Alþýðublaðið - 18.05.1973, Page 12
alþýðu
TRÚBROTS-
LAG Á
TOPPNUM
í AMERÍKU
Gunnar Þórðarson úr Trúbrot,
sem leikur nú með Rió trióinu,
varð heldur hlessa er hann kom
meö trióinu til borgar einnar i
miðrikjum Bandarikjanna fyrir
skömmu þvi þar könnuðust menn
vel við Gunnar og þótti fengur i
komu hans.
Gunnar vissi lengi vel ekki
hvaöan á sig stóð veðrið og hélt að
um einhvern misskilning væri að
ræða. Svo var þó ekki, þvi lagið
Down by the water, af Mandala
plötu Trúbrots, hafði verið þar
efst á vinsældalistanum i hvorki
meira né minna en þrjá mánuði,
og er það með mestu vinsældum,
sem eitt lag hefur hlotið þar i
borg.
BANASLYS
Á KEFLA-
VÍKURVEGI
Banaslys varð á Reykjanes-
braut i gærdag, er bill ók á 12 ára
dreng á reiðhjóli, með þeim af-
leiöingum að drengurinn lézt
samstundis.
Slysið varð um kl. 3 og átti sér
stað á móts viö afleggjarann að
Innri-Njarövik. Billinn og dreng-
urinn voru á sömu leið, en ekki er
fullljóst hvað olli slysinu.
ökumaður bilsins er Banda-
rikjamaöur, búsettur á Keflavik-
urflugvelli, en drengurinn var úr
Ytri-Njarðvik. Ekki er unnt að
birta nafn hans að svo stöddu. —
„Þegar maður sér þetta land,
þá skilur maður að þið
lslendingar lifið á sjónum og
verðið að fá ykkar 50 milna land-
helgi”, sagði einn brezkur blaða-
maður við blaðamann Alþýðu-
blaðsins i flugi meö Landhelgis-
gæzlunni . Orð þessi
lét Englendingurinn falla, þegar
flogið var norður yfir gráar
heiðar og þótti honum einsýnt, að
af gróðri jarðar yrði enginn
Islendingur feitur.
INNLÁNSVIÐSKIPTILEIÐ
^AJIL LÁNSVIÐSKIPTA
WIJNAÐARBANKI
m/ ÍSLANDS
KOPAVOGS APÚTEK
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
kl. 1 og 3.Sími40102>
HERFERÐ HAFIN
TIL HREINSUNAR
BORGARINNAR
Ryðguð hálfrifin bilflök
hverskyns járnarusl, annan
sóðaskap og loks stóran skita-
haug, getur að lita á svonefndu
Melavallarporti við Rauða
gerði, en börn úr nágrenninu
sækja i þannan stað til leikja
Sóðaskapur og hirðu-
leysi
Þetta er eitt af fjölmörgum
dæmum um sóðaskap og hirðu-
leysi, sem fréttamaður ljós-
myndari sáu á ferð sinni um bæ-
inn i gær i tilefni þess að fegr-
unarnefnd Reykjavikur hefur
nú hafið sumarstarf sitt.
Lóðahreinsunarfrestur en nú
einnig útrunninn, og eftir öllu aí
dæma, mun hreinsunardeild
borgarinnar hafa nóg að gera i
sumar, ef einstaklingar og
fyrirtæki taka ekki þegar við sér
við hreinsun og tiltektir.
Ljótar baklóðir
1 Múlunum, sem eru nú óð-
fluga að byggjast nýjum og
snyrtilegum iðnaðarhúsum, gal
að lita ótrúlegan sóðaskap á
baklóðum og virðast eigendur
þessara húsa nær undantekn-
ingarlaust ekkert leggja upp úr
bakhliðum fyrirtækja sinna.
Sem dæmi má nefna að á milli
SS við Grensásveg, og Fial
hússins við Siðumúla, var mikið
spýtnabrak og járnarusl
þóttnokkurár séu liðin frá þvi
að bæöi þessi hús voru reist.
Umhverfið er einnig ófrágengið
og óhrjálegt.
Undirstrika misræmið
Skaut nokkuð skökku við að
sjá gljáfægða bila i kring um
þessi hús, hvar sem sléttan blett
var að finna, en þeir undirstrik-
uðu misræmið i umgengnisvenj-
um manna, á áhrifarikan hátt.
A bak við Glófaxa og Jarðýt-
una s/f við Armúla var ekki feg-
urra um að litast. Þar var
járnaruslið öllu stórbrotnara á
óruddri og gróðurlausri lóðinni.
Bæði þessi hús eru búin að
standa þarna i mörg ár, en hinu-
megin við götuna er hús raf-
magnsveitunnar, sem er rétt
nýfrágengið, en þrátt fyrir það
er þegar búið að skapa þar hið
snyrtilegasta umhverfi með
grasi, trjágróðri og blómum.
ÞEIR ÞA
í HÖFN?
Úr þvi Einar Agústsson og sir
Alec Douglas-Home hittust ekki i
Strassbourg i gær, þá er ekki loku
fyrir það skotið að þeir eigi eftir
að hittast og eiga óformlegar við-
ræður i Kaupmannahöfn í næsta
mánuði, en þá er ráðgerður fund-
ur utanrikisráöherra NATO--
rikjanna.
Tillögur Henry Kissingers um
nýjan Atlanzhafssáttmála, sem
Nixon og Pompidou munu ræða
hér i Reykjavik um mánaðamót-
in, verða aðalumræðuefni ráð-
herrafundarins, en hann fer fram
14. og 15 júni.
Aðstoðarutanrikisráðherra
Bandarikjanna, Robert Hill,
sagði i gær að i hugmyndum Kiss-
ingers væri ekki gert ráð fyrir
breytingum á stofnsáttmála
NATO. ,,Það sem við viljum fá
fram eru umræður um nútima-
legra form bandalagsins”, sagði
hann.
„1 framtiðinni verða stórveldin
fimm i stað tveggja, Atlanzhafs-
bandalagsins og Varsjárbanda-
lagsins. Það verða Bandarikin,
evrópsk NATO-riki, Sovétrikin,
Kina og Japan”.
Magnús Kjartansson
ÁGREININGUR
BRETA ER
OKKUR (HAG
,,Þau vandkvæði sem Bretar
hafa lent i hér á fiskimiðunum
valda greinilega ágreiningi innan
þeirra raða. Það eru skiptar
skoðanir, hvernig bregðast eigi
við þessum vanda, og þessi
ágreiningur kemur nú fram alveg
opinskátt. Og auðvitaö styrkir
hann okkar stöðu, og sýnir að að-
gerðirokkar hafa verið árangurs-
rikari en margir hafa gert sér
ASMUNDUR ATTRÆÐUR A SUNNUDAGINN
„Ég er svo íslenzkur
tröllkarl í mér...
»f
,,Ég verð ekki heima á afmælisdag-
inn, þvi ég er á móti fyllerii og köku-
áti”, sagði listamaðurinn Asmundur
Sveinsson i stuttu spjalli við Alþ.bl. i
gær, en Asmundur verður áttræður á
sunnudag. ,,Ég er farinn að gefa mig
blessaður vertu”, sagði listamaður-
inn”. „Nú vil ég bara aö borgin og rik-
iðhirði allt saman fyrir mig. Og ég hef
von um að það takist á endanum. Þeir
eru til, sem vilja kaupa þetta allt til
Ameriku, en ég er á móti þvi. Ég er
nefnilega svo islenzkur tröllkarl i
mér”. Og þessu fygldi hressilegur
hlátur.
Nýjasta verk Ásmundar er „Ljóðið
til fjallkonunnar”, sem listamaðurinn
hefur gert til að minnast 1100 ára
byggðar á Islandi. „Þessa mynd vil ég
stækka”, segir hann, en ekki sagðist
hann hafa gert það upp við sig, hvar
hann vildi að hún stæði i framtiöinni.
„Það höfum við myndhöggvararnir þó
framyfir arkitektana, að við getum
látið flytja draslið til, ef okkur likar
ekki staðsetningin” bætti hann við og
hló.
1 tilefni afmælis listamannsins,
verður á sunnudaginn kl. 15 opnuð sýn-
ing á verkum hans og nokkurra nem-
enda hans i Asmundarsalnum.
grein fyrir,” sagði Magnús Kjart-
ansson ráðherra i gærkvöld.
Yfirvöld i Bretlandi þinguðu i
allan gærdag vegna ákvörðunar
brezku skipstjóranna, að þeir
myndu halda sig utan 50 milna
markanna, kæmi ekki til her-
skipavernd. I gærkvöld hafði eng-
in ákvörðun verið tekin, og frekar
er búizt við neikvæðum viðbrögð-
um brezkra stjórnvalda fyrst i
stað. Á meðan biða brezkir togar-
ar utan 50 milnanna þrátt fyrir
tilmæli útgerðarmanna og að-
stoðarskipa um að fara inn fyrir
50 milurnar aftur.
„Við Islendingar getum verið
þess ákaflega fullvissir, að viö
munum sigra i þessari viðureign.
Við höfum að visu ekki afl á við
Breta, kjósi þeir að beita sliku, en
timinn mun vinna með okkur og
almenningsálitið lika,” sagði
Magnús Kjartansson.
Það var i fyrrinótt, sem spurnir
bárustaf þvi, að brezku togararn-
ir væru að yfirgefa landhelgina.
Höfðu þeir gefið brezkum stjörn-
völdum frest til klukkan 4 þá um
nóttina, til að senda herskip á Is-
landsmið. Þegar það brást, héldu
þeir af miðunum
Vitað er um tvö brezk herskip
utan 50 milnanna undan Aust-
fjörðum. Heita þau Eric og Ply-
mouth. Hvorugt þeirra hafði af-
skipti af brezku togurunum i gær.
Var þó reynt að narra annað
þeirra til átaka, með þvi að
brezkt eftirlitsskip laug upp tog-
aratöku islenzks varðskips. Flaug
þá þyrla frá herskipinu yfir svæð-
ið til að kanna aðstæður, en sneri
siðan við.