Alþýðublaðið - 03.04.1973, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 03.04.1973, Blaðsíða 12
KOPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7, nema laugardaga til kl. 2, sunnudaga milli kL ' °9 3 Simi40102. SENOIBILASrÖOIN Hf SOLUVON A 60 HUSUM OG FRAMLEIÐSLAN ÞÚ EKKI HAFIN Húseiningar hf. sem er félag 20 Siglfirðinga, hefur fengið húsakynni Tunnuverksmiöju rikisins i Siglufirði og mun hefja framleiöslu timburhúsa með vorinu. Hafa fyrirtækinu borizt fyrirspurnir um allt að 60 hús frá sveitarfélögum á Aust- fjörðum og einnig hafa Vest- firðingar sýnt mikinn áhuga á framleiðslunni. Beinn stofn- kostnaður fyrirtækisins er áætlaður um 22 millj. kr. Alþýðublaðið ræddi i gær við Hafstein Ólafsson, stjórnarfor- mann Húseininga hf., sem sagði að húsin yröu „30-40% ódýrari en hér hefur verið byggt um áratuga skeiö”. Framleiddar verða einingar af ákveðinni stærð, sem siöan veröa settar saman á byggingarstað og má gera þaö á marga vegu. Stærðir eining anna eru um 130 sm breiðar, og aðallega i þrem gerðum: 1) Heilklæddur veggur, 2) glugga- eining með breytilegum rúðu- stærðum, 3) hurðaeining, þ.e. aðalhurð, bakhurö, og svala- eöa bakhurð. Allar einingarnar verða fullklæddar og einan- graöar með isettum huröum og gleri. Milliveggir eru einnig aðallega af einni stærð, og getur áferö þeirra veriö með viðar- spæni eða grunnmálningu, sem byggjandinn fullgengur frá sjálfur, annað hvort með máln- ingu eða veggfóöri, eða á enn annan hátt eftir persónulegu vali. Innihurðir eru fullfrá- gengnar eftir vali i milliveggja- einingum. Loft — og gólf- einingar eru af einni og sömu stærð með ýmsum áferðum. Upphitun fer eftir vali og aðstæöum á hverjum stað. Skápa og aðrar innréttingar verður reynt aö fá frá öðrum fyrirtækjum. Vatnskápa þessara húsa getur verið af GAFL (SVEFNDEILD) ýmsum gerðum og margs konar útliti eftir smekk. Þegar teikning aö húsi hefur verið gerö aö óskum kaupanda með hliðsjón af hinum fjölda- framleiddu einingum, eru einingarnar færöar inn á töflu, sem framleitt er eftir. Sam- kvæmt henni er svo húsið afgreitt frá verksmiðjunni. Meö þessu framleiðslukerfi er siðar unnt að bæta einingum við upphaflega byggð hús, og þannig hægt að stækka þau til samræmis við þörfina fyrir aukið húsrými. SVONA FOR OM SJOFERO ÞA Flækjan losnaði úr skrúfu Bdkkafoss — en flæktist í skrúfu björgunarskipsins, sem rak upp í kletta Viö strand Valþórs GK I Kefla- vík á dögunum virðist gangur mála hafa verið hinn sérkennileg- asti. Við sjópróf kom fram, aö Keflavikurhöfn, þvi skipið haföi fengiðeitthvað ískrúfuna. Valþór var fenginn til hjálpar, þar sem vindur var mikill og hætta á aö Bakkafoss rækist á hafnargarð- inn. I þann mund er Valþór nálg- aðist Bakkafoss, losnaði aðskota- hluturinn úr skrúfu Bakkafoss, en um leið fær Valþór nylontóg i skrúfuna, með þeim afleiöingum að bátinn rak upp i fjöru og er hann nú talinn ónýtur. Að sögn Sigurðar Halls Stefáns- sonar hjá bæjarfógetanum i Hafnarfiröi, kom það fram við sjóprófin, að tóg það, sem kom i skrúfu Valþórs, var sams konar og týnzthafði af Bakkafossi þenn- an sama dag. Ekki hefur verið sannað að um sama tóg sé að ræða, en þó eru sterkar likur á þvi I frétt um þennan atburð I Suöurnesjatiðindum segir, að Nú telur Tjallinn sig vera kom- inn með mótleikinn við viraklipp- um islenzku varðskipanna, en það eru tunnur, sem þeir draga á eftir togurunum i kaðli eða vir. Ekki hefur þó enn reynt á mátt vopns- ins, þó varðskip hafi reyndar skorið á togvíra togarans Ross margir skipverja af Valþóri hafi veriö i lúkar er óhappið gerðist og horft þar á kvikmynd i banda- riska sjónvarpinu. Hafi myndin Resolution um fjögurleytið i gær, en að þvi er Hafsteinn Hafsteins son, blaðafulltrúi Landhelgis- gæzlunnar, sagöi við Alþýðublað- ið i gær, var togarinn ekki með slikan útbúnað. Ross Revenge var aö veiöum 5,5 sjómilur fyrir . verið svo spennandi, að einn skip- verja horföi á hana allt til loka, og var báturinn þá kominn upp i klettana! innan við landhelgismörkin, suö- austur af Hvalbak, þegar skorið var á virana. Klukkan 18,40 i gærkvöldi gerð- ist það, að dráttarbáturinn Englishman geröi tilraunir til aö sigla á varðskip suðaustur af Hvalbak, og var þá skotið tveim- Þess skal getið, að þessi saga kom ekki fram við sjóprófin, að þvi er Siguröur Hallur tjáði blaö- inu i gær. ur púðurskotum frá varðskipinu. Þegar dráttarbáturinn lét ekki segjast var skotiö kúluskotum fyrir framan hann, en i þvi bar að fjóra brezka togara til hjálpar. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir tókst þeim ekki að sigla á varð- skipið. Kennarar leggjast gign lengingu skóla- skvldu Mikill meirihluti kennara á Vesturlandi er mótfallinn leng- ingu skólaskyldunnar i niu ár, eins og gert er ráð fyrir i nýja grunnskólafrumvarpinu, sam- kvæmt skoðanakönnun, sem gerð var nýlega að tilhlutan Kennara- sambands Vesturlands, og náði til 120 kennara. 87% þeirra kváðust ýmist mótfallnir lengingu skóla- iskyldunnar eða töldu hana aðeins framkvæmanlega að undan- gengnum gagngerum breytingum á skólahaldi á grunnskólastigi. Einnig kémur fram gagnrýni á að gert skuli ráð fyrir 6 daga kennsluviku, þegar 40 stunda vinnuvika hefur verið lögleidd. Kennarasamband Vesturlands skipaði „Grunnskólanefnd” til að annast könnunina og vinna úr henni, og segir m.a. i niðurstöð- um hennar, að eftir 27 ár hafi ákvæði fræðslulaganna um átta ára skólaskyldu ekki komizt i framkvæmd, og þvi sé ekki að undra þótt kennarar séu tor- tryggnir á framkvæmd nlu ára skólaskyldu. 1 niðurstöðum nefndarinnar segir ennfremur, að niu mánaða skólahald i dreifbýli sé óraun- hæft, og undanþáguákvæöiö sem fjallar um þetta, sé hvimleitt. Könnunin leiddi einnig i ljós, að mörgum atriðum frumvarpsins er fagnaö. Þar á meðal er sú stefna, að flestir nemendur geti sótt skóla frá heimilum sinum, skiptingu landsins i sjálfstæð fræðsluumdæmi, aöild lands- hlutasamtaka sveitarfélaga aö skipulagningu og rekstri skóla, ákvæði um endurmenntun og or- lof kennara, ákvæði um ráðgjaf- ar- og sálfræöiþjónustu, ákvæði um skólabókasöfn og lesstofur nemenda, skýrum ákvæðum um skyldu ríkisins til greiðslu launakostnaðar vegna kennslu i grunnskóla og einfaldari reglna um þau atriði og ákvæöi um ákveðið fjármagn til félagslifs nemenda. Samkomulag í loftinu Komið hefur verið i veg fyrir fargjaldastrið á flugleiðum yfir Noröur-Atlanzhafiö þetta ár. Nýtt fargjaldaár byrjaði 1. april, en innan IATA, alþjóðasambands- flugfélaga náðist samkomulag um að láta núgildandi fargjöld gilda út árið. Það var flugfélag Onassis skipakóngs, Olympic Airways, sem hafði hindrað samkomulag, en fullt samþykki allra félaga innan sambandsins þarf til ákvarðana um fargjöld og reglur þar að lútandi. Olympic hefur nú fallizt á þessa lausn. Hins vegar taka gildi 15. april nýjar reglur um sérstök auka- gjöld i einstökum löndum vegna gengisbreytinga, sem orðið hafa. HESTAMENN I STYMPINGUM Talsverö átök urðu milli yngri manna og eldri á aðalfundi hestamannafé- lagsins Fáks, sem haldinn var 29. marz sl. Yngri hestamenn fjölmenntu á fundinn og báru fram til- lögu um stofnun ,,yngri deildar" innan Fáks. Fundarstjóri, Páll S. Pálsson, hrl., taldi ekki unnt að taka þessa tillögu fyrir vegna lagaákvæðis um, að fimmtung félags- manna þurfi á aðalfund til lagabreytinga. Vildu þá yngri mennirnir ganga af fundi og fundarstjóri hótaði að segja af sér, ef fundarsköp fengju ekki að ráða. Loks var sætzt á að útkljá málið á framhalds- aðalfundi bráðlega. Á aðalfundinum gaf Sveinbjörn Dagfinnsson ekki kost á sér til endur- kjörs, en hann hef ur verið formaður Fáks síðustu 6 árin. I hans stað var kjör- inn Sveinn K. Sveinsson. Tjallinn beitir tunnum i skænahernaðinum

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.