk litmynd, um ungan
mann, Conrad, sem svifst einskis
til að ná takmarki sinu og tekst
það furðuvel, þvi Conrad hefur
„eitthvað fyrir alla”. Myndin er
tekin i hinu undurfagra landslagi
við rætur Bæjersku Alpanna.
Leikstjóri:
Harold Prince
Islenzkur texti.
Bönnuð innan 1(> ára.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Guðfaðirinn
(The Godfather)
Alveg ný bandarisk litmynd sem
slegið hefur öll met i aðsókn frá
upphafi kvikmynda.
Aðalhlutverk:
Marlo Brando
A1 Pacino
James Caan
Leikstjóri:
Francis Ford Coppola
Bönnuð innan 16 ára
Islenzkur texti
^ýnd kl. 5 og 8,30
Athugið sérstaklega:
1 Myndin verður aðeins sýnd i
Reykjavik.
2. Ekkert hlé.
3. Kvöldsýningar hefjast kl. 8.30.
4. Verð kr. 125.00
Gestaleikur Skozku óperunnar
Jónsmessunæturdraumur
2. sýning i kvöld kl. 20.
3. sýning laugardag kl. 20.
4. sýning sunnudag kl. 14 (kl. tvö)
Siðasta sýning.
TÚSKILDINGSÓPERAN
sýning sunnudag kl. 20.
Miðasala 13.15 til 20. Simi 1-1200
Auglýsingasíminn
okkar er 8-66-60
Atómstööin: i kvöld kl. 20.30. 40.
sýning.
Kristn iha ldið: laugardag kl.
20,30. 152. sýning.
Leikhúsálfarnir: sunnudag kl.
15.00.
Fótatak: sunnudag kl. 20,30. 6.
sýning. Gul kort gilda.
Dóminó: þriðjudag kl. 20,30. fáar
sýningar eftir.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er opin
frá kl. 14.00. Simi 13191.
Iþróttir 1
Arnar fékkst ekki
Bann
tekið út í 2. fl.
Mótanefnd KSl hafnaði i gær
beiðni Vestmannaeyinga um aö
færa úrslitaleik bikarkeppni 2.
flokks fram á föstudag, svo örn
Óskarsson gæti tekið keppnis-
bann sitt út i þeim leik. Verður
leikurinn sem fyrr var ákveöið á
sunnudag, og örn veröur að taka
bann sitt út I úrslitaleiknum gegn
FH á laugardaginn.
Báðir þessir úrslitaleikir fara
fram á Melavellinum um helgina,
og verða lið frá Vestmannaeyjum
i báðum leikjunum. örn Óskars-
son er hlutgengur i 2. aldurs-
flokki, og þvi datt Eyjamönnum
það snjallræði i hug að fá úrslita-
leik 2. flokks fram fyrir úrslita-
leik bikarkeppninnar, og skrá
örn sem leikmann i 2. flokksleik-
inn. Þannig hefði hann tekið út
sitt bann i þeim leik, og orðið
hlutgengur i meistaraflokksleik-
inn.
Báru Eyjamenn þetta erindi
undir mótanefnd KSI, og fóru
fram á það að leikurinn i 2. flokki
yrði færður fram á fimmtudags-
kvöld. Mótanefnd taldi á þessu
mörg tormerki, m.a. þau að bæði
liðin væru utanbæjarlið, og þvi
erfitt um vik fyrir þau að koma til
Reykjavikur i miðri viku, m.a. af
þeirri ástæðu að margir leik-
manna væru i skólum.
Stungu Eyjamenn þá upp á þvi
að ieikurinn færi fram á föstu-
dagskvöld, en mótanefndin hafn-
aði þvi alveg aö flytja leikinn og
ákvað að hann skyldi leikinn
klukkan 14 á sunnudag eins og
ákveðið var. Þessum úrskurði
mótanefndar verður ekki haggað,
og verður örn Óskarsson þvi i
banni á laugardaginn, en getur
leikið úrslitaleikinn i 2. flokki á
sunnudaginn. Þá er hann einnig
hlutgengur ef til aukaleiks kemur
eftir jafntefli.
Það þarf að sjálfsögðu ekki að
fara mörgum orðum um það
hversu mikið áfall það er fyrir
Eyjamenn að missa örn. Hann
hefur verið skæðasti sóknarmað-
ur liðsins i bikarkeppninni, og
skorað fjölda marka. Þegar örn
er i formi, er hann illviðráðanleg-
Tómas: Nú er treyst á hann.
ur fyrir hvaða vörn sem er. Getur
þetta gert leik FH og tBV jafnari
en búist var við.
A laugardaginn verða Eyja-
menn þvi að treysta á að Tómas
Pálsson verði á skotskónum, en
hann er nýlega byrjaður að æfa
eftir veikindi. Þeir verða svo sem
ekki á flæðiskeri staddir, þvi i
framlinunni hafa þeir Asgeir Sig-
urvinsson, Harald Júliusson og
Snorra Rútsson — SS.
FRANDSEN HÆTTUR
Handkna ttleiksinaðurinn
Jörgen Frandsen, sem hingað
kom um síðustu helgi með
danska liðinu Stadion, hcfur til-
kynnl landsliðsnefndinni dönsku
að hann gefi ekki framar kost á
sér I danska landsliðið. Kom
þetta mjög á óvart, þvi
Frandscn hefur verið fastur
tnaður i liðinu i fimm ár, og siö-
ustu árin fyrirliði þess.
Frandsen gaf þá ástæðu fyrir
ákvörðun sinni, að hann væri
orðinn þreyttur á landsliðinu.
Landsleikjum fjölgaði sifellt, og
hann hefði hvorki tima né áhuga
á þvi að æfa stöðugt með topp-
leiki i huga.
Danir hafa valið 16 manna
hóp fyrir landsleik við Svia 12.
nóvember, og eru þrir Stadion-
menn i þeim hópi, Bent Jörgen-
BANKS ER
ÖÐUMAÐ
HRESSAST
Markvörðurinn Gordon Banks
ræddi i fyrsta sinn við fréttamenn
i gær, eftir hið'alvarlega slys sem
hann lenti i um fyrri helgi.
,,Ég vona að ég eigi eftir að
leika knattspyrnu i mörg ár
ennþá”, sagði Banks við blaða-
mennina, og hann virtist vongóö-
ur. Læknar hafa enn ekki kveðið
upp úrskurð um það hvort Banks
missi sjónáöðru auga eða ekki
eftír slysið. Ef svo fer, leikur
hann ekki oftar knattspyrnu.
,,Ég hugsa bara um það eitt að
geta leikið aftur knattspyrnu, og
ég trúi ekki öðru en ég verði kom-
inn á milli stanganna eftir nokkra
mánuði”, sagði Banks.
Sjúkraherbergi Bnks var þakið
gjöfum sem þessum vinsæla leik-
manni höfðu borist úr öllum
heimshlutum.
sen, Nicolai Agger og Svend
Lund.
Myndin er af Jörgen Frand-
sen, sem hyggst hætta með
landsliðinu, en leika áfram með
Stadion.
FRAMARAR
NU EFSTIR
Staðan i Reykjavikurmótinu er
þessi fyrir siðasta leikkvöldið:
Fram 6 5 0 1 89- 64 10
Víkingur 6 3 3 0 76- 64 9
Valur 6 4 1 1 74- 62 9
KR 7 4 0 3 85- 79 8
Ármann 6 2 2 2 68- 61 6
Þróttur 6 1 2 3 73- 79 4
1R 6 1 1 4 66- 76 3
Fylkir 7 0 1 6 49-105 1
Markhæstu leikmenn:
1. Axel Axelsson Fram 31
2. Einar Magnússon Vik. 26
3. Ágúst Svavarsson ÍR 21
Tyrkí
TÚK VIÐ
NUDDINU
Áður en íslenzku þátttakend-
urnir lögðu af stað á Ólympiuleik-
anna, var það harðlega gagnrýnt
i blöðum að hvorki
læknir né nuddari væri með í för-
inni. Töldu blöðin algert glapræði
aö lcggja i slika hálfsmánaðar
keppnisferð með 26 manna hóp,
og hafa ekki i hópnum neinn sér-
mcnntaðan mann á fyrrnefndum
sviðum.
Við þessa gagnrýni ruku hinir
mörgu iþróttaforkólfar sem i
fararstjórn voru upp til handa og
fóta, og sögðu að málinu væri
bjargað. Nuddarar og læknar
væru á hverju strái, og frændur
okkar á Norðurlöndum myndu
veita okkur alla þá aðstöðu sem
þyrfti.
Annað kom nú i ljós, og iþrótta-
fólkið átti i hinum mestu erfið-
leikum Þessum mistökum sinum
hafa forkólfarnir reynt að halda i
þagnargildi, og þvi er þetta mál
Framhald á bls. 4
Föstudagur 3. nóvember 1972
0