Alþýðublaðið - 12.12.1972, Side 10
LAUBAHASBÍÚ
Ofbeldi beitt.
(Violent City.)
Óvenjuspennandi og viöburöarrik
ný itölsk — frönsk — bandarisk
sakamálamynd i litum og Techni-
scope með islenzkum texta. Leik-
stjóri: Sergio Sellima, tónlist;
Ennio Morricone (dollaramynd-
irnar) Aðalhlutverk: Charles
Bronson — Telly Savalas, Jill Ire-
land og Michael Constantin.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
HASKÓLABm simiu,«
Sjö hetjur meö byssur
Hörkuspennandi amerisk mynd i
litum. Þetta er þriðja myndin um
hetjurnar sjö
Aðalhlutverk: George Kennedy,
James Witmore, Monte
Markham.
Endursýnd kl. 5.15 og 9
Bönnuð innan 16 ára.
Siðasta sinn.
STJttRNUBÍQ Simi ,69:16
Byssurnar i Navarone
CÍhe Guns of Navarone)
Hin heimsfræga ameriska verð-
launakvikmynd i litum og
Cinema Scope með úrvalsleikur-
unum Gregory Peck, David
Niven, Anthoný Quinn.
Sýnd kl. 5 og 9
Bönnuð innan 12 ára.
HAFNARBÍÓ s.mi ,«,4,
— Dracula —
Afar spennandi og hrollvekjandi
ensk - bandarisk litmynd. Ein-
hver bezta hrollvekja sem gerð
hefur verið með:
Peter Cushing
Christopher Lee
Michael Gough
Bönnuð innan 16 ára
Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
TÚNABfd Simi :11182
Sabata
THE MAN VtflTH
GUNSIGHT EYES
Mjög spennandi itölsk-amerisk
kvikmynd i litum með:
LEE VAN CLEEF — WILLIAM
BERGER,
Franco Ressel.
Leikstjóri: FRANK KRAMER
tslenzkur texti
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Bönnuð börnum innan 16 ára
Allra siðasta sinn
^ÞJÓÐLEIKHÚSm
SJALFSTÆTT FÓLK
sýning föstudag kl. 20.
TÚSKILDINGSÓPERAN
sýning laugardag kl. 20.
Siöasta sýning.
LÝSISTRATA
sýning sunnudag kl. 20.
Miðasala 13.15 til 20. Simi 1-1200.
KliPHOtSBfÓ Simi 41985
Undur ástarinnar
(Das wunder der Liebe)
tslenzkur texti.
Þýzk kvikmynd er fjallar djarf-
lega og opinskátt um ýms við-
kvæmustu vandamál i samlifi
karls og konu. Aðalhlutverk:
Biggy Freyer, Katarina Haertel,
Ortrud Gross, Régis Vallée.
„Hamingjan felst i þvi að vita i
hvað eðlilegt er”. Inga og Sten.
Endursýnd kl. 5.15 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
Askriftarsíminn er
86666
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi að gjalddagi söluskatts fyrir nóvem-
bermánuð er 15. desember. Ber þá að
skila skattinum til innheimtumanna rikis-
sjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti.
Fjármálaráðuneytið,
11. des. 1972.
UFE GEISPAR
GOLUNHI
Útgáfufyrirtækið Life i Banda-
rikjunum tilkynnti i gær, að það
mundi hætta útgáfu hins heims
þekkta vikurits Life Magazine.
Siðasta tölublað á að koma út 29.
desember.
Timaritið kom fyrst út árið 1936
og olli þá gerbyltingu i blaðaljós-
myndun, og ljósmyndarar þess
urðu skjótt heimsfrægir. Á
siðustu árum hefur blaðið átt við
fjárhagsörðugleika aðstriða, og á
siðustu tveimur árum hefur orðið
að minnka upplagið úr 8,5
milljónum eintaka i 5.5
milljónir.
Sumir álíta, að örðugleikarnir
stafi af þvi, að blaðið falli ekki inn
i nútima þjóðfélag, og lesendur
séu ekki sérlega spenntir yfir þvi
að sjá t.d. litmyndir frá Ólympiu-
leikunum i Miinchen nokkrum
vikum eftir að þeim lauk, hafandi
fylgzt með þeim lið fyrir lið i lit-
sjónvarpi jafnóðum og þeir fóru
fram.
VERÐ-
JÖFNIJN-
ARSJOÐUR
SÝKNAÐ'
UR
Nýlega gekk i Hæstarétti
dómur i málinu: Verðjöfnunar-
sjóður fiskiðnaðarins o.fl. gegn
Niðursuðu - og hraðfrystihúsi
Langeyrar og gagnsök. t dóms-
orði Hæstaréttar er kveðið svo á,
að Verðjöfnunarsjóður fiskiðnað-
arins skuli sýknaður af kröfum
rækjufrystihússins og jafnframt,
að málskostnaður skuli falla
niður. Blaðið hefur ekki i höndum
forsendur dóms Hæstaréttar og
er þvi ekki unnt að rekja þær að
sinni.
Mál þetta var i héraði höfðað af
ofangreindu niðursuðu - og hrað-
frystihúsi á hendur Verðjöfn-
unarsjóði fiskiðnaðarins, sem
endurheimtumál, þar sem krafizt
var endurgreiðslu úr Verðjöfn-
unarsjóðnum á þvi fé, sem hann
hafði innheimt af fyrirtækinu af
andvirði frystrar rækju. Nam sú
fjárhæð kr. 1.100.950.50 auk vaxta
og málskostnaðar.
Samtfmis höfðu fjögur fyrir-
tæki önnur höfðað sams konar
mál á hendur Verðjöfnunarsjóði,
en þau voru: Rækjuverksmiðjan
hf., Hnifsdal, Matvælaiðjan hf.,
■ Bildudal, Niðursuðuverksmiðja
O.N.Olsen, Isafirði, og Niður-
suðuverksmiðjan hf., Isafirði.
Samkvæmt lögum nr. 72, 28.
mai 1969 var stafnaður Verðjöfn
unarsjóður fiskiðnaðarins. Hlut-
verk sjóðsins er að draga úr
áhrifum verðsveiflna, sem verða
kunna á útflugningsafurðum j
fiskiðnaðarins. Á reikningsyfirliti
pr. 1. jan. 1972, sem sýnir inn-
stæður á reikningum Verðjöfn-
unarsjóðs, sést, að hann hafði
innheimt verðjöfnunargjald af
andvirði frystrar rækju, sem nam
rúmlega 14 milljónum króna.
Agreiningurinn, sem málið er
sprottið af, var þvi raunverulega
sá, hvort Verðjöfnunarsjóður
hefði raunverulega haft heimild
til þessarar innheimtu eða ekki.
í 3. gr. laganna um Verðjöfn-
unarsjóð segir svo: Verðjöfn-
unarsjóði skal skipt i deildir eftir
tegundum afurða, og skulu deild-
irnar hafa aðskilinn fjárhag. Við
gildistöku laga þessara skal sett á
siofn deild fyrir frystar fiskafurð-
ir, en heimilt er siöan að fjölga
deildum.” I framkvæmd var svo
fryst rækja tekin i deild með
frystum fiskafurðum, og verð-
jöfnunargjald innheimt af henni.
I forsendum héraðsdóms segir
SKYRTAIM
AUGLÝSIN6ASÍMINN OKKAR ER 8-66-60
m.a.:,,Eigi verður talið, að orðin
„frystar fiskafurðir” i nefndri 3.
gr. taki til frystrar rækju sam-
kvæmt réttri orðskýringu, enda
er fryst rækja nefnd sérstaklega i
tilvitnuðu bráðabirgðaákvæði,
við hlið frystra fiskafurða.
Forsendur héraðsdómsins eru
ýtarlegar, en verða ekki raktar
að öðru leyti hér. Niðurstöður
dómsins urðu þær, að stefnda,
Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins
bar að endurgreiða stefnanda það
gjald, sem tekið hafði verið af
honum i verðjöfnunarsjóðinn af
andvirði frystrar rækju, sem
veidd var á timabilinu 1. jan. 1970
til 31. ágúst sama ár. Þá var og
; stefnda gert að greiða stefnanda
kr. 85.000.00 i málskostnað.
Nú var máli þessu áfrýjað og
gagnáfrýjað til Hæstaréttar og
hefur hann dæmt málið eins og að
, framan segir.
©
Þriðjudagur 12. desember 1972