Alþýðublaðið - 12.12.1972, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 12.12.1972, Qupperneq 4
Arsenal 12 1 SkáR eirwigi Danielssori aldarinnar íréttuljósi Með þessari margumræddu bók fá aðdáendur „Spítalasögu" og hinna fjölmörgu frásagna Guðmundar Daníelssonar tvöfaldan kaupbæti, en það eru teikningar Halldórs Péturssonar og skákskýringar Gunnars Gunnarssonar og Trausta Björnssonar. Þeirfélagar hjálpast að, hver á sinn hátt, við að þræða atburðarás umdeildasta skákeinvígis sem um getur. Guðmundur lýsir atburðum einvígisins á skáldlegan og fjörmikinn hátt, - allt frá óvissunni í upphafi til þeirrar stundar að Víkingablóðið litaði storð í lokahófinu. Einvígi aldarinnar í réttu Ijósi er bók, sem vafalaust verður lesin upp til agna, í bókstaflegum skilningi. ISAFOLD OKKUR VANTAR BLAÐBURÐAR- FÓLK í EFTIR- TALIN HVERFI Álfheimar Bræðraborgarstigur Gnoðarvogur Ilverfisgata Laugavegur efri og neðri Lindargata Laugarteigur Laugarnesvegur Rauðilækur Miðbær Grimsstaðaholt Lynghagi Kópavogur HAFIÐ SAM- BAND VIÐ AF- GREIÐSLUNA Askriflarsíminn er 86666 SVFR Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavikur verður haldinn i Súlnasal Hótel Sögu, sunnudaginn 17. desember nk., kl. 13.30. Vcnjulrjí aflalfuiidarslörf. Tillajía Jakubs llafsU'in oj> Stcfáns GuAjohnsens til laga- hreylinga. Stjórnin. Útboð á söfnun og losun sorps í Njarðvíkurhreppi. Hér með er auglýst eftir tilboðum í sorphreinsun í Njarðvíkurhreppi. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu hreppsins á Fitjum, gegn 500 kr. skilatryggingu, frá kl. 13,00 þriðjudaginn 12. þ. m. Tilboðum skal skilað eigi síðar en fimmtudaginn 21. des. n.k. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Njarðvík, 7. des. 1972. Verkfræðingur Njarðvíkurhrepps. Annað lið úr Miðlöndunum, Stoke, gerði það lika gott á laugardaginn, með þvi að taka bæði stigin á Old Trafford. Bak- vörðurinn Mick Pejic og John Ritchie skoruðu mörk Stoke, en Manchester United tókst ekki að skora, og aukast nú heldur vandræðin hjá þvi gamalfræga félagi. Francis Lee var rekinn af velli i leiknum gegn Sheffield United fyrir að sparka rudda- lega i Trevor Hockey. Colin Bell skoraði fyrir City i fyrri hálf- leik, en Alan Woodward jafnaði i þeim seinni. Graham Cross skoraði fyrir Leicester á 33. minútu i leiknum við Birming- ham, en þeir bláklæddu frá Birmingham björguðu andlitn- inu með þvi að jafna i seinni hálfleik. 1 2. deild var leikjum frestað, og er staðan þar þvi óljós, en Burnley hefur örugga forystu, og undrar engan sem sá til liðs- ins i sjónvarpinu á sunnudag- inn. f Skotlandi var leikinn úrslita- leikurinn i skozka deildarbik- arnum. Þar sigraði Hibernian nokkuð óvænt yfir Celtic 2:1, og var það töluverð sárabót fyrir Hibernian, sem i vor tapaði 6:1 fyrir Celtic i úrslitum skozku bikarkeppninnar. Mörk Hibs gerðu Stanton og Cropley, en Kenny Daglish gerði mark Celtic. SS. Dadsum 3 markaðar birgðir i Tollvöru geymslunni til ótakmarkaðs tima, en hið siðarnefnda þýðir, að umboðið þarf ekki að greiða varahluti, þótt nokkur ár liði án þess að þeir séu seldir. Byrjað verður að senda vara- hluti frá Japan i seinnihluta Janúar, en áður þarf umboðið að ganga frá skrá yfir varahluti og fyrirkomulag þeirra i Toll vörugeymslunni. Aðþvier Ingvar sagði verður þar 3-6 mánaða forði af þeim varahlutum, sem mest eru keyptir, en eins til tveggja ára forði af þeim, sem sjaldnar er þörf fyrir. Auk þessa kemur tæknifræð- ingur frá Japan á hálfs árs fresti til þess að leiðbeina bifvéla- virkjum varðandi viðgerðir á Datsun og sinna kvörtunum ein- stakra viðskiptavina, og annar maður kemur á árs fresti til þess að lita eftir varahlutalagernum. Ingvar hefur þegar haft fund með leigubilstjórum vegna þess- arar þjónustu, en talsvert margir þeirra hafa keypt Datsunbila, og lýstu þeir yfir ánægju sinni með fyrirkomulagið. Ingvar hefur raunar áður gert svipaðan samning við verk- smiðju, það voru Trabantverk- smiðjurnar i Zvikau i Austur-- Þýzkalandi, en hann hefur haft umboð fyrir þær i nokkur ár. I þeim samningum var gert ráð fyrir takmörkuðum lager, eða fyrir 20 þúsund dollara. Að lokum gat Ingvar þess, að þrátt fyrir allt væri þess ekki að vænta, að i þessum lager væri alltaf allt sem á þyrfti að halda, verksmiðjurnar sjálfar gætu ekki einu sinni staðið sig svo vel. Hann nefndi sem dæmi, að i Trabant, sem er litill fjögurra manna bill, séu um 5000 hlutir, og þeir hjá verk- smiðjunum þættust góðir ef þeir ættu sjálfir 3000 númer. En eins og flestir vita er það tiltölulega takmarkaður fjöldi varahluta, sem þarf til viðhalds bilum. Snjómokstur fætur annarri. Sex tæki eru i gangi á vegum borgarinnar við snjómokstur, og er unnið fram á kvöld, en fyrirhugað var að byrja aftur um fjögurleytið i morgun. Litlar truflanir hafa orðið á strætisvagnaferðum vegna snjókomunnar, sagði Erikur Asgeirsson, forstjóri, og gengu þær að mestu samkvæmt áætlun i gær. Á sunnudagsmorguninn hófu fyrstu vagnarnir að ganga samkvæmt áætlun, en þeir sem áttu að hefja ferðir klukkan ellefu, komust þó ekki af stað fyrr en klukkan eitt. Eirikur sagðist vilja leggja á það áherzlu, að vagnar þeir, sem SVR hefur núna i notkun, séu ekki gerðir fyrir akstur i slæmri færð, aðallega vegna þess hversu lágir þeir séu. Benti hann á, að einn vagnanna hafi farið útaf veginum við Álfa- bakka i Breiðholti, en við það hafi pannan undir vélinni brotnað, og minnstu hafi munað, að vélin eyðileggðist. Hann sagði, að vagnarnir væru hafðir svona lágir til þess' , að auðveldara væri að ganga um þá, og vildi hann beina þeim tilmælum til fólks að hafa biðlund, þótt raskanir verði á ferðum strætisvagnanna vegna ófærðar örfáa daga á ári. Ágreiflingur 1 Alþýðublaðið hefur þó heyrt, að til geti staðið að taka fjárlaga- frumvarpið til annarar umraðu strax n.k. fimmtudag. Ef svo reynist, þá verður það gert i al- gerriörvæntingu, þvi svo til ekkert sem máli skiptir er á hreinu i sambandi við frumvarpið, — m.a. er nærfellt ekkert vitað um tekju- hlið frumvarpsins i endanlegri gerð og er ástæðan að sjálfsögðu sú, að rikisstjórnin hefur ekkert látið frá sér heyra um þann veigamikla þátt fjárlagagerðar- innar. Loftleiöir 12 virðist svo sem möguleikarnir hafi orðið meiri eftir að sjónvarp- ið aflétti hinu margfræga banni. Hafa sum lakari liðin i 2. deild krækt sér i auglýsingar, svo sem Fylkir, sem auglýsir Sunnu. Loftleiðaauglýsingin er borguð i farmiðum, og hefur það fyrir- komulag reynzt heppilegt, bæði fyrir félögin og svo Loftleiðir — SS. VANN FJORAR MILLJONIR Kona ein á Stokkseyri fékk heldur en ekki jólagjöfina i gær. Ekki var nóg með að hún ætti einn miða i Happdrætti Háskóla Is- lands með lukkunúmerinu 52.984, sem kom upp með hæsta vinning, er dregið var i gær, heldur átti hún tvo miða með þessu lukkunn- ar númeri. Jólagjöfin er þvi 4 milljónir króna. Aðrir tveggja milljóna króna vinningar fóru að þessu sinni til Akureyrar. Þar átti sitt hvor maðurinn miða með áðurnefndu lukkunúmeri, en þeir áttu báðir tveir röð af miðum og kom i þeirra hlut til viðbótar 200 þúsund króna aukavinningar. Jólagjafir Akureyringanna eru þvi litlar 2,2 milljónir i hlut hvors um sig. Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar Skipholti 25. Simar 19099 og 20988. o Þriöjudagur 12. desember 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.