Alþýðublaðið - 28.12.1972, Blaðsíða 3
Höfuðkúpa Bormans?
Þessi hauskúpa fannst við uppgröft nærri Lehrt-járnbrautarstööinni i
Berlin, eða nákvæmlega þar, sem talið er að Martin Bormann hafi
verið drepinn á flótta i maimánuði 1945.
Myndin til hægri er af Martin Bormann á velmektardögum hans, en
hann var, sem kunnugt er, valdamesti maður Þýzkalands að Hitlerfrá
töldum
í Danmörku hafa verið
stofnuð samtök sem hafa á
stefnuskrá sinni baráttu
fyrirþví að Noregur, Græn-
land og Færeyjarfeti i fót-
spor íslendinga og færi
landhelgi sina út í 50 sjó-
mílur.
Undir heitinu ,,Samtök
um verndun fiskstofna í
Norður-Atlantshafi",
hyggst félagsskapurinn
berjast af alefli fyrir út-
færsl u f iskveiði lög-
sögunnar við fyrrnefnd
lönd.
Fjölmörg félög i Dan-
mörku eru aðilar að hinum
nýju samtökum, svo sem
grænlenzk, færeysk og
íslenzk félög. Þá hafa sam-
tökin nána samvinnu við
vinnuhópa í Osló, Þórshöfn,
Godthab og Reykjavik.
Feti í fót
spor okkar
íslenzkir stúdentar í
Kaupmannahöf n hafa
gerst aðilar að sam-
tökunum.
tengingu raflinunnar, sem slitnaði. Til vinstri er
Ingvar Björnsson, ráðgefandi verkfræðingur —
hægra megin er Tryggvi Sigurbjarnason.
Varðskip halastýfði brezka tog
arann Benella H 132 klukkan hálf
sex i gærdag. Skipstjóri togarans
þverskallaðist við skipunum
varðskipsmanna um að hifa inn
trollið og hafa sig á brott úr land
helgi og þvi var gripið tii
„skæranna”.
Atburðurinn átti sér stað innan
marka 50 milna landhelginnar út
af Austfjörðum, skammt frá
Seildist
í gull
ogsilfur
Aðfaranótt laugardags var
brotizt inn i skartgripa-
verzlun Þorgrims við
Laugaveg, og stolið þaðan
skartgripum fyrir um 150
þúsund krónur, og er
þjófurinn enn ófundinn.
Þjófurinn braut rúðu i
glugga verzlunarinnar, sem
er á horni Klapparstigs og
Laugavegs. Lét hann siðan
greipar sópa um skartgripi,
sem þar voru stil sýnis, og
tæmdi gluggann.
Gripirnir voru nær ein-
göngu hringir, bæði úr gulli
og silfri með og án steina.
Ekki er vitað hvenær nætur
innbrotið var framið, en lög-
reglan biður hvern þann, er
gæti gefið upplýsingar um
mannaferðir við verzlunina
þessa nótt eða einhvern sem
hefur óeðlilega mikið af
skartgripum i fórum sinum,
að gera það strax. —
Forcldrar Mary Graige fluttust
með dóttur sina, þá 15 ára frá
London til Southwold i Englandi,
þvi læknir hafði sagt þeim að
sjávarloftið myndi hafa góð áhrif
á viðkvæma heilsu stúlkunnar.
Sem og varð, þvi Mary er nú
látin — 110 ára að aldri.
Um hátiöarnar barst hingað til
lands hjálparbeiðni vegna
hörmunganna i Manaqua i Nicar-
gua.
A jóladag sendi Rauði kross
íslands fjárhæð til hjálparstarfs-
ins og sama gerði Hjálparstofnun
kirkjunnar.
Hjálparstofnun kirkjunnar og
Glettingi. Skipstjóri togarans
fékk itrekaðar aðvaranir, en hann
lét sér ekki segjast og þvi fór sem
fór.
Varðskip stuggaði við niu
brezkum togurum, sem voru að
veiðum innan 50milna markanna
út af Hvalbak um jólin, og fóru
þeir út fyrir mörkin án þess að til
árekstrar kæmi.
Að öðru leyti var tiðindalitið á
miðunum um jólin. Aðeins var
vitað um 34 brezka togara að
veiðum undan Austfjörðum, na.
afGlettingi,auk þessara niu, og 2-
3 voru að veiðum utan fiskveiði-
markanna.
Veður var umhleypingasamt á
miðunum fyrir austan land um
jólin allt frá hægviðri og upp i 8
vindstig með miklum sjó. Ekki
var vitað um togara fyrir norðan
Langanes, en fimm vestur-þýzkir
togarar voru að veiðum um 50
milna mörkin, einn fyrir vestan
land en fimm út af Reykjanesi.
Siðdegis i gær var ekki vitað um
brezka togara annarsstaðar en á
svæðinu frá Glettingi að Hvalbak,
og vestur-þýzkir togarar voru á
svipuðum slóðum, eða i Vikurál.
Auk þess var einn v.-þýzkur
togari suður af Reykjanesi, og
annar suðaustur af landinu.
Verkalýös- og
sjómannafélag
Keflavíkur 40 ára
1 dag eru liðin 40 ár frá stofnun
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavikur. Af þvi tilefni mun fé-
lagið efna til afmælisfagnaðar i
kvöld og verður þar fjölbreytt
hátiðar- og skemmtidagskrá.
Formaður félagsins Karl
Steinar Guðnason, mun flytja
ræður. Avörp flytja Björn Jóns-
son, forseti ASl, Eðvarð Sigurðs-
son, formaður Dagsbrúnar, og
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands, en
hann var að störfum fyrir verka-
lýðshreyfinguna árið 1932, þegar
átökin úrðu i Keflavik og kynntist
hann þeim af eigin raun. Fleiri
munu einnig flytja ávörp.
Framhald á bls. 4
Rauði kross íslands hafa ákveðið
að efna til skyndifjársöfnunar til
styrktar fórnarlömhum jarö-
skjálftanna. Söfnunin mun standa
til þrettándakvölds, 6. janúar og
verða þegar gerðar ráðstafanir til
sendingar á innkomnu er stofnun-
inni lýkur.
Framlögum má koma til þess-
Það sannaðist á Þorláks
messu og aðfangadag, að enn
eigum við til á Islandi kappa
á borð við gömlu hetjurn-
ar, ekki kannski kappa, sem
„höggva mann og annan”,
heldur kappa, sem bjóða
höfuðskepnunum hiklaust
birginn — og sigra þær. Þessa
tvo daga barðist um 30 manna
hópur við höfuðskepnurnar á
bökkum Hvitár, og þeir lögðu
ekki einungis þær að velli,
heldur skutu þeir nútimavél-
væðingu ref fyrir rass. Þeim
voru sendar tvær þyrlur til að-
stoðar við að tengja að nýju há-
spennulinurnar, sem slitnuðu i
ofviðrinu á fimmtudagskvöldið,
en þegar á hólminn kom gátu
þær ekki athafnað sig vegna
veðursins og urðu raunar til
þess, að verkinu lauk um tólf
timum seinna en ella hefði
orðið.
Alþýðublaðið hafði i gær sam-
band við Tryggva Sigurbjarnar-
son, stöðvarstjóra i Sogi sem
stjórnaöi verkinu, og sagðist
hann hafa stjórnað mörgum
verkum við linuviðgerðir, en
aldrei unnið með eins sam-
hentum hópi og valdist i þetta
verk. „Enginn kvartaði yfir
matarleysi né svefnleysi, og
enginn talaði um að komast
heim fyrir jól”, sagði Tryggvi.
Þeir unnu sitt verk með það
eitt fyrir augum að ljúka þvi
sem fyrst, og hjá þeim hófust
jólin ekki fyrr en um niuleytið á
aðfangadagskvöld. Þá komu
þeir heim þreyttir og slæptir
eftir að hafa unnið sleitulaust
frá þvi klukkan átta að morgni
Þorláksmessu til klukkan hálf
Jólahátiðin virðist hafa gengið
óvenju vel fyrir sig hvað ölvun og
ara aðila sem hér segir:
Rauði kross íslands tekur við
framlögum i skrifstofunni að
öldugötu 4 og á giróreikning
90000. Hjálparstofnun kirkjunnar
tekur á móti framlögum i
Biskupsstofu, hjá sóknarprest-
umog á giróreikning 20001.
Framhald á bls. 4
sjö á aðfangadagskvöld. Og
sumir þeirra höfðu i þokkabót
áður unnið við viðgerðina á há-
spennuturninum, sem eld-
ingunni laust niður i á miðviku-
daginn.
Tryggvi játti þvi, þegar við
spurðum, hvort þetta hefði ekki
verið erfitt og vandasamt verk.
„Að strengja linuna yfir ána var
óspektir áhrærir, að þvi er blaðið
hefur fregnað viða aö af landinu.
1 Reykjavik man lögreglan t.d
vart jafn róleg jól. ölvun var
óvenju litil og voru fangageymsl-
urnar nær tómar yfir öll jólin.
Einnig var óvenju rólegt hjá
slökkviliðinu, nema hvað talsvert
var um sjúkraflutninga. Ekki er
þó vitað um nein meiriháttar slýs
i umferðinni.
Nokkur innbrot voru þó framin,
einkum aðfaranótt Þorláks-
messu, en þau voru flest smá-
vandaverk, auk þess sem
enginn hér á landi hafði staðið
fyrir þannig verki fyrr”. En
erfiðasta verkið af öllum hefur
þó liklega unnið sá sem vann
uppi i 60 metra háum turni við
aö tengja. — fimmtán sinnum
þurfti hann að fara upp og niður
i vindi og rigningu. Og sem
Framhald á bls.4.
Smáþiófar
samt á ferli
vægileg, nema eitt, þar sem
skartgripum fyrir um 150 þúsund
krónur var stolið.
1 Hafnarfirði voru einnig þjófar
á kreiki sömu nótt, frömdu eitt
innbrot og stálu talsverðu úr yfir-
gefnum bil skammt frá Grafar-
holti. Að öðru leyti var hátiðin
Framhald á bls. 4
FJÁRSÖFNUN VEGNA JARÐSKJÁLFTA
Mennirnir sem tengdu raflínuna
FRIÐARHATIÐIH FOR
FRIDSAMLEGA FRAM
o
Fimmtudagur 28. desember 1972