Alþýðublaðið - 03.04.1973, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 03.04.1973, Blaðsíða 11
í SKUGGA MARÐARINS Saga ástar og örlaga eftir Victoriu Holt r/sx//?/' \ % ruóC S'o/n/ 2E//VS i//n 2E//VS RfíUíj HElDUR i(i R'ftN DÝR KAST HfiK/N ionisfí PÚKRR 'RKfíF IR V • LE/T SK/m á * ?L ULL MUP u/n > V/0 Kv/Elfí ufí Í BfíUU /R S/v2>. ELSKfí RE/Du KwD um ET- A/vT>/ K/y*/ M 'o-, v/iífí henni. bað var þetta stóra, mikla hús og nafnbótin. Sem barn hafði hún komizt i kynni við mikla fá- tækt. Hún óttaðist fátækt og þráði öryggi. Hún hlaut kennslu hjá frænku sinni sem var ströng og auðsýndi henni enga bliðu, og hún gerðist kennari. Það var hæpið lifsviðurværi —hún átti sifellt á hættu að missa stöðuna og lenda á yfirfullum vinnumarkaði. Hún fylltist lotningu yfir tign og mikilleik Whiteladies. Ég leit á Stirling og vissi að hann var að hugsa um Mörð. — Ég held að henni hafi þótt vænt um mig i fyrstu. Ég gæti trúað að hún hefði gifzt mér, en hún var farin að hjálpa Sir Hilary töluvert og gerði sér ljóst hve háðurhann var orðinn henni. Hún eygði möguleikana og þeir freist- uðu hennar og þannig varð þessi meinloka til. Lucie er ákaflega viljasterk kona, en löngunin eftir að eignast Whiteladies kom henni úr jafnvægi —■ og hún varð freist- ingunni að bráð. Eftir að hún hafði tekið fyrsta ógæfuskrefið, varð ekki aftur snúið. Með þvi að myrða lafði Cardew var hún orðin glæpakvendi og það sem hún var reiðubúin að gera átti sér engin takmörk. — Hún myrti móður mina, sagði Minta. — Og hún hefði drep- ið mig. Hversvegna? — Hún var lafði Cardew, en það var henni ekki nóg. Minta átti að erfa húsið. Eftir að Sir Hilary væri fallinn frá yrði hún aðeins ómagi án nokkurra yfirráða. Hún gat ekki hugsað sér það'. Ef hún eignaðist son yrði öðru máli að gegna. En Sir Hilary var aldraður maður?.. Ég var heillaður af Lucie og ég vissi ekki gð hún hefði framið morð. Druscilla er dóttir min. Það varð stutt þögn áður en hann hált áfram: — Hún þráði að eignast son. Reiði hennar yfir fæðingu Druscillu var mikil. En ekki vildi hún gefast upp. Hún var staðráðin i að eignast þennan son, sem gæti erft Whiteladies og komið i veg fyrir að það gengi til Mintu. En Minta giftist og Sir Hilary andaðist. Þá átti hún enga von nema i Druscillu, sem álitin var dóttir Sir Hilarys. Ef Mintu yrði rutt úr vegi . . . Hann lyfti höndunum hjálparvana. — Þið sjáið nú hvernig i öllu liggur. Alla sólarsöguna. Ég sver að ég gerði mér ekki grein fyrir hvernig var i pottinn búið fyrr en ég sá kettina i dag. Ég vissi að hún hafði þráð að eignast son svo hún gæti stjórnað húsinu i gegnum hann. Ég vissi ekki að hún hefði framið morð og ráðgerði annað. Það var ekki fyrr en i dag sem mér varð myndin að fullu ljós. Frú Devlin viðurkenndi aö Lucie hefði komið i gær og fært sér viský og að hún Askriftarsíminn er 86666 D' C_ o m s co 13 13 0 jazzBCLLeCtQkóLi Bónu A N N o ) líkcim/rcekk Nýr 6 vikna kúr i likamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri, nudd og sauna byrjaði mánudaginn 2. april. Nokkrir dag- timar lausir. Kennarar Bára Magnúsdóttir, Gerður Garðars- dóttir og Auður Valgeirsdóttir. Upplýsingar í sima 83730 frá kl. 1 — 5. jCKZBQLLQCtSkÓJ BÚPU TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiösla. Sendum gegn póstkröfu GUÐM. ÞORSTEINSSON gullsmiður, Bankastr. 12 UR UL SKAHIGCII’IR KCRNFLÍUS JONSSON SKÖIAVORDUSIIG.8 BANKASIRA TI6 Nýjasta IBM kúluritvélin, IBM 82C, býður yður upp á stórkostlega nýjung. IBM 82 C er með sérstökum leiðréttingarbúnaði. IBM 82 C leiðréttir villurnar með einföldum áslætti. Einn góðan veðurdag munu kannske allar ritvélar verða eins og IBM 82 C. IBM verður ávallt á undan með nýjungarnar! IBM 82 C er sýnd á sýningu okkar á Hótel Sögu. Sýningin er öllum opin frá kl. 17—19 þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Inngangur um aðaldyr. vwlí'^ SKRIFSTOFUVÉLAR H F. + — -r ^ Hverfisgötu 33 ‘ X Simi 20560 - Pósthólf 377 Þriðjudagur 3. april 1973. o njpa no>i9qQ9iioqzzor

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.