Alþýðublaðið - 17.03.1973, Page 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmálarit-
stjóri Sighvatur Björgvinsson. Frétta-
stjóri Bjarni Sigtryggsson. Ritstjóri og
ábyrgðarmaður Freysteinn
Jóhannsson. Aðsetur ritstjórnar
Hverfisgötu 8-10. Sími 86666. Blaðprent
hf.
HANNIBAL SAMA SINNIS
Sá óvænti en ánægjulegi atburður hefur gerzt,
að einn af ráðherrum rikisstjórnarinnar hefur
tekið undir með Alþýðublaðinu um, að nú eigi
tslendingar að senda málsvara til Haag. At-
burðurinn var óvæntur vegna þess, að almennt
var talið, að rikisstjórnin væri staðráðin i að
tefla i þá tvisýnu, að gera þetta ekki. Atburður-
inn var ánægjulegur vegna þess, að beztu menn
eru sammála um, að eins og málum er nú komið
geti það ekki orðið til annars en gagns fyrir ís-
lendinga að senda fulltrúa til þess að flytja mál
Islands fyrir alþjóðadóminum i Haag. Nú hefur
sú skoðun fengið öflugan talsmann innan sjálfr-
ar rikisstjórnarinnar, mann, sem hefur hug-
rekki til þess að koma fram fyrir þjóðina og
segja undanbragðalaust sinn hug jafnvel þótt
það kunni að valda einhverjum samvinnuerfið-
leikum við þá einstrengingslegu atvinnupóli-
tikusa, sem hann umgengst i rikisstjórninni.
Það var einber, en ánægjuleg tilviljun, að ein-
mitt þann sama morgun og ummæli Hannibals
Valdimarssonar um málsvara til Haag urðu
opinber birti Alþýðublaðið forystugrein um
málið, þar sem nauðsyn þessa var rökstudd með
nákvæmlega sama hætti og Hannibal Valdi-
marsson gerði. Hann metur sem sagt málið á
nákvæmlega sama hátt og Alþýðublaðið og fær
þvi hver maður séð, að röksemdir Alþýðublaðs-
ins mótast ekki fyrst og fremst af einhverri and-
úð á rikisstjórn Ólafs Jóhannessonar, eins og
Þjóðviljinn er að reyna að afgreiða málið með.
Ekki er þó Hannibal Valdimarsson að ráðast á
sjálfan sig, eða hvað? Ekki er hann að afhenda
Bretum vopn til þess að nota gegn rikisstjórn ís-
lands, svo notað sé orðaval Þjóðviljans? Auðvit-
að ekki. Hann sér bara — á sama hátt og Al-
þýðublaðið — að þetta er öruggasta leiðin til
þess að tryggja hagsmuni Islands. Það getur
ekki orðið okkur til annars en ávinnings að
senda nú málsvara til Haag á sama hátt og það
getur ekki orðið Bretum og Vestur-Þjóðverjum
til annars en óhagræðis. Þetta sá Alþýðublaðið.
Þetta sá Hannibal Valdimarsson. Þess vegna
eru Alþýðublaðið og Hannibal Valdimarsson
sammála gersamlega án tillits til þess þótt ann-
ar aðilinn sé i stjórn, en hinn styðji stjórnarand-
stöðuna.
Til þess enn einu sinni að leggja áherzlu á
höfuðröksemdir Alþýðublaðsins — og Hannibals
Valdimarssonar — fyrir þvi, að íslendingum
beri að senda málsvara til Genf, þá skal það tek-
ið fram, að reynslan hefur sýnt, að timinn vinn-
ur með okkur. Allir reikna með þvi, að haf-
réttarráðstefnan muni samþykkja stefnu i fisk-
veiðilögsögumálum, sem okkur verði hagstæð.
Þar með hefur málið unnizt. Þangað til verðum
við að varðveita og bæta stöðu okkar og forðast
að taka óþarfa áhættu.
Ef enginn málsvari íslands mætir nú i Haag,
þá getur dómstóllinn fellt dóm sinn þegar i haust
— áður en málstaður okkar getur orðið þeirrar
griðarmiklu liðveizlu aðnjótandi, sem almennt
er gert ráð fyrir að niðurstöður hafréttarráð-
stefnunnar verði okkur. Ef við hins vegar send-
um málsvara getum við auðveldlega frestað
dómsuppkvaðningunni i tvö-þrjú ár — þ.e.a.s.
fram yfir hafréttarráðstefnuna. Við getum ekki
annað en grætt á sliku. Sú aðferð er öruggust.
Þá teflum við málinu ekki i neina tvisýnu. Að
sjálfsögðu felst hins vegar i þessu engin viður-
kenning á, að dómstóllinn hafi lögsögu i málinu.
Við höfum neitað þvi og auðvitað stöndum við
fast á þeirri neitun.
En röksemdin fyrir þvi að senda nú mann til
Haag er yfirgnæfandi. Hún er hafin yfir flokka-
pólitik, eins og ljóst má nú vera.
LÝÐRÆÐI OG
EFNAHAGSMÁL
1 lýðræði felst það, að sérhver
einstaklingur hafi rétt til þess að
hafa áhrif á stjórn sameiginlegra
mála i þjóðfélagi, óskoraðan rétt
og jafnan, frjálsan rétt og óháðan
öllu valdi annarra, bæði að þvi er
snertir málefni rikis og einstakra
stjórndeilda innan þess, svo sem
sveitarfélaga. Forsenda lýðræðis
er frelsi á öllum sviðum, mál-
frelsi, prentfrelsi, fundafrelsi,
trúfrelsi, frelsi til þess að mynda
hvers konar samtök til þess að
berjast fyrir skoðunum og
hugsjónum, þar með talið frelsi
til þess að mynda stjórnmála-
flokka.
Þvi fer þvi miður viðs fjarri, að
meginhluti mannkyns búi nú við
lýðræði. Það er ekki aðeins i van-
þróuðum löndum i efnahagstilliti,
þar sem menntun er ábótavant,
sem stjórnarfar er ekki grund-
vallað á lýðræði. Það á einnig við
um þróuð iðnaðarriki, þar sem
almenn menntun er á mjög háu
stigi. En i V-Evrópu fyrst og
fremst á lýðræðið sér langa sögu
að baki og hefur náð miklum
þroska. 1 þessum hlutum heims
hefur það orðið grundvöllur
þeirra þjóðfélaga, sem náð hafa
lengst á sviði velmegunar og vel-
ferðar og orðið undirstaða and-
legs þroska og framþróunar i
menningarmálum, sem fært hef-
ur hundruðum milljóna
hamingju.
A undanförnum áratugum hafa
menn i lýðræðisrikjum smám
saman gert sér æ ljósara, að það
lýðræði, sem nefna mætti
stjórnarfarslegt lýðræði og hefur
andlegtfrelsi að forsendu, er ekki
eitt sér nægilegt til þess að
tryggja einstaklingnum að fullu
það jafnrétti, sem þó er höfuðtil-
gangur þess, að hann öðlist. Þótt
það sé einstaklingi auðvitað
mikilvægt að geta haft frjáls og
jöfn áhrif á skipan sameiginlegra
mála i þjóðfélagi, þá getur
ójöfnuður i efnahagsmálum vald-
ið ranglæti. Þótt einstaklingurinn
hafi áhrif á stjórn rikis og
sveitarfélaga, getur rangleitni
siglt i kjölfar þess, ef hann hefur
engin skilyrði til áhrifa á stjórn
atvinnutækja, sem starfrækt eru i
þjóðfélagi og ráðið geta úrslitum
um afkomu hans og hag.
Jafnaðarmenn tóku að gera sér
grein fyrir þessum staðreyndum
fyrir meira en einni öld. Það var
kjarni i kenningarkerfi þeirra,
jafnaðarstefnunni, að áhrif
einstaklinganna á atvinnulifið og
réttláta skiptingu eigna og tekna
ætti að tryggja með þvi að þjóð-
nýta atvinnutækin. Siðar var
þeirri kenningu bætt við, að haga
ætti framleiðslu og neyzlu i sam-
ræmi við gerðar áætlanir, þ.e.
stunda áætlunarbúskap.
A undanförnum áratugum hafa
skoðanir jafnaðarmanna i þess-
um efnum smám saman verið að
breytast. Grundvallarhugsjónin
um réttlátt og frjálst þjóðfélag er
enn hin sama, og að einstakling-
arnir eigi rétt til áhrifa á stjórn
atvinnutækja og að nauðsynlegt
sé, að framleiðslu og neyzlu sé
hagað i samræmi við skynsam-
lega áætlunargerð. En aukin
fræðileg þekking á lögmálum
markaðshagkerfis og vaxandi
skilyrði rikisvalds og opinberra
stofnana til þess að hafa áhrif á
framleiðslu og neyzlu og þar með
skiptingu tekna og eigna hafa
rennt rökum undir þær skoðanir,
að allsherjar þjóðnýting allra at-
vinnutækja sé ekki vænlegasta
leiðin til þess að auka framleiðslu
og tryggja réttláta tekjuskipt-
ingu, né heldur að miðstýrð alls-
herjaráætlunargerð sé likleg til
þess aö tryggja hina hagkvæm-
ustu notkun framleiðsluafla þá
framleiðslu, sem sé i nánustu
samræmi við óskir neytenda, og
þá tekjuskiptingu, sem talin verði
réttlátust. Reynsla kommúnista-
rikja i A-Evrópu virðist og hafa
orðið einmitt þessi. Þar hafa
komið margskonar ágallar i ljós
á hinni algeru þjóðnýtingu, sem
þar hefur verið framkvæmd, og
hinni miðstýrðu allsherjar-
áætlunargerð, sem beitt hefur
verið. Þess vegna hafa sum
kommúnistarikjanna vikið i
verulegum atriðum frá hinum
gömlu kenningum, svo sem Júgó-
slavia, það er kunnara en frá
þurfi að segja, að stjórnendur
Tékkóslóvakiu vildu á sinum tima
hverfa frá þessum hugmyndum i
verulegum atriðum, en fengu þvi
ekki ráðið vegna erlendra af-
skipta. í Sovétrikjunum sjálfum
ereinnig rætt um áberandi ágalla
á allsherjarþjóðnýtingunni og
hinum miðstýrða áæflunar-
búskap þar i landi og ýmsar
hugmyndir uppi um breytingar.
Skoðanir jafnaðarmanna um
viða veröld eru nú yfirleitt á þá
lund að i þjóðfélagi, sem búa eigi
þegnum sinum sem bezt lifskjör
og sem mest réttlæti i efnahags-
málum og eigi þvi skilið nafnið
velferðarriki, eigi rekstur at-
vinnufyrirtækja sumpart að vera
i höndum opinberra aðiia, þ.e.
rikis og sveitarfélaga, sumpart i
höndum sam vinnufélaga og
sumpart i höndum einkaaðila.
Siðan eigi rikisvald og opinberar
stofnanir að hafa aðstöðu til þess
að hafa heildaráhrif á það, hvern-
ig framleiðsluskilyrðin eru hag-
nýtt og hvernig þjóðartekjum er
skipt, með heildaráætlunargerð,
sem sé leiðbeinandi fyrir alla at-
vinnustarfsemi, og með stefnu
sinni i fjármálum rikisins og
bankamálum, jafnhliða þvi, sem
almannatryggingakerfið og
skattakerfi sé beitt til réttlátrar
tekjujöfnunar, auk þess sem hið
opinbera telji það skyldu sina að
sjá borgurunum fyrir fullkominni
heilsugæzlu, og sem mestri
menntun, sem auðveldustum að-
gangi að hvers konar menningar-
verðmætum og skilyrðum til heil-
brigðs lifs á öilum sviðum.
Auðvitað er hér um að ræða
markmið,sem ekki er auðhlaupið
að ná, en jafnaðarmenn telja þó
að keppa beri að.
NÚ FAUK VARAFORMAÐURINN!
Það er synd að segja, að það sé
ekki fjörugt félagslifið hjá Félagi
frjálslyndra i Reykjavik þessa
dagana. Fyrst samþykkir félags-
fundur að vikja Bjarna prófessor
úr formannssæti i félaginu og fela
varaformanni félagsins, Guð-
mundi Bergssyni, að gegna for-
mannsstörfum fram til næsta
aðalfundar. Siðan kemur stjórn
félagsins saman og samþykkir —
eftir að hafa samþykkt með rök-
studdri dagskrá (!) að gera Ingu
Birnu að fundarstjóra (Bjarni var
ekki mættur) — að vikja varafor-
manninum úr embætti þar sem
hann hefði „brotið þann trúnað er
stjórnin veitti honum” með þvi
að seilast til valda i félaginu. Eru
þá orðnir tveir formenn i Félagi
frjálslyndra i Reykjavik og tveir
varaformenn, þvi stjórnin kaus
Ottó J. Björnsson varaformann
eftir að hafa svipt Guðmund
Bergsson titlinum.
t nýútkomnu tbl. af Nýju landi
segir frá siðasta þætti þessarar
viðureignar um embættin með
svofelldum orðum:
Stjórnarfundur i SF i Reykjavik
varhaldinn 2. marzsl. kl. 6e.h. að
Laugavegi 28. Rætt var um
fundarboð Guðmundar Bergsson-
ar til stjórnarfundar i SF kl. 9 um
kvöldið að Vonarstræti 8.
Samþykkti stjórnin að boða til
fundar kl. 9 um kvöldið að Vonar-
stræti 8. A þessum tima og þess-
um stað var svo settur fundur i
stjórn SF. Fundinn setti varafor-
maður SF. Guðmundur Bergsson,
þar sem formaður Bjarni
Guðnason var ekki viðstaddur.
Þá var samþykkt með
rökstuddri dagskrá að Inga B.
Jónsdóttir yrði fundarstjóri þessa
fundar. Las siðan ritari Brynjar
Viborg upp fundargerð siðasta
fundar (þ.e. fundarins kl. 6).
Stjórnarfundurinn samþykkti sið-
an að leysa Guðmund Bergsson
frá störfum varaformanns i
félaginu, þar sem hann hefði
brotið þann trúnað, er stjórn
félagsins veitti honum, þegar
hann i andstöðu við lög félagsins
(sbr. 4. gr. um stjórn og kosning-
ar og það ákvæði að stjórn félags-
ins skiptir með sér verkum),
reyndi að taka stjórn félagsins i
sinar hendur. Þess skal getið, að
Guðmundur Bergsson er vita-
skuld i stjórn félagsins áfram,
enda rétt til þess kjörinn.
Stjórn félagsins kaus siðan Ottó
J. Björnsson varaformann sinn.
FLOKKSSTARFIÐ
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Kvenfélags Alþýðuflokksins i
Hafnarfirði verður haldinn i Alþýðuhúsinu
miðvikudaginn 21. marz n.k. og hefst kl. 20.30.
Á DAGSKRANNI:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
12. Upplestur og kaffidrykkja.
STJÓRNIN
Laugardagur 17. marz 1973
©