Alþýðublaðið - 03.04.1973, Blaðsíða 1
ORSKURÐAOI BÖNDA ÖHÆFAN TIL
alþýöu AD ANNAST SKEPNUR
78. tbl.
Þriðjudagur 3. apríl 1973 54.' arg.
Bústofn bónda eins i
Borgarfirði, verður nú
annaðhvort slútrað eða
houum komið i umsjá
anuarra, samkvæmt úr-
slitakostum, sem sýslu-
maðurinn i Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu geröi
bóndanum á laugardag-
inn var. Úrskurðaöi
sýslumaður bóndann enn-
fremur óhæfan til að ann-
ast skepnur i framtiðinni.
Alþ.bl. hafði samband
viö Asgeir Pétursson,
sýslumann i gær, og sagði
hann að þetta væri gert á
grundvelli dýravernd-
unarlaga frá 1S57, og
hvgðist hann ennfremur á
grundvelli þeirra laga
höfða mál á hendur bónd-
anum fyrir misþyrming-
ar á dýrunum.
Asgeir sagði, að um
tima hafi verið vitað um
misbrest I búrekstri
bóndans, og þvi hafi hann
ákveðið að kanna málið á
laugardaginn.
Sýslumaður fékk með
sér Odd Rúnar
lijartarson dýralækni,
Jón Ottested hreppstjóra
og tvo forðagæzlumenn
hreppsins. Könnuðu
mennirnir ástand kúa og
kinda, sem reyndist vera
það alvarlegt að gripiö
var til þess ráðs að svipta
bónda öllum réttindum til
að annast dýrin ineira.
Jafnframt þessum aö-
gerðum, gerði sýslumað-
ur ráðstafanir til að afla
fóðurs og umhirðu fyrir
dýrin, á meöan beðið er
endanlegrar ákvörðunar
um framtið þeirra.
Ekki vildi Asgeir lýsa I
smáatriöum i hverju
misþyrmingarnar eöa
vanhirðan eru fölgnar.
Bóndi þessi hcfur búið á
jörðinni i fjölda ára, en
siöari ár hefur hann veriö
einsetumaður. —
'SE OG HBR’ FYRIR SIÐANEFND
„GOSIÐ
SÉR-
STAKT
HAPP!"
FJÓRIR
í EINNI
BENDU
Konan, sem ók jeppan-
um, var heldur óheppin
þegar hún ætlaði að beygja
af Lækjargötunni inn i
Vonarstrætið I gær. Ekki
tókst betur til en svo, að
hún ók fyrst aftan á bil og
siðan framan á annan, og
þó lenti fjóröi billinn aftan
á honum.
Engan sakaði en bilarnir
skemmdust allir meira eða
minna.
Flugfélögin
enn ekki á
eitt sátt
Islenzku flugfélögin hafa
enn beðiö um frest til að
gefa svör um eignarhlutföll
i hugsanlegu sameignar-
félagi þeirra. Þær
upplýsingar fengust hjá
samgönguráðuneytinu i
gær, að fundur yrði með
Loftleiðamönnum fyrir
hádegi á fimmtudag, og
siðan með Flugfélags-
mönnum eftir hádegi á
föstudaginn.
1 ráði er að fá lán hjá
Alþjóðabankanum til
þess aö koma upp viðlegu
plássi fyrir 100 fiskibáta
við suðurströndina, og
fyrir viku komu hingað til
lands þrir hafnarmála-
sérfræöingar frá bankan-
um til að kanna mögu-
leika á slikum fram-
kvæmdum. Að þvi er Al-
þýðublaðið hefur fregnað
munu einna mestar likur
á, að farið verði þá leið að
stækka höfnina i Þorláks-
höfn. Þessi ætlun hefur
vakið mótmæli annarra
sveitarfélaga.
Þór Hagalin sveitar-
stjóri á Eyrarbakka,
sagði i viðtali við blaðið i
gær, að „keyra eigi i gegn
teikningar af stækkun á
Þorlákshöfn þrátt fyrir
þá staðreynd, að i fyrra
þurfti að aka helmingi
þess afla, sem þar kom á
land, til Heykjavikur”. Á
Eyrarbakka sagði Þór,
er, hægt að taka á móti
mun meiri afla en i Þor-
lákshöfn. A Eyrarbakka
eru tvö frystihús og þrjár
fiskverkunarstöðvar á
móti aðeins einu frysti-
húsi i Þorlákshöfn. Auk
þess eru möguleikar á
talsverðri stækkun frysti-
húsanna á Eyrarbakka.
Hafnargerð austan ölf-
usár sagði Þór, að kæmi
að meira gagni, þar sem
á þvi svæöi eru 3500 ibúar
á móti 570 vestan árinnar.
100 báta viðleguhöfn fyrir
lánsfé úr Alþjóðabankanum
HAFÐIKYNMÖK VID13 ÁRA STÚLKU
Nitján ára maður hefur
viðurkennt að hafa átt
ólögleg mök við 13 ára
stúlku aðfaranótt sunnu-
dagsins, en stúlkan fannst
fáklædd og ofurölvi heima
hjá honum. Maðurinn var
látinn laus i gær, en mál
hans sent saksóknara til
ákvörðunar.
Stúlkan sem er i vist á
upptökuheimilinu i Kópa-
vogi, fékk að fara i Tónabæ I
meö nokkrum öðrum ung-
lingum af heimilinu. Til
þess var ætlazt að ungling-
arnir héldu sig þar, en
stúlkan hvarf burt og fór I
með hópi ungs fólks i
heimahús, og hóf þar
drykkju.
Þegar stúlkan kom svo
ekki fram á heimilinu, eins
og hinir unglingarnir, var
farið að athuga með ferðir
hennar. Vinkona hennar
gat bent á hugsanlegan
dvalarstað og þar fannst
stúlkan ofurölvi og
fáklædd.
Einar Valur Bjarnason,
yfirlæknir i Vestmannaeyj-
um, hyggst kæra danska
blaðamanninn Erik Haaest
fyrir siðanefnd danska
Blaðamannafélagsins. Til-
efnið er viðtal sem þessi
blaðamaður tók fyrir Se og
Hör, þar sem Einar Valur
er meðal annars látinn lýsa
yfir að eldgosið i Heimaey
hafi verið sérstakt happ
fyrir lsland! Er annað i
viðtalinu i sama dúr.
„Þetta er makalausasti
þvættingur sem ég hef les-
ið. Allt sem i viðtalinu
stendur er hrein lygi, og
maðurinn gerir þar sinar
eigin furðuskoðanir að
minum”, sagði Einar Val-
ur er blaðið náði tali af hon-
um i Vestmannaeyjum i
gærkvöldi.
Tilefni þessa viðtals er
það, að Einar Valur var
fyrir nokkru á ferð i Dan-
mörku. Ritsau fréttastofan
lét þau boð út ganga að
blaðamenn gætu hitt hann
aðmálii Domus Technica i
Kaupmannahöfn, og not-
uðu margir blaðamenn
þetta tækifæri, þar á meðal
fyrrnefndur Haaest. Kom
fljótlega i ljós að hann hafði
nokkuð einkennilegar
skoðanir á hlutunum til
dæmis þær að eldgosið væri
sérstakur ávinningur fyrir
Island. Fór mikill timi i það
hjá Einari Val að leiðrétta
manninn.
Það virðist þó ekki hafa
borið mikinn árangur þvi i
Se og Hör birtist nokkru
siðar áberandi grein vel
myndskreytt undir heitinu
„Náttúruhamfarirnar,
ávinningur fyrir Island”.
„Þvi miður birtist grein-
in ekki fyrr en ég var farinn
frá Kaupmannahöfn, og þvi
gat ég ekki komið leiörétt-
ingum á framfæri strax.
En ég hef nú gert ráðstaf-
anir til þess að maðurinn
verði kærður fyrir siða-
nefnd danskra blaða-
manna, en hann mun vera
alþekktur i Danmörku, og
það ekki af öllu góðu”,
sagði Einar Valur.