Alþýðublaðið - 01.02.1973, Side 9

Alþýðublaðið - 01.02.1973, Side 9
Iþróttir 2 HALDA STERKU LHIIN VELLI i BIKARNUM - EHA VERDUR MH SMALIDANNA AD KOMA A ðVART Rétt einu sinni uröu úrslit ensku leikjanna mjög svo á annan veg, en hinir visustu spámenn reiknuöu meö. Aimennt var reiknaö meö Arsenal sigri yfir Newcastle, en þaö fór samt svo, aö Arsenai mátti þakka fyrir aö ná jafn- tefli. Coventry og Man. Utd. geröu einnig jafntefli og sömu- leiðis C. Pal. og Tottenham, þannig aö enn tekst C. Pal ekki aö vinna annaö Lundúnaliö I 1. deild. Derby sendi WBA I neösta sæti meö þvi aö sigra 2-0 og öllum á óvart rændi Leicester báöum stigunum frá Everton á Goodison Park. Ipswich og Southampton skildu jöfn, en Leeds og Man. City unnu siöan andstæöinga, eins og búist var viö. Sheff. Utd. vann Norwich og West Ham vann ná- granna sina Chelsea örugglega, en þaö vakti athygli aö bæöi efstu liöin i 1. og 2. deild, sem léku á útivelli, töpuöu sinum leikjum. úlfarnir unnu Liverpool, sem ekki hefur tapaö leik siöan i byrjun nóvember og QPR sem er I 2. sæti i 2. deild, vann Burnley, sem er þar i 1. sæti og var þetta jafn- framt tapleikur Burnley á útivelli í vetur. Næsti Getraunaseöill, sem er nr. 5 er nokkuð erfiður, en á honum eru leikir úr 4. umferð Bikarkeppninnar. Úrslit vilja oft koma á óvart i þeirri keppni og hver veit nema aö sú veröi raunin aö þessu sinni? Meö von um góöan árangur, skulum viö snúa okkur aö sp- anni: Arsenal-Bradford City 1 Arsenal tryggöi sér réttinn til að leika i 4. umferð Bikar- keppninnar meö þvi að sigra Leicester á Filbert Street eftir janfteflisleik á Highbury. Nú mætir Arsenal 4. deildar liðinu Bradford City á Highbury og eftir öllum sólarmerkjum að dæma ætti að vera öruggt að spá Arsenal sigri i þeirri viður- eign. Bolton-Cardiff 1 Þessi lið, sem leika á Burden Park á laugardaginn eru i 2. og 3. deild, en bæði eiga þau sér langa sögu að baki og merka og bæði hafa þau unnið bikarkeppnina. Bolton er nú með efstu liðum i 3ju deild, en Cardiff er á botninum i 2. deild. Ég mundi álita þau lik að styrkleika, en spái samt heimaliðinu sigri, þar sem Cardiff er með mjög slakan árangur á útivelli i vetur. Carlisle-Sheff. Utd. 2 Sheff. Utd., sem leikur i 1. deild, eins og kunnugt er, mætir á laugardaginn 2. deildar liðinu Carlisle á heimavelli þess, Brunton Park. Það gæti orðið um jafna viðureign að ræða i þessum leik og mætti vel segja mér að heima- völlurinn réði þar miklu um. Þar sem ég reikna Sheff. Utd. mun sterkara lið, þá spái ég heimasigri, en jafntefli er ekki fjarri lagi. Chelsea-Ipswich 1 Þetta er nokkuð erfiður leikur, þar sem hér eigast við tvö kunn 1. deildar lið. Ipswich hefur gengið vel i vetur og er i 4. sæti með 36 stig, en Chelsea er i 13. sæti með 26 stig. Chelsea vann Ipswich á Stamford Bridge fyrr i vetur i deildarkeppn- inni og ég spái Chelsea aftur sigri þar á laugardaginn. LANDSLIÐIÐ VANN PRESSUNA MEÐ EINS MARKS MUN Landsliöiö I handknattleik vann liö iþróttafrétta- manna með aöeins eins marks mun i Laugardalshöllinni i gærkvöld, 21:20. Sýndi pressuliðið á köflum skínandi leik, og meö smá heppni heföi sigurinn oröiö þess. En góöur kafli i lokin sá til þess aö landsliöiö gékk meö sigur af hólmi. Margir leikmanna pressuliösins sýndu þaö i þessum leik, að þeir standa ekki langt frá landsliöinu. Má i þvi sambandi nefna markveröina ólaf og Þorstein, svo og þá Agúst Svavarsson, Pál Björgvinsson og Viöar Simonarson. t heild sýndi liö pressunnar, að vert er aö gefa leikmönnum þess gaum. Töluverðar sviptingar voru I leiknum, og skiptust liöin á um að skora. En undir lokin náöi landsliðið þriggja marka forskoti, sem pressunni tókst ekki aö brúa, og leikurinn endaðisem fyrrsegir 21:21. Geir Hallsteinsson var markhæstur landsliösmanna meö 7 mörk, en hjá pressunni gcrðu þeir Páll Björgvinsson og Ágúst Svavarsson báöir 5 mörk. í leikhlé léku íþróttafréttamenn viö dómara, og leik leiknum með sigri fréttamannanna eftir haröa baráttu, 7:6. Eins og spáö haföi veriö, reyndist ómar Ragnarsson vera leynivopn þeirra, hann feröi þrjú mörk. Myndin var tekin I gærkvöld, og sýnir Geir skora eitt af sinum sjö mörkum. Stefán og Jón Sigurösson I pressu- liðinu horfa á. Nánar á morgun. —SS. Coventry-Grimsby 1 Þá kemur leikur, sem við getum talið einn af öruggum leikjum á þessum seðli. Mér finnst ótrúlegt annað en að 1. deildar liðið Coventry, sem hefur sýnt oft á tiðum skemmti- lega leiki i vetur, vinni ekki ör'uggan sigur yfir 3ju deildar liðinu frá Grimsby. Spá min er þvi öruggur heimasigur. Derby-Tottenham 1 Það verður örugglega góð aðsókn að Baseball Ground i Derby, þegar Lundúnaliðið Tottenham leikur þar á laugar- daginn. Derby er með mjög góðan árangur á heimavelli i vetur, og hefur aðeins tapað þar einum leik, en árangur Tottenham á útivelli er rétt i meðallagi. Mér finnst þvi flest benda til þess, að heimaliðið vinni þennan leik og það má geta þess, að Derby vann Tottenham 2-1 þar fyrr i vetur i deildarkeppninni. Everton-Millwall I Þá fáum við aftur leik, sem mætti telja með öruggum leikjum á seðlinum. Everton, sem er i 14. sæti i 1. deild mætir á laugardaginn 2. deildar liðinu Millwall frá London á Goodison Park. Þótt Millwall hafi ekki gengið sem bezt i vetur, eru leikmenn þess harðskeyttir og til alls liklegir, en að minu viti ætti heimasigur að vera nokkurnveginn öruggur eigi að siður. Liverpool-Man. City 1 Liverpool, sem hefur forystu i 1. deild hefur aðeins hlotið 1 stig i siðustu tveim leikjum i deildinni og tapaði um s.l. helgi fyrsta leiknum i 1. deild siðan 11. nóv. Þrátt fyrir það efast ég ekki um að Liverpool vinni Man. City á Anfield Road á laugardaginn, enda er City með mjög slakan árangur á úti- velli. Newcastle-Luton 1 Newcastle mætir 2. deildar liðinu Luton á St. James Park á laugardaginn og ætti heimaliðið að hafa betur i þeirri viðureign, enda ekki auðunnið á þeim velli. Rétt er þó að vekja athygli á þvi, að Luton er eitt fárra liða, með mun betri árangur á útivelli en heimavelli i vetur, svo allt getur þar skeð. Spá min er heimasigur i þessum leik. Oxford Utd.-QPR X Þetta er einn af erfiðum leikjum á þessum seðli, þvi hér eigast við tvö góð 2. deildar lið. QPR er i 2. sæti en Oxford er i 5ta sæti, eða svo. Mér finnst allt koma til greina i sam- bandi við þennan leik, en þó held ég þrátt fyrir allt, að ég hallist að heimasigri eða jafntefli og tel þó jafnteflið öllu lik- legri úrslit. Sheff. Wed.-Crystal Pal. 1 A Hillsborough I Sheffield mætir heimaliðið, sem er i 2. deild, 1. deildar liðinu Crystal Pal., sem nú er á botninum i 1. deild. Þótt að öllu jöfnu sé eðlilegra að spá 1. deildar liði sigri en 2. deildar liði, er ég efins i þvi, að Crystal Pal. vinni þennan leik, enda hefur liðið ekki unnið leik á útivelli i deildinni i vetur. Ég held ég spái þvi heimaliðinu sigri að þessu sinni. Wolves-Bristol City 1 Úlfarnir stóðu sig vel um s.l. helgi i deildinni, þegar þeir lögðu Liverpool af velli á Molineux. Þeim ætti þvi ekki að verða skotaskuld I þvi, að afgreiða 2. deildar liðið Bristol City á sama hátt. Þetta er einn af öruggum leikjum á þessum seöli og spá min er i samræmi við það: Heimasigur. Fimmtudagur 1. febrúar 1973 o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.