Alþýðublaðið - 19.05.1973, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 19.05.1973, Blaðsíða 12
INNLÁNSVIÐSKIPTI LEIfi TIL LÁNSVIÐSKIPTÍ WúNAÐARBANK m/ ÍSLANDS KOPAVOGS APÚTEK Opið öll kvöld til kl. 7, nema laugardága til kl. 2, sunnudaga milli kl. 1 og 3-sími40102. LAUGARDAGS- VIÐTALIÐ VIÐ EDDU ÞÓRARINSDÓTTUR, ,,Þetta hafa verið óskaplega erfiðar æfing- ar, og ég er bara hræddusf um, að allt fari í vitleysu á aðalæfingunni á morg- un, þegar mannskapurinn verður útsofinn og af- slappaður". Þetta sagði Edda Þórarinsdóttir leik- kona, þegar blaðamaður Alþýðublaðsins ræddi við hana inni á sviði Þjóðleik- hússins eftir æfingu á söngleiknum Kabarett t gær, og það var varla hægt að segja að hún væri orðin Eddaaftur, — hún virtist ekki vera alveg laus úr viðjum óskars- verðlaunahlutverksins, hlutverks Sally Bowles. Við skutumst inn i búnings- herbergi, og undan hárkollu Sallyar kom greinilega Edda Þórarinsdóttir — um það var ekki að villast. — Þú varst erlendis i vetur Edda, og komst gagngert til landsins til að æfa þetta hlut- verk. — Já, það er rétt. Ég fór eftir áramótin á leikskóla i Manchester, og hafði ætlað að vera þar til vorsins. En Sveinn Einarsson leikhússtjóri orðaöi það við mig þegar ég hætti að leika i Túskildingsóperunni, að ég tæki þetta hlutverk, og þvi gat ég að sjálfsögðu ekki neitað. — Þú hefur vitanlega séð myndina Kabarett i Englandi? — Ég notaði tækifæriö til að grafa myndina upp, en þegar ég byrjaði að æfa hlutverkið kom i ljós, að það var mér fjötur um fót að hafa séð hanajá fyrstu æfingunum var túlkun Lisu Minelli mér ofarlega i huga, en mér tókst þó fljótlega að losa mig úr þeim viðjum. En eftir á sé ég, að ég hef grætt á að sjá myndina, þvi andrúmsloftið i Berlin kemur þar mjög vel fram. Samt sem áður held ég að ég fari ekki að sjá myndina aft- ur verði hún sýnd hérna á með- an sýningar standa yfir i leik- húsinu. — Þú nefndir, að æfingar hafi verið mjög strangar. — Æfingarnar hófust i byrjun april en það er mjög stutt siöan leikstjórinn, Karl Vibach, kom til landsins. A þessum tima hef- ur hann gert kraftaverk, en þetta var lika erfitt. Núna siö- ustu vikuna hefur verið æft tólf tima á dag, og það varð að fella niður kvöldsýningar að mestu alla vikuna til þess að gefa okk- ur pláss á sviðinu. En erfiðast hefur þó verið hjá dönsurunum og Bessa, sem leikur sviðs- meistarann, þvi mjög mikill hluti leiksins eru mjög flóknir dansar. Tæknihliðin er lika mjög erfið og viðamikil, og hlut- verk sviðsmannanna stórt. — Segðu mér eitthvað nánar frá Kabarett. — Kabarett gerist i Berlin ár- ið 1930, á uppgangstimum nazista, þegar borgin er fræg fyrir næturlif. Borginni er lýst með augum bandarisks rithöf- undar, sem raunverulega skrif- aði sögukafla um dvöl sina i Berlin, en siðan var samið leik- rit upp úr þessum söguköflum, og úr þvi leikriti var svo saminn söngleikurinn. Þá var „kabarettinum” bætt inn i, en hann tengir frásögnina saman og dregur upp kaldhæðnislega mynd af atburðunum. Sally Bowles er söngkona á næturklúbb, og hana dreymir um að veröa fræg. En i leikslok fer hún i hundana, og það má segja, að hún sé tákn þess ljúfa lifs Berlinar, sem leið undir lok. En ein persónan er ungur nazisti, sem Hákon Waage leik- ur, og hann er á hraðri uppleið, þegar leiknum lýkur, tákn upp- gangs Nazista á þessum timum. — Þetta er þá kannski eitt- hvað meira en venjulegur söng- leikur? — Hann er það tvimælalaust, og Vibach hefur mjög skemmti- legar hugmyndir um uppfærsl- una. Eins og þú veizt hættir | SENDI8ILASTÖOIN Hf LEIKKONU söngleikjum til að vera væmmr, en Vibach forðast allt slikt eins og heitan eldinn, hikar ekki við aðstrikaalla væmni út úr hand- ritinu. Arangurinn er sá, að sögn þeirra, sem hafa horft á æfingar úr salnum, að það er enginn dauður punktur i leikn- um, — áhorfendum á aldrei að leiðast. —■ Finnst þér vera ádeilu- broddur i verkinu? — Sjálfar frásagnir rithöf- undarins eru hlutlausar, og hann forðast að fella dóma. En i söngleiknum eru ýmis áhrifa- mikil atriði, sem má túlka sem ádeilu, — og ættu allavega að koma áhorfendum til aö hugsa. Þegar hér er komið sögu er Edda setzt við spegilinn og farin að verka framan úr sér sminkið, og ég hugsa mér til hreyfings, með orð Eddu um allar ströngu æfingarnar i huga, — og ekki veitir henni af góðri hvild fyrir eldraunina, — aðalæfinguna klukkan tvö i dag. Þorri

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.