Alþýðublaðið - 19.05.1973, Page 1
LEYNIUTVARPS-
MENNIRNIR EKKI
AF BAKI DOTTNIR
Nú hafa ungu ,,leyniútvarpsmennirn-
ir," sem reyndar eru sakamenn sem
stendur, í augum kerfisins, hrundið af
stað undirskriftasöfnun þar sem þeir
leita eftir aðstoð áhugafólks um „dæg-
urtónlist allan sólarhringinn."
Þetta er þeirra svar við málshöfðun
Landssímans, en á undirskriftaskjalinu
er gert ráð fyrir, að ríkisútvarpið setji á
stofn aðra útvarpsstöð, þannig að ekki er
um að ræða kröfu um breytingu á regl-
um um einkaleyfi ríkisins á útvarps-
rekstri.
Undirskriftalistum hefur þegar verið
dreift í hl jómplötuverzlanir í Reykjavík.
Áhugi á að fá
Alþýðuflokkinn í stjórnina
STEFNA
HANS
ÓBREYTT
Komiö hefur fram áhugi
af hálfu aðila i rikisstjórn-
inni um aö Alþýðuflokkur-
inn geröist aöili aö stjórn-
inni á grundvelli nýs mál-
efnasamnings. Máliö hefur
verið rætt viö formann og
varaformann Alþýöu-
flokksins og þingflokkur og
framkvæmdastjórn flokks-
ins hafa fjallað um þaö á
fundi. 1 gær var svo haldinn
fundur i flokksstjórninni,
þar sem máiið var á dag-
skrá.
Niöurstaöa allra þessara
funda var sú aö halda
óbreyttri þeirri stefnu, sem
mörkuö var af hálfu Al-
þýöuflokksins, þegar nú-
verandi stjórn var mynduö,
en þá afréö Alþýöuflokkur-
inn aö taka ekki þátt I
stjórnarmynduninni eins
og kunnugt er. Þetta kemur
m.a. fram i viðtali, sem Al-
[\ýöublaöiö átti viö Gylfa Þ.
Gislason, formann Alþýðu-
flokksins og birt er á bls. 3 i
blaöinu i dag.
BYGGING 1000
MANNA MÖTU-
NEYTIS RÁD-
GERD A KEFLA-
VIKURVELLI!
ÁFRAM-
HALDANDI
UNDIR-
BÚNINGUR
AÐ LANG-
DVÓL
VARNAR-
LIÐSINS
Hjá varnarliðinu á
Keflavikurflugvelli er nú
verið að athuga ráða-
gerðir um að hefja bygg-
ingu nýs mötuneytis, sem
á að geta annað 1000
manns i mat i einu. At-
hugun þessi stendur yfir
nú og mun m.a. verða
rætt við islenzka fram-
kvæmdaraðila um málið
til þess að kanna kostnað-
arhliðina.
Páll Asgeir Tryggva-
son.deildarstjóri staðfesti
það I viðtali við Alþýöu-
blaðið i gær, að fram-
kvæmd þessi væri ekki á
skrá yfir framkvæmdir,
sem islenzk stjórnvöld
hafa leyft á þessu ári.
Sagði hann i viötali við
blaðið, að varnarliðs-
menn sæktu venjulega
ekki um framkvæmda-
leyfið til islenzkra stjórn-
valda fyrr en öll nauösyn-
leg leyfi væru fengin frá
hermálayfirvöldunum
sjálfum, þ.á m. fjárveit-
ing, en hana verður að fá
frá Bandarikjaþingi til
flestra framkvæmda á
Vellinum, en þó ekki
allra. Sumar fram-
kvæmdir, svo sem eins og
við klúbba Varnarliðs-
manna, eru fjármagnað-
ar af reksturshagnaöi
verzlana og skemmti-
staða, sem reknir eru
fyrir varnarliðsmenn, og
þarf ekkert sérstakt leyfi
fyrir ráðstöfun þess fjár
frá Bandarikjaþingi.
Páll Asgeir Tryggvason
sagði einnig i viðtali við
blaðið, að fundur sá með
fulltrúum varnarliðsins
og varnarmálanefndinni
islenzku, þar sem teknar
væru fyrir umsóknir um
framkvæmdir varnar-
liðsins, væri haldinn einu
sinni á ári — i október-
mánuði. Næsti fundui; þar
sem slikar leyfisveitingar
verða teknar fyrir, verð-
ur þvi haldinn eftir tæpa 5
mánuði og eru Banda-
rikjamenn nú óðum að
kanna ýmsa fram-
kvæmdamöguleika.
BANKAUTIBUIN: BANKARNIR
BERJAST GEGN NEFNUINNI
LUNDI
Þrátt fyrir gosið i
Heimaey eru Eyjamenn
staðráðnir i þvi að viðhalda
þeim gamla og góða sið, að
sækja i úteyjar til eggja-
töku og lundaveiði. Menn
eru þegar komnir i Hellis-
ey, og i fyrradag kom það-
an færandi hendi, Hlöðver
Johnsen með 300 svart-
fuglsegg sem voru vel þeg-
in i mötuneytum björgun-
arliðsins i Eyjum.
Jónas Sigurðsson, sem er
hvað þekktastur úteyja-
maður Vestmannaeyinga,
kom i gær til Eyja, og var
hann að undirbúa sig að
halda út i Alsey.
LAUGARDAGS- VIÐTALIÐ
Á baksíðu er rætt við Eddu
Þórarinsdóttur leikkonu, en hún
leikur aðalhlutverkið í söngleiknum
KABARETT
Bankaútibúum hefur
fjölgað mikið á undanförn-
um árum, og alltof mikið
að dómi margra, þar á
meðal „bankanefndarinn-
ar” svokölluöu. Hún vill
fækka peningastofnunum i
landinu um helming,
Þetta kemur fram i við-
tali við Kristleif Jónsson,
bankastjóra Samvinnu-
bankans i nýútkomnum
Hlyni, blaöi samvinnu-
manna. Þar segir Kristleif-
ur, aö Samvinnubankinn
hafi ekki fengiö að opna
eins mörg útibú og hann
sótti um.
— Það hefur verið mjög
mikil tregða á þvi, að slik
leyfi væru veitt, og erfitt að
fá þau, enda höfum við á
undanförnum árum sótt
um leyfi fyrir fleiri útibú-
um en við höfum fengið að
opna, segir Kristleifur.
Þetta segir hann ástæðuna
fyrir þvi að Samvinnu-
bankinn hefur ekki útibú á
mörgum stærri staðanna
úti á landi, til dæmis á
Akureyri. — Það eru þegar
fjögur bankaútibú á Akur-
eyri, svo að það er engin
von um að fá leyfi til að
stofna útibú þar.
Leyfi til stofnunar
bankaútibúa veitir Seðla-
bankinn og sá ráðherra
sem fer með bankamál.
BIÐ
Ráðherraskiptin
munu dragast i það
minnsta fram undir
mánaðamót. Björn
Jónsson, tilvonandi ráð-
herra, er um þessar
mundir I Sovétrikjunum
i boði sovézku verka-
lýðsfélaganna. Hann
kemur til landsins upp
úr 25. mai.
BJARNI: HEF ENGA TRU A SAM-
RUNA VIÐ HANNIBALSARMINN
„Þetta þýðir einfaldlega,
að við viljum hafa ihlutun
um gang mála,” sagði
Bjarni Guðnason, alþ.m.,
þégar Alþ.bl. hafði sam-
band við hann i gær vegna
eftirfarandi i samþykkt fé-
lagsfundar Samtaka frjáls-
lyndra i Reykjavik. ,,Ef
rikisstjórnin óskar eftir
stuðningi SF, telur fundur-
inn nauðsynlegt, að hún
taki upp viöræöur við þau
um samstarfsgrundvöll,
sem oyggist á traustri
framkvæmd stjórnarsátt-
málans.”
„Ráðherrastóll er okkur
ekkert atriöi i sjálfu sér,”
svaraði Bjarni, þegar
Alþ.bl. spurði hann, hvort
fyrir samtökum hans vekti
aö komast i rikisstjórnina.
„Við viljum aðeins að það
verði haft samráð viö okk-
ur um framvindu mála.
það þarf ekki nýjav. mál-
efnasamning tií.”
— Hvað ef rikisstjórnin
hunzar þessa ósk ykkar um
viðræður?
Það verður þá sem
fyrr, að við veröum að
meta málefnin hverju
sinni.
— En snúist þið gegn
stjórninni af þeirri ástæðu
einni saman?
— Við munum taka af-
stööu til málanna, þegar
þau koma fyrir.
— Sér þú fram á, að fé-
lag þitt og fylking Hanni-
bals og Björns nái saman
aftur?
— Um slikt hefur ekkert
verið rætt og ég hef enga
trú á þvi. Báöir aðilar eru
fegnir að hafa losnað hvor
viö annan. Það er gagn-
kvæm gleði, sagöi Bjarni
Guðnason að lokum.