Alþýðublaðið - 17.03.1973, Page 12
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
kL 1 09 3 Simi 40102.
SENVIBILASTÖOIN Hf
EG Ég auglýsi eftir úrrædum frá andstööuflokkunum.
Þaö nægja ekki tekjurnar af tóbakinu og bokkunum. Þaö þarf miklu meira til. Mörg eru okkar reikningsskil. Ég vildi ég væri kominn
AUG-
r ofan í Kiðagil.
LYSI Ég auglýsi eftir úrræöum frá ihaldinu og krötunum. Ég auglýsi eftir úrræðum á strætunum og götunum. Mega vera hvort heldur notuö eöa ný. Allt er hey harðindum í. Mínar eru áhyggjurnar þungar sem blý.
SKÆRIN Á LOFTI
Auðskilið...
„1 Ohiolögunum, sem eru
dæmigerð fyrir hin þrjú rikin
lika, var skilgreint hvaða morð
skyldu varða dauðarefsingu. Það
voru morð að yfirlögðu ráði og
fyrirfram skipulögö morð með
földu vopni eða ódæðisverk, þar
sem ákveðin skilyrði þyrftu að
eiga við, sem eitthvert eitt af sjo
tilteknum áfellandi atriðum og
ekki nein af þeim þrenns konar
kringumstæðum sem þykja geta
komið til greina. 1 slikum til-
vikum átti sem sé dauðarefsing
að verða sjálfsögð krafa sak-
sóknarans.” ... .
Visir
Orugglega ekki Þorsteinn...?
Vísir
Tilboð
Tilboð óskast i eftirtaldar bifreiðar í núverandi
ástandi eftir hjón:
SAAB 96, árgerð 1972
MOSKVITCH, árgerð 1971
-S-^QPA,^---- ároerð 1965.-
Moggi
) Hafnarfjörður fil sö/u|
Moggi
VEÐRIÐ
ÞÍÐVIÐRI-EN SÚLD
Þegar Alþýðublaðið hafði
samband við Veðurstofuna i
gærkvöld var helgarspáin
að skriða saman hjá þeim.
Við fengum þær upplýs-
ingar hjá þeim, aö gert væri
ráð fyrir suðlægri átt um
allt land i dag og á morgun
og þiðviðri a.m. k. sunnan
og austanlands. Skýjað
verður um mest allt land og
súld eða rigning öðru hverju
sunnanlands. Fyrir norðan
mun hann að öllum
likindum haldast þurr,
a.m.k. utan dyra.
' 5 I
„Hugsa sér. Orðinn
sextugur og ekki eitt
einasta grátt hár...”
SKALLI -
MERKI
KARL-
MENNSKU
Alltaf fjölgar þeim karl-
mönnum, sem hafa skalla og
ýmislegt bendir til þess, að
þeir fái nú skalla yngri að
árum, en áður var. Þetta segir
Hans-Otto Zaun, prófessor við
h á s k ó 1 a s j ú k r a h ú s i ð i
Hamborg.
Prófessorinn telur, að áður
en langt um liður muni allir
karlmenn vera nauðasköllótt-
ir. Hann bætir þvi við, að
skalli sé merki karlmennsku.
Fram til þessa hefur engin
árangursrik meðhöndlun
veriðtil við skalla. Meðöl, sem
fullyrt er um að geti endur-
iifgað rætur höfuðhára eða
geti komið I veg fyrir hárlos,
hafa að mestu leyti verið
gagnslaus.
Það nær ekki nokkurri átt, að
samfélagið liti á 1200 banaslys á
ári i umferðinni, sem
óhjákvæmileg „útgjöld” vegna
umferðarinnar. Það verður að
gera alvarlega tilraun til þess
að fá þessa tölu lækkaða, segir
Niels Klerk, hæstaréttarlög-
maður scm er formaður
klúbbanna öruggur akstur I
Danmörku, I viðtali við danska
blaðið Aktuelt.
— Staðreyndin er sú, scgir
Klerk, að úti um alla Danmörk
eru akandi likkistur. Við
hvetjum rikisvaldið til þess að
leggjasérstaka skatta á hættuleg
ökutæki, svo sem eins og sport-
bfla. Rikið á að leggja bann við
skráningu ökutækja, sem hafa
lélegan stýris- eða hemlunarút-
búnað. Vörubifreiðar og aftani-
vagnar eru dauðagildrur á þjóð-
vegunum. Krefjast ber, að
afturendar þessara farartækja
og höggvarar að framan séu
málaðir hvitir. Þar að auki á
rikisvaldið að afnema alla
skatta og gjöld á öryggisút-
búnaði, svo sem öryggisbeltum,
slökkvitækjum, hlifðarhjálmum
o.þ.h. segir Niels Klerk, hæsta-
réttarlögmaður.
LÍK-
KISTUR
í UM-
FERDINNI