Alþýðublaðið - 19.05.1973, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 19.05.1973, Blaðsíða 9
Iþróttir 2 HVAÐA LID VINNUR? HVAÐA LID FELLUR? Þessi mynd var tekin i lok tslandsmótsins i fyrra, og hun er mjög táknræn fyrir fallliðiö það ár, Viking. Framherji liðsins hefur misst af góðu tæki- færi, enn eitt tækifærið var farið í súginn, og Vikingur féll vegna mistaka sinna fyrir framan mark andstæðinganna. t dag byrjar knötturinn að rúlla að nýju, baráttan fyrir sigri, og baráttan gegn falli hefst á nýjan leik. Enginn veit hver hlýtur þau örlög að falla og hvaða liö stendur sigri hrósandi með bikarinn i höndunum. Þeirri spurningu verður ekki svarað fyrr en tugir leikja hafa farið fram, og kannski verður henni ekki svaraö fyrr en I siðasta leik mótsins, sunnu- daginn 16. september. M OVISSAN SJALDAN VERIÐ MEIRI Keppni 1. deildar íslandsmótsins hefst i dag. Eins og ætið áður er óvissa mikil um úrslit keppninnar, og kannski hefur óvissan aldrei verið meiri. Sviptingar hafa verið miklar hjá liöum i vor, sum hafa verið Iöldudal, sum hafa náð sér upp úr þeim öldudal, en önnur ekki. Komast þau yfir erfiðleikana, eða ekki? Siíkar spurningar eru nú uppi og ótal fleiri. En það sem verður þó lang forvitnilegast er útkoma þeirra liða sem fengið hafa erlendan þjálfara. Tekst þeim að rifa knattspyrnuna upp eða tekst þeim það ekki? Svarið fæst í sumar og haust. Af fyrrgreindum ástæðum er kannski heldur mikil dirfska að ætla sér að spá um úrslit i svo viðamikilli keppni. Slikt virðist kannski auðvelt eftirá, en i dag er það svo sannarlega erfitt. En við ætlum þó að gera tilraun, meira i gamni en alvöru. Röðin yrði þá eitthvað i likingu við þetta: 1. Vestmannaeyjar 2. Fram 3. Keflavik 4. Valur 5. Akranes 6. Akureyri 7. KR 8. Breiðablik IBV: Það þykir eflaust mörg- um að það sé bjartsýni að spá Vestmannaeyingum sigri. En það er langt i frá að svo sé. Ég hika ekki við að segja, að i liði tBV blundar sá mesti efniviður sem er að finna i islenzku liöi. Eyjamenn hafa verið seinir i gang á undanförnum árum vegna einangrunar sinnar. Þeir verða seinir i gang nú, en þó komast þeir fyrr i stuð en oft áður. Þegar Eyjamenn eru i stuði fær ekkert við þá ráðið. Afallið i byrjun ársins mun bara stappa i þá stálinu, og gera þá ákveðnari. Islandsmeistara- bikarinn verður með þvi fyrsta sem nýir landnemar taka með sér til Eyja. Fram: Traustasta lið 1. deildar. Það er pottþétt að Framarar blanda sér i baráttu efstu liðanna, en ég hef ekki þá trú að liðið taki Islandsbikarinn annað árið i röð. Ég spái liðinu 2. sæti i deildinni, og tel það lið liklegan kandidat i bikarnum. IBK: Sannarlega lið dagsins i dag. En hvað það endist, það er önnur saga. Ég hygg að Kefl- vikinga vanti enn neistann, en hann kemur kannski næsta ár, þvi þá mun liðið loks uppskera laun fyrir erfiði undanfarinna mánaða. Liðið mun lenda það ofarlega að það tryggi sér sæti i UEFA, og mun standa sig þar að vanda. Valur: Valsliðið mun verða i mótun i sumar, og þess vegna held ég að það fari ekki mikið upp fyrir miðja töflu. Vörnin mun ráða miklu um vel- gengnina i sumar, þvi i fram- linunni héfur liðið mann sem getur skorað mörkin sem gefa úrslit, Hermann Gunnarsson. Fróðlegt verður að sjá hvernig Rússanum tekst upp með Val, og einkum þó með samanburð i huga við Bretann hjá Kefl- vikingum og Skotann hjá IBV. lA:Skagamennerusem lokuð bók núna. Þeir hafa að öllum likindum misst Eyleif Haf- steinsson fyrir fullt og allt, en hafa fengið i staðinn þá Matt- hias Hallgrimsson og Harald Sturlaugsson heila. Rikarður Jónsson hyggst reyna nýja upp- stillingu, en hvað um það, ég held að Skagamenn verði að biða eitt árið enn úti i kuldan- um. ÍBA: Það tekur nýliða yfir- leitt tima að fóta sig i 1. deild, og ég held að Akureyringar verði þar engin undantekning. Þeir verða i fallhættu, en ég held að þeir sleppi við slikt. Það háir þeim kannski, að svo virðist sem efnilegir nýliðar komi sjaldan i dagsljósið fyrir norðan. KR:Það sama er að segja um KR og flest hinna liðanna, það er spurningamerki yfir liðinu. Það hefur i sinum röðum sterka og friska stráka, en kjölfestuna virðist vanta. Það vantar mann á borð við Eilert Schram. Breiöablik: Blikarnir hafa tollað i deildinni á dugnaðinum einum saman, auk þess sem mölin hefur gefið þeim nokkur stig. Ég hygg að sumariö nú verði sumar góðu liðanna, og samkvæmt minum kokkabók- um passar Breiðablik illa þar inn i . t lokin er rétt að birta töflu yfir leiki helgarinnar i 1. og 2. deild. 1. deild: Laugardagur: Laugardalsvöllur kl. 14. Fram-Akureyri. Sunnudagur: Keflavikurvöllur kl. 16. Keflavik-Akranes. Melavöllur kl. 20. Breiðablik-V alur Mánudagur: Laugardalsvöllur kl. 20. KR-Vestmannaeyjar. í 2. deild fara fram þrir leikir i dag, FH og Þróttur frá Nes- kaupstað leika i Hafnarfirði klukkan 16, Þróttur Reykjavík og Völsungur leika á Mela- vellinum klukkan 16 og Selfoss og Vikingur leika á Selfossi klukkan 16. 1 gærkvöld fór fram einn leikur, og er úrslita hans getið á öðrum stað i blaðinu. —SS. 1 I I $ £ '/r I $ I i l-Z u I I 3 $ & I I I V ÞEIR ERU AÐ KLÁRA Nú þegar knattspyrnan hjá okkur er aðhefjast fyrir alvöru, er deildarkeppninni að ljúka i flestum löndum álfunnar Það er helzt að Norðurlandaþjóðirnar iðki knattspyrnuna yfir sumartimann. tlrklit liggja þegar fyrir I mörgum löndum, og annars staöar er keppni alveg að ljúka. Skal hér getið helztu úrslita. 1 Englandi og Skotiandi eru úrslitin þegar kunn. Þar unnu Liverpool og Celtic, og Celtic vann reyndar það fágæta afrek að vinna skozku deildina I áttunda sinn I röð. i Vestur-Þýzkalandi hefur Bayern Munchen tryggt sér yfirburðasigur annaö árið I röð. Beckenbaucr og félagar hafa unnið svo til allt I vetur, aðeins Ajax vann þá auðveldlega, en Ajax hefur einmitt svo gott sem tryggt sér sigur I hollenzku deildarkcppninni enn cinu sinni. 1 Austur^Þýzkalandi er Dynamo Dresden með bezta stööu. Ujpest Dozsa stendur bezt að vigi I Ungverjalandi, Benfica vann portúgölsku deildina, FC Bruges vann þá belgisku og AC Milan stendur bezt að vigi I itölsku deildinni. Kannski dregur Fram eitt- hvað af þessum stórlöxum i Evrópukepninni. —SS. Leikmenn Bayern Munchen fagna enn einu markinu hjá Gerd Mullcr. Þessi frábæri leikmaður hefur meö mörkum sinum átt mcstan þátt i þvi að Bayern vann þýzku deildina annað áriö i röð. Hann gerði meira en helming af mörkum liösins. o Laugardagur 19. maí 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.