Alþýðublaðið - 19.05.1973, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 19.05.1973, Blaðsíða 8
LAUGARASBÍÖ Simi :I2«75 Síðasta lestarrániö (One more train to rob Afar spennandi og mjög skemmtileg bandartsk litkvik- mynd, gerö eftir skáldsögu Willi- * ams Roberts og segir frá óaldar- lýö á gullnámusvæðum Banda rikjannaá siöustu öld. Leikstjóri: Andrew V. McLaglen. Islenzkur texti. Aöalhlutverk George Peppard Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 12 ára. STJÖRNUBÍÓ Simi 18936 Hetjumar (The Horsemen) Islenzkur texti Stórfengleg og spennandi ný amerisk stórmynd i litum og Super-Panavision sem gerist i hrikalegum öræfum Afganistans. Gerð eftir skáldsögu Joseph Kessel. Leikstjóri: John Frankenheimer. Aðalhlutverk: Omar Sharif, Leigh Taylor Young, Jack Palance, David De. Sýnd kl. 5, 7 og 9 HÁSKÖLABÍÓ s.mi 22.4» Oscars-verðlaunamyndin Guðfaðirinn Myndin, sem slegið hefur öll met i aðsókn i flestum löndum. Aðalhlutverk: Marlon Brando, A1 Pacino, James Caan. Bönnuð innan 16 ára. Ekkert hlé. Sýnd kl. 5 og 8.30. HÆKKAÐ VERÐ ATH. breyttan sýningartfma. HAFNARBld 1,141 SOLDIER BLUE CÁNDICE BERGEN • PETER STRAUSS DONALD PLEASENCE Sérlega spennandi og viðburða- rik, bandarisk, Panavision-lit- mynd um átök við indiána og hrottalegar aðfarir hvita manns- ins i þeim átökum. Leikstjóri: Ralph Nelson: ISLENZKUR TEXTI. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 5, 9 og 11,15 TÖNABÍÓ Simi 31182 Listir & Losti The Music Lovers RUSSEL. Aðalhlutverk:) RICHARD CHAMBERLAIN,: GLENDA JACKSON (lék Elisa- betu Englandsdrottningu i sjón-, varpinu), Max Adrian, Christopher Gable. Stjórnandi Tónlistar: ANDRÉ' Prévin Sýnishorn úr nokkrum dómum er myndin hefur hlotið erlendis: „Kvikmynd, sem einungis veg-ður skilin sem afrek manns, er drukkið hefur sig ölvaðan af áhrifamætti þeirrar tjáningar- listar, er hann hefur fullkomlega á valdi sinu... (R.S. Life Maga- zine) „Þetta er sannast sagt frábær kvikmynd. Að minum dómi er KEN RUSSEL snillingur..” (R.R. New York Sunday News) Sýnd kl. 5. og 9 A . T . H . Kvikmyndin er stranglega bönnuð börnum innan 16 ára tslenzkur texti KÓPAV06SBÍÓ simi 4.985 Sigurvegarinn Winning Æsispennandi, vel leikin og tekin bandarisk kvikmynd um hættur þær, sem samfara eru keppni i íappakstri. Aðalhlutverk: Paul Newman, Joanne Woodward, Richard Thomas, Robert Wagner. tslenzkur texti. Sndursýnd kl. 5,15 og 9. EIKTÉIAG YKIAVÍK Flóin I kvöld uppselt, þriðjudag uppselt. Miðvikudag uppselt. Fimmtudag uppselt. Næst föstu- dag. Loki þóSunnudag kl. 15. 6. sýning Gul kort gilda. Péturog Rúna sunnudag kl. 20.30. Aðgöngumiðasalan i Iönó er opin frá kl. 14. Simi 16620. &ÞJÖÐLEIKHÚSHI Lausnargjaldið fimmta sýning i kvöld Söngleikurinn Kabarett eftir Joe Masteroff og John Kander. Þýðandi: Óskar Ingi- marsson. Dansasmiður: John Grant. Leikmyndir: Ekkehard Kröhn. Hljómsveitarstj.: Garðar Cortez. Leikstjóri: Karl Vibach. Frumsýning sunnudag kl. 20. önnur sýning þriðjudag kl. 20. Sjö stelpur sýning miðvikudag ki. 20. Lausnargjaldið sjötta sýning fimmtudag kl. 20. Kabarett þriöja sýning föstudag kl. 20. Miðasala 13.15 til 20. Simi 1-1200. Ferða félagsferðir 18/5. Þórsmerkurferð Sunnudagsgöngur 20/5. Kl. 9,30 Strönd Flóans. Verð 500 kr. Kl. 13 Fagridalur — Langahlið Verð 400 kr. Ferðafélag Islands, simar 19533 og 11798. íþróttir 1 KVENNAKNATISPYRNA A STOFN í tilefni 65 ára afmælis Vikings fyrir skömmu, kom út blað á vegum félagsins. Þar er m.a. að finna fróðlega grein um upphaf kvennaknatt- spyrnu hér á landi. Fer þessi grein hér á eftir. Knattspyrna var lengi vel ekki talin iþrótt við hæfi kvenna. Þvi var talað um „fyrstu kvennaliðin” þegar stofnaö var tilskipulegrarþátttökukvenna i knattspyrnunni upp úr 1970. Þetta er alls ekki rétt, þvi fyrstu skipulögöu kvennaæfingarnar i knattspyrnu hér á landi voru á vegum félagsins okkar Vikings, fyrir nærfellt 60 árum! Æfingunum stjórnaöi að sjálf- sögðu frumherjinn Axel Andrésson. Þetta mun vera á fárra vit- orpi, og liklega er þessa hvergi getið á prenti nema i endur- minningum leikkonunnar þekktu, önnu Borg (Anna Borgs erindringer, bls. 14-15), en hún var ein þeirra mörgu stúlkna sem tóku þátt i þessum æfingum. Margar stúlknanna urðu siðar þekktar frúr i Reykjavik og viðar, og við uröum svo heppnir að ná tali af einni þeirra, Ast- hildi Jósefsdóttur Bernhöft.Hún varð góðfúslega við þeirri beiðni að rifja upp nokkrar endur- minningar frá þessum dögum. „Þetta mun liklega hafa verið i kringum 1915. Við vorum anzi margar stúlkur úr miðbænum sem æfðum hjá honum Axel Andréssyni, og ég held ábyggi- lega að við höfum allar verið skrifaðar inn i Viking. Það var full alvara hjá okkur, að stofna fyrsta kvennaknattspyrnulið landsins.” Asthildur sagðist ekki muna þetta alveg i smáatriðum, til þess væri of langt um liðið. Stúlkurnar voru mjög margar, helit lið. I þeim hópi voru Svava Blöndal, Ragnheiður og Elin Hafstein, dætur Hannesar Hf- stein, Margrét Thors, dóttir Thor Thors, þær Emilia og Anna Borg og fleiri og fleiri. I þessum hópi voru m.a. sjö stúlkur sem alltaf héldu saman og gengu gjarnan undir nafninu Sjö- stjarnan. Æfingar fóru fram á Mela- vellinum, sem þá var nýr. Strákarnir úr Vikingi fengu ekki að vera inni á vellinum, en þess i stað lágu þeir meðfram vellinum og kiktu undir grind- verkið. Gerðu þeir óspart grin að okkur, enda voru tilburðirnir oft ekkert sérlega glæsilegir. Hann Axel var lifið og slálin i þessu, og hann var ófeiminn að r. - Leikkonan þekkta, Anna BorgT var i fyrsta isienzka kvenna- knattspyrnuliöinu. skamma okkur eða gefa okkur gullhamra, allt eftir þvi hvað við átti. Hann var til dæmis mjög hrifinn þegar einhverri stúlkunni tókst að spyrna bolt- anum hátt i loft upp! Annars tók hann þetta mjög alvarlega eins og viö stúlkurnar”. Þessar æfingar stóðu yfir i 3-4 mánuði, og var komið svo langt, að búið var að ákveða keppnis- búning, en frá þvi segir Anna Borg i endurminningum sinum. „Seint um siður urðum við ásáttar um rauðar matrósa- blússur, með bláum eilitið hvit- bridduðum kraga, og bláar leik- fimiblússur”. Þess má geta, að mikið hafi verið rifizt um það, hvernig búningurinn ætti að vera. En brátt fór að koma babb i bátinn, og stúlkurnar fóru að tínast út úr ein og ein. Það kom nefnilega i ljós, að kvennaknatt- spyrnan átti sina féndur, þótt þeir ynnu leynt. Alls konar sögum um óhollustu hennar var á kreik komið, svo sem að stúlk- urnar fengju stórar lappir af þvi að leika knattspyrnu og þær gætu kannski ekki eignast börn seinna meir. Margar stúlkn- anna voru i dansi jafnhliða, og þar sem þær óttuðust að fá stórar lappir, sem að sjálfsögðu var óheppilegt fyrir dans- mentina, fórnuðu þær knatt- spyrnunni. Þannig gekk þetta unz markvörðurinn stóð einn eftir, og þar með var lokið sögu þessa „fyrsta kvennaknatt- spyrnuliðs á Islandi”. „Það voru þó sárabætur fyrir okkur stúlkurnar, að þar sem við vorum skrifaðar i Viking, fengum við ókeypis á Vikings- böllin”, segir Asthildur. Þá var nefnilega siður hjá félögunum að slá upp balli i Bárunni eftir leiki, og þangað flykktust stúlk- urnar, sem allar höfðu að sjálf- sögðu komið á völlinn til að hvetja Viking. Þess má geta hér til gamans, að margar stúlknanna æfðu körfuknattleik á Hólavalla- túninu um 1920, en skozkur maður hafði sett þar upp körfu- hringi. Þetta var tugum ára áður en körfuknattleikur var almennt iðkaður hér. Þá lék Ásthildur golf með skozku vina- fólki sinu á Þingvöllum 1923, en ekki var farið að iðka golf hér af alvöru fyrr en mörgum árum siðar. VÍKINGUR REIÐ Á Mm BYRJUNIN HELDUR AUM tslandsmótið i knattspyrnu hófst I gærkvöld. Fyrsti leikur mótsins var milli Armanns og Hauka i 2. deiid, og lauk ieiknum með jafntefli, 1:1. Leikið var á Melavellinum. Haukarnir voru öllu friskari i gærkvöld, og það var réttlátt, að þeir skyldu taka forystuna á 50. minútu, er Arnór Guðmundsson skoraði. Eftir þetta sóttu Haukarnir mun meira og áttu ótal tækifæri sem ekki nýttust. Armenningar fengu sárafá tækifæri, en þeim tókst að nýta eitt þeirra. Það var á siðustu sekúndum leiksins, að Ingi Stefánsson jafnaði eftir að hafa fengið knöttinn úr aukaspyrnu. Leikurinn var heldur af lélegra taginu, og það sem sást af knatt- spyrnu var mestmegnis af hálfu Haukanna. Af leik liðanna er helzt aö dæma, að hvorugt þeirra komi til meö að blanda sér f toppbaráttuna I 2. deild i ár. —SS. Golfmenn í ströngu tslenzkir golfmenn standa i ströngu þessa dagana. Um siöustu helgi fór fram fyrsta opna keppni ársins, og um þessa helgi fer fram sú önnur i röðinni. Er þaö Þotukeppni Keilis, og fer hún fram á Hvaleyrarholti. Leiknar eru 36holur, 18 í dag og 18 á morgun. Þátltaka er mikil, og vonast er eftir betra veðri en golfmenn hrepptu um siðustu helgi. Meðal keppenda f dag er sigurvegarinn þá, Þorbjörn Kjær- bo (sjá M mynd). Keppnin gefur stig til landsliðs. Þess skal getiö hér, að golfþáttur Einars Guðnasonar fellur niðuridag. —SS. Laugardagur 19. maí 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.