Alþýðublaðið - 17.03.1973, Blaðsíða 9
ÍÞRÓTTIR 3
„Ég stefni að þvi að kasta 74-75
metra i sumar”, hefur Ricky
Bruch látið hafa eftirsér i sænsk-
um blöðum. Hann er sannarlega
bjartsýnn, þvi heimsmet hans i
greininni er 68,84 metrar.
Bruch segist æfa mjög vel.
Hann taki erfiðar æfingar á
hverjum degi, og heima hjá sér
hafi hann sérstakt lyftingarher-
bergi, og hann hlaupi i tækin þar
hvenær sem tækifæri gefst.
,,Ég er i mjög góðu formi núna,
og tel mig 10% sterkari en i fyrra.
Þyngdin er eins og hún gerist
bezt, 133,5 kiló. Eina vandamálið
er vatn á milli liða ihné,enefég
fæ. það i lag, kasta ég minnst 74-
75 metra”, segir Bruch og er
hvergi banginn.
Ricky Bruch í það heilaga
Sænski kringlukastarinn
Ricky Bruch vakti mikla
athygli hér á landi á siðasta
sumri, er hann tók þátt i
afmælismóti Frjálsiþrótta-
sambandsins. Enda er maður-
inn allrar athygli verður. Um
það leyti er hann kom hingað,
var hann að láta af sinu
fræga giaumgosalifi. Hingað
kom hann með kærustuna
sina, Annie Hovberg, og þau
vöktu mikla athygli, þvi
stærðarmunurinn var ekki svo
litill.
Þetta reyndist ekki vera
nein skynditrúlofun hjá Bruch
hinum sænska, því þau skötu-
hjúin gengu I það heilaga fyrir
nokkru siðan. Þar sem Ricky
er vel þekktur hér, fannst okk-
ur ekki úr vegi að birta örfáar
myndir frá þessari sögulegu
athöfn.
Þá er það fyrst litla myndin
hér að neðan, en hún er tekin
þegar afhöfnin stóð sem hæst.
Stærðarmuninn má greinilega
merkja, og það er einnig vert
að taka eftir klæðaburði hjú-
anna, einkum þó Rickys, en
hann var klæddur heljarmik-
ilii austurlenzkri mussu. Þeg-
ar á athöfnina leið brast Ricky
i grát eins og iitið barn, og
Annie litia grét honum til
samlætis.
En að athöfn lokinni fauk öil
sorg og sút út i veður og vind,
og það sjáum við á stóru
myndinni. Ricky er að bera
sina ektakvinnu yfir þröskuld-
inn, og ekki ber á öðru en allt
leiki i lyndi.
Og svo er það litla myndin
til hliðar, og þegar hér er
komið sögu standa fagnaðar-
lætin sem hæst. Og Ricky er
þarna i öllu sinu veldi, þegar
aðrir drekka kampavin úr
glösum, sporðrennir hann
heilli fiösku i einu lagi! Nú
kannast menn við heljar-
mennið Ricky Bruch. — SS.
ÆTLAR
AÐ KASTA
74-75
METRA!
VETUR KOHUNGUR GOLFMONNUM ERFIOUR
óvenjulega litið hefur verið hægt að æfa golf utanhúss frá sl.
áramótum og hafa frátafir ekki verið jafnlangar mörg undan-
farin ár. Hvaleyrarvöllurinn var m.a.s. stokkfrosinn i 4-5 vikur
samfleytt. Strax og núverandi þiðviðri hófst, fóru golfmenn á
stúfana og sumir biðu óþreyjufullir lags. Hvaleyrin er þó fuli
blaut ennþá og sökkva boltarnir I brautirnar.
■ A laugardaginn var, þ.e. 10.
i marz gerði landsliðsúrvarlið i
■ karlaflokki tilraun til að æfa
5 utanhúss i fyrsta sinni á
■i vetrinum, sem litið varð auð-
5 vitað úr i upphafi hlákunnar. 8
<■ kylfingar mættu i golfskálan-
| um i Leiru um tvöleytið og
■ höfðu allir kylfur meðferðis
i nema þeir yngstu, þ.e. Jóhann
m Guðmundsson úr G.R. og Is-
] landsmeistarinn okkar Loftur
m Olafsson úr Nesklúbbnum.
Þeir virðast þvi hafa verið
m einu mennirnir með fullu viti i
hópnum, enda útilokað að
spila á Hólmsvelli sökum
svellalaga auk þess sem hund-
ausandi rigning var allan dag-
inn. Hópurinn ræddi saman
stutta stund, unz ákveöið var
að freista gæfunnar á Shangri-
La golfvellinum i nánd við
Sandgerði. Skynsömu piltarn-
ir tveir báðu okkur vel að lifa
og héldu heimleiðis, en við
hinir lögðum i hann.
Við létum okkur hafa það að
spila allar niu brautirnar og
tókum bolta okkar upp, þar
sem ekki fundust holur. Mér
taldist til að einungis 3 holur
hafi ekki verið lagðar svelli og
var þvi völlur verndaranna
litlu skárri en Hólmsvöllur.
Segja má þvi að harðsótt hafi
verið á fyrstu útiæfingu
Landsliðsúrvalsins og er von-
andi að sami áhugi haldist
fram á sumarið.
1 þessari viku hefur bliðan
haldizt og má búast við að
Hvaleyrin og Nesvöllurinn
fari sem óðast að þorna og
ryðja sig, ef veðrið helzt jafn-
gott framyfir þessa helgi
a.m.k. Talsvert hefur verið
spilað á Hvaleyrinni seinni
hluta vikunnar og eru þar
fremstir i flokki Gunnlaugur
Ragnarsson, Jón Þór og
Ragnar Magnússon auk
Júliusar Júliussonar úr Keili,
sem allra manna er harðastur
af sér i vosbúðargolfi. G.R.
menn verða þvi miður að æfa
sig i Hafnarfirði fyrst um sinn,
enda voru snjóalög mikii i
Grafarholtsdal.
Væntanlegir Skotlandsfar-
ar, sem skipa tugum, verða að
fara að viðra sig, ef eitthvert
vit á að vera i golfinu hjá þeim
þar úti i vor. Að minu mati
ættu menn ekki að leggja of
mikið upp úr að leika hring
eftir hring, heldur slá 10-20
bolta með hverri kylfu til að fá
styrk i hendur og liðka sig upp.
öll stuttu höggin verða mjög
tilviljanakennd vegna ástands
vallanna, og tel ég menn hafa
takmarkað gagn af að hugsa
af mikið um skorina, þegar 3-5
högg eða fleiri á hring eru
alveg út i bláinn.
Landsliðsúrvalið ætlar að
æfa saman a.m.k. einu sinni i
viku um helgar fyrst um sinn
og ef til vili oftarþegar liður að
vori. Það er sömuleiðis mikil-
vægt fyrir alla þá, sem enn
geta unnið sér sess i þvi liði,
sem valið verður til keppni, að
komast snemma i þjálfun, ef
þeir ætla sér að verða framar-
lega i fyrstu opnu keppnum
sumarsins, þar eð lagt verður
upp i ferðina á Evrópu-
meistaramótið um 20. júni eða
svo.
Ég vona, að stutt verði i
fyrstu vorkeppnir klúbbanna
og verður fróðlegt að sjá,
hvernig menn koma úr vetrar-
hiöinu. E.G.
Laugardagur 17. marz 1973
0