Alþýðublaðið - 17.03.1973, Blaðsíða 1
KANAR GEFA EFTIR
Bandarikjastjórn hefur
látið undan kröfu rikis-
stjórna Evrópulanda um
að gera sérstakar ráð-
stafanir til að vernda
gengi dollarans.
Eftir 6 klukkustunda
fund, sem haldinn var i
Paris i gær um siðustu
gjaldeyriskreppuna á
hinum alþjóðlegu gjald-
eyrismörkuðum, náðist
samkomulag 14 landa um
að gera ráðstafanir
beggja vegna Atlants-
hafsins til að koma i veg
fyrir verðfall á Banda-
rikjadollar.
Meðal annarra ráðstaf-
ana, sem ráðgerðar eru,
má nefna skammtimalán
i sterkustu gjaldmiðlum
heims til kaupa á dollur-
um, þegar framboðið
verður mest.
Samkvæmt heimildum
frá ráðstefnunni hafa
Bandarikin, Kanada,
Japan, Sviþjóð og Sviss
lýst yfir þátttöku i þess-
um aðgerðum.
Eftir ráðstefnuna lýsti
Helmut Scmidt, fjár-
málaráðherra V-Þýzka-
lands, þvi yfir, að þrátt
fyrir sérsjónarmið ein-
stakra rikja, teldi hann
mest um vert, að Banda-
rikjastjórn hefði fallizt á
að taka virkan þátt i að
halda jafnvægi á alþjóð-
legum gjaldeyrismörkuð-
um.
Enn gleypir hraunið
húsin á goseyjunni
Farið var að hrynja úr hraunjaörinum yfir varnar-
garðinn vestur af Grænuhlið, og talsvert hrundi úr
jaðrinum yfir hús á milli Leiðarvöröu og Miðhúsa, og
að þvi er jarðfræðingur i Vestmannaeyjum tjáði
Alþýðublaðinu i gærkvöldi, liggja þau undir
skemmdum.
Litið sást til gossins frá þvi i fyrrakvöld þar til
siðdegis i gær vegna þoku, en þegar létti upp kom i ljós,
að tvö gosop voru virk. í öðrum gignum var talsverð
gas- og gjallmyndun, en i hinum var gosið öskulaust.
Ekki var þó öskufall i bænum i gær, þar sem vindurinn
var af sunnan- og suðvestan. Gasið virtist fara heldur
minnkandi i gær, þó var ekki hægt aö segja um hvort
það sé til frambúðar, ætlunin er að auka gasrann-
sóknir á næstunni.
Skrýtið jafnvægi
„Byggðastefna” rikis-
stjórnarinnar birtis m.a. i
þvi, að á fyrsta fjárlagaári
sinu — 1972 — skar hún
fjárlög niður um 174,6
millj. kr. og þá með þeim
hætti að niðurskurðurinn i
Reykjaneskjördæmi
nemur 298 krónum á hvern
ibúa, meðan sparnaðurinn
á hvern Vestfirðing nam
2.154 krónum. Þetta heitir
hjá rikisstjórninni „jafn-
vægi i byggð landsins”.
1 Vesturlandskjördæmi
voru framkvæmdir
skornar niður um upphæð,
sem samsvaraði 1.212
krónum á hvern ibúa, i
Norðurlandskjördæmi
vestra nam „skyldusparn-
þetta, Jafnvægi í
aðurinn” 1.401 krónu á
hvert mannsbarn og i
Austurlandskjördæmi 1.767
krónum, eða fjór- til sex-
faldri upphæð á við þá, sem
rikisstjórnin frekast gat
boðið ibúum Reykjaness
upp á.
Það mun vera Samband
sveitarfélaga i Austur-
landskjördæmi, sem hefur
gert þessa útreikninga og
hafa þeir verið sendir þing-
mönnum ýmissa kjördæma
til fróöleiks og kynningar.
Þetta gæti verið gagnlegt
plagg fyrir fjármálaráð-
herra aö hafa með sér á
næsta fund ungra fram-
sóknarmanna um byggða-
stefnuna!
Við viljum
líka vernda
Þingvelli
■
„Aætlun okkar um há-
tiðahöld á Þingvöllum 1974,
sem nú hefur verið lögð
fyrir Alþingi, snýst m.a.
um aö vernda staðinn”,
sagði Indriði G. Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri
Þjóðhátiöarnefndar, þegar
Alþýðublaðiö bar undir
hann mótmæli þau gegn
hátiðahöldum, sem grund-
völluð eru á landverndar-
sjónarmiðum.
„Þjóðhátiðarnefnd gerir
sér fulla grein fyrir þeim
vandamálum, sem fylgja
stórhátiöahöldum sem
þessum,” hélt Indriði
áfram, ,,en samkvæmt
áætlunum okkar er gestum
hátiðarinnar ætlaður stað-
ur á svæðum utan Þjóð-
garðsins, en hátiöahöldin
sjálf fari fram á ræktuðum
svæðum innan hans, — og
þar sem gras er fyrir hlýt-
ur að spretta gras aftur”.
Siðan bætti Indriði þvi
við, að nú hafi Þjóðhátiðar-
nefnd skilað af sér öllum
áætlunum um sjálf hátiða-
höldin á Þingvöllum, og eru
þær i athugun hjá alþingis-
mönnum. Aðrar tillögur
sagöi hann, að væru þegar
samþykktar, en þær snúast
aðallega um þjóðarbók-
hlöðu, útgáfu tslands sögu,
frimerkja- og minjagripa-
útgáfu og sölu. Indriði lagði
rika áherzlu á, að hug-
myndir eins og bygging
knarrar er ekki mál
nefndarinnar, og rikið
kemur ekki til með að
greiða kostnað við hana.
METSPÁR FISKIFRÆDINGA
UM LOÐHUHA RÆTAST
Allar likur benda til þess
að spár fiskifræðinga um
loðnuveiði út þennan mán-
uð rætist. Siðasta loðnu-
gangan er nú stödd við
Hrollaugseyjar, og að þvi
er Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur tjáði Alþ.bl.
i gær, á sú loðna nokkuð
langt i hrygningu ennþá, og
hún ætti að veiöast út mán-
uðinn, svo framarlega sem
hún veröur i veiðanlegu
ástandi.
Fullyrða má að yfir-
standandi loðnuvertið hafi
heppnast framar öllum
vonum. Við efnahagsspár
fyrir árið 1973, var reiknað
með 380 þúsund hámarks-
afla, og þá voru Vest-
mannaeyjar inni i dæminu.
Þegar eldgosið kom upp i
Vestmannaeyjum, hljóð-
uðu spár bjartsýnustu
manna upp á 300 þúsund
lestir, en nú er aflinn farinn
aö nálgast 350 þúsund lest-
ir, ogenn eftir nokkrir dag-
ar af vertið.
byggö landsins”
Kjördæmi:
Niðurskurður: pr. ibúa:
Reykjavík
Reykjaneskjördæmi
Vesturlandskjördæmi
Vestfjarðakjördæmi
Norðurl. vestra
Norðurl. eystra
Austurlandskjördæmi
Suðurlandskjördæmi
58,0milljónir
11.7 —
16,0 —
21,3 —
13,9 —
21.7 —
20,0 —
12,0 —
700.00 krónur
298,00 krónur
1.212,00 krónur
2.145,00 krónur
1.401,00 krónur
967,00 krónur
1.767,00 krónur
656,00 krónur
Samtals: 174,6 — meðaltal 842,00 krónur