Alþýðublaðið - 03.04.1973, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 03.04.1973, Blaðsíða 9
íþróttir 2 LANDSFLOKKAGLÍMAN 1973: PETUR SIGURVEGARI Ingi Þ. Yngvason úr Mývatnssveit kom á óvart I Landsflokka- glimunni á sunnudaginn, er hann bar sigur úr bytum i þyngsta flokki, og hlaut hann enga byltu. Var sigur Péturs mjög verðskuld- aður, þvi hann lagði að velli ekki ófrægari glimumenn en Jón Unn- dórsson KR og Sigurð Jónsson Vikverja, sem hefur verið ósigrandi i vetur. Ingi gerði jafnt við tvíburabróður sinn Pétur. Þátttakcndur voru alls 3J, langflestir i piltaflokkunum, enda reyndust glimurnar i þeim flokkum skemmtilegastar. Þar var tekið á af gleði og léttleika. Athyglisverð er þátttaka unglinga af landsbyggðinni, og gefur það fyrirheit um að góðra glimumanna sé þaöan að vænta i framtiðinni. 1. flokkur: 1. Ingi Þ. Yngvason HSÞ 2 1/2 vinning. 2. Jón Unndórsson KR 1 1/2 vinning. 3. Sigurður Jónsson Vikverja. 1 + 1 v. 2. flokkur: 1. Gunnar Yngvarsson Vikv. 3 1/2 v. 2. Omar Úlfarsson KR 3 v. 3. Hjálmur Sigurðsson Vikv. 2 1/2 v. 3. I'lokkur: 1. Guðm. Freyr Halldórsson A 3 v. 2. Rögnvaldur ólafsson KR 2 v. 3. Þorvaldur Aöalsteinss. ÚIA 1 V. únglingaflokkur: 1. Guðmundur Einarsson Vikv. 2 1/2 v. 2. Halldór Konráðsson Vikv. 2 • v. 3. Óskar Valdimarsson Vikv. 1 v. Drengjaflokkur: 1. Haukur Valtýsson HSÞ 10 1/2+1 v. 2. Þóroddur Helgason UIA 10 1/2 + 0 v. 3. Eyþór Pétursson HSÞ 10 v. Sveinaflokkur: 1. Marinó M. Marinósson UIA 1 v. 2. Auðunn Gunnarsson UtA Ov. II* Þeir Jón únndórsson (t.v.) og Sigurður Jónsson voru fyrir- fram álitnir sigurstranglegast- ir, en Ingi gerði sér litið fyrir og lagði þá báðat AUM FOR UNGLINGALIDA Það voru engar frægðarferðir sem islenzka unglingalandsliðin gerðu útum helgina. islenzku stúlkurnar stóöu sig ekkert lakar en við var að búast, en piltaliöið olli miklum vonbrigðum. Það varð i næst neðsta sæti og hlaut bara tvö stig, gegn Finnum, en tapaði öðrum leikjum. Það cr fyllilega timabær spurning hvort nægilega vel hafi verið unnið að undirbúningi liösins, einkum hvað varðar varnarleik- inn, sem var mjög ábótavant að þvi er virðist. Piltarnir: Það var ljóst strax á föstudags- kvöld að hverju stefndi þar. I fyrsta leik kvöldsins i Tyringen i Sviþjóð, milli Dana og tslendinga, sigruðu Danir örugglega 25:18. Siðan gekk þetta upp og niður, og aðeins einn leikur vannst i ferð- inni, gegn Finnum. Annars urðu úrslit leikja islenzka liðsins þessi: Ísland-Danmörk 18:25 Island-Noregur 13:16 tsland-Sviþjóð 14:16 tsland-Finnland 20:13 Sigurvegari i mötinu varð lið Danmerkur, þrátt fyrir tap gegn Svium i siðasta leik mótsins. Unnu Danir á betra markahlut- falli, en lokastaðan varð annars þessi: Danmörk Sviþjóð Noregur tsland Finnland 4301 79-56 6 4301 64-57 6 4211 49-54 5 4 1 0 3 65-70 2 4 0 1 3 52-72 1 Stúlkurnar: Stúlkurnar byrjuðu vel, unnu norsku stúlkurnar fyrsta kvöldið i Nyköbing. Þær norsku, sem voru Norðuriandameistarar, reyndust hafa slakað á, enda urðu þær neðstar. Okkar lið tapaði gegn Dönum og Svium, og hafnaði i næst neðsta sæti. Úrslit leikja liðsins urðu þessi: tsland-Noregur 13:12 tsland-Danmörk 7:12 tsland:Sviþjóð 8:10 Lokastaðan i mótinu var þessi: Danmörk 3 2 1 0 41-23 5 Sviþjóð 3120 29-27 4 Island 3 1 0 2 28-34 2 Noregur 3 0 1 2 27-41 1 EinS og sjá má urðu Danir tvö- faldir Norðurlandameistarar, og er þetta mjög góður árangur hjá þeim. — SS. ' ' , HRAKFUR TOPPLIDANNA Toppliðin i ensku knattspyrnunni fengu herfilega útreiö á laugardaginn. Af sjö efstu liðunum vann aðeins West Ham, en Arsenal, Leeds og Ipswich máttu öll þola tap. Tap Arsenal kom þar mest á óvart, þvi liðið lék á heimavelli gegn Derby, sem hafði aðeins af einum útisigri að státa. A laugardags- morguninn léku Liverpool og Tottenham á Arnfield og skiidu jöfn 1:1. Livcrpool stendur því bezt að vigi I deildinni, og lik- lega endurheimtir félagið Englandsbikarinn i vor. Leikur Liverpool og Totten- ham fór fram á Arnfield i Liverpool klukkan 11 að morgni.Var þetta vegna þess að Grand National veðreiö- arnar fóru fram I Liverpool siðdegis, og ekkert þýðir að vera með knattspyrnuleik á sama tima. 48.477 áhorfendur fengu að sjá góðan leik, einkum af hálfu heimamanna. Tottenham, sem ekki hefur unnið á Arnfield i 61 ár, tók forystuna með marki Alan Gilzean á 21. minútu. Liver- pool sótti allt hvað af tók en ekki vildi knötturinn i netið. Jafnvel tvær vítaspyrnur þeirra Keegans og Tommy Smith fóru i súginn, þvi Pat Jennings varði þær báðar. Hann átti algjöran stjörnuleik i marki Tottenham, og hefur þarna sannað það sem margir hafa haldið, að hann sé nú bezti markvörður heimsins. Pat Jennings gerði sér litið fyrir og varði tvær vitaspyrnur i leik Tottenharii og Liverpool. Þessi geðþekki markvörður er nú líklega sá bezti I heimi. Við munum vel cftir honum frá þvi hann lék-hérgegn Keflvikingum um árið. Þá vakti það helzt athygli að Ólí.fi Júliussyni skyldi takast að skora hjá honum mark, en það er mjög sjaldgæft. En á 70. minútu fundu heima- menn loksins leiðina i netið, og var Kevin Keegan þar að verki. Arsenal varð fyrir miklu áfalli strax eftir eina og hálfa minútu, þegar hinn 17 ára framherji Derby, Steve Powell lék Frank McLintock anzi grátt og skoraði. Þetta reyndist . nægja, og Derby fékk þarna tvö óvænt stig. Vörn Derby gaf ekkert eftir i leiknum, og i framlín- unni var Kevin Hector stór- hættulegur. Ef Arsenal hefði sigrað, væri liðið nú á toppi 1. deildar, en þetta óvænta tap rýrir mjög möguleika liðsins á sigri i 1. deild. Malcolm Allison er skrýtinn náungi. Undir hans stjórn hefur allt gengið á aftur- fótunum hjá Manchester City að undanförnu. Og daginn eftir að hann fór frá félaginu, náði það sinum bezta leik i vetur, og sigraði Leeds verð- skuldað 1:0. Leeds lék á hálfu gasi eins og sagt er, enda virðist svo sem leikmennirnir ætli að einbeita ser að bik- arnum. Sigurmarkið kom á 83. minútu, og var þar að verki útherjinn Tony Towers. En þætti Allisons er ekki lokið. Nærvera hans hjá Crystal Palace hafði heldur betur áhrif, þótt stutt væri, og Crystal Palace tókst loksins að ná því marki að sigra annað Lundúnarlið I 1. deild, en það hefur ekki tekizt slðan liðið kom upp 1969, eða I 32 leikjum. Fórnarlambið var i þetta sinn Chelsea. Crystal Palace var ætið hættulegra liðið, og Don Rogers skapaði stórhættu i hvert sinn sem hann snerti knöttinn. Ian Philips skoraði á 30. minútu, og nýliðinn Jimmy Cannon skoraði I siðari hálfleik. Aður en lengra er haldið, er rétt að lita á úrslitin i 1. og 2. deild. 1. deild: Arsenal—Derby 0:1 Coventry—Ipswich 2:1 C.Palace—Chelsea 2:0 Leicester—Newcastle 0:0 Liverpool—Tottenham 1:1 Manch. City—Leeds 1:0 Norwich—Birmingham 1:2 Southampton—Manch. Utd. 0:2 Stoke—WBA 2:0 West Ham—Everton 2:0 Wolves—Sheff. Utd. 1:1 Blackpool—Hull 4:3 Brighton— Preston 2:0 Carlisle—Luton 2:0 Fulham—Cardiff 1:1 Huddersf.—Millvall 1—0 Nottm. For.—Burnley 3:0 QPR—Portsmouth 5:0 Sheff. Wed.—Orient 2:0 Sunderland—Bristol C 2:2 Swindon—Middlesbro 1:0 2. deild: Aston Villa—Oxford Ipswich varð að þola annaö tapið i röð á laugardaginn, og veröur liðið að taka sig á, ef það ætlar ekki að missa af Evrópukeppninni i ár. Brian Alderson skoraði á 30. minútu, og annað mark Coventry gerði Colin Stein. Eins og sjá má, töpuðu Nor- wich og West Bromwich sinum leikjum, og fer staða þessara tveggja liða að verða erfið úr þessu. Norwich tapaði heima fyrir Birmingham, og er Birmingham þar með sloppið. Norwich hefur gengið hörmulega á þessu ári, en hjá liðinu er samt engin uppgjöf, það kom greinilega fram I við- tali við stjórnarformann þess i BBC á laugardaginn. ,,Við föllum ekki”, varð honum að orði. Stoke tók einnig skref fjær falli með þvi aö sigra West Brom 2:0. Jimmy Greenhoff skoraði á 69. mlnútu og Geoff Framhald á bls. 2 Liverpool efst Þriðjudagur 3. april 1973. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.