Alþýðublaðið - 17.01.1973, Qupperneq 3
ÞEGAR
LENDINGIN
ER í
UUSU LOFTI
Eftir Braga Sigurösson.
Samkvæmt upplýsingum Sveins
Sæmundssonar, blaðafulltrúa Flugfélags
fslands, verða lendingarleyfi Flugfélags-
ins á Spáni óbreytt lit janúarmánuð. Sam-
komulag um þetta tokst með islenzkum og
spænskum flugmálayfirvöldum i fyrra-
dag.
Er þvi mikill ferðahugur i Kanarieyja-
förum, sem fara með þotu Flugfélagsins á
morgun.
Það hefur komið fyrir áður, að lend-
ingarleyfi hafa ekki fengizt á Spáni fyrr
en á elleftu stundu, og var þvi máske ekki
ástæða til að kviða þvi, að það fengist ekki
nú.
Tregða Spánverja til að veita lend-
ingarleyfi er tengd áhuga þeirra til að sjá
um þessa farþegaflutninga sjálfir. Siðar i
þessummánuði munu fulltrúar spanskra
flugmálayfirvalda koma hingað til við-
ræðna við hliðstæð islenzk stjórnvöld um
framhald Spánarflugsins.
Fyrir þá islenzka aðila, sem að ferða-
og samgöngumálum starfa, er það brýnt
hagsmunamál, að atriði eins og lend-
ingarleyfi fyrir islenzkar flugvélar hangi
ekki i lausu lofti um lengri eða skemmri
tima, þegar vitað er, með löngum fýrir-
vara, að þeirra er eindregið óskað.
Ekki verður Flugmálastjóri sakaður
um tómlæti i þessu máli, enda hefur hann
unnið að þvi við hliðstæð yfirvöld á Spáni,
eins og eðlilegast er. Hitt er svo annað
mál, sem verður að vega og meta, hvenær
mál, eins ogþetta, er komið á það stig, að
afskipti æðstu stjórnvalda láti það til sin
taka.
öll óvissa er mjög bagaleg, og þeir,
sem skipuleggja svona ferðir, eru að
sjálfsögðu ekki áhyggjulausir um úrslit
vafamála, sem eru ákvarðandi um það,
hvort áætluð ferð verður farin eða ekki.
Er þess að vænta, að eitthvað meira en
„smáskammtasamkomulag” náist,
þegar sctzt verður að samnignaborðiru
undir mánaðamót.
STÆRÐ ÁHflFNA
MEÐAL SAMN-
INGSATRIÐA
Eins og áður hefur komið fram
var samningunum sagt upp strax
i október á siðasta ári, en þeir
féllu siðan úr gildi 31. desember
s.l.
,,Það hefur ósköp litið gengið
þessa fjóra mánuði i samningum
sjómanna á togurunum”, sagði
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mannasambands Islands, við
Alþýðublaðið i gær, ,,og ennþá
ber mikið á milli okkar og út-
gerðarmanna einkum varðandi
launakjör og mannafjöldann á
skuttogurunum, en vinnustöðv-
unin, ef til kemur, nær einnig til
nýju skuttogaranna”. Jón sagði
ennfremur:
„Útgerðin ber nú við eins og
oftast áður getuleysi, þegar kaup-
kröfur eru á ferðinni. Þetta er
yfirleitt alltaf sami söngurinn um
að hún geti enga kauphækkun
látið.
En þó að afkoma útgerðarinnar
sé að sjálfsögðu ekki alltof góð,
getur hún ekki ætlazt til þess, að
þeir menn, sem ráðast til starfa á
togurunum, inni af hendi ein-
hverja þegnskylduvinnu. Þessir
menn, sem eru langtimum saman
fjarri heimilum sinum, eiga rétt á
að fá gott kaup. Þeirri forsendu
verður að fullnægja, að þessir
menn fái gott kaup, ef góður
mannskapur á að haldast á tog-
urunum og aflinn, sem dreginn er
á land, á að gefa verulega fjár-
muni i þjóðarbúið. Annars er hætt
við, að mennirnir , sem ennþá
halda sig við togarana, fari yfir á
bátaflotann”.
Jón sagði ennfremur, að
sjómannasamtökin hafi farið
hægt af stað i þessari kjaradeilu,
þar sem þau hafi viljað, að bæði
sjómennirnir og einnig útgerðar-
mennirnir fengju nokkra reynslu
af nýju skuttogurunum þ.e. Sól-
bak frá Akureyri, Karlsefni,
Vigra og nú siðast ögra, áður en
farið væri að semja við mann-
skapinn, sem á þeim mun
starfa.
Framhald á bls. 4
Allt bendir tii þess, að togara-
floti landsmanna stöðvist á mið-
nætti aðfaranótt næstkomandi
þriöjudags vcgna vinnustöðvunar
undirmanna. Þannig er liklegt, að
hinn nýi skuttogari Bæjarút-
gcrðar Rcykjavikur, Bjarni
Bcnediktsson, sem kom tii
Rcykjavikur siðdegis i gær, kom-
ist ekki strax i sina fyrstu veiði-
fcrð vegna verkfalls.
Sáttafundur hefur ekki verið
haldinn i togaradeilunni siðan á
fimmtudag. Allar tilraunir til
lausnar deilunni hafa reynzt
árangurslausar til þessa og á
mánudag boðaði Sjómannasam-
band tslands til vinnustöðvunar
frá og með 23. janúar n.k. Nýr
sáttafundur hefur ekki verið
boðaður.
EKKI BEINT
BIBLÍULEG
AÐ SJÁ
Þessi 25 ára kvikmyndagyðja
cr þýzk og heitir Inga Seyric.
Hefur hún þckkzt tiiboð um aö
ieika Mariu Magdalenu i kvik-
myndinni „Jesús Kristur Super-
star”, sem um þes: ar mundir er
verið að gera i Israel á vegum
Univcrsal/MCA i London. Ekki
cr ætiunin að misbjóða neinum,
þótt þcss sc sérstaklega getið,
að leikkonan er ekki i gervi
þeirrar göfugu konu á myndinni
hér að ofan.
BRETAR TAKA MILUOHAVERD-
MÆTI ÚR LANDGRUNNI SlNU
Tekjur Breta af gasi og
oliu úr Norðursjónum eru
fram til ársíns 1980 áætl-
aðar 100 milljón sterlings-
pund árlega, eða sem
svarar 23 milljörðum is-
lenzkra króna.
Þannig taka Bretar
milljónaverðmæti úr land-
grunninu nálægt sér, en
neita á sama tíma að viður-
kenna rétt tslendinga yfir
því verðmæti sem syndir
yfir landgrunninu
1 tilkynningu Viðskipta- og iðn-
aðarmálaráðuneytis Bretlands,
sem birt var opinberlega i gær,
segir að fyrir 1980 hyggist Bretar
taka árlega 75 milljón tonn af oliu
úr sinum hluta Norðursjávar. Er
þetta um helmingur oliunotkunar
Breta. Auk þess fá Bretar 90%
alls gass sem' þeir nota úr
Norðursjónum.
I tilkynningu ráðuneytisins
segir, að það sé von ráðamanna
að verðmæti olimnar og gassins
eigi eftir að auf ist, með hækk-
andi heimsma kaðsverði á
Framhald á bls. 4
,ÚTGERBIN GET-
UR EKKI BÚI2T
VIB KGN-
SKYIDUVINNU...’
NÝTT VIKUBLAÐ HANNIBALS
OG BJÖRNS f UPPSIGLINGU
Mikil óvissa virðist nú rikja
um pólitiska framtið prófessors
Bjarna Guðnasonar, upp-
reisnarmannsins i hópi
stjórnarliða á Alþingi, en úr þvi
mun væntanlega verða ráðið
fyrir lok mánaðarins, hvort
honum verður formlega vikið úr
landsmálaflokki Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna i
framhaldi af úrsögn hans úr
þingflokki samtakanna fyrir
jólin.
Þó að svo kunni að fara, að
Bjarni verði „rekinn” úr sam-
tökum frjálslyndra og vinstri
manna, nýtur hann alla vega
ennumsinn stuðnings meirihlut-
ans i Samtökum frjálslyndra i
Reykavik, sem er flokksdeild
innan landsmálaflokks Sam-
taka frjálslyndra og vinstri
manna.
Alþýðublaðið hefur engar
spurnir haft af þvi, hvort ein-
hverjar hugmyndir kunni að
vera á lofti meðal meirihluta SF
i Reykjavik um aðskilnað frá
landsmálaflokknum og stofnun
enn eins stjórnm’álaflokksins á
vinstri væng islenzkra stjórn-
mála.
Hins vegarerblaðinu kunnugt
um, að menn velta þvi nú alvar-
lega fyrir sér innan meirihlut-
ans i landsmálaflokknum, sem
lýtur forystu Hannibals Valdi-
marssonar, Björns Jónssonar
og Magnúsar Torfa Ólafssonar
eins og kunnugt er, hvort það
samrýmist lögum SFV, að pró-
fessor Bjarni teljist vera i Sam-
tökum frjálslyndra og vinstri
manna, eftir að hann hefur sagt
sig úr þingflokki þeirra.
1 lögum SFV segir svo m.a.:
„Þingmenn Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna mynda
þingflokk þeirra”. Munu skoð-
anir innan flokksins varðandi
túlkun þessarar lagagreinar
vera nokkuð skiptar.
27. janúar n.k. verður haldinn
flokksstjórnarfundur SFV og
verður þá sennilega skorið úr
um þetta atriði og þvi ráðið til
lykta, hvort prófessor Bjarni
Guðnason verði raunverulega
„rekinn” úr flokknum eða ekki.
Samtök frjálslyndra og
vinstri manna hafa nú i undir-
búningi stofnun nýs blaðs, sem á
að verða aðalmálgagn flokks-
ins. Eins og Alþýðublaðið skýröi
frá i gær hefur Nýtt land, sem
áður var aðalmálgagn flokksins
en i seinni tið verið einkamál-
gagn prófessors Bjarna og
helztu stuðningsmanna hans i
Reykjavik, verið svipt allri
fyrirgreiðslu af hálfu fjármála-
ráðuneytisins, áskrift á 300 ein-
tökum blaðsins og öllum auglýs-
ingum frá stofnunum og
embættum rikisins. Eftir
stendur aðeins sú spurning,
hvort Nýtt land fær einhverja
hlutdeild i þeim 18 milljónum
króna, sem Alþingi samþykkti
fyrir áramótin að skyldu renna
til blaða, en stjórnskipuð nefnd
gerir tillögur til ráðherra um
dreifingu styrkjanna til ein-
stakra blaða. —
Miðvikudagur 17. janúar 1973
o