Alþýðublaðið - 17.04.1973, Side 12

Alþýðublaðið - 17.04.1973, Side 12
alþýóu m\m Auglýsingasími Alþýðublaðsi ns er 86660 KQPAYOGS APÚTEK Opið öll kvöld til kl. 7, nema laugardaga til kl. 2, sunnudaga milli kl. 1 og 3.s|m-|40102i Bobby Charlton hættir Enn eitt gamalt hús féll i gær fyrir „kúlunni”, sem svo oft er notuð til að fullnægja dauða- dómum af þessu tagi. Húsið, sem þarna féll var Tunga við Laugaveg, sem margir kannast við. Tunga var eitt af Reykja- vikurbýlunum, og síðasti bónd- inn þar var Guðmundur Olafs- son, Guðmundur i Tungu, og þegar árið 1943 flýði hann um- feröina og reisti sér annað bú inn við Elliðavog. sem hann skýrði Elliðatungu. Þetta hús þótti veglegt á sin- um tima, þegar Helgi i Tungu Ein og hálf milljón í starfslaun listamanna 48 KALLAÐIR -8 UTVALDIR Það er greinilegt, að islenzkir listamenn hafa ýmislegt i bígerð, ef dæma má af eftirsókninni i starfslaun listamanna, sem nú hefur verið úthlutað í fimmta sinn. 48 listamenn sóttu um en ekki var unnt að veita nema átta listamönnum laun. Upphæðin, sem úthlutað var er 1.5 milljónir króna, og fær hver listamaður mánaðarlaun sem svara byrj- unarlaunum menntaskólakenn- ara. Þeir sem fengu starfslaunin eru: Borgar Garðarsson leikari i eitt ár, Hildur Hákonardóttir, listvefari i eitt ár, Einar Bragi rithöfundur i 9 mánuði, Jóhannes Helgi rithöfundur, i sex mánuði, Eyborg Guðmundsdóttir listmál- ari i þrjámánuði, Eyjóifur Einarsson listmálari i þrjá mánuði, Jónas Tómasson, tón- skáld i þrjá mánuði og Ólafur Haukur Simonarson, rithöfundur i þrjámánuði. Borgar hlaut starfslaunin til að fara til náms og starfs hjá Lilla Teatern i Helsingfors, Hildur til að vefa teppi, sem sýnir stöðu konunnar i þjóðfélaginu i dag, Einar Bragi til að rita heimildar- sögu um selstöðukaupmanninn Georg Andrés Khyn, sem galt fyrir hugsjónir sinar um frjálst framtak einstaklingsins með 25 ára fangelsi, Jóhannes Helgi til að rita leikrit, Eyborg til að vinna að málaralist og undirbúa sýn- ingu, Eyjólfur til hins sama, Jónas til að vinna að hljóm- sveitarverki og Olafur Haukur til að vinna að skáldsögu — hún fjallar um „útbrot úr borgaralegu lifsmynztri, umhverfi, sem stenzt ekki lengur”. reisti það, en undanfarin ár hef- ur verið litil reisn yfir þvi — það má segja, að það hafi kafnað þarna fyrir framan stórhýsið, sem er risið á Tungutúninu, þar til það varð alveg að láta i minni pokann fyrir nýja timanum i gær. DAUÐADOMI FULLNÆGT LITAREFNI VHI STIMPLUN KJÖTS BANNAD VEGNA KRAB8AMEINSHÆTTU Rauðbleika litareí'nið, sem árum saman hefur verið notað við gæða- stimplun á kjöti og til þess að lita ýmis fæðu- efni, svo s$m eins og rjómais, hefur nú verið bannað af bandariskum stjórnvöldum. Niður- stöður rannsókna á efn- inu, sem gerðar hafa verið i Japan, benda til þess, að það kunni að geta valdið krabba- meini. Bandariska Matvæia- og lyfjastofnunin aftur- kallaði i byrjun þessa mánaðar notkunarleyfi sitt á litarefninu ,,Fjólu- blátt nr. 1”, en notkun þess hefur verið leyfð i USA siðustu 22 árin. Talsmenn stofnunar- innar sögðu, að komið hefði i ljós i tilraunum i Japan, að rottur, sem fengið hefðu efnið i 5% fæðu sinnar hefðu sýnt merki um krabbamein á byrjunarstigi. Landbún- aðarráðuneytið banda- riska tilkynnti, að fram- vegis myndu önnur litarefni verða notuð af starfsmönnum þess við gæðastimplun á kjöti. Knattspyrnukappinn heims- kunni Bobby Charlton, til- kynnti i gærkvöld að hann hygðist leggja knattspyrnu- skóna á hilluna í vor. Charlton gaf jafnframt i skyn að hann hefði hug á að vera áfram i knattspyrnunni, og þá sem framkvæmdastjóri einhvers félags. Bobby er án efa einn þekktasti knattspyrnumaður okkar tima. Hann er bæði þekktur fyrir snilli sina og ekki siður prúðmennsku. Hann var einn örfárra leik- manna sem komust lifs af þegar Manchester United lenti i flugslysi við Munchen 1958. Saga ís- lenzkrar myndlist- ar frá upphafi Nú hefur Björn Th. Björnsson, listfræðingur, lokið þvi mikla verki að skrásetja sögu is- lenzkrar myndlistar frá upphafi og til okkar daga, eða nánar frá 16. öld og fram til þeirra lista- manna, sem kvöddu sér hljóðs árið 1947. Fyrra bindi verksins kom út árið 1964, en hið siðara var kynnt blaðamönnum i gær. Með þvi er lokið þvi verki, sem Ragnar Jónsson (i Smára) lagði drög að, þegar hann gaf Alþýðu- sambandi Islands stofninn að Listasafninu. Hann gaf fé til verksins og mælti svo fyrir að öllum ágóða skuli varið til efl- ingar safninu. Sambúð án hjúskapar veitir sama rétt til tryggingabóta Hjónabandið er ekki hið eina form sambúðar, sem tryggingar- löggjöf okkar viðurkennir, þvi i nýútkomnum bæklingi frá Trygg- ingarstofnun rikisins um bætur til ekkna, ekkla og einstæðra foreldra er svohljóðandi kafli: „Karl og kona, sem búa saman og eru bæði ógift, eiga sama rétt til bóta og hjón, ef þau hafa átt saman barn eða konan er þunguð af hans völdum eða sambúðin hefur varað samfleytt i 2 ár. Sama gildir um bótarétt þess, sem eftir lifir þegar hitt deyr”. Auk fyrrgreinds bæklings kom einnig út fyrir skemmstu bækl- ingur um slysabætur, og sagði örn Eiðsson, blaðafulltrúi Tryggingarstofnunarinnar að þetta væru fyrstu tveir af röð bæklinga, sem stofnunin hygðist gefa út til að auðvelda almenningi að átta sig á stöðu sinni og rétti til tryggingabóta — og fást bækling- arnir ókeypis hjá Trygginga- stofnunni. Bótaupphæðir þær, sem i bækl- ingunum eru skráðar, eru miðað- ar við 1. april.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.