Alþýðublaðið - 08.04.1973, Side 1

Alþýðublaðið - 08.04.1973, Side 1
BJARNI SIGTRYGGSSON: UM HELGINA MATSTOFA SEM ATTI BRYNT ERINDI VIÐ STREITUÞJÓÐFÉLAGIÐ Það sakna margir matstof- unnar þrifalegu, sem rekin var af Náttúrulækningafélagi ís- lands i húsi þvi er Hótel Skjald- breið var lengi starfrækt i. Ekki er mér kunnugt hvort rekstrarörðugleikar hafa átt einhvern hlut að máli, en sú skýring var gefin, að þarna stæði til að setja upp sérstakt mötuneyti fyrir alþingismenn. Nú er það bæði svo, að þing- mennirnir blessaðir eru ekki nema 60 að tölu, ásamt starfsliði þingsins er þetta vist um 70 manns, og eins hefur fjármála- ráðuneytið hugað að hagræð- ingu á sviði matargjafa til opin- berra starfsmanna. Hins vegar var matstofan, sem þarna var rekin orðin all- vinsæl og vel sótt — og heilsu- fræðilegt gildi hennar mun hærra en svo að réttlætanlegt væri að leggja hana niður. Skynsamlegt væri eflaust að finna henni nýjan stað, ekki fjarri miðborginni, þurfi Alþingi nauösynlega að nota húsnæðið. Matstofur af þvi tagi, sem Náttúrulækningafélagið rak i Kirkjustræti öðlast æ meiri vin- sældir i nágrannalöndunum. Danir kalla þetta „Helsemad” og Bandarikjamenn „Natural food”. Þær kenningar um mataræði, sem Jónas heitinn Kristjánsson boðaöi einna fyrst- ur hér á landi, eiga brýnt erindi við streituþjóöfélagið — og það er mikill missir af þeirri einu matstofu Náttúrulækningafé- lagsins, sem rekin var i borg- inni. •.v.v.v.v ssíís: í:¥::íí:¥: 1® .. y.y'.y.-.y.y'.-.y siii :::::::::::::::: llii il? ■ ííííííí mm íxWíí: ivXví;-:-:-: Sunnudagur 8. apríl 1973. 83. tbl. 54. ár<).

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.