Alþýðublaðið - 28.02.1973, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 28.02.1973, Qupperneq 12
alþýðu KOPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og 3 TOGARAVERKFALL ORÐIÐDYRT FARKI tll KOSTfl NIINDRUD MILUÚNA LINNULAUS L0DNUM0KS1UR KRONA Togaraverkfallið hef- ur nú s+aðið í nær fimm vikur. Má áætla tjón vegna stöðvunarinnar minnst 150 milljónir króna, og er þá ótalið tjón vegna gjaldeyris- tapsog annarra liða sem hækkað geta þessa tölu um helming. Reikna má með því að veiðiferð togara taki um 25 daga. Eftir slíka veiðiferð geta togararnir selt afla sinn erlendis eða hér heima fyrir 5-10 milljónir króna. Togar- arnir eru 21 talsins, og söluverðmæti aflans sem farið hefur forgörðum i togaraverkfallinu er lágt reiknað 150 milljónir. Verst kemur verkfallið við útgerðarmenn og sjómenn. Þá er ótalið tjón vegna gjaldeyristaps og taps tolltekna af honum. Einnig er ótalið tjón sem þjónustufyrirtæki ná- tengd togaraútgerðar- innarverða fyrir. Þá má geta þess, að ef afli tog- aranna verkaður hér á landi, tvöfaldast verð- mæti hans, gróft reikn- að. Undirmenn á togurun- um sátu á sáttafundi í gær og í gærkvöldi. Þá hafa yfirmenn boðað vinnustöðvun. Loðnumokslurinn hélt linnu- laust áfram i allan gærdag og fram á kvöld. Þegar blaöið hafði samband við Loönulöndunar- Útflutningur iðnvarnings hefur aukizt í fyrra voru fluttar út iðnaðar- vörur fyrir 3,9 milljarða króna, og er það 118% aukning frá fyrra ári. Aukningin liggur mest i áli. Otflutningur án áls jókst um 31%, úr 889 milljónum i 1,2 millj- arða. Stærstu vöruflokkarnir eru skinnavörur, prjónavörur og fatnaður, niðursuðuvörur og kisilgúr. Fulltrúar rikja Austur-Evrópu féllust i gær á tillögu Frakka þess efnis, að þátttökurikin i undir- búningsfundum fyrir öryggis- málaráðstefnu Evrópu i Helsingfors myndi „samstarfs- nefnd”, sem semji tillögu um dagskrá á sjálfri ráðstefnunni, sem ráðgert er að fari fram á næsta ári. Er talið, að samþykkt frönsku tillögunnar sé verulegt skref i átt til samkomulags um framkvæmd öryggismálaráðstefnunnar. — : Wf, - - ~r «■ ~‘ - *rsíC» ■•••••-• • - •■•• -- -■■■ ' IORGUNARHREINSUN HAFIN 1EYJUM VWLAGASJOÐUR HEFUR EKKIFALLIZT Á ALLSHERIARHREINSUH Fyrsta stig i mokstri vikurs úr Vestmannaeyjakaupstað hefst væntanlega innan tiðar, en i gær- morgun var samþykkt hjá Við- lagasjóði að hefja svonefnda björgunarhreinsun, sem er fólgin i þvi að moka vikri frá þeim hús- um, sem eru að fara i kaf, svo unnt sé að styrkja þök þeirra og gera aðrar ráðstafanir til að bjarga þeim frá frekari skemmd- um. Hugmyndin er að nota vikur- inn, sem mokað verður frá þess- um húsum, i varnargarða þá sem verið er að ýta upp. Að þvi er Magnús Magnússon, bæjarstjóri i Vestmannaeyjum, sagöi i viðtali við Alþýðublaðið i gær, eru tilbúnar áætlanir um allsherjarhreinsun kaupstaöar- ins, og hefur bæjarstjórnin farið þess á leit við Viðlagasjóð, að henni verði hrint i framkvæmd. Það hefur ekki enn fengizt sam- þykkt. Aftur á móti sagðist Magnús álita, að þessi björgunar- hreinsun þróist yfir i allsherj- arhreinsun áður en langt um líð- Um gang björgunarstarfsins i Eyjum almennt sagði Magnús, að búslóðaflutningi sé að mestu lok- ið, og flutningi á atvinnutækjum eigi að ljúka að mestu á næstu tveimur eða þremur dögum. Þótt flutningadeildin ljúki störfum sinum innan skamms er ekki þar með sagt, að þeir 150 til 200 menn, sem i henni eru, hætti störfum heldur verður til- svarandi fjöldi settur i hreinsun- ina og björgun húseigna. „Útlitið er nokkuð gott núna”, sagði Magnús, og benti á, að hraunframleiðslan hafi minnkað úr eitthundrað teningsmetrum á sekúndu i 25 teningsmetra frá fyrstu dögum gossins, og vikur- fall sé orðið sára litið. 1 fyrradag sagði hann að hafi verið hvöss austanátt, en samt sem áður ekk- ert vikurfall i bænum. 1 athugun er að senda sand- dæluskilið Sandey til Vestmanna- eyja til að aðstoða við dælingu sjávar á hraunjaðarinn, en vonir eru bundnar við að skipið komi að miklum notum við það starf, þar sem það getur dælt allt að 2500 tonnum á klukkustund. Eigandi Sandeyjar og skipstjórinn, ásamt hópi visindamanna, fóru i gær til Eyja i þvi skyni að kanna aðstæð- ur fyrir Sandeyna. ÖLVUNARAKSTUR ÁSTRÍÐUGLÆPUR 25 ára gamall Björgvinjarbúi hefur skapað fordæmi fyrir þvi, að dómstólar liti á ölvun við akst- ur sem „crime passionell”, eða ástriðuafbrot. Þrátt fyrir það, að hann ók bifreið sinni 400 metra undir áhrifum áfengis, fékk hann skilorðsbundinn dóm, sem Hæsti- réttur Noregs hefur nú staðfest. Sagan á bak við söguna um þessi óvanalegu og mildu við- brögð er sú, að ökumaðurinn hitti æskuástina sina á veikingahúsi. Var nú dansað og drukkið, og eftir að veitingahúsinu var lokað, fóru hjúin út i bil mannsins, þar sem heldur betur var nú tekið til við að rifja upp æskuminningarn- ar — i verki. nefnd um kvöldmatarleytiö, höfðu um 35 skip meldað sig með afla, samtals um 8000 lestir, og búizt var viö þvi að fleiri skip ættu eftir að melda sig. Var jafnvel haldið aö aflamagnið færi i 10 þúsund lestir. Aflann fengu skipin að mestu á Eyrarbakkabug, en fyrsta loðnu- gangan er komin svo vestarlega. Allar hafnir sunnanlands eru nú fullar, og héldu bátarnir i striöum straumum með aflann til hafna á Austfjörðum. Þróarrými er laust á Vestfjöröum einnig, en þangað var ekki fært vegna veöurs. Af þeim bátum sem höfðu meldað sig var Eldborg GK með mestan afla, 550 lestir, sem er fullfermi. Guðmundur RE var á miðunum, og var ekki taliö ólik- legt að hann meldaði sig með full- fermi seinna um kvöldið. Sá hátt- urinn hefur yfirleitt verið á, að þessi tvö skip, og reyndar fleiri, hafa meldað sig með fullfermi eftir aðeins stutta stund á miðun- KOSNINGAR Á ÍRLANDI Hörðustu kosningabaráttu i sögu irska lýöveldisins lauk i gær, en þingkosningar fara þar fram i dag. Dregið er i efa bæði af hálfu rikisstjórnarinnar og stjórnar- andstöðu, að nokkur flokkanna, sem sæti eiga i löggjafarþinginu, hljóti i kosningunum nægilegan meirihluta til myndunar meiri- hlutastjórnar að þeim loknum. Bæði forsætisráðherrann Jack Lynch og leiðtogi stjórnarand- stöðunnar Liam Cosgrave lögðu áherzlu á það i ræðum i gær, að ný rikisstjórn þyrfti að njóta tryggs meirihluta i þinginu, ef koma ætti i veg fyrir pólitiska upplausn i lýðveldinu. jr Maðurinn hafði alls ekki i huga að snerta bilinn, en fyrir hnýsni laganna varða, var hann bókstaf- lega neyddur til að færa bilinn, ef upprifjun minninganna áttu ekki að renna út i sandinn. Virðast dómstólar hafa litið á málsástæður ökumanns af næm- um skilningi. Nú eru liðnir nær tveir mán- uðir síðan vetrarvertið hófst almennt við landið. Hefur ver- tiðin nær alls staðar brugðizt til þessa, og loðnan hefur ein séð fyrir atvinnu að undan- förnu, þegar sáralitið hráefni hefur borizt frá bátunum og ekkert frá togurunum. Stöðugar ógæftir hafa haml- aö veiðum alls staðar nema á Vestfjörðum. Þar var janúar- mánuður afbragðsgóður, en aftur á móti hefur sjaldan gef- ið á sjó fyrir vestan i febrúar. Annars staðar við landið hefur afli verið sáratregur, þá sjald- an hefur gefið á sjó. Togararn- ir hafa sem kunnugt er veriö i verkfalli frá i janúarlok. Loðnan hefur bjargað öllu. Hún hefur haldið uppi at- vinnulifinu i landi, bæði i verk- smiðjum og frystihúsum, en þar hefur viða verið unnið daga og nætur við loðnufryst- ingu fyrir Japansmarkað. 80-90 skip stunda loðnuveið- arnar.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.