Alþýðublaðið - 17.04.1973, Page 4
IÐNFRÆÐSLURÁÐ
TANNSMlÐI
Réttindaveitingar
Menntamálaráðherra hefur með reglu-
gerð nr. 323/72, samanber auglýsingu i 66.
tölublaði lögbirtingablaðsins 1972, gert
tannsmiði að löggiltri iðngrein.
Þeir einstaklingar, sem æskja réttinda i
tannsmiðaiðn skulu senda iðnskýrslur
ásamt tilheyrandi vottorðum til Lands-
sambands Iðnaðarmanna fyrir 1. mai n.k.
Iðnskýrslur eru afhentar hjá Lands-
sambandi Iðnaðarmanna og Iðnfræðslu-
raði.
Reykjavik 11. april 1973.
Iðnfræðsiuráð
Verkfræöingar,
tæknifræðingar
Njarðvikurhreppur óskar eftir að ráðatil
sin verkfræðing eða tæknifræðing sem
allra fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veita
undirritaðir á skrifstofu hreppsins á Fitj-
um eða i sima 92-1202.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf, sendist skrif-
stofu Njarðvikurhrepps fyrir 1. mai. n.k.
Njarðvik, 9. april 1973.
f.h. hreppsnefndar Njarðvikurhrepps,
llilmar Sigurðsson, verkfræðingur.
Jón Ásgeirsson, sveitarstjóri.
Frá Borgarhókasafni
Reykjavíkur
Borgarbókasafn Reykjavikur og öll útibú
þess verða að venju lokuð frá skirdegi til
annars páskadags að báðum dögum með-
töldum.
Frá mðnnum
og málefnum
Þegar
fuglinn
flýgur
fjaðra-
laus
Nokkur skortur virðist stund-
um vera á þvi að Háskóla ts-
lands sé sýnd nægileg virðing.
Og i ýmsu þvi strefi sem fylgir
hagsmunum áhrifahópa virðist
réttur hans alveg fyrir borð bor-
inn. Þetta er hættuleg þróun, þvi
alveg er sama hvaöa skoðanir
menn kunna að hafa á háskólan-
um yfirleitt, þá verður þvi ekki
neitað, að þar er um að ræða
æðstu menntastofnun þjóðar-
innar, og þar fyrirfinnast æðstu
kennarastólar hinna ýmsu
fræðigreina. Þvi má ætla að
OKKUR VANTAR
BLAÐBURÐAR-
FÓLK IEFTIR-
TALIN HVERFI
Laugarteigur
Laugarnesvegur
Rauðilækur
Blómvallargata
Hofsvallagata
Túngata
Garðastræti
HAFIÐ SAM- |
jBAND VIÐ AF-
GREIÐSLUNA
Áskriftarsíminn er
86666
} CRÉME
I FRAlCHE
MJOLKURSAMSALAN I REYKJAVIK
<JWeð ávóxtum í eftirrétti
Blandið smátt skornum ávöxtum og sjrð-
um rjóma í ábœtisglös. Frískandi eftir-
réttur, sem strax nœr hylli fjölskyldunnar.
s~nr
þegar gripa þarf til þess aí
halda uppi menningarlegum
fána tslands erlendis, sé fyrsl
leitað til þessarar æðstu mennta
stofnunar um slikan merkis-
bera.
Ekki er þetta nú alltaf svona,
og virðist stundum eins og ráða-
menn seilist um öxl til að geta
gengiðfram hjá háskólanum og
sýnt honum litilsvirðingu. Ber
að harma slik viðhorf, enda er
þá oftast verið að þjóna sjónar-
miðum litilsigildra manna, sem
varðar meira um sitt persónu-
lega skinn en það aimenna
menningarlega hlutverk, sem
okkur er skylt að rækja vegna
fortiðar og vegna þess dóms,
sem framtiðin veifar yfir höfð-
um vorum.
Tilefni þessarar orðræðu er
einkum og sér i lagi skipun
tveggja manna i samnorræna
dómnefnd, sem árlega á að út-
hluta bókmenntaverðlaunum
Norðurlanda. Til þess fulltrúa-
starfs voru valdir þeir Ólafur
Jónsson, gagnrýnandi (gagg-
ari) á Visi og Vésteinn Ólason,
sem er m.a. þekktur fyrir bók-
menntakynningar i sjónvarp-
inu, og hefur þar þrætt nokkurt
einstigi i átt til hinnar bók-
menntalegu alsælu og trúarfull-
nægju.
Sá háttur hafði áður verið
hafður á við skipun i þessa út-
hlutunarnefnd, að þar sat pró-
fessor i bókmenntum við Há-
skóla íslands, og þótti svo sjálf-
sagt, að enginn heilvita maður
hafi nokkuð við það að athuga,
þótt einstakir guðsgeldingar
bókmenntanna hefðu heldur
kosið að þar sætu ,,sinir menn”.
Er ætlan manna, að með hinni
nýju skipan hafi menntamála-
ráðherra farið að óskum þeirra,
m.a. til að valda þeim ekki sál-
rænum áföllum.
Nú verandi prófessor i bók-
menntum við háskólann er
Sveinn Skorri Höskuldsson. Að
þvi er manni skilst hefur hann
gengið nokkurra erinda fyrr-
greindra guðsgeldinga, en mið-
að við skipunina i hina sam-
norrænu bókmenntanefnd,
hefur þeim ekki þótt hann nógu
harður i útilokunum. Annars
skiptir bókmenntaleg afstaða
Sveins Skorra Höskuldssonar
engu máli i þessu tilfelli. Hann
situr æðsta kennarastól i is-
lenzkum bókmenntum, og
menntamálaráðherra bar að
skipa hann, sem slikan, annan
af tveimur til að taka að sér
fyrrgreint fulltrúastarf. Verður
ekki séð hvernig hægt var að
ganga framhjá Sveini Skorra
við þessa veitingu. Með skipan
hans hefðum við komið fram i
málinu með fullri reisn. Hins
vegar var tekinn sá kostur að
láta tvo fugla fljúga fjaðralausa
áhin samnorræna menningar-
vettvang.
Háskóla tslands bar rétturinn
i þessu máli. Menntamálaráð-
herra hefur látið véla um fyrir
sér, þegar sú ákvörðun var tek-
in að ganga framhjá prófessor i
bókmenntum við skipun i dóm-
nefndina. Sú sjálfsagða hefö
hafði skapazt að bókmenntapró-
fessor sæti i dómnefndinni, og
ekkert það hafði gerzt i millitið-
inni,sem réttlætti breytingu. Og
engum þýðir að ætla að halda
þvi fram að Sveinn Skorri hafi
ekki verið hæfur til starfans.
Hann er fremri þeim báðum,
sem skipaðir voru, bæði að
menntun og viðsýni.
VITUS
+
Eiginkona min, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma
UNNUR SIGURÐARDÓTTIR
Skálagerði 5
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni, miðvikudaginn 18.
april kl. 1,30. Fyrir hönd vandamanna
Jóhanna Eiriksdóttir
Rögnvaldur Sigurðsson
Hjartanlegustu þakkir minar og fjölskyldu minnar, fyrir
samúð og vinarhug við fráfali eiginmanns mins
BJÖRNS PÁLSSONAR
flugmanns
Sveina Sveinsdóttir
MELAVÖLLUR l-U'
þriöjudaginn 17. apríl kl. 19.00.
ÞRtiTTUR - I.B.V.
Mótanefnd
M/S „Gullfoss”
Fer frá Reykjavik miðvikudaginn 18. april
til ísafjarðar.
Vörumóttaka á mánudag 16. april og til
hádegis þriðjudag 17. april I A-skála 3.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Þriðjudagur 17. april 1973.