Alþýðublaðið - 17.03.1973, Side 3

Alþýðublaðið - 17.03.1973, Side 3
NÚ ÆTTU ALLIR AÐ GETA TALAÐ NÆGJU SÍNA Þá fá Breiöholtsbúar nokkra lausn á simavandræðum sinum i dag, þegar ný sjálfvirk simstöö verður tekin i notkun. I fyrsta áfanga eru 1000 simanúmer og er þeim þegar ráðstafað til ibúa i Breiðholti. Þessi simanúmer byrja á tölunni sjö. í mai verða svo önnur 1000 númer tekin i notkun, en stöðvarhúsið, sem stendur á horni Norðurfells og Vesturbergs er byggt fyrir 10.000 simanúmer og er unnt að bæta við nokkrum þúsund númerum i kjallara, ef þörf krefur. Með opnun þessarar stöðvar losna simanúmer frá öðrum stöðvum bæjarsimans og verður þá hægt að afgreiða flestar sima- pantanir, sem liggja fyrir hjá simanum nú. DAGUR ÞEIRRA SEM GLEYMDUST „Mannlegra umhverfi, meiri mannúð, eru kjörorð alþjóðadags fatlaðra, sem er á sunnudaginn. Þá skal vakin sérstök athygli á þvi misrétti, sem fötluðum er sýnt á sviði skipulags- og bygg- ingamála. „Fatlað fólk biður ekki um vorkunnsemi, heldur aðstöðu til að hjálpa sér sjálft”, segir i fréttatilkynningu, og þar er Þjóð- minjasafnið tekið sem dæmi um opinbera byggingu, sem er fötluðum mjög óaðgengileg. Nýja símaskráin tek- ur giidi á hádegi í dag. <0 Kosið á sunnu dag DÓMKIRKJUSOFNUÐUR- INN i Reykjavik gengur til prestskosninga á sunnudag. Tveir eru i framboði: sr. Hall- dór Gröndal og sr. Þórir Step- hensen, og verður sá, sem kjöri nær, eftirmaður sr. Jóns Auðuns, dómprófasts. FLUGMADURINN SVIPTUR FLUGRETTINDUM - MISSA VÆNGIR H.F. FLUGLEYFIÐ? Flugmálayfirvöld hafa manninn réttindum. byggðarlög. heldur fremur snjókoman, að undanförnu velt því Haukur Claessen, sem Það réttlætti þó ekki að sem dró verulega úr ferð fyrir sér, að svipta flug- gegnir nú embætti flug- fara ekki i einu og öllu eftir vélarinnar á flugbrautinni, félagið Vængi h/f flugleyfi, málastjóra, sagði í viðtali settum reglum, en nú er þyngdi hana og skerti flug- einkum með hliðsjón af við blaðið í gær, að enn komið i Ijós að vélin var of hæfni hennar. Mun flugslysinu um daginn, væri óvist um framvindu hlaðin þegar hún hrapaði i snjórinn líklega hafa fyllt þegar vél frá félaginu þessa máls, enda héldu jörðina. loftinntak annars hreyfils- magalenti í Vatnsmýrinni. Vængir uppi þýðingarmik- Það er þó ekki talin ins með þeim afleiðingum Búið er að svipta flug- illi þjónustu við fjarlæg höfuðástæða fyrir slysinu, að hann kæfði á sér. GEYSILEGUR SKORTUR Á SJÚKRA- RÚMUM FYRIR LANGLEGUSJÚKLINGA — Það verður ekki fyrr en árið 1985, sem hafizt verður handa um byggingu sjúkradeildar fyrir langlegusjúklinga við Borgar- spitalann. Fyrst er áformað að reisa þjónustuálmu við spitalann — G álmu — sem kosta á 700 milljónir kr. á núverði og ráðgert er að verði hvorki meira né minna en 36 þúsund rúmmetrar aðstærð.en allur Borgarspitalinn mun nú vera 55 þúsund rúm- metrar. Þegar fyrst verður hafizt handa við að byggja sjúkradeild fyrir langlegusjúklinga sam- kvæmt þessum áætlunum — árið 1985 — mun skorta 340 sjúkrarúm fyrir slika sjúklinga, en árið 1975 mun skorturinn verða 280 sjúkra- rúm. Þetta kom m.a. fram i ræðu hjá Björgvin Guðmundssyni borgarfulltrúa Alþýðuflokksins, er hann flutti i borgarstjórn Reykjavíkur i fyrrakvöld með til- lögu sinni um, að nýtt sjúkrahús verði nú reist á lóð Borgarspital- ans, sem ætlað verði langlegu- sjúklingum og verði byggingu þess hraðað eftir föngum. Auk framangreindra upp- lýsinga um byggingaráform við Borgarspitalann kom það fram i ræðu Björgvins, aö til þess aö unnt yrði að taka hina stóru og geysidýru G-álmu i notkun, sem reisa á fram til ársins 1985, þá þurfi einnig að leggja i mikinn kostnað i sambandi við vegagerð að og frá deildinni, en hún er ætluð göngusjúklingum, fyrir stærri slysavarðstofu o.þ.h. Til- laga Björgvins,sem gerir ráð fyrir þvi, að fyrst verði bætt úr sjúkrarúmaskorti langlegusjúk- í dag verður til grafar borinn Jóhannes Jónsson, verzlunar- maður á HUsavik. Jóhannes var borinn samvinnu- og félags- hyggjumaður og tók virkan þátt I féiagsstörfum. Hann var ávallt linga með byggingu 200 sjúkra- rúma sjúkradeildar fyrir þá á lóð Borgarspitalans felur hins vegar aðeins i sér Utgjöld að upphæð 100-120m.kr., en fyrir það fé telur hann mætavel unnt að reisa gott 200 rúma sjúkrahús fyrir lang- legusjúklinga. Borgarstjórn samþykkti að hafa tvær umræður um tillöguna I mætur liðsmaður jafnaðar- stefnunnar. Bragi Sigurjónsson hefur ritað minningargrein um Jóhannes og birtist hún i Alþýðublaðinu n.k. I þriðjudag. Gleymdi að setja hjolin niður! Nú er komið i ljós, að orsök I flugslyssins á Þórshöfn fyrir skömmu, er flugvél magalenti þar, er sú að flugmaðurinn ‘gleymdi að setja niður hjólin | þrátt fyrir að greinilegt ljós i mælaborði hafi sýnt honum að hjólin voru uppi. Vélin sem er af Beechkraft gerð, I eigu Tryggva Helgasonar I á Akureyri, var með sjö farþega og flugmann innanborðs, er slysið varð, Vélin skemmdist einnig fremur I litið, og er viðgerð að verða lokið. Þess má að lokum geta, að sams konar vél i eigu Tryggva maga- lenti fyrir þrem árum, þegar flugmaðurinn gleymdi að setja niður hjólin. — MYNDU BRETAR SENDA FLOTA GEGN RÚSSUM EOA KONUM? Ted Willis lávarður og þing- maður i Bretlandi hefur unnið kappsamlega að þvi að undan- förnu að styðja og skýra málstað okkar i landhelgis- málinu. Hefur hann talað i þinginu máli okkar til stuðn- ings, ritað grein i blöð og komið fram i útvarpi og sjónvarpi. I grein sem hann ritar i The Times á mánudaginn var, segir hann til dæmis að það hafi verið sin skoðun, að gamla nýlendu- hugsunin „sendir herskip” hafi dáið út með Suezstriðinu sáluga. Það hafi verið öðru nær, þvi þessum gamla draug hafi skotið upp að nýju i þinginu, þegar brezka stjórnin hótaði að senda brezka flotann á Islandsmið gegn Islendingum (öllum 210 þúsund Islendingunum eins og hann orðar það). Mundum við senda flotann gegn t.d. Rússum eða Bandarikjamönnum undir svipuðum kringumstæðum? Þannig spyr Ted Willis. Hann bendir á fleiri atriði i grein sinni, og þar á meðal þá þversögn Breta að neita að viðurkenna rétt Islendinga til 50 milna iandhelgi, á meðan Bretar sjálfir krefjist oliu- réttinda i allt að 100 sjómilur frá brezkri strönd. Laugardagur 17. marz 1973 o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.