Alþýðublaðið - 12.12.1972, Blaðsíða 12
Iþróttir 1
Það er langt siðan önnur eins
gieði hefur ríkt á Stamford
Bridge, velli Chelsea, eins og á
laugardáginn.
A laugardaginn var fólkið að
samgleðjast hetjunni sinni, Ian
Hutchinsson, sem nú lék sinn
fyrsta ieik með Chelsea eftir nær
20 mánaða baráttu við meiðsli.
Og Hutchinsson skoraði tvisvar i
leiknum, á 60. og 80. mínútu.
Eftir að hafa átt stærsta þáttinn
i þvi að Chelsea varð bikarmeist-
ari vorið 1970 , varð Hutchinson
fyrir þvi áfalli að brjósk losnaði i
hné I byrjun árs 1971, i leik gegn
Southamton. Haustið 1971 var
hann orðinn góður að nýju, en I
æfingaleik gegn Swindon brotnaði
vinstri fóturinn, og við þau
meiðsli hefur Hutchinson átt að
striða i eitt ár.
Margir vilja meina, að Ian
Ilutchinsson væri nú fastur
maður i enska landsliðinu, ef ör-
lagadisirnar hefðu verið honum
hliðhollari.
• • . w
TVO I
FYRSTA
LEIK!
ENN FEKK ARSENAL
SIGURINN ÚDÝRT!
Annan laugardaginn i röð
fekk Arsenal stig afhent á
silfurbakka i deildarkeppninni.
Nú á laugardaginn var það gegn
Tottenham, en laugardaginn
áður gegn Leeds. t bæði skiptin
var um að ræða mistök dómara
og linuvarða.
Og i bæði skiptin tók dómari
ekki mark á línuverði er hann
veifaði rangstöðu, og Arsenal
skoraði mörk sem dugðu til sig-
urs.
Leikur Tottenham og Arsenal
fór fram á heimavelli fyrr-
nefnda liðsins, og tókst Peter
Storey að skora mark fyrir
Arsenal á 65. minútu. Á 70. min-
útu fékk sami leikmaður knött-
inn, rangstæður, linuvörður
veifaði en dómari tók ekkert
mark á þvi, og Storey lék sig út
úr rangstöðunni, sendi knöttinn
til John Radford sem skoraði.
Martin Peters minnkaði mun-
inn i 2:1 á 78. mínútu, og það
sem eftir var leiksins sótti
Tottenham látlaust, en tókst
ekki að skora. Knötturinn sleikti
stengurnar, en að utanverðu.
Leikmenn Tottenham virtust
þreyttir, enda átt stranga daga
að undanförnu. George Arm-
strong var beztur i liði Arsenal,
en hann hefur um langan tima
mátt hýrast i varaliðinu.
Með þessum sigri saxaði
Arsenal aðeins á forystu Liver-
pool, sem að varð að láta sér
nægja jafntefli gegn West
Bromwich. Tommy Smith og
Kevin Keegan voru báðir
meiddir. Phil Boersma lék i stað
Keegans, og skoraði gott mark á
21. minútu. Liverpool átti meira
i fyrri hálfleiknum, en dalaði er
á lið, og réttlætinu var fullnægt
á 69. minútu er Tony Brown
brauzt i gegnum vörn Liverpool
og jafnaði.
Skozki landsliðsmaðurinn
Peter Cormack var rekinn af
velli á 61. minútu, og varð
Liverpool að leika með 10 menn
það sem eftir var.
Liverpool hefur 31 stig eftir 21
leik, en Arsenal hefur 29 stig
eftir 22 leiki. Leeds hefur 28 stig
eftir 21 leik, enda fékk félagið
tvö stig um helgina. Ekki var
sigur liðsins þó stór, aðeins 1:0
yfir West Ham heima. Leikur-
inn var lélegur, og eina mark
hans kom á 32. minútu er Mick
Jones skallaði knöttinn I netið
David Johnson skoraði bæði
mörk Ipswich á laugardaginn.
eftir fyrirgjöf Peter Lorimer.
Annars vakti mesta athygli
þrumuskot frá Lorimer, sem
hafði nær brotið markstöngina
að sögn þeirra er nærri stóðu.
West Ham sótti töluvert i siðari
hálfleik.
Hér koma svo úrslitin:
Birmingham-Leicester 1: 1 X
Chelsea-Norwich 3 : 1 1
Derby-Coventry 2 :0 1
Everton-Wolves 0 : 1 2
iDSWich-Crystal Palace 2 :1 1
Leeds-WestHam 1 :0 1
Man. Utd.-Stoke 0 :2 2
Newcastle-Southamton 0: 0 A
Sheffield Utd.-Man. City 1: 1 X
Tottenham-Arsenal 1 :2 2
West Brom-Liverðool 1:1 X
Preston-Blackpool 0:3 2
Stöðug rigning i Bretlandi
undanfarna daga hefur sett sinn
svip á vellina, og þar meðleik-
ina. David Johnson miðherji
Ipswich átti þó ekki i vandræð-
um i drullunni, hann skoraði tvö
mörk gegn Crystal Palace, og
tryggði þar með sigur. Ipswich
hefur fengið 4 stig i vikunni, og
er þar með komið i 4. sæti i
deildinni með 26 stig eftir 21
leik. John Hughes skoraði mark
Palace.
Félaginu sem seldi Johnson til
Ipswich, Everton, hefur gengið
hörmulega að undanförnu. Á
laugardaginn var það tap heima
gegn Úlfunum, sjöunda tapið i
röð og félaginu hefur ekki tekizt
að sigra á heimavelli siðan 30.
september.
Ian Hutchinsson lék á laugar-
daginn sinn fyrsta leik með
Chelsea i nær 20 mánuði, og
hann gerði allt vitlaust er hann
skoraði tvö mörk gegn Norwich.
Bill Gerner skoraði fyrst fyrir
Chelsea, Jim Bone jafnaði mjög
fallega, en i siðari hálfleik tók
Hutchinsson til sinna ráða.
Nanar er sagt frá honum á öðr-
um stað á siðunni.
Derby fikrar sig upp töfluna,
og á laugardaginn var það sigur
yfir Coventry, sem ekki gat var-
izt tapi þrátt fyrir góðan leik.
Alan Hinton, vitaspyrna og
Archie Gemmill skoruðumörk
liðsins i seinni hálfleik.
Framhald á bls. 4
I0E HARPER
TIL EVERTON
Everton keypti á laugardaginn
miðherja Aberdeen og skozka
landsliðsins, Joe Harper. Kaup-
verðið var 180 þúsund pund. A
Harper, sem er afar markhepp-
inn, að lifga upp á dáðlita fram-
linu Evcrton, sem saknar Joe
Royle, en hann er frá vegna
meiðsla.
Til að fá upp i kaupvcrðið, seldi
Everton hinn knáa leikmann Alan
Whittle til Crystal Palace fyrir
100 þúsund pund.
Bournmouth, sem leikur I 3.
deild, hefur lagt fram skriflegt
tilboð i George Best. Er upphæðin
álitin vera 300 þúsund pund.
LOFTLEIÐAMEHH
ERU STÚRTÆKIR
- AUGLÝSA HJÁ KR OG KANNSKILANDSLIÐINU LÍKA
Meistaraflokkur KR i hand-
knattleik hefur gert samning við
Loftleiðir um auglýsingu á
keppnisbúningi. Verður auglýs-
ingin væntanlega á búningi KR i.
næsta leik liðsins, sem er gegn
Vikingi annað kvöld.
Þá hefur flogið yfir,
að Loftleiðir muni einnig i vetur
auglýsa á búningi handknatt-
leikslandsliðsins, en það mál er
ekki komið i höfn ennþá og er
jafnvel álitiö að F’lugfélag islands
hafi einnig áhuga á þeim auglýs-
ingamarkaði.
Loftleiðamenn hafa verið ákaf-
lega stórtækir á þessu sviði aug-
lýsinganna. Það var yfirlýstur
vilji þeirra er 1. deildarkeppnin
hófst i fyrra,að auglýsa á keppnis-
búningum allra liða i 1. deild.
Félögin urðu þá aldrei nema þrjú
i byrjun, Fram, Vikingur og 1R. 1
haust bættist Ármann i flotann,
og nú siðast KR. Eru Loftleiðafé-
lögin þá orðin fimm talsins, af
átta liðum i 1. deild.
önnur félög i deildinni eru Val-
ur, sem auglýsir fyrir ölgerðina
Egil Skallagrimsson, FH, sem
auglisir fyrir Coca Cola verk-
smiðjuna og Haukar auglýsa fyr-
ir Ferðaskrifstofuna Sunnu.
Nokkur lið i 2. deild hafa aug-
lýsingar á búningum sinum, og
Framhald á bls. 4
LUBANSKI
TIL AJAX!
Wlodzimierz Lubanski, einn
allra bezti knattspyrnumaður
heimsins i dag, hefur sagt i blaða-
viðtali að hann geri á næstunni
samning við hollenzka stórliðið.
Lubanski er Pólverji, og hefur
verið uppistaðan i pólska lands-
liðinu og félaginu Gornik á und-
anförnum árum. Hann er 25 ára
gamall.
Ef Lubanski fer til Ajax, verður
það án efa sterkasta félagslið
heimsins i dag.
Suðurferð Þórs
ekki til fjár...
Körfuknattleikslið Þórs á
Akureyri kom i keppnisferð til
Reykjavikur um helgina. Ekki
var sú ferð norðanmönnum til
fjár, þvi þeir töpuðu báðum sin-
um leikjum. Úrslit leikja um
helgina urðu á eftirfarandi veg,
og það er rétt að taka það fram
hér, að hlé verður á keppninni
fram til 6. janúar.
IS-Þór 66:45
KR-Valur 90:66
IR-Þór 91:64
KR-HSK 83:66
Sem fyrr segir tapaði Þór báð-
um sinum leikjum, og er nú án
stiga i 1. deild. Hins vegar vann
KR tvo leiki um helgina, og
stendur nú með góða stöðu.
Athygli vakti að Valur skyldi tapa
með svo miklum mun gegn KR,
þvi Valsmenn voru jafnvel álitnir
sigurstranglegri fyrir leikinn.
Nánari frásögn af leikjum
helgarinnar birtist i blaðinu á
morgun.
EN BETUR GEKK NYRÐRA
Þór vann Þrótt i 2. deild i
handknattlcik á laugardaginn
14:12. Þór hafði áður unnið KA
15:12. og á mikla möguleika á
sigri i deildinni. Þá vann ÍBK lið
Fylkis 22:20.
^bÍb^ Húsnœði óskast
-'lrl/i fyrir
'+!*** ríkisstofnanir
Þar sem akveðið hefur verið að sameina
nokkrar rikisstofnanir i Reykjavik um
húsnæði á einum stað, óskar fjármála-
ráðuneytið að kaupa húsnæði, um
1.000—1.200 fermetra að stærð. 400-^420
fermetrar séu á götuhæð með möguleik-
um á innkeyrslu að vinnustofum, að öðru
leyti er um skrifstofuhúsnæði að ræða.
Æskilegast væri að hú’snæðið yrði laust
upp úr næstu áramótum.
Tilboð er greini stærð, ásigkomulag, verð
og greiðsluskilmála, ásamt teikningum,
sendist skrifstofu vorri fyrir 15. desember
n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26644
I
0
Þriöjudagur T2. desember T972